Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síbrotamaður fangelsaður Karlmaður á fertugsaldri sem stöðvaður var við akstur á Bústaðavegi í fyrrakvöld reyndist bæði próflaus og í annarlegu ástandi. Hann var í framhaldinu handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Maðurinn var jafnframt grunaður um nokkur innbrot og reyndist sá grunur á rökum reistur, að sögn löreglu. Eftir yfirheyrslu í gær var maðurinn færður í héraðsdóm og síðan í fangelsi. Hann hefur hafið afplánun vegna annarra mála en um er að ræða eftirstöðvar fangelsisvistar. 21.7.2011 12:19
Hvalaskoðunarmenn styðja ekki þvinganir Hvalaskoðunarmenn styðja ekki þvinganir eins og þær sem bandarísk stjórnvöld íhuga að beita Íslendinga vegna hvalveiða. Þeir segja þó veiðarnar fæli frá fjölda ferðamanna á hverju ári. 21.7.2011 12:17
Ögmundur á móti því að menn verði sektaðir á staðnum Innanríkisráðherra hefur miklar efasemdir um að rétt sé að fara að fordæmi Svía og veita lögreglunni heimildir til að sekta menn á staðnum fyrir sóðaskap. 21.7.2011 12:00
Ákvörðun um ákæru tekin innan skamms Rannsókn lögreglu á andláti ungrar konu sem var ekið með í farangursgeymslu fólksbifreiðar á Landspítalann í Fossvogi í vor er lokið. 21.7.2011 11:43
Yfir 10 þúsund vilja leiðréttingu og afnám verðtryggingar Rúmlega 10 þúsundir undirskrifta hafa safnast í undirskriftasöfnun Hagsmunasamtaka heimilanna um leiðréttingu lána og afnám verðtryggingar. Tvær vikur er frá því að undirskriftasöfnunin hófst. 21.7.2011 11:18
Ráðning Bjarna í ráðuneytið var lögleg Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi ekki brotið stjórnsýslulög þegar hann réð Bjarna Harðarson í starf upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. 21.7.2011 11:16
Íslensk kona í Ísrael segir araba hafa Össur að fífli „Í Ísrael mega menn ekki slaka á í neinu hvað varðar öryggisgæslu og svo kemur Össur Skarphéðinsson í bílalest með Fatah (og líklega Hamas) gaurum og heldur að hann fái einhverja sérmeðferð,“ segir Ólöf Einarsdóttir sem er búsett í Ísrel ásamt eiginmanni sínum og fjölskyldu en eiginmaðurinn er ísraelskur gyðingur. Tilefnið er nýleg heimsókn Össurar Skarhéðinssonar, utanríkisráðherra, til Miðausturlanda þegar hann heimsótti meðal annars Gazaströndina. Ólöf segir Össur sýna skilningsleysi og vera barnalegan í yfirlýsingum sínum um málefni Ísraela og Palestínumanna. Arabar hafi hann að fífli. 21.7.2011 10:55
Útför Sævars Ciesielski fer fram á þriðjudag Ákveðið hefur verið að útför Sævars Ciesielski verði gerð frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 2. ágúst. Séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, hefur verið beðinn um að annast útförina. 21.7.2011 09:31
Brot Ólafs Skúlasonar gleymast ekki þrátt fyrir bætur "Ég hef aldrei farið fram á einhverja peninga frá kirkjunni,“ segir Stefanía Þorgrímsdóttir, ein kvennanna sem sakað hafa Ólaf Skúlason fyrrum biskup um kynferðisbrot. "Það er alltaf afstætt hvað fólk telur sanngjarnt. Þessu máli lauk fyrir mér þegar rannsóknarnefndin skilaði skýrslunni. Þessar bætur eru alfarið boð kirkjunnar sem var ákveðið á aukakirkjuþingi í vor,“ segir Stefanía í Fréttablaðinu í dag. 21.7.2011 09:07
Óttast ekki hótanir vegna hvalveiðanna Íslensk stjórnvöld grafa undan markmiðum alþjóðlegra sáttmála um bann við hvalveiðum að mati bandaríska viðskiptaráðherrans. Hann leggur til við Barack Obama Bandaríkjaforseta að Ísland verði beitt þvingunaraðgerðum vegna hvalveiða. 21.7.2011 09:00
Má heita Maxima Mannanafnanefnd hefur heimilað kvenmannsnafnið Maxima og hefur það verið fært á mannanafnaskrá. Í úrskurði mannanafnanefndar frá 1. júlí, sem birtur var nýlega birtur, kemur fram að eiginnafnið Maxima taki íslenskri beygingu í eignarfalli teljist að öðru leyti uppfylla ákvæði laga um mannanöfn. Kvenmannsnöfnin Alexis og Bjarný voru einnig heimiluð. 21.7.2011 08:57
Fjöldi ferðamanna á landsbyggðinni í slöku meðallagi Fjöldi ferðamanna á landsbyggðinni viðrist vera í slöku meðallagi þrátt fyrir fjölgun erlendra ferðamanna til landsins, samkvæmt tölum Ferðamálastofu. 21.7.2011 07:52
Norsk loðnuskip landa á Norðfirði og Eskifirði Fjögur norsk loðnuskip eru nú á leið til landsins til að landa afla sínum á Norðfirði og Eskifirði. 21.7.2011 07:49
Vegurinn um Múlakvísl opinn að nýju Almannavarnir lokuðu þjóðvegi eitt, um Mýrdalssand í nótt á meðan ástand Múlakvíslar var kannað nánar. Vegurinn var svo opnaður að nýju eftir lokun í klukkutíma. 21.7.2011 07:36
Sóttu lítinn handfærabát eftir að vélin í honum bilaði Björgunarskip Landsbjargar frá Grindavík sótti í gækvöldi lítinn handfærabát, eftir að vélin í honum bilaði. 21.7.2011 07:24
Eldur kviknaði í íbúð í Mörkinni í nótt Eldur kviknaði í íbúð í leiguhúsnæði í Mörkinni í Reykjavík um fjögur leitið í nótt. Íbúinn vaknaði og kallaði á slökkvilið. 21.7.2011 07:14
Minnka túnin og spara sláttinn Skoða á hvernig minnka má tún í Reykjavíkurborg. „Í stað mikilla grasflæma kæmu svæði með sjálfbærum plöntum sem sleppa minna af frjókornum út í andrúmsloftið. Markmiðið er að draga úr frjókornamagni, fegra umhverfið og minnka kostnað vegna grassláttar,“ segir í tilkynningu frá umhverfissviði. 21.7.2011 07:00
Skilríkjalaus í gæsluvarðhaldi Erlendur maður, sem verið hefur í haldi lögreglunnar á Sauðárkróki, hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Hann sætir nú gæslu í fangelsinu á Akureyri. Umræddur maður er grunaður um að hafa komið ólöglega inn í landið. 21.7.2011 06:30
Jafnvel skipin lyfta sér á kreik við þjóðhátíðarlög Skipalyftan í Vestmannaeyjum var tekin í notkun á nýjan leik í gær, eftir fimm ára hlé, þegar Kap II var hífður upp. 21.7.2011 06:00
Pósturinn bregst við nýjum tímum Rekstrarumhverfi Íslandspósts hefur breyst mikið á skömmum tíma og mun taka enn frekari breytingum á næstu árum. Stóra spurningin er hvort póstþjónusta fyrir alla landsmenn, fimm daga vikunnar, sé sjálfbær til frambúðar. 21.7.2011 05:30
3.200 athugasemdir við frumvarpsdrögin Fulltrúar í Stjórnlagaráði hófu í gær umræður um drög að frumvarpi um nýja stjórnarskrá. Fyrri umræða klárast í þessari viku og er vonast til þess að frumvarpi verði skilað til forseta Alþingis 29. júlí. 21.7.2011 05:00
Aukin leiðni í Múlakvísl og órói í Mýrdalsjökli Í gærkvöldi og nótt hefur leiðni aukist í Múlakvísl og Veðurstofan og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafa fylgst náið með ástandinu á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. 21.7.2011 02:03
Bensínverð nær nýjum hæðum Bensínverð hefur náð nýjum hæðum eftir síðustu hækkanir. Fjölskyldufaðir á leið í ferðalag segir hærra eldsneytisverð gera það að verkum að hann stoppi lengur á hverjum stað og keyri ekki eins mikið. 20.7.2011 20:30
Millistjórnendur betur launaðir en bankastjóri vegna launastefnu Ríkið verður að vera samkeppnishæft við einkageirann til lengri tíma þegar kemur að launum, segir Fjármálaráðherra. Millistjórnendur eru betur launaðir en bankastjóri Landsbankans vegna launastefnu ríkisins. 20.7.2011 19:30
Störfum fjölgar ekki, atvinnuleysi enn mikið Störfum hefur ekki fjölgað í hagkerfinu, þrátt fyrir ítrekaðar yfirlýsingar um að efnahagsbatinn sé hafinn. Óvíst er hvort fyrirtæki ráði fleiri starfsmenn á næstu misserum, jafnvel þó hagvöxtur taki kipp. 20.7.2011 19:15
Vonast til að samningar verði undirritaðir fyrir vikulok Drög eru tilbúin að samningum milli kirkju og þeirra fjögurra kvenna sem sakað hafa Ólaf Skúlason, fyrrum biskup Íslands, um kynferðisbrot. Samkvæmt Magnúsi Kristjánssyni, formanni nefndar sem stóð að samningagerðinni, er vonast til að þeir verði undirritaðir í vikunni. 20.7.2011 18:46
Fundu fíkniefni og þýfi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi níu húsleitir í Hafnarfirði fyrir helgina. Lagt var hald á talsvert af fíkniefnum, m.a. nokkra tugi kannabisplantna, tæplega 100 grömm af amfetamíni og rúmlega 200 grömm af hassi. 20.7.2011 16:57
Yoko Ono treður upp á Iceland Airwaves Íslandsvinirnir í Yoko Ono Plastic Ono Band með Yoko Ono fremsta í broddi fylkingar munu kom fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í október. Hljómsveitin kom saman í Reykjavík í október í fyrra til að minnast 70 ára afmælis John Lennon. 20.7.2011 16:34
Ríkisstjórnin þakklát fyrir markvissar aðgerðir Ríkisstjórnin sendir Vegagerðinni, Almannavörnum ríkisins, lögreglunni, björgunarsveitum, vísindamönnum, sveitarstjórnum á viðkomandi svæði sem og öllum þeim fjölmörgu aðilum öðrum sem komu að aðgerðum vegna hlaupsins í Múlakvísl, kærar þakkir fyrir skjótar og markvissar aðgerðir til að tryggja öryggi vegfarenda og koma á vegsambandi yfir fljótið á ný, líkt og segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 20.7.2011 16:31
Tvær aftanákeyrslur með stuttu millibili Tvær aftánkeyrslur urðu á Miklubraut við Klambratún með skömmu millibili á fimmta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu slasaðist enginn í árekstrunum og engar tafir urðu á umferð. Bjart var úti og er líklegt að ökumenn hafi blindast af sólinni. 20.7.2011 16:30
Jón undrast aðgerðir Bandaríkjamanna Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lýsir yfir undrun sinni á ákvörðun bandaríska viðskiptaráðuneytisins að mæla með því að gripið verði til gerða gagnvart Íslandi vegna hvalveiða hér við land. Hvalveiðarnar séu byggðar á traustum vísindalegum grunni. 20.7.2011 15:02
Beita refsiaðgerðum gegn Íslendingum vegna hvalveiða Bandaríkjastjórn hyggst lýsa yfir refsiaðgerðum gegn Íslendingum vegna hvalveiða síðar í dag. Um er að ræða þingunarúrræði sem beitt verður gegn þjóðum sem stunda hvalveiðar. Það er alþjóðlega fréttastofan AP sem greinir frá þessu. 20.7.2011 14:50
Lést eftir bifhjólaslys á Skaga Maðurinn sem lenti í bifhjólaslysi við bæinn Víkur á Skaga þann 12. júlí lést á Landspítlanum í gær. Hann hét Árni S. Karlsson og var búsettur að Víkum ásamt systkinum sínum. Árni var fæddur 24. september 1950 og var ókvæntur og barnlaus. 20.7.2011 14:39
Læstur inni í fimm klukkustundir Starfsmaður meðferðarheimilis í Skagafirði sem fjórir unglingsdrengir réðust á um helgina hefur lagt fram kæru. Eftir árásina læstu drengirnir starfsmanninn inni í allt að fimm klukkustundir, stálu peningum og struku á bíl í eigu meðferðarheimilisins. 20.7.2011 14:09
Á batavegi eftir bifhjólaslys Karlmaður sem lenti í bifhjólaslysi í Kópvogi aðfaranótt föstudags er á batavegi, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild. Eftir slysið var manninum haldið sofandi i öndunarvél. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær maður verður útskrifaður af gjörgæsludeild. 20.7.2011 13:06
Fleiri sem vilja ekki rekstur spilavíta hér á landi Samkvæmt nýrri könnun MMR fjölgar í hópi þeirra sem segjast andvíg því að rekstur spilavíta verði leyfður á Íslandi. Yfir 70 prósent karla undir þrítugu eru fylgjandi rekstri spilavíta. 20.7.2011 12:58
Síðustu tvær vikur fengsælar Eftir frekar dræma laxveiði framan af sumri virðist sem að veiðin sé að taka við sér. Útlit er fyrir að veiðin í Norðurá í Borgarfirði verði svipuð og í fyrra. 20.7.2011 12:43
Landsbankinn áfram í eigu ríkisins Fjármálaráðherra segir engin áform um að einkavæða Landsbankann, en minni áhersla er lögð á að halda hlutunum í Arion og Íslandsbanka. Hann telur ólíklegt að takist að vinda ofan af eign ríkisins í Landsbankanum áður en Bankasýslan lýkur störfum. 20.7.2011 12:32
Eðlilegt að leyfa innflutning á lambakjöt Það er ekki hægt að hafa íslenska neytendur í fangamúrum frá evrópskum lambakjötsmarkaði þegar íslenskir bændur eru virkir þáttakendur á honum segir þingmaður Samfylkingarinnar. 20.7.2011 12:12
Umræða um drög að nýrri stjórnarskrá hefst í dag Fyrsta umræða stjórnlagaráðs um drög að nýrri stjórnarskrá sem lögð voru fram fyrr í vikunni hefst í dag. Drögin telja alls 111 stjórnarskrárákvæði og eru í níu köflum. Frumvarp til nýrrar stjórnarskrár verður afhent í lok mánaðarins. 20.7.2011 11:45
Lilja Mósesdóttir fær ekki tíma hjá lækni Lilja Mósesdóttir, þingmaður utan þingflokka, fær ekki tíma hjá heimilislækni. Hún veltir fyrir sér hvort einungis skattgreiðendur eigi að njóta velferðarkerfis. Hingað til hafi hún glöð borgað skatta. 20.7.2011 11:35
200 þúsund króna gjafabréf dregið út í dag Dregið verður út í Facebook-leik Vísis klukkan 18 í dag en hann hefur staðið yfir í tvær vikur. Þátttakendur þurfa að smella á like á Vísi á Facebook og geta skráð sig svo í leikinn í kjölfarið. 20.7.2011 11:12
Útlendingur af óljósum uppruna úrskurðaður í varðhald Útlendingur af óljósum uppruna var úrskurðaður í allt að sjö daga gæsluvarðhald í Héraðsdómi Norðurlands Vestra í gær, grunaður um að hafa komið ólöglega til landsins. 20.7.2011 10:50
Styttist í druslugöngur Druslugöngur verður farnar í Reykjavík, Reykjanesbæ og á Ísafirði á laugardaginn. Markmiðið er uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi. 20.7.2011 10:39
Innbrot á pizzastað: Kannski búinn að horfa á of marga lögguþætti "Við erum búin að vera þarna í tvö ár og maður er búinn að vera tiltölulega öruggur þarna þann tíma - svo það er svolítið skrítið að lenda í þessu,“ segir leikarinn Ellert A. Ingimundarson sem rekur pizzastaðinn Eldofninn í Grímsbæ. 20.7.2011 10:00