Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bruninn í Eden: Mildi að ekki hreyfði vind Eden í Hveragerði brann til kaldra kola í nótt. Eldhafið var gríðarlegt og áttu slökkviliðsmenn ekki annan kost en að láta húsið brenna til ösku. Ekki leikur grunur á íkveikju en mildi þótti að ekki hreyfði vind því annars hefði eitraður reykur getað lagst yfir Hveragerði. 22.7.2011 18:58
Leynikort þýska flotans til sýnis Reyðarfirði Leynikort þýska flotans sem hafði úrslitaáhrif á orrustuna um Norður-Atlantshaf í seinni heimsstyrjöldinni er nú til sýnis á Stríðsminjasafninu á Reyðarfirði. Kortið rataði til Íslands eftir óvenjulegum leiðum. 22.7.2011 18:47
Felldu kjarasamning Kjarasamningur félagsmanna Vélstjóra og málmtæknimanna á farskipum var feldur í atkvæðagreiðslu um kjarasamning sem undirritaður var 24. júní síðast liðinn. Á kjörskrá voru 41, 26 greiddu atkvæði eða 63,4 prósent. 22.7.2011 18:20
Sáttin undirrituð - Sigrún Pálína styrkir Stígamót Sátt milli þjóðkirkjunnar annars vegar og Dagbjartar Guðmundsdóttur, Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur hins vegar var undirrituð í dag og gaf Sigrún Pálína Stígamótum eina milljón króna samdægurs. 22.7.2011 16:50
Hagver döðlur innkallaðar Markaðsfyrirtækið Nathan og Olsen hefur með hliðsjón af neytendavernd og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla af markaði allar Hagver döðlur með best fyrir dagsetningu maí 2012 og lotunúmerið 1133. 22.7.2011 16:29
Tæplega þrjú hundruð ökumenn stöðvaðir í miðborginni Tæplega þrjú hundruð ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld og nótt í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Tveir ökumenn reyndust ölvaðir við stýrið og eiga þeir ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Fimm til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir leyfilegum mörkum. 22.7.2011 16:08
Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22.7.2011 15:56
Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22.7.2011 15:19
Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22.7.2011 14:38
Fyrstu umræðu um stjórnarskrárdrögin lokið Stjórlagaráð lauk fyrstu umræðu um drög að nýrri stjórnarskrá á 17 ráðsfundi sínum. Á fundinum fór fram umræðu um drögin og breytingatillögur frá fulltrúum ráðsins. Þá voru greidd atkvæði um breytingatillögur við frumvarpsdrögin. 22.7.2011 12:19
Sátt milli kirkju og kvenna undirrituð í dag Sátt verður undirrituð í dag milli Þjóðkirkjunnar annars vegar og Dagbjartar Guðmundsdóttur, Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur hinsvegar. 22.7.2011 12:12
Adam og Eva enn í Eden Þrátt fyrir að Eden sé nú brunarústir einar, virðast Adam og Eva ekki hafa hug á að yfirgefa aldingarðin sjálfviljug. Eldurinn náði að leggja undir sig allt húsið á innan við hálftíma og át í sig allt sem á vegi hans varð. Það virðist hinsvegar hafa verið honum ofviða að læsa klóm sínum í viðarhurðina á framhlið hússins, en hana prýða útskornar myndir af Adam og Evu. 22.7.2011 11:21
Verða að greiða fasteignalánið til baka Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Arion banka af kröfu pars sem vildi fá það viðurkennt að það þyrfti ekki að greiða fasteignalán sem parið tók í júní árið 2007. Lánið var gengistryggt í japanskri mynt. Upphafleg fjárhæð lánsins var 23 milljónir króna. Til vara krafðist parið þess að þurfa einungis að greiða 23 milljónir króna. Parið krafðist þess svo að ef önnur ofangreindr krafna yrði samþykkt myndu þau fá það sem þau höfðu ofgreitt til baka. 22.7.2011 10:36
Kvikmyndagerðarmenn hitta kennara sinn eftir 25 ára hlé Það verða fagnaðarfundir þegar fimm starfandi íslenskir kvikmyndagerðarmenn hitta kennara sinn frá Bandaríkjunum eftir aldarfjórðungs hlé á mánudaginn kemur. 22.7.2011 10:09
Hætt við úttekt eftir mótmæli starfsfólks Andstaða starfsmanna varð til þess að hætt hefur verið við að gera úttekt á Félagsþjónustu Kópavogs. 22.7.2011 10:00
Steingrímur J. Sigfússon tekur lokasprett Friðarhlaupsins í dag Fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon og kenýska hlaupadrottningin Tegla Loroupe munu leiða lokasprettinn í Friðarhlaupinu í dag. Friðarhlaupið er aðili að alþjóðlegu ári ungmenna sem Sameinuðu þjóðirnar og UNESCO standa að. 22.7.2011 09:48
Eldurinn í Eden er áfall fyrir Hvergerðinga "Þetta er auðvitað mjög mikið áfall að svona skyldi hafa farið,“ segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði. Eins og greint hefur verið frá brann Eden í Hveragerði til kaldra kola í nótt. 22.7.2011 09:19
Tíu þúsund kassar hverfa á hverju ári Sölufélag garðyrkjumanna tapar 12 til 15 milljónum króna á ári vegna affalla á kössum sem grænmetið er flutt í til verslana. 22.7.2011 09:00
Sem betur fer eru margir aflögufærir Hungursneyð ríkir í tveimur héruðum Sómalíu og tugir þúsunda hafa látist. Ástandið í nágrannaríkjunum er sömuleiðis alvarlegt. Sigríður Víðis Jónsdóttir hjá UNICEF segir í samtali við Brján Jónasson að bregðast verði tafarlaust við til að bjarga fólki sem líður skort. 22.7.2011 08:45
Mikil sókn í makrílveiðar við landið Bátar af öllum stærðum og ferðum eru nú byrjaðir makrílveiðar, en framundir þetta hafa aðeins stór skip náð árangri við veiðarnar. 22.7.2011 07:48
Þyrla sótti mann í Hrafntinnusker Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út undir kvöld í gær til að sækja göngumann á sextugs aldri inn í Hrafntinnusker, í grennd við Landmannalaugar. 22.7.2011 07:46
Ormalyf í samræmi við aðstæður „Almennt séð tel ég að notkun hefðbundinna lyfja eigi að ráðast af þörf og aðstæðum hverju sinni.“ 22.7.2011 07:45
Göngukona slasaðist í Esjunni Göngukona hrasaði á hefðbundinni gönguleið í Esjuhlíðum í gærkvöldi og meiddist á fæti. 22.7.2011 07:41
Slökkviliðsmenn forðuðu sér undan æðandi eldtungum Veitingastaðurinn og gróðurstöðin Eden í Hveragerði brann til kaldra kola í nótt en engan sakaði í eldsvoðanum. 22.7.2011 07:14
Bolvíkingar þéna vel á frístundaveiðunum Um 760 ferðamenn koma til Bolungarvíkur í ár til að stunda frístundaveiðar, segir Haukur Vagnsson, framkvæmdastjóri Víkurbáta. Fjöldi slíkra ferðamanna hefur þrefaldast hjá fyrirtækinu í samanburði við síðasta ár. Það tók á móti 130 ferðamönnum í fyrra en þeir verða 380 í ár. 22.7.2011 06:00
Koma á varanlegum leigumarkaði Við skipulag íbúðarhverfa skal tryggt að fimmtungur íbúða að minnsta kosti miðist við þarfir tekjuminni íbúa. Þetta er á meðal þeirra tillagna sem finna má í drögum að nýrri húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar sem lögð voru fyrir borgarráð í gær. Nú er hlutfall slíkra íbúa langt undir 20 prósentum. 22.7.2011 05:30
Vilja sekta aðra en þrífa ekki Íbúum og gestum við Bríetartorg mætir ófögur sjón; yfirfull öskutunna og rusl í haugum við hlið hennar. Íbúi sem ræddi við Fréttablaðið sagðist margoft hafa haft samband við borgaryfirvöld, en ekkert gengi að fá tunnuna tæmda. 22.7.2011 04:00
Hlutabætur verða greiddar út í ágúst Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra áformar að setja reglugerð sem tryggir að þeir sem átt hafa rétt á hlutabótum fái fullar greiðslur í byrjun ágúst. Ráðherra mun leggja fram drög að reglugerð á næsta ríkisstjórnarfundi. 22.7.2011 03:00
Eden brunnið til grunna Slökkvistarfi í Eden er að mestu leyti lokið, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi er húsið brunnið til grunna. 22.7.2011 01:37
Töluvert tjón í brunanum Talið er að töluvert tjón hafi orðið í brunanum í Eden. Eftir því sem Vísir kemst næst voru verðmæt málverk inni í húsinu og útskorið tréverk. 22.7.2011 00:55
Eden er alelda Eden í Hveragerði er alelda. Eldur kviknaði í húsinu rétt fyrir miðnættið í kvöld. Að sögn lögreglumanns hjá lögreglunni er allt tiltækt lið frá Brunaliði Árnessýslu og Árborgar á staðnum. Segjum nánari fréttir þegar þær berast. 22.7.2011 00:36
Ridley Scott lokar Dettifossi Nú standa yfir tökur á stórmyndinni Prómóþeus við Dettisfoss og hefur aðgengi almennings að fossinum verið takmarkað. 21.7.2011 21:00
Dregið úr Facebookleik Vísis Dregið var úr Facebookleik Vísis laust eftir klukkan fimm í dag. Það var hún Guðlaug Margrét Steinsdóttir sem datt í lukkupottinn og hlaut 200 þúsund króna gjafabréf í Kringlunni. Guðlaug er heppin því opið var í Kringlunni í dag til klukkan níu og hún því getað nýtt sér góðan tíma til að skoða hvað hægt er að kaupa fyrir gjafakortið. Það er óhætt að segja að Facebookleikurinn hafi vakið athygli því að minnsta kosti 20 þúsund manns skráðu sig til leiks. 21.7.2011 20:52
Aðstoða göngugarp á Esjunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, ásamt björgunarsveit, aðstoðar nú göngumann sem slasaðist minniháttar á hefðbundinni gönguleið á Esjunni. Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hefur ekki verið óskað eftir aðstoð þyrlunnar. 21.7.2011 20:00
Þyrlan sótti göngumann með hjartsláttatruflanir Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti göngumann á Hrafntinnusker, sem er sunnan við Landmannalaugar, um klukkan sex í dag. Samkvæmt upplýsingum frá vaktstjóra hjá gæslunni var maðurinn með hjartsláttatruflanir og var brugðið á það ráð að senda þyrluna á eftir honum. 21.7.2011 19:58
"Maður á ekki að þurfa berjast fyrir sannleikanum “ Sigrún Pálína Ingvarsdóttir upplifir fyrst nú að kirkja sé að taka ábyrgð á því hvernig komið var fram við hana þegar hún sakaði Ólaf Skúlason, fyrrverandi biskup, um kynferðisbrot. Hún segist færast nær því að taka kirkjuna aftur í sátt. 21.7.2011 19:15
Fyrirkomulag tollkvóta með búvörur andstætt stjórnarskrá Ákvæði tollalaga sem heimila landbúnaðarráðherra að ákveða tollkvóta á innfluttar landbúnaðarvörur fullnægja ekki kröfum stjórnarskrárinnar að mati umboðsmanns Alþingis. Ákvæði laganna hafa því samkvæmt þessu verið andstæð stjórnarskrá frá árinu 2005. 21.7.2011 18:45
Hanna Birna: Óvissa, óöryggi og óstjórn í kringum fjármálin Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ekki skilað þriggja ára fjárhagsáætlun eins og lög gera ráð fyrir. Innanríkisráðuneytið hefur heimild til að beita sveitarfélagið sektum vegna verulegrar vanrækslu á skilum. 21.7.2011 18:45
Lítill tilgangur að halda hvalveiðum áfram til að geyma kjötið í frysti Steingrímur J. Sigúfsson, fjármálaráðherra, segir lítinn tilgang að halda hvalveiðum áfram til þess eins geyma kjötið í frystigeymslu 21.7.2011 18:45
Stálust í lax við Gullinbrú - mundu svo ekki eigin nöfn Tveir veiðimenn voru gripnir glóðvolgir við laxveiðar í Grafarvogi um miðjan dag í gær. Mennirnir, sem eru báðir um þrítugt, höfðu komið sér fyrir undir Gullinbrú og veitt tvo laxa þegar lögreglan kom á vettvang. 21.7.2011 17:28
Eldur í gróðri við Rauðavatn Eldur kom upp í gróðri við Rauðavatn um klukkan fimm í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var töluverður reykur sem kom frá gróðrinum í byrjun. Slökkviliðið hefur nú náð tökum á eldinum en dælubíll frá slökkviliðin fór á vettvang. Slökkviliðsmenn hafa barið á gróðurinn með klöppum sem og sprautað vatni. 21.7.2011 17:28
Nærbuxnagengið komið í föt Þremenningarnir á Flúðum sem hafa verið önnum kafnir við hellulögn, eins og sagt var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, eru ennþá að. Félagarnir eru að leggja hellur á hringtorgi í sveitarfélaginu en vöktu athygli fyrir það hversu fáklæddir þeir voru við verkið, enda hefur verið rjómablíða víða um land að undanförnu. Þeir segja að fréttin hafi vakið mikla og góða lukku hjá kunningum þeirra. 21.7.2011 16:35
Fjórðungur íbúða verði til útleigu Stefna á að því að leigu- og eða búseturéttaríbúðir verði um fjórðungur af öllu íbúðarhúsnæði í Reykjavík en hlutfall þeirra í dag er vel undir 20% af öllu íbúðarhúsnæði. Þá á að kanna kosti og galla þess að borgin taki þátt í að byggja upp með beinum hætti leigumarkað á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er meðal þess sem finna má í tillögu að nýrri húsnæðisstefnu Reykjavíkur til ársins 2020 og kynnt var í borgarráði í morgun 21.7.2011 16:05
Kvöldganga um söguslóðir vinstrihreyfingarinnar Hjónin Svavar Gestsson og Guðrún Ágústsdóttir fara fyrir göngu í kvöld um söguslóðir vinstrihreyfingarinnar í Reykjavík þar sem gengið verður að tilteknum húsum í miðborginni. Meðal þeirra eru Alþýðuhúsið við Vonarstræti og Vinaminni. Um er að ræða kvöldgöngur sem skipulagðar eru af Ljósmynda-, Borgarbóka-, Lista-, og Minjasafni Reykjavíkur. 21.7.2011 14:56
Óska eftir aukafundi í borgarstjórn Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og VG vilja að borgarstjórn komi saman til aukafundar vegna vanskila á þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál borgarinnar. Þeir lögðu fram ósk þess efnis á fundi borgarráðs í morgun. Fulltrúarnir segja að samkvæmt lögum hefði borgarstjóri átt að leggja slíka áætlun fram um miðjan febrúar eða fyrir fimm mánuðum. Ennfremur segja þeir vinnubrögð meirihlutans óvönduð og óábyrg og algjörlega óviðunandi. 21.7.2011 14:08