Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Slökkviliðsstjóri: Spurning að skoða staðsetningu Hringrásar "Þetta er eitt af fáum fyrirtækjum sem við höfum reynslu af,“ segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, en hann spyr hvort það sé ekki umhugsunarefni fyrir forsvarsmenn Hringrásar að finna fyrirtækinu nýjan stað. 12.7.2011 12:45
Kryfja óánægju meðal flugmanna Við blasir að flugmenn hjá Icelandair, og félagið verði að hefja samninagviðræður á ný, eftir að flugmenn felldu nýgerðan kjarasamning við félagið. Engar aðgerðir hafa verið boðaðar. 12.7.2011 12:19
Ný skilti fyrir erlenda ferðamenn Skiltum sem setja á upp fyrir ferðamenn vegna Múlakvíslar hefur verið breytt í ljósi þess að nú er bæði fólk og bílar flutt yfir fljótið. Áður stóð á skiltinu að vegurinn væri lokaður, en nú bendir það ferðamönnum á að bílar verði ferjaðir yfir vegna flóða. 12.7.2011 12:14
Brúarsmíði gengur vel Vel hefur gengið við brúarsmíðina við Múlakvísl í nótt eftir því sem Vegagerðin greinir frá í fréttatilkynningu sinni, en áætlað er að hægt verði að hleypa umferð á brúna uppúr miðri næstu viku. Þó er tekið fram að hafa verði fyrirvara á því tímamarki, meðal annars með tilliti til vatnsmagns í ánni. 12.7.2011 11:54
Lýst eftir vitnum vegna eldsvoðans Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú bruna sem varð á athafnasvæði Hringrásar við Klettagarða í Reykjavík í nótt. 12.7.2011 11:52
SAF lýsa yfir ánægju með selflutninga Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) lýsa ánægju sinni með þá selflutninga sem hafnir eru yfir Múlakvísl þar sem bílaleigur innan SAF og Vegagerðin starfa hlið við hlið við að ferja bifreiðar og fólk yfir ána. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. 12.7.2011 11:23
Þarf að taka Hringrás til rækilegrar endurskoðunar - íbúi vill þá burt "Sem borgara, og að sjálfsögðu nefndarmanni hjá Reykjavíkurborg, þá bregður manni við að þetta sé að gerast á sama stað hjá sama fyrirtæki í annað skiptið. Það þarf að taka þetta til rækilegrar endurskoðunar,“ segir Hjálmar Sveinsson, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar um eldsvoðann í Hringrás í nótt. 12.7.2011 11:08
Slökkviliðsmenn orðnir þreyttir "Við erum á lokametrunum. Það er verið að vinna í haugunum og grafa aðeins niður til að ná að slökkva í því sem undir er. Hætta á að þurfa að rýma er yfirstaðinn,“ segir Jón Viðar Matthíasson, um brunann á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn. Hann segir þá slökkviliðsmenn sem staðið hafa vaktina frá því nótt vera orðna þreytta. 12.7.2011 10:42
Innkalla fæðubótarefni - joð langt yfir efri öryggismörkum Ákveðið hefur verið að innkalla af markaði fæðubótarefnið Sunny Green Kelp Nutrient Dense Algae þar sem í ráðlögðum daglegum neysluskammti, samkvæmt upplýsingum á umbúðum vörunnar, er of mikið af joði. Ákvörðunin var tekin af Heilsu ehf. í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. 12.7.2011 10:20
Salka kvartaði ekki undan Sokkabandinu "Starfsmenn Sölku höfðu ekki samband við okkur.“ segir Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri Ríkkisútvarpsins, en Vísir greindi í gær frá því að þáttarstjórnendum útvarpsþáttarins Sokkabandið hafi borist beiðni frá yfirmanni sínum um að stiklu þáttarins yrði breytt, í kjölfar þess að Salka hefði haft samband við auglýsingadeild RÚV. 12.7.2011 10:00
Myndasyrpa frá Hringrásarbrunanum Mikill eldur gaus upp í stórri dekkjastæðu á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn á þriðja tímanum i nótt og var allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað út auk manna á frívakt. Gríðar mikinn og svartan reyk lagði frá eldinum, en svo vel vildi til að vindur var suðaustlægur í nótt og lagði reykinn á haf út, en ekki yfir byggðina eins og gerðist í samskonar bruna á sama stað árið 2004. Þá þurftu á sjötta hundrað manns að yfirgefa heimili sín. Starfsmenn fréttastofu stóðu vaktina og í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá myndir sem Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, og Heimir Már Pétursson, fréttamaður, tóku í nótt og í morgun. 12.7.2011 09:57
Stórir fjórhjóladrifsbílar fari Fjallabaksleið nyrðri Nú er byrjað er að ferja fólk og bíla yfir Múlakvísl. Samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni er hægt að taka alla venjulega bíla yfir ána, en fært er stærri fjórhjóladrifsbílum um F 208 Fjallabaksleið nyrðri. 12.7.2011 09:10
Slökkvistarf gengið greiðlegar en 2004 Mun greiðlegar hefur gengið að ráða niðurlögum eldsins í Hringrás núna en árið 2004, segir Jón Viðar Matthíasson, slökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að aðalástæðan sé sú að eldsmatur sé mun minni núna en var þá. 12.7.2011 07:49
Íbúar í Kleppsholti loki gluggum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur náð tökum á eldi sem logað hefur á Hringrásarsvæðinu frá því á þriðja tímanum í nótt. Tölverðan reyk leggur frá svæðinu. Vindáttin er enn af landi og reyk leggur út á haf. Íbúar í Kleppsholti eru beðnir um að hafa glugga lokaða þó svo að reyk leggi ekki yfir hverfið þar sem lyktarmengun er talsverð, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. 12.7.2011 07:14
Stendur áfram til að hitta Wen Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir ekkert hæft í því að hún hafi hafnað því að hitta kínverskan starfsbróður sinn, Wen Jiabao, á fundi 14. júlí. 12.7.2011 06:30
Aðgerðarstjórn kölluð saman í Samhæfingarmiðstöðina Aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins var kölluð saman í Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í morgun vegna eldsins hjá Hringrás í Sundahöfn. Almannavarnaástandi hefur ekki verið lýst yfir en starfsmenn stöðvarinnar eru í viðbragðsstöðu. 12.7.2011 06:09
Þakklæti til slökkviliðs og lögreglu efst í huga Orsakir eldsins á svæði Hringrásar við Sundahöfn eru ókunnar. Þegar er hafin handa við að rannsaka eldsupptökin. Eldurinn kom upp í dekkjum á Hringrásarsvæðinu á þriðja tímanum í nótt. 12.7.2011 05:43
Eldurinn hefur minnkað Slökkviliðsmenn virðast hafa náð tökum á eldinum. Hann er miklu minni en hann var fyrr í morgun, segir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins sem stendur vaktina við Hringrás í Sundahöfn. 12.7.2011 05:19
Vilja fá hreindýr á vestfirskar heiðar Hópur Vestfirðinga áformar að flytja hreindýr til Vestfjarða innan þriggja ára. Þó standa nokkur ljón í veginum en Búnaðarsamband Strandamanna hefur lagst gegn áformunum sem og Halldór Runólfsson yfirdýralæknir meðal annars vegna hættu á að þau smiti riðu eða garnaveiki. 12.7.2011 05:00
Heyrúlla fór í gegnum fjósvegg Það getur verið vandasamt að heyja í brekkunni fyrir ofan bæinn Kvíaból í Köldukinn en í síðustu viku rúllaði 800 kílóa heyrúlla niður túnið og braut sér leið inn í fjós. „Það voru nokkrar kýr inni og ég er viss um að einhver þeirra hefur orðið fyrir henni þó ekki sjái á neinni,“ segir Marteinn Sigurðsson, bóndi á Kvíabóli. 12.7.2011 05:00
Enn barist við eldinn "Það er verið að berjast við þetta. Það er allt tiltækt lið á staðnum og jafnframt var aukamannskapur kallaður út. Þeir eru að vinna í þessu,“ segir slökkviliðsmaður sem Vísir talaði við í nótt. Eldur kviknaði á svæði Hringrásar í Sundahöfn um fjögurleytið í nótt. 12.7.2011 04:31
Gríðarmikill eldur í Sundahöfn Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. Gríðarlega mikill eldur kviknaði í dekkjum á svæði Hringrásar á fjórða tímanum í nótt. Allt tiltækt lið slökkviliðsins hefur verið kallað út og berst við eldinn. Segjum nánar frá eins skjótt og fréttir berast. 12.7.2011 04:06
Framfarir í tækni kalla á öflugra net Farsímafyrirtækin Nova og Síminn hafa sótt um heimild til Póst- og fjarskiptastofnunar (PFS) til að prófa innleiðingu á því sem kallað hefur verið fjórða kynslóð í gagnaflutningstækni. Vodafone fylgist grannt með þróun mála. 12.7.2011 04:00
Vísindamenn sakna vélar Gæslunnar sem er í útleigu Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, er mikilvægt hjálpartæki jarðvísindamanna þegar eldgos verða, að mati tveggja jarðeðlisfræðinga. Nú, þegar töluverðar jarðhræringar hafa verið bæði í Kötlu og Heklu, er vélin hins vegar fjarri góðu gamni, við Miðjarðarhaf að sinna verkefnum fyrir landamærastofnun Evrópusambandsins. Þar verður hún til loka september. 12.7.2011 04:00
Böndin beinast að íslenskri sól Mælingar á roðvaldandi geislum hér á landi gefa það til kynna að háa tíðni sortuæxla beri ekki eingöngu að skýra með ljósabekkjanotkun og utanlandsferðum heldur einnig að hluta til með íslenskri sól. Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu læknanna Bárðar Sigurgeirssonar og Hans Christians Wulf sem birtist í nýjasta eintaki Læknablaðsins. 12.7.2011 04:00
„Gerum okkar besta“ „Menn eru kvíðnir og slegnir yfir því að tapa tveimur verðmætustu vikum ársins í ferðaþjónustu,“ segir Einar Hafliðason, forstöðumaður brúardeildar Vegagerðarinnar. Hann var staddur í Víkurskála í gær á leið suður eftir vinnu við Múlakvísl. 12.7.2011 03:15
Eflaust ágætis æfing að brúa Múlakvísl Verkfræðideildir margra herja Atlantshafsbandalagsins gætu brúað Múlakvísl á nokkrum mínútum og þætti líklega ágætis æfing að fá að gera það. 11.7.2011 18:54
Segir ókosti við aðild fleiri þótt stórauka mætti útflutning á skyri Íslenskir mjólkurframleiðendur gætu stóraukið útflutning á skyri til Evrópu með aðild að Evrópusambandinu en aftur á móti myndu þeir mæta harðri samkeppni þegar kemur að ostum, segir forstjóri MS. Hann segir ókostina við aðild fleiri en kostina. 11.7.2011 18:45
Hreinsunarmenn áttu ærið verk fyrir höndum Hreinsunarmenn höfðu ærið verk fyrir höndum eftir skemmtun helgarinnar á Gaddstaðaflötum. Þar fór Besta hátíðin fram, eins og kunnugt er, að viðstöddum um 10 þúsund manns. Byrjað var að hreinsa svæðið á hádegi í dag og er áætlað að verkinu muni ljúka fyrir miðnætti. 11.7.2011 17:59
Byrjað að flytja bíla og fólk yfir Múlakvísl Farið er að ferja fólk yfir Múlakvísl en nokkur fjöldi fólks bíður eftir að komast yfir ána í rútur. Rúta og tveir trukkar eru fyrir austan til að ferja fólk og bíla yfir á vaði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. 11.7.2011 16:41
Fundu sprengju í Bláfjöllum Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar barst í morgun tilkynning frá lögreglunni um að sprengjuvörpusprengja hefði fundist í Bláfjöllum. Um var að ræða 60 millimetra „mortar“ sprengju frá stríðsárunum og var hún flutt til eyðingar. 11.7.2011 16:13
Vonast til að selflutningar hefjist á fimmta tímanum Vonast er til þess að hægt verði að flytja almenning yfir Múlakvísl á fimmta tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar er nákvæm tímasetning þó óljós. 11.7.2011 16:03
Þurfum að þrífa upp eftir okkur sjálf og jafnvel næsta mann "Umgengni Íslendinga um helgar eru líklega einsdæmi í heiminum,“ segir Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri, spurður út í umgengni í miðborginni, en ljósmyndari fréttastofu tók meðfylgjandi myndir í miðborginni í dag. 11.7.2011 15:28
Ógnaði stúlkum með startbyssu Sérsveit lögreglunnar var kölluð út vegna drukkins manns sem ógnaði fólki með byssu í miðbæ Keflavíkur aðfaranótt sunnudags samkvæmt fréttavef Víkurfrétta. 11.7.2011 14:29
Kannaðu útfjólubláa stuðulinn til að forðast krabbamein Húðlæknastöðin vinnur þessa dagana að því að vekja athygli á svokölluðum útfjólubláum (ÚF) stuðli sem segir til um styrk skaðlegra sólargeisla, en það eru sömu geislar sem geta valdið sólbruna og húðkrabbameini. Því hærri sem stuðullinn er, því styttri tíma þarf til að húð roðni í sólinni. 11.7.2011 14:27
Vegagerðin flytur bíla og fólk yfir Múlakvísl Stjórnvöld hafa heimilað Vegagerðinni að flytja megi fólk yfir vað á Múlakvísl á vörubifreið eða sérútbúinni rútu og einnig að flytja bíla yfir með vörubifreiðum samkvæmt tilkynningu frá Vegagerðinni. 11.7.2011 14:12
Sokkabandið beðið um að breyta auglýsingu Bókaforlagið Salka kvartaði við RÚV vegna stiklu sem auglýsir útvarpsþátt á Rás 2, en stiklan inniheldur vísun í bókina "Tíu árum yngri á tíu vikum" sem forlagið gefur út. Þátturinn sem um ræðir heitir Sokkabandið og er stjórnað af Þóru og Kristínu Tómasdætrum. 11.7.2011 13:31
Óska eftir fundi með yfirmönnum vegamála og stjórnmálamanna Ferðaþjónustuaðilar í Mýrdal óskuðu í morgun eftir samráðsfundi með yfirmönnum vegamála, þingmönnum og ráðherrum vegna stöðunnar sem upp er kominn eftir að brúin yfir Múlakvísl gaf sig. 11.7.2011 13:26
Veikum manni komið á spítala og veiðarfæri losuð úr skrúfu báts Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti með veikan mann á Borgarspítalann laust fyrir hádegi. Þyrlan sótti manninn til Kirkjubæjaklausturs en flytja þurfti hann á spítala vegna veikinda. 11.7.2011 13:16
Merkel hrósaði Jóhönnu fyrir undraverðan árangur í endurreisn landsins Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti í dag fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í Berlín. 11.7.2011 12:59
Ferðaþjónustuaðilar í Mýrdal horfa upp á hundruða milljóna tjón Ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi segja að lokun þjóðvegarins hafi nú þegar spurst út erlendis og valdi afbókunum fram í tímann. Þeir undrast á seinagangi vegagerðarinnar. 11.7.2011 12:05
Líklega jarðhiti sem orsakaði hlaup Ekki er hægt að útiloka að lítið gos hafi orðið undir Mýrdalsjökli segir jarðeðlisfræðingur. 11.7.2011 12:01
29 fíkniefnamál á Eistnaflugi Tuttugu og níu fíkniefnamál komu upp á þungarokkshátíðinni Eistnaflug sem haldin var í Neskaupsstað nú um helgina, en í öllum tilfellum var um að ræða óverulegt magn efna sem ætluð voru til neyslu. 11.7.2011 11:27
Selflutningar yfir Múlakvísl undirbúnir og smíði bráðabirgðabrúar hraðað Vegna yfirlýsingar Samtaka ferðaþjónustunnar og umfjöllunar um að langan tíma taki að koma upp bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl vill innanríkisráðuneytið taka eftirfarandi fram: 11.7.2011 10:33
Þyrla kölluð út vegna alvarlegra veikinda á Kirkjubæjaklaustri Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna alvarlegra veikinda á Kirkjubæjarklaustri. Þá er bátur vélarvana á Breiðafirði en mikið annríki er í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, en allt stefnir í metfjölda skipa og báta á sjó í dag. 11.7.2011 10:02