Fleiri fréttir

Keyrði á Shell-skálann á Eskifirði

Ung stúlka missti stjórn á bíl sínum fyrir utan Shell-skálann á Eskifirði um sexleytið í gær og fór ekki betur en svo að bíllinn klessti á húsið. Einar Björnsson, eigandi rekstursins, segir tjónið töluvert þar sem bæði sé um að ræða skemmdir á vörum og húsinu sjálfu.

Morðtilraunin náðist á myndband

"Þetta eru leiðindaatvik sem geta komið upp hvar sem er og það væri betra ef þau væru færri," segir Margeir Margeirsson, eigandi Monte Carlo og Mónakó á Laugavegi í Reykjavík.

Íslendingar sækja enn til Norðurlanda

Samkvæmt mannfjöldatölum frá Hagstofu Íslands fluttust 530 einstaklingar frá landinu umfram aðflutta á 2. ársfjórðungi þessa árs. 360 þeirra voru einstaklingar með íslenskt ríkisfang en 180 voru erlendir ríkisborgarar. Af þeim 980 Íslendingum sem fluttu af landi brott fóru 680 til Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar.

Sakar löggu um að ljúga upp á sig kynferðisbroti

Fyrrverandi lögreglumaður hefur kært lögreglufulltrúa á Suðurnesjum fyrir rangar sakargiftir í kynferðisbrotamáli. Maðurinn var sýknaður héraðsdómi. Greint er frá þessu í Fréttatímanum í dag.

Sandsílastofninn enn í lægð

Sandsílastofninn er enn í lægð samkvæmt niðurstöðum úr leiðangri Hafrannsóknarstofnunnar. Farið var um Breiðafjörð, Faxaflóa, Vestmannaeyjar og að Vík. Þetta er sjötta árið sem farið er í slíkan leiðangur, en markmiðið er m.a. að meta breytingar í stofnstærð og afla upplýsinga um styrk árganga sandsíla.

Vélhjólamaður alvarlega slasaður

Vélhjólamaður slasaðist alvarlega þegar hann féll á hjóli sínu á Nýbýlavegi í Kópavogi um tvöleytið í nótt og kastaðist á vegrið. Hann var meðvitunarlaus þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang og var hann fluttur á slysadeild Landspítalans. Honum er nú haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild. Tildrög slyssins eru ókunn og viðrast ekki vera vitni að slysinu.

Morðtilraun á veitingahúsi í Reykjavík

Karlmaður var stunginn lífshættulega í hálsinn svo slagæð rofnaði á veitingastað við Laugaveg um miðnætti. Skömmu áður var tilkynnt um að óður maður gengi þar berserksgang , vopnaður hnífi, og ógnaði öllum innandyra.

Loka þurfti Bolungarvíkurgöngum vegna reyks

Lögreglan á Ísafirði lokaði Bolungarvíkurgöngum í skyndingu í gærkvöldi eftir að vegfarendur þar tilkynntu Neyðarlínunni um eld og reyk í göngunum. Vegfarendurnir komust út og varð ekki meint af nema hvað þeim var illa brugðið.

Fundi flugmanna lauk án árangurs

Samningamenn flugmanna hjá Icelandair og samningamenn félagsins koma saman til sáttafundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan tíu, eftir að fundi þeirra lauk í gærkvöldi án árangurs.

Jón Ásgeir stefnir Birni Bjarnasyni

Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður hefur ákveðið að stefna Birni Bjarnasyni, fyrrverandi dómsmálaráðherra, fyrir meiðyrði.

Milljónir í svar við fyrirspurn - Fréttaskýring

Sífellt færist í aukana að alþingismenn sendi skriflegar fyrirspurnir til ráðuneyta. Um leið og þetta er mikilvægt lýðræðislegt aðhaldstæki er ljóst að kostnaður ráðuneytanna við að svara fyrirspurnum getur verið umtalsverður. Kostnaður þriggja ráðuneyta við svar ákveðinnar fyrirspurnar nam samtals 700 til 900 þúsund krónum.

Sex efnilegir hvolpar undan Ellu og Nelson

"Í kjölfar kreppunnar varð það að samkomulagi milli lögreglu og tollgæslu að prófa að rækta eigin fíkniefnahunda,“ segir Haukur Örn Sigurjónsson rannsóknarlögreglumaður á Suðurnesjum.

Tæp milljón hjá þremur ráðuneytum

Fréttablaðið leitaði fanga hjá öllum ráðuneytum til að fá dæmi um þann kostnað sem einstök fyrirspurn getur haft í för með sér og þá vinnu sem liggur að baki svarinu. Fyrir valinu varð fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, sem sendi öllum ráðuneytum eftirfarandi fyrirspurn:

Allir bændur með bústofn verða starfsleyfisskyldir

Sauðfjárbændur, hrossabændur, og þeir sem stunda þjónustu með dýr, svo sem tamningamenn, verða starfsleyfisskyldir, verði frumvarp til laga um dýravelferð samþykkt í núverandi mynd. Þetta er til samræmis við reglugerðir sem gilda um aðra búfjáreigendur.

Fimm sinnum sektað fyrir sóðaskap í ár

Öll afgreiðsla vegna brota er varða sóðaskap yrði mun hraðari og skilvirkari ef Íslendingar færu að dæmi Svía en þar getur nú lögreglan sektað menn á staðnum séu þeir staðnir að sóðaskap.

Múlakvíslabrúin nánast tilbúin

Framkvæmdir Vegagerðarinnar við Múlakvísl ganga vel að sögn Hreins Haraldssonar vegamálastjóra en brúin er að mestu tilbúin. Þó verður það ekki fyrr en á sunnudag eða mánudag sem hægt verður að aka yfir hana. Það er tveimur dögum fyrr en bjartsýnustu menn leyfðu sér að vona, segir vegamálastjórinn.

Kollvarpar þekkingu fólks á hvölum

Dr. Paul Manger er 45 ára gamall ástralskur vísindamaður sem hefur helgað líf sitt rannsóknum á þróun heila í lífverum. Hann er prófessor við heilbrigðisvísindadeild Háskólans í Witwatersrand í Jóhannesarborg í Suður-Afríku og hefur rannsakað heila fjölmargra dýrategunda.

Bannað að gefa svín sem gjöf

Frumvarp til laga um dýravelferð kveður á um að óheimilt sé að selja eða afhenda dýr þegar tilefni er til að ætla að móttakandi hafi ekki getu eða vilja til að annast dýrið á þann hátt sem samræmist ákvæðum frumvarpsins.

Skemmtistaðir opnir lengur

Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að leyfa skemmtistöðum að hafa lengri opnunartíma um verslunarmannahelgina.

Auka þarf fræðslu um hættu

Sérakreinar fyrir hópferðabíla á Miklubraut koma ekki vel út þegar slysatíðni er skoðuð. Slysum hefur fjölgað eftir að þessar akreinar voru teknar í notkun en þó hafa hópferðabílar ekki verið orsakavaldar. Þetta kemur fram í skýrslu sem verkfræðistofan Mannvit vann fyrir Vegagerðina.

Kirkjan vill ábendingar

Nefnd vegna kynferðisbrota innan kirkjunnar býður öllum sem vilja koma athugasemdum, tillögum eða erindum á framfæri að hafa samband við sig.

Einkaneysla hefur aukist undanfarið

EfnahagsmálMyndarlegur vöxtur virðist hafa orðið á einkaneyslu á öðrum ársfjórðungi ársins. Greining Íslandsbanka telur að vöxturinn hafi ekki verið jafn hraður frá því fyrir hrun.

ESA áminnir Ísland vegna umferðarmála

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur sent íslenskum og norskum stjórnvöldum rökstutt álit en löndin hafa ekki innleitt evrópska umferðaröryggisstaðla. Stjórnvöldum er gefinn tveggja mánaða frestur til úrbóta.

Rafmagnsólar hunda bannaðar

Frumvarp til laga um dýravelferð kveður á um að rafmagnsólar til þjálfunar á hundum verði bannaðar. Einnig að einungis fagaðilar megi nota geldingatangir og tjakka til notkunar við burðarhjálp hjá stórgripum, svo dæmi séu nefnd. Ákvæðið er til komið vegna vandamála sem hefur orðið vart við vegna sölu á útbúnaði sem óheimilt er að nota á dýr.

Um 2.600 brot umferðinni

Nær 500 brot, þar sem menn voru við akstur sviptir ökuréttindum, voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á síðasta ári. Þá voru 300 mál færð til bókar þar sem á ferðinni voru ökumenn er aldrei höfðu öðlast ökuréttindi.

Fulltrúi Íslands gekk af fundi

„Við óttuðumst að atkvæðagreiðsla yrði til þess að kljúfa Alþjóðahvalveiðiráðið í herðar niður,“ segir Tómas H. Heiðar, aðalfulltrúi Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðinu.

Flugmenn settust á sáttafund

Samningafundur Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair hófst hjá Ríkissáttasemjara um klukkan tvö í dag. Þetta er fyrsti fundur í deilunni eftir að samningur sem þessir aðilar gerðu á dögunum var felldur í atkvæðagreiðslu fyrr í vikunni.

Tjón ferðaþjónustuaðila getur numið hundruðum milljóna

Áætla má að heildarútgjöld þeirra ferðamanna sem ferðast um Hornafjörð hefðu orðið um það bil einn milljarður ef ekki hefði komið til rof hringvegarins við Múlakvísl. Þetta kemur fram í samantekt Þorvarðar Árnasonar, forstöðumanns Háskólaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði, á útreikningum setursins.

Nýja brúin opnuð fyrir miðja næstu viku

Reynt verður að opna bráðabirgðabrúna yfir Múlakvísl fyrir miðja næstu viku, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Brúarvinnuflokkar og aðrir starfsmenn Vegagerðarinnar vinna dag og nótt við að koma brúnni upp og tengja Hringveginn við hana. Stefnt er að því að bílar og fólk verði flutt yfir brúna þangað til.

Dópaður maður stal bíl af sveitabæ

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á Selfossi í morgun en hann hafði stolið bifreið á sveitabæ í Biskupstungum nokkru áður og valdið tjóni á bílnum. Hann er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna og var vistaður í fangageymslu, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra. Hann verður svo yfirheyrður síðar í dag þegar víman er runnin af honum.

Dómurinn stendur

Kristján Kristjánsson, útgefandi bókarinnar um Sögu Akraness, hefur haft samband við Fréttatímann með athugasemdir vegna beinskeytts bókardóms Páls Baldvins Baldvinssonar um bókina í síðasta tölublaði Fréttatímans. Greint var frá því í morgun að bæjarstjóri Akranesbæjar hefði falið lögmanni bæjarfélagsins að meta hvort ritdómur Páls Baldvins um ritið varði við lög.

21 árekstur við sauðfé frá mánaðamótum

Ekið var á lamb á Suðureyrarvegi í gær og tvö á Súgandafjarðarvegi í fyrradag og drápust þau öll. Frá mánaðamótum hefur lögreglan á Vestfjörðum fegnið 21 tilkynningu um slík slys, en sauðfé hefur víðasthvar óhindraðan aðgang að þjóðvegunum fyrir vestan.

Páll Baldvin tjáir sig ekki

Páll Baldvin Baldvinsson, bókmenntagagnrýnandi, vildi ekki tjá sig um þá ákvörðun bæjarstjóra Akranesbæjar að fela lögmanni bæjarfélagins að ritdómur Páls um fyrst bindi Sögu Akraness varði við lög. Ritdómurinn birtist í síðasta tölublaði Fréttatímans.

Eldgos gæti hafa brotist upp við Hamarinn

Líkur eru taldar á að lítið eldgos hafi orsakað hlaupið undan vestanverðum Vatnajökli í gær, að sögn Odds Sigurðssonar jarðfræðings. Tveir nýir sigkatlar, sem ekki var vitað um áður, komu í ljós í flugi almannavarna yfir svæðið í gærkvöldi.

Stærsta vandamál í dýravernd á Íslandi óleyst

Nefnd um dýravelferð skilaði af sér tillögum sínum að frumvarpi til nýrra laga um málaflokkinn síðastliðinn mánudag, þann 11. júlí. Árni Stefán Árnason, dýraréttarlögfræðingur segir að þó svo orðalag laganna auki greinilega vernd dýra, hafi hann orðið fyrir vonbrigðum með drögin en hann óttast að lögin muni ekki leysa stærsta vandamálið í dýravernd á Íslandi, verði tillagan samþykkt í óbreyttri mynd.

Brúarsmíði gengur vel - "Þetta er ekkert mál“

"Þetta gengur bara mjög vel,“ segir Sveinn Þórðarson, brúarsmiður hjá Vegagerðinni, en hann vinur nú ásamt tuttugu og þremur öðrum að smíða bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl.

Akranes íhugar málssókn gegn Fréttatímanum

Bæjarstjóri Akranesbæjar hefur falið lögmanni bæjarfélagsins að meta hvort ritdómur Fréttatímans um ritið Sögu Akraness varði við lög. "Þeir sem gefa út og skrifa ritdóma og ætlast til þess að hlustað er á þá verða auðvitað að skilja að þeir geta haft hrikalegar afleiðingar með ábyrgðarlausu tali. Að þjófkenna menn og segja að þeir séu að ásetningi að falsa sögu er býsna alvarlegar ásakanir," segir Árni Múli Jónasson, bæjarstjóri Akranesbæjar, í samtali við Vísi.

Óhöppum Strætó fækkar um 44%

Óhöppum Strætó í umferðinni fækkaði um 44% á fyrri hluta þessa árs samanborið við sama tímabil á síðasta ári. Síðasta ár var þó metár hvað öryggi í akstri Strætó varðar. Alls voru 49 óhöpp skráð á fyrstu sex mánuðum ársins, en 88 í fyrra.

Vannærð börn í Sómalíu

Alþjóða Rauði krossinn segir að hvergi í heiminum sé vannæring barna jafn mikil og í Sómalíu, en þar hefur ástandið hríðversnað á undanförnum vikum. Fjöldi barna sem þjást af alvarlegri vannæringu hefur tvöfaldast síðan í mars í sumum hlutum Sómalíu.

Gefur lítið fyrir skýringar Kristjáns

„Mér finnst hann gera þetta á afar veikum forsendum,“ segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um þá ákvörðun Kristjáns Möller, formanns iðnaðarnefndar Alþingis, að verða ekki við ósk þriggja þingmanna um að nefndin komi saman til að ræða um málefni Drekasvæðisins.

Karlmaður á sextugsaldri enn þungt haldinn eftir bifhjólaslys

Karlmaður á sextugsaldri sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af bifhjóli sínu þann 12. júlí síðastliðinn, liggur enn svæfður í öndunarvél. Ástand hans er óbreytt að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans.

Hraðamyndavélum komið fyrir í umferðargöngum

Hraðamyndavélar verða teknar í notkun í Bolungarvíkurgöngum og Héðinsfjarðargöngum á morgun. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða, að því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. Um árabil hafa hraðamyndavélar verið í Hvalfjarðargöngum.

Svikahrappur kynntist fórnarlambi í árekstri

Karlmaður á sextugsaldri, sem sætt hefur rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er grunaður um að hafa haft yfir hundrað milljónir af fólki með svikum og prettum. Fórnarlömbunum kynntist hann með ýmsum hætti. Til dæmis kynntust einn brotaþolinn og svindlarinn þegar bílar þeirra rákust saman.

Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu

Allt var með kyrrum kjörum í Kötlu í nótt eftir skjálfta þar upp á 2,6 síðdegis í gær. Þó var aðeins órói í Goðabungu, í austanverðum Mýrdalsjökli, en hann er ekki talinn vísbending um neinar frekari hræringar.

Bensín hækkar í verði

Verð á bensínlítra losar 240 krónur á ný eftir að Shell og Olís hækkuðu bensínverðið um þrjár krónur í gær og dísilolíuna heldur minna. Búast má við að hin félögin hækki verðið í dag.

Sjá næstu 50 fréttir