Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fékk grjótregn á þakið: Þetta hljómaði eins og hvellhetta Rúður eru brotnar og þök dælduð í Bolungarvík eftir að grjóti ringdi þar yfir íbúðarhús um hádegisbilið. Ástæðan er sú að verktaki var að sprengja í fjallinu fyrir ofan þar sem unnið er að gerð snjóflóðagarðs. Nikólína Beck Þorvaldsdóttir var heima hjá sér ásamt fjölskyldu þegar grjótinu tók að rigna yfir húsið. Þeim brá skiljanlega mjög en gerðu sér í fyrstu ekki grein fyrir hvað var að gerast. Nokkuð hefur verið um sprengingar að undanförnu og hélt hún í fyrstu að þarna hefði sprenging mistekist. "Þetta hljómaði eins og hvellhetta," segir hún. Ekki er vitað til þess að slys hafi orðið á fólki. "Margir voru úti að vinna í görðunum sínum og ég þakka bara fyrir að þetta lenti ekki á neinum," segir Nikólína. Eftir því sem hún best veit eru engin hús óíbúðarhæf eftir grjóthrunið þó sum þeirra séu vissulega illa farin. Hjá henni urðu mestu skemmdirnar á þakinu þar sem gat kom í bárujárnið, jafnvel þó þar hafi ekki verið um stóra hnullunga að ræða. Þar hafi hraði grjótsins haft úrslitaáhrif þegar kom að skemmdum. 23.6.2011 13:47
Lýst eftir vitnum að umferðaróhappi við Hörpuna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi sem átti sér stað á Sæbraut á móts við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpuna síðdegis fimmtudaginn 9. júní síðastliðinn. Á þessum tíma voru umferðartafir þar sem farmur hafði fallið af bifreið og lokað akreinum til austurs. Lögregla stjórnaði umferð sem var hleypt til austurs á einni akrein. Þar varð umferðaróhapp er rauðleitri Toyota Corolla station bifreið og hvítri Scania vörubifreið lenti saman. Ökumönnum bifreiðanna ber ekki saman um málsatvik og því er lýst eftir vitnum að óhappinu. Þeir sem geta varpað ljósi á málið eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000. 23.6.2011 13:18
Georg Guðni: Málari eilífðarinnar Georg Guðni myndlistarmaður féll frá um liðna helgi, langt fyrir aldur fram. Ragna Sigurðardóttir, myndlistarrýnir Fréttablaðsins, fer yfir feril listamannsins og metur áhrif hans og vægi. 23.6.2011 13:00
Vettvangshjálparlið sett á fót á Flúðum Samkomulag um stofnun 13 manna vettvangshjálparliðs á Flúðum var undirritað af Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Björgunarfélagi Eyvinds á Flúðum, Lögreglunni í Árnessýslu og Árnesingadeild Rauða Krossins þann 21. júní síðastliðinn. 23.6.2011 12:52
Heyskortur blasir við í vetur Heyskortur blasir við víða á Norðausturlandi í vetur þar sem grasspretta er mun seinni en í meðalári og tún eru sumstaðar kalin. Ráðgjafaþjónusta bænda ætlar að miðla upplýsingum um slægjumöguleika annarsstaðar. 23.6.2011 12:16
Allt að tveggja ára biðtími eftir talmeinafræðingi Börn sem þurfa á talþjálfun að halda geta þurft að bíða í allt að tvö ár eftir að komast að. Gífurlegur skortur er á talmeinafræðingum hér á landi. Biðin er sérstaklega löng hjá talmeinafræðingum sem eru með samning við Sjúkratryggingar Íslands enda eru þeir örfáir. 23.6.2011 12:08
Ólafur Ragnar hrósar hinni umdeildu Söruh Palin Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kom blaðamanni Alaska Dispatch nokkuð á óvart á dögunum þegar hann hrósaði í hástert Söruh Palin, fyrrverandi ríkisstjóra Alaska og varaforsetaframbjóðenda í Bandaríkjunum. Sem kunnugt er var Ólafur Ragnar eini þjóðarleiðtoginn sem Palin hafði hitt þegar hún bauð sig fram til varaforseta. "Þegar við hittumst var hún nýorðinn ríkisstjóri og við ræddum ekkert um landsmálin," segir Ólafur í viðtali við Alaska Dispatch, en hann er staddur á fjölþjóðlegri ráðstefnu í Alaska um nýjar siglingaleiðir vegna bráðnunar íss á Norðurslóðum. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson flytur í dag, mánudaginn 20. júní, ræðu á setningarathöfn fjölþjóðlegrar ráðstefnu sem haldin er í Alaska. Viðfangsefni hennar er að ræða nauðsyn framkvæmda og sérstakra framtíðaráætlana með tilliti til nýrra siglingaleiða sem bráðnun íss á Norðurslóðum mun innan tíðar hafa í för með sér. Ólafur segir að þau Palin hafi rætt um möguleika Alaska á sviði jarðvarmaorku. "Ég skynjaði hjá henni hæfileika á sviði stjórnmála, pólitíska hæfni sem fólk annað hvort hefur eða ekki. Þetta er eins og tónlistarhæfileikar. Hvort sem fólk er sammála henni eða ekki þá er það skýrt merki um hæfileika henna að á aðeins nokkrum árum hefur hún farið frá því að vera embættismaður í Alaska til þess að vera eitt áhrifamesta afl stjórnmálanna," segir Ólafur Ragnar. Blaðamaður tekur fram í greininni að aðdáun Ólafs Ragnars á Palin kunni að vekja sérstaka kátínu meðal vinstri sinnaðra stjórnmálamanna í Evrópu, en Palin er eins langt til hægri í hinu pólitíska litrófi og hægt er. Spurður hvað honum finnist um stjórnmálaskoðanir Palin segir Ólafur kíminn við blaðamann Alaska Dispatch: "Við skulum ekkert vera að ræða það neitt," og beinir umræðuefninu snarlega að loftslagsbreytingum og grænni orku. 23.6.2011 12:04
Ný starfsstöð Fræðslunets Suðurlands Fræðslunet Suðurlands og Rangárþing eystra undirrituðu í dag húsaleigusamning vegna nýrrar starfsstöðvar Fræðslunetsins á Hvolsvelli. Um er að ræða skrifstofu, fullbúna kennslustofu með fjarfundabúnaði og hlutdeild í sameiginlegu rými Tónlistarskóla Rangæinga og Hvolsskóla. 23.6.2011 11:37
Náðu manni á hlaupum frá kannabisræktun Síðastliðinn þriðjudag stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Árbæ. Við húsleit fundust 36 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á meðan aðgerðum lögreglu stóð komu tveir karlmenn á staðinn og er þeir urðu varir lögreglu varir reyndi annar þeirra að komast undan á hlaupum. Hann náðist eftir stutta eftirför og voru báðir mennirnir vistaðir. Við yfirheyrslu viðurkenndu þeir aðild sína að ræktuninni. Í kjölfarið var farið í húsleit á heimili annars mannsins og fannst þar ræktunarbúnaður og þurrkað marijúana. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri. Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. 23.6.2011 11:31
SA segja Ögmund fara villu vegar Samtök atvinnulífsins gagnrýna harðlega málflutning innanríkisráðherra í samgöngumálum og segja hann bókstaflega tala gegn yfirlýstri stefnu ríkisstjórnarinnar. Í pistli sem birtist á vef samtakanna er gengið svo langt að segja: „Verkstjórar stjórnarsamstarfsins hljóta að bregðast við og sjá til þess að innanríkisráðherra snúi af villu síns vegar. Takist það ekki er vart annar kostur en að fela öðrum að fara með samgöngumálin í ríkisstjórninni." Samtökin benda á að ríkisstjórnin hafi gefið út, í tengslum við gerð kjarasamninga þann 5. maí, að áfram verði unnið að útfærslu tillagna um vegaframkvæmdir á Suðvesturlandi og fjármögnun þeirra. Þá segir í pistlinum: „Yfirlýsingin er gefin af ríkisstjórninni allri og einstök atriði hennar eru samin með vitund og vilja viðkomandi fagráðherra. Þannig hefur innanríkisráðherra sem fer með samgöngumálin samþykkt og jafnvel samið sjálfur þann hluta yfirlýsingarinnar sem um vegaframkvæmdirnar fjalla. Nú hefur það komið skýrt fram á síðustu dögum að ráðherrann er á móti eigin yfirlýsingu og ætlar ekkert með hana að gera. Þá vaknar spurningin hvort ríkisstjórnin í heild og þingmenn hennar sætti sig við að ráðherrann geri alla ríkisstjórnina að ómerkingi." 23.6.2011 11:20
Vara Lýsis um allan heim Lýsisbragð gæti heyrt sögunni til, verði niðurstöður úr prófunum Matís á lýsi í duftformi, sem norska fyrirtækið Oil4Life hefur framleitt, jákvæðar. Í framhaldinu gæti fyrirtækið samið við Lýsi um framleiðslu. 23.6.2011 11:00
Hjólar um Vestfirði fyrir Grensásdeild Hjólagarpurinn, Ísfirðingurinn, og kontrabassaleikarinn Hávarður Tryggvason lagði upp í hjólreiðaferð um Vestfirði í gær til styrktar Grensásdeild sem hluti af átakinu Á rás fyrir Grensás. Hávarður lagði af stað frá Ísafirði og kvaddi Daníel Jakobsson bæjarstjóri hann á Silfurtorgi. Hávarður hjólar sem leið liggur vestur yfir heiðar, í gegnum Bíldudal og Patreksfjörð, Flókalund, innfirði Breiðafjarðar, Steinadalsheiði, Hólmavík og Ísafjarðardjúp aftur til Ísafjarðar. Alls er þetta tæplega 700 kílómetra vegalengd og 5 þúsund metrar í hækkanir yfir fjallvegi. Þeim sem vilja heita á Hávarð er bent á heimasíðu Grensásdeildar www.grensas.is <http://www.grensas.is> undir liðnum Á rás fyrir Grensás, eða á söfnunarreikning átaksins, reikningsnúmer: 311-26-3110, kennitala: 670406-1210. Í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ er Hávarði óskað alls hins besta á leið hans um fjórðunginn. 23.6.2011 10:51
Bónus vill afnema skilarétt á kjöti Bónus vill afnema allan skilarétt fyrirtækisins á kjötvörum frá og með 1. nóvember. Þá taka gildi reglur samkvæmt nýrri matvælalöggjöf sem meðal annars snerta rekjanleika búfjárafurða. Bændablaðið greinir frá því í dag að Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónuss hafi sent öllum kjötbirgjum fyrirtækisins erindi þar sem þetta kemur fram. Matvöruverslanir hafa almennt unnið eftir þeirri vinnureglu í samskiptum við kjötbirgja að skilaréttur sé á kjöti sem ekki selst í verslunum. Guðmundur segir í samtali við Bændablaðið að þeir sem hafa verið með skilarétt í Bónus hafi nánast haft frjálsan aðgang að verslunum, þeir panti sjálfir og ákveði magnið með tilliti til eigin birgðastöðu. "Ef þeir eiga mikið af bjúgum þá senda þeir mikið af bjúgum í búðirnar sem dæmi. Þeir gera þetta nánast eftir sínu höfði," segir Guðmundur. "Það sem mun hins vegar gerast ef skilarétturinn verður afnuminn, þá mun verslunin sjálf ákveða vöruvalið, panta sjálf og bera þá rýrnun sem verður," segir hann í Bændablaðinu. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, fagnar frumkvæði Bónuss. Hann telur þetta jákvætt skref sem muni minnka sóun í keðunni frá framleiðanda til neytenda. Skiptar skoðanir eru þó um skilaréttinn og segir Sigmundur Ófeigsson, framkvæmdastjóri Norðenska, sem þó er í litlum viðskiptum við Bónus, að hann óttist að vöruúrval í verslunum muni minnka ef skilarétturinn verður afnuminn. 23.6.2011 10:40
Grafa undirgöng vestan við Litlu kaffistofuna Næstu daga verður unnið við gerð undirganga á Suðurlandsvegi, vestan við Litlu kaffistofuna. Á meðan að vinna við undirgöng stendur yfir mun umferð fara um bráðabirgðarveg við hlið framkvæmdasvæðis. Vegfarendum er bent á að hámarkshraði við framkvæmdasvæðið er 50km/klst. Vegfarendur eru hvattir til að sýna fyllstu aðgát og fylgja þeim merkingum sem uppi eru hverju sinni. 23.6.2011 09:55
Réttindi transgender fólks: Ísland á eftir Ísland er á eftir mörgum Evrópuríkjum þegar kemur að lagalegum réttindum transgender fólks. Aftur á móti stendur Ísland vel að vígi í sambandi við réttindi réttindi samkynhneigðra og tvíkynhneigðra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins, Thomasar Hammarbergs, sem gefin verður út opinberlega í dag. Í skýrslunni er farið ítarlega yfir lagaleg réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks í aðildarríkjum Evrópuráðsins, sem eru 47 talsins. Ísland er eitt af 27 ríkjum Evrópuráðsins sem hefur ekki innleitt sérstakan lagaramma um mismunun gegn transgender fólki. Hinsvegar er Ísland nefnt sem eitt tuttugu ríkja sem hefur yfirgripsmikinn lagaramma um mismunun gegn kynhneigð. Skilyrði um ófrjósemisaðgerð Ísland er eitt af 29 ríkjum sem setur skilyrði fyrir því að fólk gangist undir ófrjósemisaðgerð eigi að viðurkenna lagalega valið kynferði. Í Austurríki og Þýskalandi hafa dómstólar komist að því að slíkar aðgerðir brjóti gegn stjórnarskrárbundnum réttindum ríkjanna. Ísland er einnig eitt af fimmtán ríkjum sem gerir kröfu um að transgender fólk sé ógift svo hægt sé að viðurkenna valið kynferði þess. Aðstoð við tæknifrjóvgun Á hinn bóginn kemur fram að Ísland sé eitt af sjö ríkjum Evrópuráðsins sem hafi heimilað hjónaband samkynhneigðra, ásamt Belgíu, Hollandi, Noregi, Portúgal, Spáni og Svíþjóð. Ísland er líka eitt af átta ríkjum sem hafa heimilað samkynhneigðum pörum að ættleiða börn og eitt af níu ríkjum sem hafa veitt lesbískum pörum aðstoð við tæknifrjóvgun. Í tólf aðildarríkjum Evrópuráðsins fundust dæmi um að stjórnvöld höfðu bannað opinberar samkomur samkynhneigðra. Almennt um skýrsluna Skýrslan er afrakstur tveggja ára vinnu mannréttindaskrifstofu Evrópuráðsins. Hún byggir á upplýsingum frá viðeigandi stjórnvöldum, mannréttindastofnunum, félagasamtökum og sérfræðingum. Megin niðurstaða hennar er að mörg ríki Evrópuráðsins eigi enn langt í land með að viðurkenna réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks. 23.6.2011 08:48
Leituðu að ferðamanni í Fljótsdal Björgunarsveitarmenn á Austurlandi voru kallaðir út upp úr miðnætti til að leita að ferðamanni, sem saknað var inn af Fljótsdal. 23.6.2011 08:45
Kraftur kominn í makrílveiðarnar Kraftur er nú kominn í makrílveiðarnar suður af landinu og eru mörg skip þegar byrjuð veiðar. Aflinn er ýmist unninn og frystur um borð í fjölveiðiskipunum, eða landað ferskum til vinnslu í landi. 23.6.2011 08:29
Vilja fjölga ferðum Herjólfs Bæjarráð Vestmannaeyja vill að ferðum Herjólfs á milli Eyja og Landeyjahafnar verði fjölgað, ekki síst í ljósi þess hve skipið er þétt setið í hverri ferð og mörg dæmi séu um að fólk þurfi frá að hverfa þar sem skipið er fullt. 23.6.2011 08:13
Svifu 380 kílómetra leið Þremur svifflugmönnum á þremur svifflugum tókst í gær að svífa 308 kílómetra fyrirfram ákveðna leið, sem mun vera einstakur árangur í svifflugi hér á landi. Flugið hófst á Sandskeiði og lauk þar. 23.6.2011 08:11
Blái herinn skorar á ráðherra Umhverfissamtökin Blái herinn hafa sent umhverfisráðherra áskorun um að taka strax á olíumenguninni, sem fannst í fjörunni við Garðskagavita í fyrrakvöld, en Umhverfisstofnun telur ekki ástæðu til aðgerða. Hún telur að náttúran sjálf muni vinna á menguninni. Ekki er vitað hvaðan hún kemur, nema hvað hún er væntanlega komin úr einhverju skipi, sem hefur átt leið hjá. Árleg sólstöðuhátíð hefst á svæðinu í dag, en undanfarin ár hafa börn leikið sér í fjörunni, þar sem mengunin er nú. 23.6.2011 08:06
Enn á sjúkrahúsi en ekki í lífshættu Vélhjólamaður, sem féll á hjóli sínu á Reykjanesbraut undir kvöld í gær, er enn á sjúkrahúsi, en er ekki í lífshættu. Hann hlaut nokkur beinbrot í fallinu og missti meðvitund, en var kominn til meðvitundar um það bil sem komið var með hann á slysadeild Landspítalans. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir og er óljóst hvort hann hefur verið á mikilli ferð. 23.6.2011 08:05
Þrír bílar í árekstri við Hveragerði Engin slasaðist en töluvert eignatjón varð þegar þrír bílar lentu í árekstri við hringtorgið á þjóðveginum við Hveragerði í gærkvöldi. Þar höfðu tveir bílar numið staðar þar sem vegaframkvæmdir voru í torginu. Þriðji bíllinn kom að og ók á annan bílinn, sem kastaðist áfram á þann fremsta. Fjarlægja þurfti einn bílinn með kranabíl. 23.6.2011 08:04
Árangurslaus fundur með flugmönnum Ekki náðist niðurstaða á löngum samningafundi flugmanna hjá Icelandair og viðsemjenda þeirar hjá Ríkissáttasemjara, sem var slitið í gærkvöldi. Annar fundur hefur verið boðaður klukkan hálf ellefu fyrir hádegi, en flugmenn hafa boðað yfirvinnubann hjá félaginu, sem hefst á morgun, náist ekki samningar fyrir þann tíma. Það gæti raskað flugi umtalsvert, því þá mega flugmenn á frívakt ekki hlaupa í skarðið ef einhver flugmaður forfallast. 23.6.2011 08:03
Þörf á nýrri byggðaúttekt véfengd Samþykkt var í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis á þriðjudag að óskað yrði eftir við sjávarútvegsráðuneytið að gerð verði úttekt á áhrifum fiskveiðistjórnunarkerfisins á íslenskt samfélag allt frá árinu 1991. Áhrif á íbúa og byggðaþróun verði skoðuð auk annarra samfélagslegra þátta. 23.6.2011 08:00
Alþingi hættir að úthluta styrkjum til samtaka, félaga og einstaklinga Alþingi mun hætta að úthluta styrkjum til samtaka, félaga og einstaklinga á næsta ári. 23.6.2011 07:30
Ísland 83 prósent sammála Evrópu Ísland tók undir 83 prósent af yfirlýsingum ráðherraráðs ESB um afstöðu sambandsins til mála víðs vegar um heiminn í fyrra, að því er fram kemur í 28. fundafrásögn samninganefndar Íslands gagnvart ESB. 23.6.2011 07:00
Prestur skrifaði til varnar barnaníðingi Séra Örn Friðriksson, fyrrverandi sóknarprestur Mývetninga, skrifaði félagsmálayfirvöldum bréf í september árið 1998 til varnar dæmdum kynferðisbrotamanni. Maðurinn hafði misnotað stjúpdætur sínar kynferðislega um langt skeið og var dæmdur í tveggja ára fangelsi í júní árið 1995. Hann afplánaði fangelsisdóminn á Kvíabryggju og var sleppt einu og hálfu ári síðar. 23.6.2011 07:00
Heppnir Norðmenn Þrír Norðmenn höfðu heppnina með sér í Víkingalottóinu í kvöld og fær hver og einn tæplega 69 milljónir í sinn hlut. 22.6.2011 21:33
Alvarlegt vélhjólaslys á Reykjanesbraut Vélhjólamaður slasaðist alvarlega þegar hann féll af hjóli sínu á Reykjanesbrautinni við Innri Njarðvík um klukkan hálf sex í dag. 22.6.2011 20:40
Eigandinn fundinn - lambið búið að vera týnt í fimm daga "Það er bara gott að þetta endaði vel og gott að eigandinn fannst,“ segir Sólveig Ingvarsdóttir, íbúi í Flúðaseli í Reykjavík. Við sögðum frá því fyrr í dag að lamb hafi legið í garðinum hennar þegar hún ætlaði að fara vökva blómin í dag. Sólveig auglýsti eftir eigandanum og er hann nú fundinn. 22.6.2011 20:20
Innbrot í skartgripaverslun: „Þeir réðust á skápana með sleggju“ „Ég kom klukkan átta í morgun og það var eins og handsprengju hefði verið kastað hingað inn, glerbrotin voru eins og snjór yfir öllu," segir Elísabet Elíasdóttir, annar tveggja eigenda skartgripaverslunarinnar Úr og skartgripir - Nonni Gull í Hafnarfirði. 22.6.2011 19:23
Verðhækkanir ganga á ávinning kjarasamninga Verðhækkanir á mjólkurvörum draga úr þeim ávinningi sem nýgerðir kjarasamningar áttu að færa launafólki, segir hagfræðingur Alþýðusambandsins. Tilkynnt var í dag um verðhækkun mjólkurvara um næstu mánaðamót um fjögur til sjö prósent. 22.6.2011 18:47
Munu funda fram á kvöld Samningar hafa enn ekki tekist milli flugmanna hjá Icelandair og félagsins um nýjan kjarasamning en tæpir tveir sólarhringar eru þar til ótímabundið yfirvinnubann þeirra tekur gildi. 22.6.2011 18:33
Heimalningur í Breiðholti "Það lá bara lítið lamb úti í garði hjá mér þegar ég ætlaði að fara vökva blómin áðan,“ segir Sólveig Ingvarsdóttir, íbúi í Flúðaseli í Reykjavík. Það verður að teljast nokkuð sérstakt að lítið lamb kemur sér fyrir í garði í miðju íbúðarhverfi í Breiðholti um hásumar. 22.6.2011 18:02
Kæru Eimskips vísað frá Áfrýjunarnefnd samkeppnismála féllst í dag á kröfu Samkeppniseftirlitsins um frávísun á kæru Eimskipa á þeim grundvelli að hún hafi borist eftir að fjögurra vikna kærufrestur var liðinn. 22.6.2011 16:38
Mjólk hækkar um mánaðarmótin - smjör hækkar meira Heildsöluverð á mjólk hækkar um 4,25% þann 1. júlí. Þetta er gert samkvæmt ákvörðun verðlagsnefnd búvara, en þær mjólkurafurðir sem nefndin verðleggur munu hækka um sömu prósentutölu. Smjör hækkar þó meira, um 6,7%, og mjólkurduft til iðnaðar um 6%. Frá sama tíma hækkar afurðastöðvar verð til bænda um 3,25 krónur á mjólkurlítra, eða um 4,4%. Þá hækkar vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur um liðlega 4,1%. Ástæður verðhækkananna eru launabreytingar og hækkanir á aðföngum við búrekstur. 22.6.2011 16:13
Áfrýjunarnefnd staðfestir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti í dag ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að beita Seðlabankann dagsektum vegna vanrækslu á afhendingu gagna og upplýsinga um útlán banka. 22.6.2011 15:50
Ljósmæður styðja leikskólakennara Ljósmæðrafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu leikskólakennara fyrir leiðréttingu á launakjörum sínum. Í tilkynningu frá félaginu segir að kjarabarátta leikskólasnúist um að störf þeirra verði metin í samræmi við menntun, ábyrgð og þá grunnhugmynd að hægt sé að lifa mannsæmandi lífi á launum sínum. Þá taka ljósmæður fram að kjarabarátta leikskólakennara sé ekki síst jafnréttisbarátta enda langstærsti hluti leikskólakennara konur. "Ljósmæðrafélag Íslands skorar því á fjármálaráðherra að sýna kjark og þor og ganga strax í að leiðrétta laun leikskólakennara. Það er hagur samfélagsins alls að fólkið sem sér um fjöregg þjóðarinnar, börnin okkar, sé umbunað fyrir það mikla og góða starf," segir í tilkynningunni. 22.6.2011 15:14
Aukin trú á stefnu Íslands Trú Íslendinga á framtíð Íslands virðist vera að styrkjast ef marka má könnun sem þjónustufyrirtækið Miðlun hefur framkvæmt undanfarna mánuði. Könnunin nær yfir fjóra mánuði, en samkvæmt henni virðist útlitið hafa verið svartast í mars, þegar aðeins 31,4% svarenda töldu landið vera á réttri leið. 22.6.2011 14:22
Dagur sauðfjárræktarinnar Dagur sauðfjárræktarinnar verður haldinn hátíðlegur föstudaginn 24. júní næstkomandi en það eru Landbúnaðarháskóli Íslands og Búnaðarsamtök Vesturlands sem standa fyrir honum samkvæmt því sem fram kemur á héraðsmiðlinum feykir.is. 22.6.2011 14:04
Leikjadagur ÍTR í Nauthólsvík - ungir sem aldnir velkomnir Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur á 25 ára afmæli um þessar mundir og af því tilefni verður efnt til leikjadags ÍTR í Nauthólsvík laugardaginn 25. júní næstkomandi milli klukkan 13 og 16. Þá gefst ungum sem öldnum borgarbúum færi á að taka þátt í skemmtilegum, spennandi og öðruvísi leikjum og fjölbreyttri afþreyingu. Heiti dagsins er ætlað að undirstrika vægi leiksins í starfi ÍTR. Auk leikjanna verður boðið uppá aðstöðu til að grilla, poppað verður yfir eldi, hægt verður að fara á báta í Siglunesi, sýndir verða munir og myndir úr starfi ÍTR og sýnd ný heimildamynd um starfsemi skrifstofu tómstundamála ÍTR. Í þrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur var stofnað 19. júní 1986 við sameinginu Íþróttaráðs Reykjavíkur og Æskulýðsráðs Reykjavíkur. 22.6.2011 13:08
Fordæma vinnubrögð samninganefndar Félagsfundur verkalýðsfélagsins Hlífar fordæmir þau vinnubrögð sem samninganefnd Sambands íslenskra sveitafélaga viðhefur í kjarasamningsviðræðum við félagið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu en þar segir jafnframt að félagsmenn hvetji samningarnefnd Hlífar til að láta ekki af kröfunni um að fylgja þeirri launastefnu sem 85% vinnumarkaðarins hefur nú þegar samið um. 22.6.2011 12:57
Kaþólski biskupinn tekur ásakanirnar alvarlega - dómstólar ákvarða sekt "Biskup tekur mjög alvarlega þær ásakanir sem fram eru bornar um kynferðislegt áreiti innan vébanda Kaþólsku kirkjunnar. Vill kirkjan af öllum mætti styðja við þá einstaklinga sem hlut eiga að máli og stendur öll sú þjónusta sem kirkjan hefur fram að bjóða þeim opin." 22.6.2011 12:09
Vann 2 milljónir í lottósjálfsala Konu á Akureyri brá heldur betur í brún þegar hún gerði sér grein fyrir því að lottóvinningur sem hún taldi fyrst hljóða upp á 2.000 krónur reyndist vera heilar 2 milljónir króna. 22.6.2011 12:05
Reiknað með fundarhöldum í allan dag Samninganefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair komu saman til fundar hjá Ríkissáttasemjara klukkan hálf tíu í morgun. Ótímabundið yfirvinnubann flugmanna Icelandair hefst á föstudagsmorgun hafi ekki samist. Flugmenn krefjast meiri launahækkana en gert er ráð fyrir í almennum kjarasamningum og minni vinnuskyldu. 22.6.2011 12:00
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent