Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Olíumengun við Garðskaga Umhverfisstofnun barst í gær tilkynning um olíumengun á ströndinni við Garðskaga. Fulltrúi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja kannaði svæðið bæði í gær og í dag og var það niðurstaða hans og Umhverfisstofnunar að mengunin sé ekki þess eðlis að ástæða sé til að fara í hreinsunaraðgerðir, um er að ræða lítið magn af olíu, svæðið muni jafna sig á einhverjum dögum og ekki verða skaði af. Hætta er á raski og skemmdum sem verður við hreinsunaraðgerðir og því betra að olían skolist burt með flóðum ef mögulegt er. Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja mun fara og skoða aðstæður aftur eftir hádegið en þá mun annað flóð hafa gengið yfir. 22.6.2011 10:44
Íslendingar halda sig nálægt heimahögum Íslendingar sækjast helst eftir sumarhúsum nálægt heimili sínu á meðan Svíar, Norðmenn og Danir setja það í fyrsta sæti að hafa sumarhúsin sín við sjóinn. Þetta kemur fram í nýrri samnorrænni könnun meðal fasteignarsala, en 89% þeirra sem svöruðu könnuninni á Íslandi nefndu fjarlægð frá heimili þegar þeir voru inntir um þau sjónarmið sem helst hafi áhrif á eftirspurn eftir sumarhúsum. 22.6.2011 10:30
Stjórnendur telja aðstæður í atvinnulífinu slæmar Mikill meirihluti stjórnenda fyrirtækja telja aðstæður í atvinnulífinu vera slæmar Þetta er niðurstaða könnunar Capacent meðal stærstu fyrirtækja landsins. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var í maí og júní 2011, telja 78% stjórnenda aðstæður slæmar, 21% að þær séu hvorki góðar né slæmar en 2% að þær séu góðar. Þetta er nánast sama niðurstaða og fékkst í mars síðastliðunum þegar 79% stjórnenda töldu aðstæður slæmar. Samtök atvinnulífsins hafa samstarf við fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands um reglubundna könnun á stöðu og framtíðarhorfum stærstu fyrirtækja á Íslandi. Sagt er frá niðurstöðunum á vef SA. Mat stjórnenda á aðstæðum eftir 6 mánuði er töluvert lakara en verið hefur undanfarið og hefur matið ekki verið lægra síðan í desember 2009. 19% þeirra sjá fram á betri tíma eftir 6 mánuði, 31% að aðstæður verði verri en 50% telja að þær breytist ekki. Mun meiri bjartsýni ríkir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem 21% telja aðstæður batna, en á landsbyggðinni, þar sem einungis 11% telja þær batna. Stjórnendur í fjármálastarfsemi, þjónustu, iðnaði og verslun og eru bjartsýnni en í öðrum greinum, þar sem 20-30% telja að betri tíð sé í vændum, en mest svartsýni ríkir í byggingastarfsemi, þar sem enginn trúir á betri tíð, í samgöngum og flutningum, þar sem 5% sjá fram á betri tíð og í sjávarútvegi þar sem rúm 10% telja að ástandið batni. Áformuð er fækkun starfsmanna í öllum þeim atvinnugreinum sem flokkað er eftir, en minnst fækkun er áformuð í samgöngum og þjónustu, en mesta fækkunin í byggingastarfsemi og sjávarútvegi. Ekki er mikill munur á höfuðborgarsvæði og landsbyggð hvað áform um fækkun eða fjölgun starfsmanna varðar. 22.6.2011 09:51
Borgarlistamaður Reykjavíkur útnefndur í dag Borgarlistamaður Reykjavíkur 2011 verður útnefndur af borgarstjóranum í Reykjavík Jóni Gnarr í dag kl. 16:00 í Höfða og listamanninum veitt viðurkenning en það verður Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur, sem gerir grein fyrir vali ráðsins á listamanninum. Þá verður tónlistaratriði flutt af félögum úr Caput, Tónlistarhópi Reykjavíkurborgar 2011. 22.6.2011 09:22
Úrslitatímar í kirkjunni - aukin krafa um að biskup víki "Nú stendur sterk krafa á okkur presta utan úr samfélaginu um það að afsegja biskup." Þetta kemur fram í nýjust færslu hjónabloggs prestanna Bjarna Karlssonar og Jónu Hrannar Bolladóttur á Eyjunni sem ber titilinn: "Sorgir kirkjunnar." "Nú eru úrslitatímar í kirkjunni á Íslandi og þeir snúast ekki um persónu herra Karls eða nokkurs annars, heldur um það hvort okkur auðnist að vinda ofan af þeirri valdsmenningu sem lengi hefur verið þróuð við stjórn kirkjunnar en móta með okkur valdeflandi menningu þar sem hið góða samtal er iðkað og ólíkar raddir fá að hljóma. Óskýr skilaboð biskupsins um brotthvarf úr embætti valda því að óreiðuöflin fá enn aukið slagrými og kirkjan okkar færist enn utar á jaðar hins góða lífs í vitund almennings," rita þau Bjarni og Jóna Hrönn. Ljóst er að nýafstaðið Kirkjuþing varð síður en svo til að lægja öldurnar innan þjóðkirkjunnar og viðbrögð séra Karls Sigurbjörnssonar, biskups Íslands, mikil vonbrigði hluta presta sem og annarra meðlima þjóðkirkjunnar. DV birtir í dag niðurstöður viðhorfskönnunar sem blaðið gerði meðal presta og er niðurstaðan að þriðjungur þjóðkirkjupresta vill að biskup Íslands segi af sér. Um 70 prósent íslenskra presta svöruðu könnun DV sem var nafnlaus, og af þeim vilja 51,5 prósent að séra Karl segi af sér. Afar fáir prestar hafa undir nafni lýst því yfir að biskupinn þurfi að víkja. Sama dag og kirkjuþing stóð yfir sendi séra Sigríður Guðmarsdóttir frá sér yfirlýsingu þar sem hún hvatti til afsagnar hans. Þó séra Bjarni og Jóna Hrönn taki ekki jafn djúpt í árinni virðast þau vel gera sér grein fyrri þeim vanda sem að kirkjunni steðjar. Þá gagnrýna þau einnig skipulag kirkjuþings í bloggi sínu. "Forseti Kirkjuþings, Pétur Kr. Hafstein, hóf atburðarásina með ræðu sinni þar sem hann gerði persónu herra Karls Sigurbjörnssonar að aðalatriði og fjallaði af tilfinningaþunga um þau spjótalög sem að honum hafi verið rétt utan úr samfélaginu og ekki síður innan úr kirkjunni og lét þess getið að kirkjunnar fólk ætti að standa með sínum besta manni en ekki leggja til hans." Þau segja að með þessum hætti hafi Pétur dregið upp mynd af kirkjunni sem biskupakirkju og flokkað þjóna kirkjunnar í tvo hópa, annan vinveittan en hinn ekki. "Hvort tveggja var óboðlegt," segja Bjarni og Jóna, og bæta við "Með aðferð sinni leitaðist Pétur við að móta andrúmsloft hjarðhegðunar þar sem gagnrýninni hugsun er úthýst og hún túlkuð sem fjandskapur. Rannsóknarskýrslan ber því vitni að aðferðin er gamalreynd og að hún virkar." Aðkoma biskups var heldur ekki til fyrirmyndar að þeirra mati. "Herra Karl Sigurbjörnsson ávarpaði einnig samkomuna, settist að því búnu í öndvegi og vék ekki úr sal eða í áheyrnarsæti þótt persóna hans og embættisverk væru til umræðu. Einnig það var óboðlegt." Bloggfærlsu séra Bjarna og Jónu Hrannar má lesa hér í heild sinni. http://hjonablogg.eyjan.is/2011/06/sorgir-kirkjunnar.html 22.6.2011 08:55
Gjaldið hækkar í göngin Veggjald í Hvalfjarðargöngum hækkar um um það bil tíu prósent um næstu mánaðamót. Í tilkynningu frá rekstrarfélagi ganganna segir að hækkunina megi rekja til samdráttar í umferð og þar með skertra tekna, þyngri greiðslubyrði af lánum og mikillar fjárfestingar til að uppfylla kröfur Evrópusambandsins um öryggi vegfarenda um veggöng. Venjulegt gjald fyrri fólksbíl aðra leið hækkar úr 900 krónum í þúsund krónur. 22.6.2011 08:51
Upplýsingar um tafir mikilvægar „Ég tel að hagsmunir neytenda af því að fá upplýsingar um tíðni tafa og fjölmiðla fyrir þeirra hönd vegi þyngra en viðskiptahagsmunir fyrirtækja að halda svona upplýsingum leyndum,“ segir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda. 22.6.2011 08:30
Flugmenn funda aftur í dag Flugmenn hjá Icelandair og viðsemjendur þeirra koma aftur til samningafundar hjá Ríkissáttasemjara í dag, eftir langan samningafund í gær. 22.6.2011 07:07
Brotist inn í skartgripaverslun - þjófanna leitað Brotist var inn í skartgripaverslun í Hafnarfirði í nótt, en þjófarnir komust undan áður en lögregla kom á vettvang. Vitni segir að þeir hafi verið í hermannabuxum, dökkum hettupeysum og með klúta bundna fyrir andlitin. Lögregla hóf þegar leit í nágrenninu, en hún bar ekki árangur. 22.6.2011 07:06
Eldur á Hótel Selfossi - hótelið rýmt Hótel Selfoss var rýmt í skyndingu á örðum tímanum í nótt eftir að eldur kom upp í þvottahúsi hótelsins í kjallara þess. 130 gestir voru í hótelinu og gekk rýmingin vel. 22.6.2011 07:04
Dulin verðmæti liggja í hreinni orku Möguleikar norðurslóða í orkumálum liggja ekki síst á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, jarðhita og fallvatna, sem eru hluti af duldum verðmætum svæðisins. 22.6.2011 07:00
Dimmuborgir friðlýstar í dag Dimmuborgir og Hverfjall í Skútustaðahreppi verða friðlýst í dag við hátíðlega athöfn. Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra undirritar friðlýsinguna. Athöfnin fer fram við rætur Hverfjalls og inni í Dimmuborgum. 22.6.2011 07:00
Dró sér fé frá fólki á sambýli Ríkissaksóknari hefur ákært konu á fertugsaldri fyrir að draga sér fé af bankareikningum tveggja heimilismanna á sambýli Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vesturlandi. 22.6.2011 06:00
"Borgin er að eyða tíma sínum í að berjast við vindmyllur“ "Ég er búinn að vera í þessum bransa í tuttugu ár, það er svo fjarri því að ég sé að fara loka," segir Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Monte Carlo og Mónakó við Laugaveg. 21.6.2011 20:24
75 ný störf vegna 200 milljóna frá ríkinu Sjötíu og fimm ný störf hafa orðið til vegna 200 milljóna króna sem ríkið veitti til að mæta samdrætti vegna kvótaniðurskurðar. Það slagar upp í helming af þeim störfum sem verða til við fyrsta áfanga Helguvíkur. 21.6.2011 19:12
Besti flokkurinn missir fylgi - Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig Fylgi Besta flokksins í borginni er í frjálsu falli samkvæmt nýrri könnun. Fjórflokkarnir bæta allir við sig fylgi en Sjálfstæðismenn mest. Sautján prósent borgarbúa treysta Jóni Gnarr. 21.6.2011 18:45
Lögreglan skrifaði skýrslu eftir að faðirinn fór að kanna málið Skýrsla lögreglu um andlát Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur var skrifuð fjórum og hálfum mánuði eftir að rannsókn lauk og ekki fyrr en að faðir hennar fór að grafast um málið. Lektor í refsirétti furðar sig á vinnubrögðum lögreglu. 21.6.2011 18:40
Tveimur mönnum bjargað af Esjunni Mönnunum tveimur, sem voru í sjálfheldu á Esjunni, hefur nú verið komið til bjargar, en björgunarsveitarmenn voru langt komnir upp í fjallið þegar þyrla Landhelgisgæslunnar kom á staðinn. 21.6.2011 16:58
Hæstiréttur staðfestir tveggja ára dóm yfir íkveikjumanni Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdóm yfir Auðuni Þorgrími Þorgrímssyni fyrir að hafa borið eld að íbúð að Tryggvagötu í Reykjavík í janúar 2009. 21.6.2011 16:47
ASÍ samþykkir kjarasamningana Samninganefnd ASÍ hefur ákveðið að staðfesta gildistöku þeirra kjarasamninga sem undirritaðir voru þann fimmta maí síðastliðinn og hafa Samtök atvinnulífsins í dag einnig staðfest gildistöku samninganna. Samningarnir munu því gilda til 31.1 2014 með umsömdum endurskoðunarákvæðum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Alþýðusambandinu en þar segir orðrétt: 21.6.2011 16:36
Björgunarsveit kölluð upp í Esjuna Kallað var í björgunarsveitina á höfuðborgarsvæðinu nú fyrir skömmu þar sem tveir menn eru í sjálfheldu á Esjunni. Ekki er vitað hvert ástand mannanna er en björgunarsveitarmenn eru nú á leið upp í fjallið til að koma mönnunum til hjálpar. 21.6.2011 16:30
Kóngavegur á virta kvikmyndahátíð í Tékklandi Kvikmyndinni Kóngavegur í leikstjórn Valdísar Óskarsdóttur hefur verið boðið að taka þátt í hinni virtu kvikmyndahátíð Karlovy Vary í Tékklandi sem hefst nú fyrstu vikuna í júlí. 21.6.2011 16:09
Hestamenn fá margvíslegan stuðning Landssamband hestamannafélaga, Landsmót hestamanna ehf. og Samskip hf. hafa undirritað víðtækan samstarfs- og styrktarsamning sem tekur til nokkurra af helstu viðburðum hestamennsku og hestaíþrótta til loka árs 2013, þar á meðal landsmóta, Íslandsmóta og bæði heimsmeistaramóts og Norðurlandamóts íslenskra hesta. Stuðningur Samskipa er með margvíslegum hætti, svo sem flutningar og flutningatengd þjónusta, verðlaunagripir, tæki og búnaður. Haraldur Þórarinsson, stjórnarformaður Landssambands hestamannafélaga og Landsmóts hestamanna ehf., og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, undirrituðu samstarfssamninginn. Haraldur segir að stuðningur Samskipa sé afar mikilvægur og hafi þau áhrif að auðveldara verði að halda niðri kostnaði við mótshald og útgerð landsliða, sem ella myndi lenda á hestamönnum og mótsgestum að greiða í formi hærri aðgangseyris og þátttökugjalda. Ásbjörn segir að Samskip horfi meðal annars til þess að íslenski hesturinn beri hróður lands og þjóðar víða um veröld og höfði til fjölda fólks á öllum aldri. Það sjáist best á því að um 11.500 manns manns stundi hestamennsku á Íslandi og um 60.000 manns innan alþjóðasamtaka íslenska hestsins í 19 þjóðlöndum og þremur heimsálfum. Hestamót hérlendis og erlendis séu fjöldasamkomur sem dragi sífellt að sér meiri athygli fólks, langt út fyrir raðir sjálfra iðkendanna. Samskip vilji leggja samtökum hestmanna lið og styrkja enn frekar öfluga starfsemi þeirra í þágu iðkenda hestaíþrótta og allra aðdáenda íslenska hestsins nær og fjær. Hestaíþróttaviðburðir sem samningurinn tekur til: Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði 2011 og í Reykjavík 2012, Íslandsmót fullorðinna á Selfossi 2011, Íslandsmót barna- og unglinga í Keflavík 2011, Íslandsmót fullorðinna á Vindheimamelum 2012, Íslandsmót barna- og unglinga á Hellu 2012, Hestadagar í Reykjavík 2012, ístölt landsliðsins í Skautahöllinni í Reykjavík heimsmeistaramótið í Austurríki 2012 og Norðurlandamótið 2013. 21.6.2011 15:22
Rafmagnslaust í 5 mínútur Rafmagnslaust varð í hluta Grafarvogs, Mosfellsbæjar og á Kjalarnesi laust eftir klukkan 14:30 í dag vegna bilunar í spenni í aðveitustöð við Korpu. Rafmagn var komið aftur á 5 mínútum síðar. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur er verið að kanna orsakir bilunarinnar. 21.6.2011 15:14
Bótakröfu hafnað - hugar að málsókn Anna Kristín Ólafsdóttir hugar nú að málsókn í kjölfar höfnunar ríkislögmanns á 5 milljóna króna bótakröfu sem Anna Kristín lagði fram á þeim grundvelli að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar karlmaður var ráðinn framyfir hana við ráðningu skrifstofustjóra í Forsætisráðuneytinu. 21.6.2011 15:14
SA staðfesta kjarasamninga Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að staðfesta gildistöku kjarasamninga frá 22. júní 2011 í samræmi við ákvæði kjarasamninganna sem undirritaðir voru 5. maí síðastliðinn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá SA. Þar segja samtökin að þau fallist á samingana, þrátt fyrir það sem SA telja vanefndir ríkisstjórnarinnar. 21.6.2011 14:52
Aukið umferðareftirlit við borgarmörkin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í sumar halda uppi auknu umferðareftirliti á Vesturlandsvegi, Suðurlandsvegi og Reykjanesbraut í tengslum við umferðaröryggisáætlun. Meginmarkmiðið með eftirlitinu er að draga úr ökuhraða en jafnframt að tryggja eins og hægt er að vanbúin ökutæki séu ekki á ferð um þjóðvegi landsins. Eftirlitið stendur yfir alla daga en þungi þess verður þó yfir helgarnar þegar umferðin og þörfin er mest. Sérstaklega verður hugað að ljósabúnaði, skráningu og hleðslu ökutækja, tjaldvagna, fellihýsa og hjólhýsa. Einnig verður fylgst með því að hliðarspeglar ökutækja sem draga breiða eftirvagna séu samkvæmt reglum. Lögreglan hvetur ökumenn sem fyrr til aðgæslu og tillitssemi í umferðinni svo ekki þurfi að grípa til sekta og jafnvel kyrrsetningar tækja. Sent fyrir hönd Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 21.6.2011 14:44
Níu mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot Karlmaður frá Suðurnesjum var dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir kynferðisbrot gegn sextán ára dreng. Þá er hann dæmdur fyrir að gefa honum og öðrum sextán ára dreng, áfengi, en slíkt er ólöglegt samkvæmt áfengis- og barnaverndarlögum. 21.6.2011 14:06
Lamdi rangan mann fyrir að kalla félaga sína "þræla og górillur“ Karlmaður var sektaður í dag um 75 þúsund krónur fyrir að hafa slegið og sparkað í höfuð manns við skyndibitastaðinn Hlöllabáta í miðborg Reykjavíkur í júní árið 2009. Ástæðan var sú að hann taldi að fórnarlambið hefði kallað þeldökka félaga sína "svertingja, górillu og þræl“ eins og fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. 21.6.2011 13:36
Leitað eftir hugmyndum um þróun Þingvalla Þingvallanefnd leitar eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins. 21.6.2011 12:41
26,7% bera lítið traust til Landlæknisembættis 26,7% landsmanna segjast bera lítið traust til Landslæknisembættisins samkvæmt nýrri könnun sem framkvæmd var af MMR dagana 9.-15. júní. 21.6.2011 12:22
Dimmuborgir og Hverfjall friðuð Dimmuborgir og Hverfjall í Skútustaðahreppi verða friðlýst á morgun við hátíðlega athöfn. Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, undirritar friðlýsinguna og mun athöfnin fara fram við rætur Hverfjalls og inni í Dimmuborgum 21.6.2011 11:52
Bubbi Morthens endurheimti þýfi fyrir Hugleik "Bubbi skipaði glæpónunum að senda þetta upp í Efstaleiti,“ segir rithöfundurinn Hugleikur Dagsson, sem endurheimti efnið sem var á tölvunni hans sem var stolið fyrir skömmu. 21.6.2011 11:46
Tveir sextán ára piltar lentu í vinnuslysi Tveir sextán ára gamlir drengir slösuðust í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Annar drengjanna flækti hanska í færibandi með þeim afleiðingum að hann handleggsbrotnaði. 21.6.2011 10:59
Björgunarvestaþjófa leitað Brotist var inn í bílskúr við Kirkjubæjarbraut í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Þjófurinn stal fjórum björgunarvestum. 21.6.2011 10:55
Fimmtán ára handtekinn með fíkniefni í Vestmannaeyjum Tvö fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Vestmannaeyjum í byrjun vikunnar. Lögreglan hafði afskipti af tveimur einstaklingum vegna gruns um að þeir væru með fíkniefni á sér. 21.6.2011 10:49
Dagur hjólabrettisins haldinn hátíðlegur Dagurinn í dag er alþjóðlegur dagur hjólabrettisins og af því tilefni ætla áhugamenn um íþróttina, eða lífstílinn, að hittast við Hallgrímskirkju klukkan tólf í hádeginu og renna sér niður á Ingólfstorg. Brettafélag Reykjavíkur stendur fyrir viðburðinum hér á landi en um allan heim koma menn saman á þessum degi og renna sér. 21.6.2011 10:42
Mál Müller til ákæruvaldsins Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er búin að rannsaka kynferðisbrot, sem beinist að Margréti Múller heitinni, þegar hún var kennari við Landakotsskóla. Málið hefur verið sent ákærusviði að sögn Björgvin Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar. 21.6.2011 10:10
Nýr sýningasalur opnar á Hornafirði Nýr sýningasalur Listasafns Hornafjarðar verður opnaður við hátíðlega athöfn þann 24. júní næstkomandi. Salurinn er til húsa í Gömlu Slökkvistöðina og verður opnunarsýningin á verkum Svavars Guðnasonar. 21.6.2011 09:57
Lögregla sökuð um að skilja mann tvívegis eftir í óbyggðum Aðalmeðferð fer fram í dag í máli ríkissaksóknara gegn lögregluvarðstjóra á Selfossi sem hefur verið ákærður fyrir að fara offari í framkvæmd lögreglustarfans og ekki gætt lögmætra aðferða sem stjórnandi lögregluaðgerðar. 21.6.2011 09:45
Áhöfn skorar á þingmenn Áhöfnin á fjölveiðiskipinu Barða frá Neskaupstað segir í áskorun til þingmanna, að allt tal um eflingu sjávarbyggða, í nýsamþykktu frumvarpi um stjórn fiskveiða, sé blekking, því til að auka veiðiheimildir á einum stað þurfi að minnka þær á öðrum. 21.6.2011 09:15
Ekið á kind og lamb við Patreksfjörð Ekið var á kind og lamb á þjóðveginum skammt frá Patreksfirði í gærkvöldi og drápust þau bæði. Það sem af er mánuðinum hefur lögreglunni á Vestfjörðum borist ellefu tilkynningar um slíkt, héðan og þaðan af öllu svæðinu, enda eru óvíða fjárheldar girðingar við þjóðvegina á Vestfjörðum. 21.6.2011 08:56
Borgarlistamaður útnefndur á morgun Borgarlistamaður Reykjavíkur 2011 verður útnefndur af borgarstjóranum í Reykjavík síðdegis á morgun. Athöfnin fer fram í Höfða klukkan fjögur. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkur, gerir grein fyrir vali ráðsins á listamanninum og tónlistaratriði flytja félagar úr Caput, Tónlistarhópi Reykjavíkurborgar 2011. Útnefning borgarlistamanns er heiðursviðurkenning til handa reykvískum listamanni sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi. Þeir einir listamenn koma til greina við útnefningu borgarlistamanns, sem búsettir eru í Reykjavík. Viðurkenningin borgarlistamaður hefur tíðkast síðan árið 1995 og kom þá í stað eins árs starfslauna. Hana hafa hlotið: 1995 Guðmunda Andrésdóttir, 1996 Jón Ásgeirsson, 1997 Hörður Ágústsson, 1998 Thor Vilhjálmsson, 1999 Jórunn Viðar, 2000 Björk, 2001 Kristján Davíðsson, 2002 Hörður Áskelsson, 2003 Ingibjörg Haraldsdóttir, 2004 Hallgrímur Helgason, 2005 Rúrí og Páll Steingrímsson, 2006 Edda Heiðrún Backman, 2007 Ragnar Bjarnason, 2008 Þórarinn Eldjárn, 2009 Steinunn Sigurðardóttir 2010 Kristbjörg Kjeld. 21.6.2011 08:45
Þriggja ára stúlka slapp ómeidd úr bílveltu Þriggja ára stúlka slapp alveg ómeidd og afi hennar, á miðjum aldri, meiddist lítið þegar bíll þeirra fór út af Ólafsfjarðarvegi í gærkvöldi, valt og hafnaði ofan í skurði, langt frá veginum. Að söng lögreglunnar í Ólafsfirði er með ólíkindum hvað þau sluppu vel miðað við aðstæður og skemmdir á bílnum, en litla stúlkan var í góðum barnastól og afinn var með öryggisbelti. Ekki er ljóst hvað fór úrskeiðis við aksturinn. 21.6.2011 08:02
Næturfrost á hálendinu Næturfrost var víða á hálendinu í nótt og niður í byggðir á norðaustanverðu landinu. Kuldinn á hálendinu tefur fyrir að snjófannir bráðni þar af vegum, þannig að hálendisvegirnir eru lang flestir enn lokaðir. 21.6.2011 07:16