Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skýrsla um biskupsmálið: Ráðaleysi og skortur á vönduðum vinnubrögðum Rannsóknarnefnd kirkjuþings hefur lokið við gerð skýrslu um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Skýrslan er rúmlega 300 síður að lengd en nefndinni var falið að leggja mat á viðbrögð kirkjunnar eftir að ásakanirnar komu fram á sínum tíma. Nefndinni var hinsvegar ekki ætlað að "fjalla um sannleiksgildi ásakana um kynferðisbrot sem fram hafa komið á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi." 10.6.2011 11:02
Endist ekki ævin til þess að borga námslánin Af þeim sem hófu endurgreiðslu námslána árið 2010 skulduðu um 16 prósent námsmanna meira en 6 milljónir króna og samtals rúmlega 40 prósent af heildarskuldum hópsins. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar þar sem lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) er skoðaður. 10.6.2011 10:18
Hitastig sjávar sem um hávetur Fimm íslensk skip leituðu að norsk-íslenskri síld í veiðanlegu magni norðaustur af landinu nú í byrjun vikunnar. Til þessa hefur leitin lítinn árangur borið, segir í frétt á heimasíðu HB Granda. 10.6.2011 09:00
Grunaður um rúm 40 auðgunarbrot Sú ákvörðun innanríkisráðherra að veita Geirmundi Vilhjálmssyni lausn frá starfi fangelsisstjóra á Kvíabryggju um stundarsakir, var rétt samkvæmt niðurstöðu nefndar fjármálaráðuneytis um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Geirmundur, sem taldi ákvörðunina óréttmæta og síðar óupplýsta, sætir rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna meintra auðgunarbrota hans á kostnað fangelsisins. 10.6.2011 08:30
Ákærðir fyrir milljónaþjófnaði Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur ákært tvo menn um tvítugt fyrir að brjótast ítrekað inn og stela munum að verðmæti á þriðju milljón króna. Mennirnir eru einnig ákærðir fyrir fjársvik. 10.6.2011 08:15
Snjór í öllum fjöllum kringum borgina Það snjóaði í nótt í öll fjöll, sem eru í sjónmáli frá höfuðborgarsvæðinu. Esjan var meðal annars alhvít alveg niður að rótum undir morgun. 10.6.2011 07:44
Samningaviðræðum slitið Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands og Flóafélaganna slitu í gærkvköldi viðræðum við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. 10.6.2011 07:41
Strandveiðar stöðvaðar á vestursvæðinu Strandveiðar á vestursvæðinu, frá Snæfellsnesi og inn í Ísafjarðardjúp, voru stöðvaðar á miðnætti þar sem bátarnir eru búnir með júní kvótann. 10.6.2011 07:28
Þriðja skyndiverkfall flugvirkja hjá Icelandair hafið Þriðja skyndiverkfall flugvirkja hjá Icelandair hófst á Keflavíkurflugvelli klukkan sex í morgun og komast vélar félagsins því ekki frá landinu fyrr en klukkan tíu, að verkfallinu lýkur. 10.6.2011 07:03
Fangelsisrefsing fyrir skjalafals Rúmlega tvítugur karlmaður, með ríkisfang í Kongó, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir skjalafals. 10.6.2011 07:00
Samkomulag um þinglok á morgun Formenn þingflokkanna og forseti Alþingis náðu samkomulagi um að þinglok verði á morgun gegn því að ýmsum málum verði frestað til haustsins. 10.6.2011 06:59
Stakk konu tvisvar í höfuð Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fimmtugri konu, Bergþóru Guðmundsdóttur, sem dæmdi hana í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir ýmis brot. Konan var meðal annars dæmd fyrir að stinga aðra konu tvívegis í höfuðið með eldhúshnífi í fyrra 10.6.2011 06:45
Ísland ákjósanlegt til rannsókna Alþjóðleg ráðstefna á vegum SÁÁ var sett í gær, en þar er umræðuefnið vímuefnafíkn og afleiðingar hennar. Dagskráin hófst með málþingi og umræðum, en í dag fer fram aðalráðstefnan þar sem íslenskir og erlendir fræðimenn fara yfir málin, með sérstakri áherslu á amfetamín- og rítalínneyslu. 10.6.2011 06:00
Gömlu bankarnir í limbói "Það er engum til góðs að skilanefndir verði til sjálfs sín vegna um langt árabil,“ segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra. 10.6.2011 05:15
Um þrjú hundruð lömb drápust vegna campylobactersýkingar Á þriðja hundrað lömb drápust á Leiðólfsstöðum í Dölum á Sauðburði. Svæsin camphylobactersýking kom upp í ánum á bænum og ljóst er að tjónið hleypur á milljónum króna. Þetta kemur fram í Bændablaðinu í dag. 9.6.2011 19:30
Landsbankinn fagnar því að niðurstaða sé komin í málið Landsbankinn fagnar því að niðurstaða sé komin í máli Landsbankans hf. gegn þrotabúi Mótormax ehf. og mun bankinn senda nánari upplýsingar til viðskiptavina á næstu dögum. Í tilkynningu segir að mikil vinna sé framundan við endurútreikninga lána sem falla undir dóminn og má búast við að sú vinna taki talsverðan tíma. 9.6.2011 19:03
Vil ekki kalla það málþóf - en við munum tala í þessu máli Engin sátt liggur fyrir á Alþingi um afgreiðslu á minna kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Sjálfstæðismenn vilja að ríkisstjórnin dragi það til baka en stjórnarliðar segja að það komi ekki til greina 9.6.2011 18:45
Verkfallsaðgerðir halda áfram í fyrramálið Verkfallsaðgerðir flugvirkja halda áfram í fyrramálið eftir árangurslausan samningafund hjá ríkissáttasemjara í dag. Annar fundur hefur verið boðaður á morgun. 9.6.2011 18:45
Síðustu þorpin gætu þurft að bíða lengi eftir malbikinu Patreksfjörður, Tálknafjörður og Bíldudalur stefna í að verða síðustu þéttbýliskjarnar á Íslandi, ásamt Borgarfirði eystra, til að tengjast öðrum landshlutum með bundnu slitlagi. Ráðherra vegamála gat engu svarað á Alþingi um hvernig vegamál staðanna á sunnanverðum Vestfjörðum verða löguð. 9.6.2011 18:38
Milljarðatap Landsbankans á dómi Hæstaréttar Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavikur um að lán sem fyrirtækið Motormax tók hjá Landsbanka Íslands hefði verið ólöglegt gengistryggt lán. 9.6.2011 17:39
Mörg hundruð kíló af járnstöngum féllu af flutningabíl við Hörpuna Vörubíll missti mörg hundruð kílóa af járnstöngum fyrir utan tónlistarhúsið Hörpu nú fyrir stundu. Járnin runnu af pallinum þegar bíllinn tók beygjuna. 9.6.2011 17:16
Manndráp af gáleysi: Dómur þyngdur verulega Hæstiréttur Íslands þyngdi í dag dóm yfir karlmanni á fertugsaldri sem var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi um mitt síðasta ári. Maðurinn ók ölvaður á vitlausum vegarhelmingi á Grindavíkurvegi í maí 2009 og lenti í árekstri við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Maðurinn var sviptur ökurétti og undir áhrifum áfengis þegar slysið varð. 9.6.2011 16:49
Átta ára fangelsisdómur fyrir dópsmygl staðfestur Hæstiréttur hefur staðfest átta ára dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Elenu Neuman, þýskri fertugri konu, sem sakfelld var fyrir að reyna að smygla til landsins á síðasta ári tæplega 20 lítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa. 9.6.2011 16:46
Hæstiréttur: Dæmd fyrir að stinga konu í höfuð og kveikja í fataskáp Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fimmtugri konu, Bergþóru Guðmundsdóttur, en hún hlaut í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir margvisleg brot. 9.6.2011 16:33
Foringi Black Pistons: Ekki kallaður nunna - þeir myndu aldrei þora því "Það hljóp einn náungi að mér og sló mig fyrirvaralaust, segir Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, um átök sem urðu á milli hans og nítján ára pilts á Litla-Hrauni fyrir skömmu. Ríkharð, sem er foringi Black Pistons hér á landi, sem nú heitir Outlaws prospect, segir fyrri fréttaflutning Vísi ekki réttan um málið. 9.6.2011 15:44
Öskufok í allt sumar? “Ég hugsa að við séum að fara að standa í þessu í allt sumar” segir Þorsteinn Kristinsson, lögreglumaður á Kirkjubæjarklaustri, um öskufokið sem enn heldur áfram að gera íbúum á svæðinu lífið leitt. 9.6.2011 15:36
Sáttafundur í deilu flugvirkja Samningamenn Flugvirkjafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins komu saman í húsnæði Ríkissáttasemjara um tvöleytið í dag vegna deilu flugvirkja hjá Icelandair við Samtök atvinnulífsins. Fundurinn stendur enn yfir, að sögn Magnúsar Péturssonar ríkissáttasemjara. Hann sá ekki ástæðu til að kalla samningamenn Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair saman til funda í gær þar sem kjaradeilan var í hnút. 9.6.2011 15:31
Boxerhundar drápu á þriðja tug lamba og kinda Tveir boxerhundar drápu á þriðja tug lamba og kinda í nágrenni Eyrarbakka. Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um dýrbítana rétt fyrir hádegi í dag. Lömbin og kindurnar voru á túni bæjarins Þórðarkots. Bændurnir á bænum skutu hundana þegar upp komst um drápin, enda hafa bændur heimild til að skjota dýrbíta. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er staðfest að hundarnir drápu 23 kindur og lömb. Enn eru menn þó að leita á svæðinu sem er heldur víðfemt. "Þau voru mjög illa leikin, vægast sagt," segir lögreglumaður sem sinnir málinu um hræin. Hundarnir höfðu strokið frá eigendum sínum en óvíst er hversu lengi þeir voru að drepa sauðféð. Næstu skref lögreglu eru að yfirheyrahundaeigendurna, en samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru þeir að teknu tilliti til aðstæðna ekki ósáttir við að þeim hafi verið lógað. "Hundur sem bítur lamb, hann bítur aftur. Þegar þeir finna blóðbragðið vaknar villidýrið í þeim," segir lögreglumaðurinn. Búast má við að eigendur hundanna þurfi að greiða bændunum bætur vegna sauðfjárins sem þeir drápu, en lamb á fæti kostar um 25 þúsund krónur. Mögulegt er að aflífa þurfi fleiri lömb og kindur sem eru illa farin eftir árásina. 9.6.2011 15:24
Vísindagarðar og hátt í 300 stúdentaíbúðir Borgarráð hefur samþykkt breytingar á aðalskipulagi borgarinnar vegna háskólasvæðisins þar sem gert er ráð fyrir að þétt byggð rís með allt að 300 stúdentaíbúðum, starfsemi Háskóla Íslands og Vísindagörðum. Um er að ræða um uppbyggingu á um 74 þúsund fermetra lóð sem afmarkast af Eggertsgötu, Oddagötu og Sturlugötu. 9.6.2011 14:53
Drusluganga í Reykjavík Drusluganga verður farin í Reykjavík þann 23. júlí. Yfirlýst markmið göngunnar er að uppræta þá fordóma sem endurspeglast í áherslu á klæðaburð og ástand brotaþola í umræðu um kynferðisofbeldi. Þannig vilja skipuleggjendur göngunnar vekja athygli á því að það eru gerendur sem bera ábyrgð á kynferðisofbeldi, en ekki þolendur. Fyrirmynd Druslugöngunnar er hin svonefnda Slut walk sem fyrst var farin í Toronto í Kanada fyrr á þessu ári. Tilefni göngunnar voru umdeild ummæli lögreglustjórans í Toronto, Michael Sanguinetti, sem sagði á háskólafyrirlestri að "konur þyrftu að forðast að klæða sig eins og druslur til að verða ekki fórnarlömb." Sanguinetti baðst síðar afsökunar á orðum sínum. Konum í Toronto var engu að síður misboðið og skipulögðu gönguna sem fór fram í apríl á þessu ári. Þar var konum uppálagt að klæða sig eins druslulega og þeim þóknaðist, í þágu kynferðislegs frelsis. Konur um allan heim hafa tekið hugmyndinni fagnandi. Þegar hafa margar druslugöngur verið farnar um víða veröld og enn fleiri sem hafa verið skipulagðar, meðal annars í Danmörku, Svíþjóð, Bretlandi, Ástralíu og Suður-Afríku. "Við höldum að þetta sé málefni sem snerti alla, ekki bara konur, þrátt fyrir að nafnið Drusluganga sé vissulega með tilvísun í það að konur eigi að geta klætt sig og hagað sér eins og þeim sýnist án þess að það sé "ávísun" á að vera nauðgað," segir Anna Jóna Heimisdóttir, ein af skipuleggjendum göngunnar. Hún segir það einmitt oft vera viðkvæðið, bæði í fjölmiðlum og samfélaginu almennt, að konur geti sjálfar sér um kennt þegar þær eru beittar kynferðislegu ofbeldi ef þær voru klæddar á ögrandi hátt. Fyrsti fundur skipuleggjenda Druslugöngunnar var í gærkvöldi og var þá bæði ákveðið að þýða nafnið á þennan hátt, sem og dagsetningin sem gangan verður farin. 9.6.2011 14:52
Umboðsmaður skammar Lánasjóðinn Stjórn LÍN og mennta-og menningarmálaráðuneytið gáfu námsmönnum ekki fullnægjandi ráðrúm til þess að bregðast við breytingu á framkvæmd útreiknings á hámarki skólagjaldalána, en breytingin átti sér stað í lok júní á síðasta ári. Þetta kemur fram í áliti frá Umboðsmanni Alþingis, Tryggva Gunnarssyni, þar sem hann segir viðeigandi lagasjónarmiða og vandaðra stjórnsýsluhátta ekki hafa verið gætt af hálfu lánastofnunarinnar og ráðuneytisins. 9.6.2011 14:33
Íslendingar hafa greitt 4,2 milljarða í þróunarsjóð EFTA Frá árinu 1994 hafa Íslendingar greitt 4,2 milljarða króna til Þróunarsjóðs EFTA. Sjóðurinn veitir styrki til fátækari landa innan ESB og hafa framlög Íslands aukist mikið síðustu ár. Þannig hafa 2,3 milljarðar farið í sjóðinn árin 2009 og 2010. 9.6.2011 14:21
Niðurstöðu að vænta í jafnréttismálinu Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, segir unnið að því að ljúka sátt við Önnu Kristínu Ólafsdóttur vegna úrskurðar kærunefndar jafnréttismála sem komst að því í mars að jafnréttislög hefðu verið brotin þegar karl var tekinn fram yfir Önnu Kristínu við ráðningu skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu. Jóhanna segir að hugsanlega fáist niðurstaða í málið á næstu dögum. 9.6.2011 14:19
Foringi Black Pistons í átökum á Litla-Hrauni Foringi Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, virðist ekki eiga sjö dagana sæla inni á Litla-Hrauni en hann lenti í átökum við tvo pilta á tvítugsaldrinum fyrir skömmu. Samkvæmt heimildum Vísis á Ríkharð að hafa verið skallaður í andlitið af nítján ára samfanga sínum eftir að hann á að hafa ruðst inn í klefa piltsins með það að markmiði að taka rafmagnstæki af honum í leyfisleysi. 9.6.2011 14:06
Jón Gnarr leitar að Reykvíkingi ársins Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur leitar nú eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur til fyrirmyndar. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins. Sá sem hlýtur nafnbótina fær meðal annars laxveiðidag í Elliðaánum með Jóni og frítt í sund. 9.6.2011 13:10
Gengu brattar hlíðar vegna skipsstrands Björgunarsveitir frá Tálknafirði, Patreksfirði og Bíldudal ásamt björgunarskipinu Verði voru kallaðar út um hálf ellefu í morgun eftir að hjálparbeiðni barst frá bát sem strandaði skammt utan við Tálknafjörð nánar tiltekið við Mölvík. 9.6.2011 13:00
Eldur í spónaverksmiðju - starfsmenn björguðu deginum Eldur kviknaði í spónaverksmiðju í Hveragerði í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni vantað ekki eldsmatinn og því talsverð hætta á ferð. 9.6.2011 12:46
Sendinefnd ESB á Íslandi opnar nýja heimasíðu Sendinefnd ESB á Íslandi hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni www.esb.is. Heimasíðan, sem bæði er á íslensku og ensku, hefur meðal annars að geyma upplýsingar um tengsl Íslands og ESB, aðildarumsókn Íslands að ESB og aðildarferli, helstu verkefni og stefnumál ESB og hlutverk og skipulag sendinefndarinnar. Á síðunni birtast reglulega fréttir af vettvangi ESB og einnig er hægt að nálgast bæklinga og annað upplýsingaefni um ESB. 9.6.2011 12:39
Mjólkurbændurnir njóta víst ríkisstyrkja Bændurnir sem standa að baki fyrirtækinu Vesturmjólk og boða virka samkeppni án ríkisstyrkja njóta sjálfir ríkisstyrkja þegar þeir selja Mjólkursamsalinu afurðir sínar Í tilkynningu frá félaginu kom fram að Vesturmjólk væri í reynd eini sjálfstæði mjólkurframleiðandinn á landinu og starfaði án allra ríkisstyrkja. Fyrirtækið er eigu þriggja kúabænada á Vesturlandi, þeirra Bjarna Bærings Bjarnasonar, Jóhannesar Kristinssonar og Axels Oddssonar. 9.6.2011 12:09
Einn maður og eitt atkvæði Sú nefnd stjórnlagaráðs sem fjallar um kjördæmaskipan og þingkosningar leggur til talsverðar breytingar á fyrirkomulagi kosninga til Alþingis og vill að atkvæði kjósenda alls staðar á landinu vegi jafnt líkt og þjóðfundur lagði mikla áherslu á. Allar nefndir ráðs kynna tillögur um breytingar á stjórnarskránni á 12. ráðsfundi í dag. 9.6.2011 12:08
Réttað yfir Khat-mönnum Aðalmeðferð í máli fjögurra karlmanna ákærðir hafa verið fyrir innflutning á 60 kílóum af khat fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þrír mannanna játa sök en efnið átti að senda til Bandaríkjanna og Kanada. 9.6.2011 12:03
Verulega dregur úr unglingadrykkju Verulega hefur dregið úr áfengisdrykkju ungmenna á síðustu árum. Um fjórðungur fimmtán til sextán ára barna hefur orðið drukkinn. Þetta kemur fram í niðurstöðum Evrópsku vímuefnarannsóknarinnar sem nær til fimmtán Evrópulanda og er framkvæmd á fjögurra ára fresti. Könnunin sýnir að stórlega hefur dregið úr áfengisneyslu fimmtán og sextán ára unglinga á Íslandi. 9.6.2011 12:03
Ferðamenn festa sig ítrekað á hálendinu Flugbjörgunarsveitin á Hellu hefur staðið í ströngu þessa vikuna en þeir hafa þurft að aðstoða erlenda ferðamenn á hálendinu á hverjum degi síðan aðfaranótt mánudags. 9.6.2011 11:38
Opnar pylsuvagn við Hvalfjarðargöngin á morgun Pylsuvagn verður formlega opnaður við Hvalfjarðargöngin klukkan tólf á morgun. "Þá dreg ég upp og verð til klukkan átta," segir Arnþór Gylfi Árnason, pylsuáhugamaður með meiru. Pylsubíllinn verður staðsettur á plani við þjóðveg 1, rúma hundrað metra frá hringtorginu við nyrðri muna Hvalfjarðarganganna. "Þetta er staður þar sem margir stoppa til að rétta úr sér. Nú getur fólk stoppað og fengið sér pulsu eða almennilegt kaffi," segir Arnþór. Í pylsuvagninum, eða pylsubílnum réttara sagt, verður einnig boðið upp á það helsta sem fæst í almennri vegasjoppu, svo sem sælgæti, gos og ís. "Ég er búinn að prufukeyra hann, búinn að mæta á planið og selja pulsur. Það gekk bara vel," segir Arnþór. Sumir viðskiptavinanna vissu að fyrirhugað var að opna þarna pylsuvagn en öðrum kom það skemmtilega á óvart að fá rjúkandi pylsu við Hvalfjörðinn. Arnþór er bæði búinn að mæta til prufu um helgi og á virkum dögum, og segir hann söluna hafa verið ívið meiri um helgina. Þegar fram dregur stefnir hann á að vera einnig með miðnæturopnun, sér í lagi um helgar, og hafa þá jafnvel opið frá ellefu til þrjú. "Það er oft ótrúlega mikil umferð þarna á þessum tíma," segir Arnþór sem er búsettur í Borgarnesi og er öllum hnútum kunnugur í nágrenninu. Þar sem stundum vill gusta um planið sem pylsuvagninn verður á hefur hann þegar sett sig í samband við listamann sem er að útbúa listaverk til að hafa þar, og þjónar verkið þá einnig því hlutverki að skýla viðskiptavinum fyrir vindum. Arnþór vill þó ekkert gefa meira upp um listaverkið. "Það er leyndarmál," segir hann. Samkvæmt aðalskipulagi hefur Olíuverzlun Íslands hf. allan rétt til þjónustustarfsemi á svæðinu næstu áratugina, en Gylfi hefur samið við fyrirtækið um reksturinn. Þá hefur hann þegar fengið leyfi frá öllum öðrum sem þessu við koma, svo sem Hvalfjarðarsveit, Vegagerðinni og heilbrigðiseftirlitinu. 9.6.2011 11:30
Aðeins sex lögðu ólöglega Laugardalnum - ökumenn til fyrirmyndar Ökumenn í Laugardal brugðust jákvæðir við þeim tilmælum lögreglu að nýta bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu á meðan landsleik Íslands og Danmörku stóð þann 4. júní síðastliðinn. Lögreglan jók eftirlit í Laugardalnum, greip inn í ef einhverjir gerðu sig líklega til að leggja ólöglega og leiðbeindi ökumönnum í laus stæði. Einungis þurfti að sekta sex ökutæki vegna ólöglegarar lagningar og er það mikil framför frá því ástandi sem þarna hefur ríkt þegar stórviðburðir hafa verið í Laugardalshöllinni. Í kvöld, fimmtudaginn 9. júní, verður stórhljómsveitin Eagles með tónleika í Laugardalshöllinni og er búist við 10.00 tónleikagestum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill af því tilefni góðfúslega ítreka þau tilmæli til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta bílastæðin á svæðinu í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð. 9.6.2011 11:18