Fleiri fréttir

Leiðtogafundurinn á hvíta tjaldið

Breski leikstjórinn Ridley Scott virðist hafa tekið miklu ástfóstri við Ísland. Samkvæmt erlendum kvikmyndavefjum tókust samningar milli framleiðslufyrirtækisins Headline Pictures og Scotts á kvikmyndahátíðinni í Cannes um að hann myndi leikstýra kvikmynd um leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík.

Hefur ekki játað morð

Maður, sem er í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið barnsmóður sinni að bana fyrir helgi, hefur ekki játað sök, eins og greint var frá í fjölmiðlum stuttu eftir að atvikið kom upp.

Tilraun til manndráps: Ber fyrir sig minnisleysi

Karlmaður um sextugt, sem var handtekinn um helgina grunaður um að hafa reynt að myrða eiginkonu sína, hefur ekki játað að hafa veitt konunni áverka og ber fyrir sig minnisleysi.

Forstöðumenn vilja hærri laun - hóta málsókn

Félag forstöðumanna ríkisstofnana krefst þess í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi félagsins í dag að launalækkun félagsmanna verði afturkölluð. Kjararáð lækkaði laun félagsmanna þann fyrsta mars 2009 og hefur lækkunin ekki verið tekin til baka. Á þessu vill félagið að gerð verði bragarbót strax auk þess sem laun forstöðumanna verði endurskoðuð. Í ályktuninni segir ennfremur að verði kjararáð ekki við kröfunum sé eðlilegt að farið verði með málið fyrir dómstóla. "Meint lögbrot kjararáðs snýst ekki aðeins um laun og starfskjör forstöðumanna ríkisstofnana heldur grefur það undan trausti og virðingu fyrir íslenskri stjórnsýslu," segir einnig og því bætt við að við það verði ekki unað.

Skólameistari VMA: Við erum ekki í vinsældakeppni

"Við erum ekki í vinsældakeppni. Við útskrifum hæft og gott fólk," segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri. Samkvæmt úttekt stærðfræðings á gæðum 32 framhaldsskóla á Íslandi er VMA í neðsta sæti. Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og stjórnlagaráðsmaður, vann úttektina fyrir Frjálsa verslun. Í nýjasta tölublaðinu kemur fram að skólarnir séu metnir samkvæmt 17 gæðavísum, meðal annars menntun kennara, árangri í innlendum og alþjóðlegum keppnum, svo sem Gettu Betur. Eins og komið hefur fram trónir Menntaskólinn í Reykjavík á toppi listans, með 925 stig, og Menntaskólinn í Hamrahlíð er í öðru sæti, með 660 stig. VMA fær hins vegar aðeins 46 stig. Hjalti Jón telur þessar niðurstöður ekki ástæðu fyrir starfsfólk og nemendur við VMA til að örvænta. "Ég tek þetta ekki alvarlega," segir hann. Hjalti Jón bendir á að skólinn taki lítið þátt í alþjóðlegum keppnum. Hins vegar sé í skólanum breiður hópur ánægðra nemenda og strangt eftirlit með gæðum skólastarfs. Hann segir hægt að meta skólastarf út frá mörgum ólíkum forsendum og ekki sanngjarnt að draga skóla í dilka á þennan hátt. "Ég held að svona lagað geti hreinlega verið hættulegt," segir Hjalti Jón og á þar við að með því að flokka skóla á þennan hátt fái nemendur jafnvel ranga mynd af skólunum. Þá tekur hann dæmi af því að VMA er með sérstaka deild þar sem lögð er áhersla á þjónustu við fatlaða nemendur, en ekkert tillit sé tekið til viðlíka þátta í matinu. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, segir í samtali við Frjálsa verslun að hún setji ákveðna fyrirvara við niðurstöðu úttektarinnar. Þar bendir hún meðal annars á ójöfn tækifæri milli skóla á landsbyggðinni og í höfuðborginni til að taka þátt í mörgum þeim keppnum sem lagðar eru til grundvallar matinu. Þá bendir hún á að margir þeirra skóla sem eru ofarlega á listanum, svo sem MR og MH, eru í þeirri aðstöðu að geta valið inn nemendur. Í Frjálsri verslun er einnig rætt við stjórnendur þeirra skóla sem efstir eru í úttektinni. Þeir eru sammála um að niðurstöðum sem þessum þurfi að taka með fyrirfara.

Heilsubækur tróna á toppnum

Bækur um leiðir til bættrar heilsu eru í efstu þremur sætum metsölulista Eymundssonar. Í fimmta sæti er síðan fyrsta skáldsaga höfundarins Hildar Knútsdóttur, Sláttur, sem gefin er út í kilju. Kiljur njóta almennt mikilla vinsælda um þessar myndir. Sú skáldsaga sem var mest seld í vikunni 11. til 17. maí er hins vegar Ég man þig eftir Yrsu Sigurðardóttur, sem er þaulsætin á metsölulistanum. Hún er einnig kilja. Bókin Léttara og betra líf eftir Lene Hansson er á toppi listans. Í öðru sæti er fók Þorbjargar Hafsteinsdóttur, 10 árum yngri á 10 vikum, sem raunar er uppseld og er væntanleg aftur 25. maí. Þá er bókin Matur sem yngir og eflir í þriðja sætinu, einnig eftir Þorbjörgu Hafsteinsdóttur.

Eldsneytisverð lækkar um tvær krónur

Atlantsolía lækkaði bensínverðið hjá sér í morgun um tvær krónur. Eins lækkaði verðið á díselolíu um tvær krónur hjá félaginu.

54 þúsund á tónleikum Sinfóníunnar á síðasta ári

Tæplega 54 þúsund gestir sóttu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands á síðasta ári. Hljómsveitin hélt 87 tónleika á árinu, alla innanlands. 53 þeirra voru almennir tónleikar, 10 barna- og fjölskyldutónleikar, 11 skólatónleikar í Reykjavík, 22 tónleikar á sjúkrahúsum og víðar, og loks einir vinnustaðatónleikar. Þetta kemur fram í gögnum sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman og birtir á vef sínum. Tónleikagestir árið 2009 voru ríflega 46 þúsund og heildarfjöldi Sinfóníuhljómsveitarinnar 81.

Fráleit afsökun hjá ráðherra

Bæjarstjórn Vestmannaeyja segir samgönguyfirvöld ráðlaus í öllu sem snúi að samgöngum á sjó við Vestmannaeyjar. „Ástandið er orðið algerlega óþolandi,“ segir bæjarstjórnin sem bendir á að dýpkunarskip fyrir Landeyjahöfn sé bilað og gagnrýnir Ögmund Jónasson innanríkisráðherra. Bæjarstjórnin segir fráleitt hjá ráðherra að kenna náttúruöflum um „þær tafir og þann skaða sem Eyjamenn verða nú fyrir á degi hverjum.“ - gar

Listamenn vilja 26 skyndistyrki

Alls bárust 26 umsóknir um svokallaða skyndistyrki sem menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar afgreiðir í næstu viku.

Launin lækkuð um 300 þúsund

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sem ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri Hjúkrunarheimilanna Eirar og Skjóls út þetta sumar, fær 300 þúsund krónum lægri laun en forveri hans í starfi. Vilhjálmur fær og greidda aksturspeninga fyrir notkun á eigin bíl samkvæmt akstursbók en ekki fasta 200 þúsund króna greiðslu á mánuði eins og var. Að frátöldum greiðslum fyrir akstur verða mánaðarlaun Vilhjálms 920 þúsund krónur.

Landsbjörg og Olís í samstarf

Slysavarnafélagið Landsbjörg og Olíuverzlun Íslands hf. (Olís) hafa gert með sér samstarfssamning til næstu þriggja ára. Olís verður einn af aðalstyrktaraðilum samtakanna og mun styðja við samtökin bæði fjárhagslega og með verulegum afslætti af eldsneyti og öðrum vörum.

Útvegsbændur í Eyjum meta sjálfir áhrif kvótafrumvarpsins

Útvegsbændur í Vestmannaeyjum ætla sjálfir að meta áhrif breytinga á kvótakerfinu á sjávarútveginn í Eyjum og birta álit sitt í kjölfarið, frekar enn að fara að því dæmi ríkisstjórnarinnar að skjóta fyrst og spyrja svo, segir í yfirlýsingu frá Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja.

Má ekki eyða hreiðrum

Fuglavernd skorar á meindýraeyða og garðeigendur að fara að lögum og eyða ekki starahreiðrum meðan egg og ungar eru í hreiðrinu. Starinn er alfriðaður og því ólöglegt að drepa staraunga í hreiðri eða eyða eggjum. Starinn er nýlegur landnemi hér á landi. Hann sækist eftir nábýli við manninn og getur því borist óværa úr hreiðrinu í híbýli manna inn um glugga. Best er að koma í veg fyrir staravarp með því að loka glufum og rifum sem fuglarnir sýna áhuga snemma vors.

Ekki fasteignabóla heldur eðlileg þróun

„Auðvitað eru til peningamenn. En þeir eru líka alveg ofboðslega harðir að bjóða og kaupa ekki eignir á uppsprengdu verði. Þeir eru að gera góð kaup," segir Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. Hún segist þó ekki hafa orðið vör við fjölgun öflugra fjárfesta á fasteignamarkaðnum sem séu að blása upp verð á íbúðum í landinu.

Verkalýðsfélög boða aðgerðir gegn Norrænu

Afl-starfsgreinafélag, ASÍ og Sjómannasambandið boða aðgerðir gegn útgerðarfélagi ferjunnar Norrænu, fyrir að greiða íslenskum starfsmönnum á skipinu 30 prósent lægri laun en erlendum starfsmönnum, fyrir sömu störf.

Varað við vorhreti fyrir norðan og austan

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra varar ferðafólk við að akstursskilyrði geti spillst norðan- og austanlands vegna vorhrets næstu daga, með kólnandi veðri á landinu öllu.

Fréttaskýring: Búast við öruggum meirihluta á Alþingi

Innan stjórnarflokkanna er talið að þingmenn utan þeirra muni tryggja að kvótafrumvörp ríkisstjórnarinnar verði örugglega samþykkt. Vonast er til að það takist í júní, en gæti þó tafist fram á haust. SA hótar riftun kjarasamninga.

Óvæntur fornleifa-fundur í Urriðakoti

Mun umfangsmeiri fornminjar hafa komið í ljós í uppgreftri í Urriðakoti, væntanlegu byggingarsvæði í Garðabæ, en sérfræðingar gerðu ráð fyrir. Við uppgröftinn hafa fundist minjar frá landnámi allt fram á miðaldir en Urriðakots er fyrst getið í heimildum mun síðar, eða á 16. öld.

Banaslys í Hrunamannahreppi

Banaslys varð í efnisnámu í Hrunamannahreppi á Suðurlandi í gærkvöldi, þegar grjóthnullungur féll úr háu stáli, eða vegg í námunni, og fór í gegnum þak á vélgröfu með þeim afleiðingum að stjórnandi hennar lést.

Bjóða stuðning við krónuna eftir inngöngu

Semja þarf sérstaklega um vikmörk gengis íslensku krónunnar við evru meðan á upptöku evrunnar stæði í aðildarviðræðunum við ESB sem nú standa fyrir dyrum. Þá stæði Íslandi til boða stuðningur við krónuna frá Seðlabanka Evrópu en kanna þarf nánar hve mikill sá stuðningur gæti orðið.

Atferlismat sker úr um framhaldið

Hundurinn sem réðist á póstburðarkonu í Mosfellsbæ í fyrradag, með þeim afleiðingum að hún féll við og fótbrotnaði, mun gangast undir atferlismat á næstu dögum, en þar verður skorið úr um hvort dýrinu verður lógað.

Ætluðu til Reykjavíkur í meðferð en enduðu utan vegar

Tveir menn veltu bíl rétt hjá Blönduósi fyrr í dag en bílnum höfðu þeir stolið á Sauðárkróki nokkru áður. Þeir höfðu þá verið til nokkurra vandræða í bænum áður en þeir lögðu af stað frá Sauðárkróki á stolna bílnum.

Niðurstaðan mikilvægur varnarsigur

Matsfyrirtækið Standard & Poor´s staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn fyrir skuldbindingar Ríkissjóðs Íslands í erlendum gjaldeyri. Matshorfurnar verða hins vegar áfram neikvæðar. Fjármálaráðherra segir niðurstöðuna mikilvægan varnarsigur.

Fleiri fengið synjun en samþykkt

Fleiri hafa fengið synjun en samþykkt um lækkun lána hjá Íbúðalánasjóði vegna 110 prósent reglunnar. Um fjögur hundruð umsóknum hefur verið synjað.

Steingrímur: Ekki æskilegt að hækka skatta frekar

Fjármálaráðherra telur eðlilegt að skoða áhrif skattabreytinga á mismunandi hópa, en úttekt OECD bendir til að einstæðir foreldrar á Íslandi hafi tekið á sig mestu hækkanirnar. Hann segir ekki æskilegt að hækka skatta frekar.

Dæmi um að grunnskólabörn selji sig á vefnum

Kynferðisbrotum gegn börnum sem rekja má til samskipta á Netinu hefur fjölgað um helming á síðustu fjórum árum. Forstöðumaður Barnahúss veit um sex alvarleg vændismál þar sem grunnskólabörn hafa selt sig eldri mönnum á vefnum.

Veðurstofan varar við vorhreti

Veðurstofan vill vekja sérstaka athygli á vorhreti framundan. Í tilkynningu segir að stíf norðaustan- og norðanátt verði ríkjandi næstu daga með kólnandi veðri á landinu öllu. Á morgun má reikna með slyddu á heiðum og fjallvegum á svæðinu frá Tröllaskaga til Austfjarða, en aðfaranótt fimmtudags bætir í vind á því svæði og úrkoma verður slydda eða snjókoma, jafnt á láglendi sem til fjalla.

Rottweilertíkin enn í felum - lögreglu skortir úrræði

Rottweilertíkin Chrystel, sem var rænt úr vörslu lögreglu í byrjun mánaðarins, er enn ófundin. Lögreglan á Selfossi hefur sent beiðni til allra dýralækna á landinu, á allar lögreglustöðvar og til þeirra starfsmanna sem sjá um skráningu dýra, um að hafa samband ef tíkin kemur í leitirnar. Chrystel skal aflífa samkvæmt úrskurði héraðsdýralæknis og síðar úrskurðarnefnd um hollustuhætti og mengunarvarnir sem tók málið upp eftir að eigandi tíkarinnar kærði úrskurð héraðsdýralæknis. Eins og komið hefur fram í fréttum beit Chrystel konu í handlegginn í byrjun marsmánaðar. Áður hafði hún bitið dóttur konunnar. "Hugmyndin er enn að handsama hana og fylgja málinu eftir í samræmi við fram komna úrskurði," segir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Selfossi. Lögreglan hefur þó engin úrræði nú önnur en að bíða og vonast eftir að fá vísbendingar um hvar tíkina er að finna. "Þetta sýnir okkur hversu máttlaust kerfið er í raun þegar kemur að því að fást við svona mál," segir Oddur. "Ljóst er að lagarammi sá sem hundahald byggir á er engan vegin til þess fallin að tryggja hundum eðlilegt viðurværi né heldur úrræði ef eigendur þeirra sýna ekki af sér þá ábyrgð að sinna umsjón þeirra af kostgæfni," segir hann. Oddur bendir ennfremur á að samþykktir um hundahald séu misjafnar eftir sveitafélögum. "Misjafnt er hver skuli taka ákvarðanir á grundvelli þeirra, kæruleiðir eru einnig misjafnar og jafnvel ekki til staðar og fleira mætti telja til. Því er spurning hvort sá rammi sem þar er settur um úrræði eigi ekki frekar heima í lögum um dýravernd en samþykktum um hundahald þannig að jafnræðis sé gætt," segir hann. Chrystel var vistuð á vegum lögreglunnar á hundahóteli á meðan beðið var úrskurðar eftir að eigandi kærði upphaflegan úrskurð um aflífun tíkarinnar vegna bits. "Ótækt er einnig með öllu að vista þurfi hund svo vikum eða mánuðum skipti utan heimilis eiganda á meðan allir kæru frestir og viðeigandi frestir til að koma að andmælum líða," segir Oddur. Hann segir að vera kunni að eðlilegt sé að hundaeigandi geti kært ákvörðun lögreglustjóra um aflífun til héraðsdýralæknis. Honum finnst þó mikilvægt að héraðsdýralæknir setji sér ákveðið verklag, eða að yfirdýralæknir setji það öllu héraðsdýralæknum, þannig að matið sé samræmt og að niðurstaða úr því sé endanleg, einmitt til að koma í veg fyrir langa vistun dýrsins í einangrun meðan úrskurða er beðið. "Annað í þessu máli er spurningin um hvort ekki sé eðlilegt að eigandi hunds skuli afla sér þekkingar til að geta sinnt lágmarks hlýðniþjálfun og umhirðu hunds áður en hann fær leyfi til að halda hann. Fróðlegt væri til dæmis að fulltrúar Hundaræktarfélags Íslands veltu þessu máli fyrir sér og gerðu í framhaldi af því tillögur til úrbóta enda ljóst að þar á bæ er þekkingin á viðfangsefninu fyrir hendi og vilji til þess að mál þessi séu í lagi," segir Oddur. Forsagan Tæpir þrír mánuðir eru síðan Chrystel beit konu sem var á leið í heimsókn til eigenda tíkarinnar, og á lóðinni fyrir utan hús þeirra þar sem tíkin var bundin. Sýslumaðurinn á Selfossi úrskurðaði, með vísan álit héraðsdýralæknis, að tíkinni skyldi lógað. Eigandi tíkarinnar var ósáttir við þann úrskurð og réði sér lögmann. Chrystel var þá vistuð, á vegum lögreglunnar, á hundahóteli. Þaðan var henni síðan stolið í byrjun mánaðarins. Lögreglan fór þá fram á húsleitarheimild hjá eiganda tíkarinnar, sem þá var fluttur til Akureyrar. Dómari hafnaði þessu og taldi ekki liggja fyrir neinar vísbendingar um að eigandi hafi átt aðild að hundaráninu. "Í málinu liggja hinsvegar ekki frami gögn sem staðfesta fullyrðingar lögreglu um að þar hafi (eigandi tíkarinnar) verið að verki og er því að mati dómsins ekki fullnægjandi rannsóknarforsendur sem tengja (eiganda tíkarinnar) við töku hundsins af hundahótelinu," sagði í úrskurði dómara. Fyrir dómi bar lögmaður eigandans engu að síður að tíkin væri komin á heimili eigandans á Akureyri og dveldist þar. Eigandinn var í framhaldinu boðaður til yfirheyrslu hjá lögreglunni á Akureyri. Hann lýsti því yfir að það væri ekki rétt með farið hjá lögmanninum að tíkin væri á heimilinu og veitti sjálfur leyfi fyrir húsleit. Þar var tíkin ekki og hefur ekkert komið fram síðan sem hefur vísað lögreglu á sporið.

Slökktu eld í Skipholti áður en slökkvliðið mætti

Slökkviliðið var kallað í Skipholt um klukkan hálf fjögur í dag. Þar hafði komið upp töluverður eldur inni á baðherbergi íbúðar en íbúar náðu að kæfa eldinn áður en slökkvilið bar að garði. Nú er unnið að því að reykræsta. Að öðru leyti hefur nokkur erill verið í sjúkraflutningum hjá slökkviliðinu en farið hefur verið í um fjörutíu útköll það sem af er degi.

Jussanam fær varanlegt dvalarleyfi: "Sigur fyrir konur"

"Ég er mjög glöð,“ segir brasilíska söngkonan Jussanam Da Silva, sem hefur fengið varanlegt dvalarleyfi hér á landi. Innanríkisráðuneytið veitti henni dvalarleyfið í gær og byggði ákvörðun sína á sterkum tengslum hennar við land og þjóð samkvæmt fréttastofu RÚV.

Stúlkan komin í leitirnar

Stúlkan sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir fyrr í dag er fundin, heil á húfi. Ekkert hafði spurst til hennar í nokkra daga en eftir að lýst var eftir henni kom hún í leitirnar.

Guðlaugur þakkaði Ögmundi fyrir að standa að heræfingu í sumar

Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðismanna þakkaði í dag Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra fyrir að láta ekki pólitíska fortíð sína flækjast fyrir sér í embættiverkum sínum. Þar átti hann við fyrirhugaða heræfingu sem stendur til að halda hér á landi í júní á vegum NATO. Guðlaugur sagði að einhverntíma hefðu önnur sjónarmið heyrst frá Ögmundi, sem oft hefur talað gegn heræfingum af þessu tagi. Hann bað ráðherrann síðan um að upplýsa þingheim nánar um þessa æfingu, sem furðu hljótt hafi farið fram að þessu.

Ögmundur vill ekki gera mál flugumannsins að utanríkismáli

Ögmundur Jónasson er ekki þeirrar skoðunnar að taka þurfi mál flugumannsins Mark Kennedys upp gagnvart breskum yfirvöldum. Í skýrslu ríkislögreglustjóra segir að ekkert bendi til þess að íslensk lögregluyfirvöld hafi vitað af því að Mark Kennedy hefði á sínum tíma verið flugumaður á vegum bresku lögreglunnar en hann tók þátt í mótmælaaðgerðum Saving Iceland við Kárahnjúka á sínum tíma.

Fatalína fyrir óléttar konur

Úrslit í fatahönnunarkeppni fyrir óléttar konur verða kynnt í kvöld. Keppnin er samvinnuverkefni milli fatahönnunarnema Listaháskóla Íslands og verslunarinnar Tvö líf sem selur fatnað fyrir konur á meðgöngu. Nemendur á öðru ári í fatahönnun tóku þátt í námskeiði undir leiðsögn Lindu Bjargar, fagstjóra fatahönnunarbrautar, þar sem markmiðið var að hanna fatalínu fyrir Tvö líf. Hver nemandi hannaði tíu alklæðnaði fyrir barnshafandi konur. Eitt af þessum verkefnum verður svo valið af aðstandendum verslunarinnar og er markmiðið að sú fatalína verði þróuð áfram og framleidd af verslunni en Tvö líf hefur áhuga á að þróa sitt eigið vörumerki. Fær sigurvegarinn einnig 150.000 kr. í verðlaun. Verðlaunin verða afhent vinningshafanum síðdegis í kvöld í versluninni Tvö líf. Fatahönnunarbraut Listaháskólans leggur áherslu á að vinna með fyrirtækjum í fataiðnaði á íslandi. Það er mikilvægt að nemendur vinni að raunverulegum verkefnum og taki þátt í nýsköpun í faginu.

Lögreglan lýsir eftir Stefaníu Casöndru

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Stefaníu Casöndru Guðmundsdóttur, Garðbraut 72, Garði. Stefanía er svarthærð og um 170 sentimetrar á hæð. Að sögn lögreglu var hún klædd í svartar leggingsbuxur og hvíta peysu og í strigaskóm.

Dæmdir fyrir vopnað rán í söluturni

Tveir karlmenn voru í dag dæmdir í átta mánaða fangelsi og einn í sex mánaða fangelsi fyrir að fremja vopnað rán í söluturni í Breiðholti í febrúar. Dómarnir eru skilorðsbundnir. Tveir þeirra ruddust inn í söluturninn grímuklæddir og vopnaðir hnífi og kúbeini. Einn þeirra beindi hnífnum að afgreiðslumanninum og skipaði honum að opna afgreiðslukassann. Á meðan ógnaði hinn fjórum ungmennum með kúbeininu. Þriðji maðurinn beið fyrir utan í bíl.

Sjá næstu 50 fréttir