Fleiri fréttir

Rekstur Valaskjálfar niðurgreiddur - Samkeppniseftirlitið skoðar málið

Eigendur gisti- og veitingahúsa á Fljótsdalshéraði hafa kvartað til Samkeppnisyfirlitsins vegna rekstrarfyrirkomulags félagsheimilisins Valaskjálfar. Þeir segja það lítillækkandi að keppa við rekstur sem niðurgreiddur sé af sveitarfélaginu. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Austurgluggans, http://www.austurglugginn.is/index.php/Frettir/Frettir/Veitingamenn_kvarta_til_samkeppnisyfirvalda_Fljotsdalsherad_nidurgreidir_rekstur_Valaskjalfar Sveitarfélagið Fljótsdalshérað rifti seinasta haust samningi við leigutaka félagsheimilishluta Valaskjálfar eftir drátt á leigugreiðslu og samskiptaerfiðleika við leikhópa. Húsnæðið var auglýst til leigu en auglýst var tvisvar þar sem tilboðin sem bárust í fyrra skiptið þóttu ekki ásættanleg. Í upphafi árs var samið við Hótel Egilsstaði. Það fyrirtæki tilheyrir Hringhótelum sem á húsnæðið í heild sinni, en leigir félagsheimilið áfram til sveitarfélagsins. Þetta fyrirkomulag leggst illa í samkeppnisaðila á svæðinu sem hafa kvartað til samkeppnisyfirvalda. Gunnlaugur Jónasson, sem rekur Gistihúsið á Egilsstöðum, segir það "lítilsvirðingu" og "með öllu óásættanlegt" að sveitarfélagið greiði niður rekstur eins samkeppnisaðila. Nógu erfitt sé að halda þjónustunni gagnandi yfir vetrartímann. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs, viðurkennir að það geti "orkað tvímælis að sveitarfélagið taki á sig skuldbindingar eins og þær sem felast í langtímaleigusamningi á umræddu húsnæði sem síðan er endurleigt aðilum á lægra verði en sveitarfélagið greiðir." Hann segir erfitt að gera svo öllum líki en markmiðið sé ekki að vega að þeirri starfsemi sem fyrir er. Sjá fréttina á vef Austurgluggans.

Norðmenn hóta að beita neitunarvaldi

Norsk stjórnvöld ræða nú í fullri alvöru um að beita neitunarvaldi sínu og hafna því að taka inn í norsk lög tilskipun Evrópusambandsins (ESB) um samkeppni í póstþjónustu.

Hefði viljað sjá hærra mat

„Þetta er ákveðinn varnarsigur og jákvætt svo langt sem það nær. Það hefði verið betra að hækka okkur. En þetta styður við það mat manna að Ísland sé að rétta úr kútnum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um nýtt mat Fitch um lánshæfishorfur ríkissjóðs sem birt var í gær.

Þyrluflugmenn í kröppum dansi á Grænlandi

Þyrluflugmenn frá Vesturflugi komust í hann krappann fyrir nokkrum dögum þegar þeir voru á leið til tveggja staða á Austurströnd Grænlands, til að þjónusta vinnuflokka við rannsóknir vegna fyrirhugaðrar námuvinnslu.

Bílvelta í Vesturbæ

Bíll valt á gatnamótum Boðagranda og Eiðisgranda laust fyrir klukkan sex í morgun og var ökumaður fastur í bílnum, sem nam staðar á hvolfi.

Strandveiðisvæði D verður lokað á miðnætti

Strandveiðisvæði D, sem nær frá Hornafirði með allri Suðurströndinni allt að Borgarbyggð í Faxaflóa verður lokað á miðnætti, þar sem heildarkvóti strandveiðibáta á svæðinu í þessum mánuði er að klárast.

Reyndu að stinga lögreglu af eftir díselþjófnað

Tveir ungir menn á stórum pallbíl reyndu að stinga lögreglu af þegar hún stóð þá að verki við að stela dísilolíu af stórum flutningabíl í Víðidal á höfuðborgarsvæðinu í nótt.

Blá lömb spígspora um Steingrímsfjörð

"Gamlir og þrjóskir bændur eru búnir að finna upp alls konar brellur,“ segir Guðbrandur Sverrisson, bóndi á Bassastöðum í Steingrímsfirði, sem heilsprautaði í vor fjögur nýborin lömb með bláum merkjalit.

Hinsegin dagar hlutu verðlaun

Hinsegin dagar hlutu í gær Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar. Jón Gnarr borgarstjóri afhenti Þorvaldi Kristinssyni, forseta Hinsegin daga, verðlaunin í Höfða.

Kallar eftir hugarfarsbreytingu þingmanna

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, hefur áhyggjur af yfirbragði stjórnmálaumræðunnar í landinu og segir þörf á hugarfarsbreytingu.

Ákærðir fyrir lífshættulega árás

Tveir menn, 37 og 43 ára, hafa verið ákærðir fyrir húsbrot, ólögmæta nauðung og stórfellda líkamsárás sem framin var í Reykjanesbæ á síðustu nýársnótt.

Aflandskrónum komið í vinnu

Seðlabankinn áformar að efna til uppboðs á erlendum gjaldeyri fyrir eigendur aflandskróna. Um tilraunaverkefni er að ræða og verða lágar fjárhæðir boðnar upp, að sögn Más Guðmundssonar seðlabankastjóra.

Fattaði að ég væri bara enn eitt fíflið á leið í fangelsi

Þegar ég gekk inn á Litla hraun í fyrsta sinn fattaði ég að ég væri bara enn eitt fíflið á leið í fangelsi. Þetta segir Grétar Sigurðsson sem fékk tveggja og hálfs árs dóm fyrir aðild sína að líkfundarmálinu svokallaða árið 2005.

Fréttaskýring: Varasamar breytingar á kvótakerfi

Drög liggja fyrir að frumvarpi Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Fréttablaðið bar hugmyndirnar í frumvarpinu undir hagfræðinga til að fá svar við því hverjar afleiðingar breytinganna eru líklegar til að verða.

Björgunin markaði tímamót

Minningarguðþjónusta um sögulegt björgunarfrek við Íslandsstrendur var haldin í bænum Grimsby í Bretlandi um helgina. Björgunin markaði upphaf þess að gúmmíbátar urðu skylduútbúnaður á skipum.

MR besti framhaldsskóli landsins

Menntaskólinn í Reykjavík er besti framhaldsskóli landsins ef marka má úttekt stærðfræðings sem byggði á sautján gæðavísum. Úttektin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Enn þungt haldin á gjörgæsludeild

Kona sem varð fyrir árás á heimili sínu í gærmorgun liggur enn þungt haldin á gjörgæsludeild. Henni er haldið sofandi í öndunarvél.

Herbert þarf að greiða fyrir þakviðgerðina

Dómur er fallinn í "þakmálinu" svokallaða, en þar stríddi Herbert Guðmundsson söngvari við nágranna sína og neitaði að taka þátt í viðgerðum á raðhúsalengjunni sem hann býr í. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að Herbert ætti að greiða 3,6 milljónir króna til húsfélagsins auk 1,5 milljóna í málskostnað.

Össur bauðst til að veita Ashtiani hæli hér á landi

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur boðist fyrir hönd íslenska ríkisins til að veita írönsku konunni Ashtiani hæli hér á landi. Þetta kom fram í upphafi máls utanríkisráðherra á Alþingi í dag þar sem hann flutti skýrslu um utanríkis- og alþjóðamál. Össur sagði að ráðuneytið hafi á undanförnum misserum gert gangsskör í því að beita sér frekar í málum einstaklinga á alþóðavettvangi og tiltók hann sérstaklega mál Ashtiani, sem dæmd hefur verið til dauða í Íran.

Svipt fjárræði - andlega veik kona lifði á smálánum

Hæstiréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að svipta konu fjárræði í tólf mánuði en samkvæmt úrskurði héraðsdóms hefur hún sent á aðra milljón króna til dularfulls auðsmanns "syðra“ eins og hún orðar það sjálf. Það var systir konunnar sem fór fram á að hún yrði svipt fjárræði.

Óhugnanlegar rúnir krotaðar á alla veggi

"Ég mun kæra þetta,“ segir Sandra Hlíf Ocares, sem keypti niðurnítt hús á Bræðraborgarstígnum fyrir nokkru, en óprúttnir aðilar virðast hafa brotist inn í skjóli nætur, krotað fornar rúnir á veggina og rist að auki rúnir í steypu sem var að þorna.

Hestaripperinn ófundinn

Lögreglunni á Egilsstöðum hafa engar vísbendingar borist í tengslum við rannsókn á meintu dýraníði en í liðinni viku sá hestamaður þar tvo skurði á kynfærum hryssu sem taldir eru hafa verið veittir henni með eggvopni. Málið var kært til lögreglu en enginn liggur undir grun um níðið. Vísir greindi frá því fyrir helgi að hestamenn á svæðinu séu slegnir óhug vegna atviksins og finnist erfitt að ímynda sér að um manna verk hafi verið að ræða. Umráðamaður hryssunnar sagðist hreinlega ekki geta lýst því hversu ógeðslegt þetta mál sé. Hjörtur Magnason, héraðsdýralæknir á Egilsstöðum, kallaði til lögreglu eftir að honum var tilkynnt um áverkana og hefur hann aldrei séð viðlíka áverka á kynfærum dýrs. Hestamaðurinn sem fann áverkana óttast að þarna hafi verið um svokallaðan "hestaripper“ að ræða sem ráðist að saklausum dýrum og misþyrmi þeim. Lögreglu hafa engar aðrar tilkynningar borist um viðlíka áverka.

Byko mátti skrá niður kennitölu

Persónuvernd kemst að þeirri niðurstöðu að byggingavöruversluninni Byko hefði verið heimilt að taka niður kennitölu manns og skrá hana niður.

Le Bon líkti Vini Sjonna við Kiefer Sutherland

Simon Le Bon, söngvari hinnar goðsagnakenndu Duran Duran, fylgdist grannt með beinni útsendingu frá Eurovison-keppninni á laugardag. Le Bon hafði sterkar skoðanir á lögum og flytjendum, og deildi þeim öllum á samskiptavefnum Twitter. Þegar Vinir Sjonna birtust á sviðinu spurði Le Bon á Twitter: "Er þetta Kiefer Sutherland sem spilar á gítar fyrir Ísland?" Gunnar Ólason getur því vel við unað að vera líkt við leikarann þokkafulla. Eða ætli Le Bon hafi átt við Vigni Snæ Vigfússon? Um sigurlag Asera sagði Le Bon þegar það var flutt í keppninni: "Viðlagið í Running Scared (en Bon Jovi-legt) hljómar eins og lag með Keane. Eða var það Coldplay?" Svíar lentu í þriðja sæti. Le Bon var ekki hrifinn. "Lag sem er svo óeftirminnilegt að það er gleymt áður en það er búið," hafði hann um lag hjartaknúsarans unga, Eric Saade, að segja. Í mestu uppáhaldi hjá Le Bon voru lögin Lipstick frá Írlandi, Follia d´amore frá Írlandi og So Lucky frá Moldóvu. Meira að segja gekk hann svo langt að segja að lagið með "stelpunni á einhjólinu ætti að vinna" og átti þar við fjörlegt framlag Moldóvu. Hann sló síðan áfram á létta strengi og sagði að moldóvska sveitin gæti léttilega kallað sig "The Eastie Boys" og vísaði til þeirra, eitt sinn, framúrstefnulegu Beastie Boys. Þegar hin þýska Lena birtist á sviðinu dró hann þó aðeins í land og vildi að Lena myndi vinna, þó ekki nema væri bara út af fegurðinni. Hjartaknúsarinn meinti frá Rússlandi sló aldeilis ekki í gegn hjá dóttur Le Bon, eða eins og hann sagði á Twitter: "Dóttir mín er að pissa í sig af hlátri. Í alvöru. Hún getur ekki talað." Twitter-síðu Le Bon fá finna hér. http://twitter.com/#!/SimonJCLeBON <http://twitter.com/>

Útflutningsverðlaun forseta Íslands afhent í dag

Útflutningsverðlaun forseta Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Einnig verður afhent sérstök heiðursviðurkenning til einstaklings sem aukið hefur hróður Íslands á erlendri grundu. Slík heiðursviðurkenning er nýmæli. Íslandsstofa hefur nú tekið við hlutverki Útflutningsráðs sem ábyrgðar- og umsjónaraðili Útflutningsverðlaunanna. Friðrik Pálsson formaður úthlutunarnefndar tilkynnir hvaða fyrirtæki hlýtur verðlaunin og forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendir þau. Þá verður afhjúpað listaverk sem verðlaununum fylgir. Höfundur verksins er Inga Elín myndlistarmaður. Forseti Íslands afhendir einnig heiðursviðurkenningu til einstaklings. Í dómnefnd vegna verðlaunanna sátu að þessu sinni Björgólfur Jóhannsson frá Landsnefnd Alþjóða verslunarráðsins, Ingjaldur Hannibalsson frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, Friðrik Pálsson frá Íslandsstofu, Þórunn Sveinbjörnsdóttir frá Alþýðusambandi Íslands og Örnólfur Thorsson frá embætti forseta Íslands.

Tilraun til manndráps: Hringdi sjálfur eftir aðstoð

Karlmaður, sem var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gær fyrir að hafa næstum orðið konu sinni að bana á sunnudaginn, hringdi sjálfur eftir aðstoð. Maðurinn, sem er fæddur árið 1950, réðist á konu sína á heimili þeirra í gærmorgun og tók hana kverkataki þar til hún missti meðvitund samkvæmt Fréttablaðinu.

Ferðamaður fékk hjartaáfall við rætur Sólheimajökuls

Ferðamaður fékk hjartaáfall við rætur Sólheimajökuls á föstudaginn samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Konan, sem er af erlendum uppruna, var á ferð ásamt hópi samlanda sinna og íslenskum fararstjóra. Hún var flutt með sjúkrabifreið til Reykjavíkur á sjúkrahús. Líðan hennar var stöðug.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald - áður verið dæmdur fyrir smygl

Maðurinn sem lögreglan handtók í gærmorgun sem er grunaður er um að hafa reynt að ráða konu sinni bana á heimili þeirra í Grafarholti í gærmorgun var úrskurðaður í gæsluvarðhald í gærkvöldi. Maðurinn hefur áður fengið tveggja ára fangelsisdóm fyrir fíkniefnasmygl.

Áhöfnin á Þór hafnar alfarið kvótapottum

Áhöfn frystitogarans Þórs frá Hafnarfirði hafnar því í sameiginlegri yfirlýsingu, að kvóti sé fluttur af skipi þeirra og settur í potta sem stjórnmálamenn geta notað til að kaupa sér velvild með að úthluta þeim meðal annars til manna, sem leiðist í sumarfríinu.

Brotist inn í bakarí

Brotist var inn í bakarí við Grensásveg og þaðan stolið skiptimynt úr opnum peningakössum, eða sjóðsvélum.

Þakkar Íslendingum fyrir stuðning við Aserbaidjan

Mig langar að flytja, af öllu minu hjarta, þakkir til allra Íslendinga fyrir stuðning við Aserbadijan i Eurovision 2011, segir Zakir Jón Gasanov, formaður Vináttufélags Íslands og Aserbaidjan. Eins og kunnugt er unnu Aserar keppnina sem fram fór í gær.

Línurnar lagðar fyrir kennara

Fjölmörg félög innan Kennarasambands Íslands eiga eftir að ljúka við gerð kjarasamninga. Grunnskólakennarar skrifuðu undir nýjan kjarasamning í gær. Með honum hafa línurnar líklegast verið lagðar fyrir hin félögin.

Hefði alveg viljað enda ofar

Þórunn Erna Clausen ekkja Sigurjóns Brink sem samdi Eurovision lagið Coming Home segist alveg hafa viljað enda ofar. Hún segir að hópurinn sé engu að síður sáttur með árangurinn. Lagið var í fjórða sæti í undankeppninni og 20. sæti í aðalkeppninni. Þórunn Erna segir tímann framundan líklega verða nokkuð skrýtinn.

Friðurinn dýru verði keyptur

Friðurinn á atvinnumarkaði er mjög dýru verði keyptur fyrir mörg fyrirtæki, segir Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Eins og fram hefur komið skrifuðu Samtök Atvinnulífsins og aðildarfélög ASÍ undir nýjan kjarasamning á dögunum. Samningarnir fela í sér prósentuhækkanir á launum, en einnig eingreiðslu að upphæð 50 þúsund krónur og tvær viðbótagreiðslur samtals að upphæð 25 þúsund krónur vegna þess hve það dróst að klára kjarasamningana.

Sjá næstu 50 fréttir