Fleiri fréttir

Vill afsökunarbeiðni frá Jóni Gnarr

Rósa Steingrímsdóttir formaður Barnanna okkar, samtaka foreldra leikskólabarna í Reykjavík, gerir athugasemd við ummæli Jóns Gnarr borgarstjóra, á fundi Borgarstjórnar í gær. Rósa segir að Jón hafi lýst því yfir að foreldrar í borginni séu handbendi Sjálfstæðisflokksins og að afstaða þeirra gegn sameiningum í skólakerfinu tengist því.

Sex starfsmenn áminntir vegna uppflettinga í sjúkraskrá

Sex starfsmenn Landspítala hafa fengið áminningu vegna uppflettinga í rafrænni sjúkraskrá. Við reglubundna athugun á sjúkraskrá Landspítala gerði eftirlitsnefnd með sjúkraskránni athugasemd við uppflettingu níu starfsmanna við reglubundna athugun á notkun sjúkraskrárinnar. Í þremur tilfellum reyndist um eðlilegan aðgang að ræða en sex starfsmenn fengu áminningu.

Konur með krabbamein kasta til bata

Nokkrar konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini munu fara saman í tveggja daga veiðiferð í Sogið í Grímsnesi í maí. Þar munu þær fá tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í stórkostlegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu og veiða, ef heppnin er með.

Jóhönnu að meinalausu að hverfa frá 110 ára ákvæðinu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að það sé sér algjörlega að meinalausu að horfið verði frá því að gera einstök skjöl óaðgengileg almenningi í 110 ár í stað 80 ára eins og gert er ráð fyrir í breytingum á upplýsingalögum. Á Facebook-síðu sinni segir Jóhanna að breytingarnar hafi verið gerðar tortryggilegar í fjölmiðlum með rangtúlkunum.

Ákærðir fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl

Tveir pólskir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir innflutning á 1,5 lítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa til söludreifingar hér á landi. Mennirnir neituðu sök við þingfestingu málsins í dag.

Bátur fékk í skrúfuna

Bátur fékk í skrúfuna rétt við Gróttu eftir hádegið í dag og varð stjórnvana. Kalla þurfti út þyrlu Landhelgisgæslunnar auk liðs frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og slökkviliðinu. Búið er að koma bátnum í tog og er verið að fara með hann til hafnar, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Tveir bátar frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fylgja honum.

Siv á víða undir högg að sækja

Það er víðar en á Íslandi sem stjórnmálamenn sem heita Siv hafa orðið að skotspæni skopmyndateiknara að undanförnu. Í norska blaðinu Verdens Gang birtust á dögunum myndir af Siv Jensen, formanni Framfaraflokksins þar í landi. Þar er hún sýnd uppi í rúmi með Mullah Krekar, sem er vafasamur íraskur kúrdi sem fékk hæli í Noregi. Framfaraflokkurinn er hins vegar þekktur fyrir að hafa varan á þegar málefni útlendinga eru annars vegar.

Hanna Birna hættir sem forseti borgarstjórnar - Sóley hættir líka

Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hefur ákveðið að hætta sem forseti borgarstjórnar og Sóley Tómasdóttir hefur ákveðið að hætta sem 1. varaforseti borgarstjórnar. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sem þær sendu frá sér í dag.

Varað við snjóflóðahættu á Vestfjörðum

Veðurstofa Íslands beinir þeim tilmælum til útivistarfólks að gæta varúðar á norðanverðum Vestfjörðum en nokkur snjóflóð hafa fallið undanfarið, meðal annars af mannavöldum. Þá eru snjóalög ótrygg á svæðinu.

666 innbrot í bíla

Alls voru 3331 innbrot framin í bíla á árunum 2006-2010, eða að meðaltali 666 innbrot á ári. Í Afbrotatíðindum Ríkislögreglustjóra kemur fram að þó nokkur aukning hafi orðið á árinu 2009 en þá voru brotin 834 eða 32% fleiri en árin á undan. Þessi þróun gekk svo til baka árið 2010 en þá voru brotin um 600, rétt eins og árin 2006-2008. Á árunum 2006-2009 voru um 90% brotanna á höfuðborgarsvæðinu en þetta hlutfall fór niður í 84% árið 2010. Innbrot í bíla er fjórðungur allra innbrota sem framin voru árið 2010.

Pólskir flugdólgar gistu fangageymslur í Keflavík

Farþegaþota frá pólska félaginu LOT Polish Airlines neyddist til að lenda á Keflavíkurflugvelli í fyrradag þar sem drukknir farþegar voru til mikilla vandræða. Annar þeirra sló meðal annars flugfreyju í andlitið og þurfti áhöfnin að yfirbuga manninn með aðstoð farþega.

Páskaáætlun Strætó

Akstur vagna Strætó bs. um páskahátíðina verður með sama hætti og verið hefur síðustu ár. Í tilkynningu segir að á skírdag, fimmtudaginn 21. apríl, verði ekið samkvæmt sunnudagsáætlun.

Lögreglan leitar að þjófum á Akureyri

Óprúttnir náungar hafa verið á ferð um Akureyri undanfarnar nætur og farið in í ólæsta bíla, þaðan sem þeir hafa stolið ýmsum verðmætum.

Banaslys á Norðurlandsvegi

Banaslys varð á Norðurlandsvegi í Víðidal, á móts við bæinn Jörfa, þegar jepplingur og stór flutningabíll lentu þar í árkestri á áttunda tímanum í gærkvöldi.

Kvótakerfinu breytt í tveimur skrefum

Til skoðunar er hvort hyggilegt sé að vinna að breytingum á lögum um stjórn fiskveiða í tveimur skrefum í stað eins, eins og að var stefnt.

Ráðuneytið segir ekkert breytt

Ólafur Johnson, skólastjóri og eigandi Menntaskólans Hraðbrautar, hefur gert mennta- og menningarmálaráðuneytinu tilboð um að taka inn nýnema næsta haust. Ráðuneytið hyggst ekki þekkjast boðið.

Fólk í Þverholti telur húsgrunn slysagildru

„Ég horfi á krakkana leika sér á svæðinu og hef af því þungar áhyggjur að hérna verði slys fyrr en seinna. Í grunninn safnast mikið vatn og verður því best lýst sem stöðuvatni innan bæjarmarkanna,“ segir Þórleifur V. Friðriksson, prentsmiðjustjóri Hjá GuðjónÓ í Þverholti 13.

Laun hækka um átta prósent

Nýr kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins (SA) og verkalýðsfélaganna vegna Elkem var undirritaður í gærmorgun. Samningurinn gildir til þriggja ára.

Helmingur óttast atvinnuleysi

Um helmingur starfsfólks bankanna óttast atvinnuleysi. Rúm 40 prósent hafa upplifað breytingar á starfi sínu síðan í bankahruninu. Þetta kemur fram í nýrri könnun Vinnueftirlits ríkisins, Samtaka starfsfólks í fjármálafyrirtækjum, Háskóla Íslands og Rannsóknastofu í vinnuvernd á líðan, heilsu og vinnuumhverfi starfsfólks í bönkum og sparisjóðum.

Átök á lokafundinum um skólasameiningar

„Ég skil áhyggjur foreldra en það verður að hafa í huga að aðrar þær leiðir sem hægt hefði verið að fara hefðu gengið á starfið með börnum og þjónustustig leikskólanna. Við verðum að forgangsraða í þágu allra nýju leikskólaplássanna, og það gerðum við, en til þess að ná því markmiði verður að fara í nauðsynlegar og skynsamlegar skipulagsbreytingar. “

Réttur almennings aukinn

Lagt hefur verið fram lagafrumvarp á Alþingi um aukinn rétt almennings til þess að fá upplýsingar í umhverfismálum. Tilefnið eru viðbrögð stjórnsýslunnar og vandkvæði sem urðu innan hennar þegar upp kom díoxínmengun í nokkrum sorpbrennslustöðvum á Íslandi. Þá varð ljóst að styrkja þyrfti rétt almennings til upplýsinga og herða á frumkvæðisskyldu stjórnvalda til þess að veita upplýsingar og vernda almenning.

Díoxín mælist enn allt of mikið í Eyjum

Magn díoxíns í útblæstri sorpbrennslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum er enn hátt yfir viðmiðum, samkvæmt mælingu sem gerð var í mars. Mælingar benda til að árangur hafi náðst í að hefta útblástur þeirra mengandi efna sem getið er um í starfsleyfi stöðvarinnar, en ryk er þó enn yfir mörkum.

Lýst eftir loftpressu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að loftpressu sem stolið var í Ánanaustum í Reykjavík laugardaginn 16. apríl.

Dæmdur fyrir þjófnað

Karlmaður var í dag dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness.

Icesave málið gæti verið hjúpað leynd næstu 110 árin

Lykilgögn, til dæmis í Icesave málinu, gætu verið hulin leyndarhjúpi í hundrað og tíu ár nái nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um upplýsingalög fram að ganga. Þingmaður krefst þess að frumvarpið verði dregið til baka.

Sakaðir um samráð um framsetningu drykkjarvara í verslunum

Vífilfell fékk bréf síðdegis frá Samkeppniseftirlitinu þar sem þeir voru upplýstir um að húsleit sem var gerð í fyrirtækinu í morgun hefði verið vegna gruns um ólöglegt samráð sem m.a. fellst í uppröðun og framsetningu drykkjarvara í kælum og hillum verslana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vífilfelli.

Farið inn í ólæsta bíla og íbúðir á Akureyri

Undanfarna daga hafa borist þó nokkrar tilkynningar til lögreglunnar á Akureyri um að farið hafi verið inn í ólæstar bifreiðar og húsnæði víða um bæinn. Að sögn lögeglu hefur verið rótað í bifreiðum og í því húsnæði sem farið hefur verið inn í en litlum verðmætum stolið.

1090 jarðskjálftar á Íslandi í mars

Alls mældust 1090 jarðskjálftar undir landinu og á hafsvæðinu í kring um Ísland í marsmánuði. Stærstu skjálftarnir urðu norður á Kolbeinseyjarhrygg, sá stærsti náði stærð Ml 4. Stærsti skjálftinn á landinu mældist af stærð 3,5 við Kleifarvatn. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands Þar segir einnig að á Reykjanesskaga og Reykjaneshrygg mældust 460 skálftar, þar af voru 444 skjálftar við Krýsuvík og Kleifarvatn. Stærsti skjálftinn í mánuðinum varð jafnframt á þessu svæði, en hann mældist 2. mars og var af stærðinni Ml 3,5 og varð hann rétt við Krýsuvíkurskóla. Mest var virknin í upphafi mánaðarins, en skjálftahrina á þessu svæði hófst 25. febrúar. Í febrúarmánuði voru hátt í 2000 skjálftar undir landinu og á hafsvæðinu í kring um Ísland. Mest var virknin við Krýsuvík og mældust nokkrir skjálftar sem voru um og yfir fjögur stig. Í janúarmánuði voru skjálftarnir 1040. Nánar má lesa um skjálftana á vef Veðurstofu Íslands.

Grunur um samráð gosdrykkjaframleiðenda

Grunur um samráð keppinauta leiddi til þess að Samkeppniseftirlitið framvæmdi í dag húsleit hjá Vífilfelli og Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samkeppniseftirltiinu.

Betur reknir skólar og öflugra starf er markmiðið

Jón Gnarr borgarstjóri segir að markmiðið með sameiningaráformum í skólum og leiksskólum borgarinnar sé að ná fram betur reknum skólum og öflugra skólastarfi. Sameiningaráformin verða að öllum líkindum samþykkt í borgarstjórn síðar í dag en borgarráð samþykkti tillöguna í gær. Jón Gnarr bendir á að ekki sé verið að loka húsnæði og að ekki sé um að ræða breytingar á öllu skólastarfi í Reykjavík. Fyrst og fremst sé um að ræða hagræðingu og sparnað í yfirstjórn.

Konur fá að fjúka frá borginni

Alls verður 46 stjórnendum í skólakerfinu sagt upp hjá Reykjavíkurborg um næstu mánaðamót vegna breytinga á skólakerfinu sem borgarráð samþykkti í gær, samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Leikskóla- og Menntasviði Reykjavíkurborgar. Allt eru þetta konur sem missa vinnuna, en einhverjar þeirra munu fá önnur störf hjá borginni.

Díoxín enn yfir mörkum í Vestmannaeyjum

Mæling umhverfisstofnunar á mengun í Sorporkustöð Vestmannaeyja bendir til þess að all nokkur árangur hafi náðst í að hefta útblástur þeirra mengandi efna sem getið er um í starfsleyfi stofnunarinnar. Af þeim viðmiðunum sem getið er um í starfsleyfi stöðvarinnar er það einungis ryk sem er yfir mörkum. Í viðbót við þau viðmið sem gefin eru í starfsleyfi Sorporkustöðvarinnar var mælt brennisteinsdíoxíð, vetnisflúoríð, nituroxíð og díoxín. Í öllum tilvikum eru mælingar innan viðmiða ef frá er skilið mæling á díoxíni sem enn er hátt yfir viðmiðum. Sýni sem Matvælastofnun tók úr búfé á Heimaey reyndist hinsvegar ekki vera með díoxínmengun miðað við gildi sem fengust í mælingum á kjöti sem fóru fram víðs vegar um landið árin 2003 og 2004. Fyrr í morgun funduðu fulltrúar Vestmannaeyjabæjar og Umhverfisstofnunar, meðal annars vegna niðurstöðu þessara mengunarmælinga í Sorporkustöð Vestmannaeyja sem unnin var í mars 2011 af Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Einnig var rætt um mælingar á díoxsíni í sauðfé sem unnin var af Matvælastofnun Íslands, og starfsleyfi Sorporkustöðvar Vestmannaeyja. „Vestmannaeyjabær mun áfram vinna að úrbótum með sérstaka áherslu á að ná niður rykmengun. Til þess að flýta þeirri vinnu og gera hana markvissari hefur Vestmannaeyjabær samið við Þór Tómasson sérfræðing hjá verkfræðistofunni Mannvit. Á yfirstandandi ári mun Vestmannaeyjabær draga úr heildarlosun allra mengandi efna um að minnsta kosti 60%. Þaðan mun áfram verða haldið ef þörf verður á þar til fullum árangri er náð. Meðal þess sem unnið er að er frekari flokkun sorps, kaup á auknum mengunarvörnum við útblástur, bæting á brensluferli og ýmislegt fleira," segir í tilkynningu frá Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Vestmannaeyjabæjar.

Atvinnuleitendur fá námstækifæri

Ríkisstjórnin kynnti í morgun aðgerðir til að skapa námstækifæri fyrir eitt þúsund atvinnuleitendur á næstu þremur árum. Sjö milljarðar fara í verkefnið sem eitt og sér er ætlað að draga úr atvinnuleysi um eitt prósent.

Falsaðir fimmþúsundkallar í umferð

Undanfarnar vikur hefur nokkuð borið á því að fölsuðum 5.000 kr. peningaseðlum hefur verið komið í umferð á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn lögreglu hefur sjaldnast uppgötvast að um falsaða seðla sé að ræða fyrr en við uppgjör á sjóðvélum eða við innlegg í banka.

Kvikmyndin Eldfjall keppir í Cannes

Eldfjall, fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar leikstjóra, verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 13. maí. Eldfjall keppir bæði í flokknum Directors Fortnight og um Camera d´Or verðlaunin. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framleiðendum Eldfjalls hjá Zik Zak kvikmyndum.

Upplýsingum haldið frá almenningi

Ný upplýsingalög eru nú til meðferðar hjá allsherjarnefnd Alþingis. Meðal þeirra sem skilað hafa inn umsögnum um lögin er Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður. Hún bendir á að þegar frumvarpið var lagt fram hafi forsætisráðherra sagt megintilgang frumvarpsins að auka upplýsingarétt almennings, gera stjórnsýsluna opnari, bæta lýðræðislega stjórnarhætti og auka aðhald um starfsemi stjórnvalda.

Húsleit hjá Ölgerðinni og Vífilfelli

Starfsmenn Samkeppniseftirlitsins fóru á skrifstofur Ölgerðarinnar í morgun og framvísuðu heimild til þess að leggja hald á gögn hjá fyrirtækinu. Samkvæmt frétt á vef Ölgerðarinnar tók heimsókn eftirlitsins skamman tíma og ekkert var látið uppi um ástæður hennar. Stjórnendur Ölgerðarinnar hafa því engar upplýsingar um það, að hverju rannsókn Samkeppniseftirlitsins beinist.

Björgunarsveitir sækja slasaðan vélsleðamann

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Hofsósi, Siglufirði og Ólafsfirði eru nú á leið í Hólaskarð fyrir ofan Héðinsfjörð eftir að tilkynning barst um slasaðan vélsleðamann þar. Á þessari stundu er lítið vitað um tildrög slyssins og aðstæður en talið er að maðurinn, sem var á ferð með hópi vélseðamanna, sé ökklabrotinn.

Sjá næstu 50 fréttir