Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sjálfboðaliðar buðu sig fram Um 200 íbúar sóttu borgarafund á Kirkjubæjarklaustri í gær vegna mengunar frá sorpbrennslunni á staðnum. 11.2.2011 11:00
Stóri kanilsnúðadagurinn - uppskrift Stóri kanilsnúðadagurinn haldinn hátíðlegur um helgina í IKEA. Markmiðið er að safna frjálsum framlögum fyrir Heilaheill, sem vinnur að hagsmunamálum þeirra sem fengið hafa heilablóðfalls. 11.2.2011 10:42
Nemar í loðnuvinnslu í aðdraganda verkfalls Nokkrir nemendur í Framhaldsskóla Vestmannaeyja fá þessa dagana frí úr skólanum til þess að vinna við loðnufrystingu á vöktum. 11.2.2011 10:30
Neytendasamtökin óska eftir aðstoð frá leigjendum Neytendasamtökin hafa lengi furðað sig á því að ekki séu til neinar ábyggilegar upplýsingar um leiguverð á íbúðarhúsnæði. Samtökin hafa því ákveðið að gera könnun á húsaleigu. Án upplýsinga frá leigjendum sjálfum er þó ómögulegt að vinna slíka könnun. Neytendasamtökin óska því eftir upplýsingum frá sem flestum leigjendum svo könnunin gefi rétta mynd af þessum ógagnsæja markaði. 11.2.2011 10:14
Met í komu ferðamanna til landsins Nýliðinn janúarmánuður var metmánuður í komu ferðamanna til landsins og gefur það óneitanlega góð fyrirheit um gjöfult ferðamannaár. Um 22 þúsund erlendir gestir fóru frá landinu í nýliðnum janúarmánuði og er um að ræða 3.500 fleiri brottfarir en á árinu 2010. Erlendum gestum fjölgaði því um 18,5% í janúarmánuði á milli ára. 11.2.2011 10:01
Fjölmenni í Leifsstöð Það var fjölmennt í Leifsstöð í morgun, en tafir urðu á millilandaflugi vegna óveðurs. Fréttamaður Vísis sem er á staðnum segir að morguninn hafi verið rólegur, en eftir klukkan níu voru allir veitingastaðir og verslanir orðnar fullar af fólki. 11.2.2011 09:55
Íslendingar vinna gegn lömunarveiki í Indlandi 14 íslenskir Rótaractfélagar, Rótarýfélagar og vinir fara í dag með hópi sjálfboðliða frá sex löndum í það sem kallað er „Dream Team-India 2011". Í þessari tveggja vikna dvöl mun „draumahópurinn" taka þátt í tveimur alþjóðlegum hjálpar verkefnum. 11.2.2011 09:53
Nýtt sanddæluskip komið til Eyja Sanddæluskipið Skandía, sem Íslenska gámafélagið hefur tekið á leigu til að dýpka Landeyjahöfn, kom lokst til Vestmannaeyja um miðnætti, eftri að hafa hreppt afleitt veður á leið sinni frá Danmörku. Það mun halda til dýpkunar um leið og veður lægir, en sennilega verður sjólag ekki orðið viðunandi fyrr en eftir helgi. 11.2.2011 09:46
112 dagurinn í dag 112-dagurinn er haldinn á Íslandi og í fjölmörgum öðrum löndum Evrópu í dag. Markmiðið með 112-deginum er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. 11.2.2011 09:23
Vísa allri ábyrgð á SA Trúnaðar- og samningamenn VM gagnrýna Samtök atvinnulífsins harðlega fyrir að halda samningum alls launafólks í landinu ólöglega í gíslingu vegna kröfu útgerðarmanna. Þetta kemur fram í ályktun sem þeir samþykktu í gær. 11.2.2011 09:17
Rútuferðum frestað til kvölds Rútuferðum hjá fyrirtækinu Bílar og fólk ehf, sem áttu að að fara frá Reykjavík til Akureyrar og frá Akureyri til Reykjavíkur í dag kl. 08:30 verið frestað til kvölds vegna óveður. Brottför verður frá Reykjavík og Akureyri kl. 17:00. Einnig hefur ferðunum sem áttu að fara frá Reykjavík kl. 08:30 í Borgarnes og til Stykkishólms, Grundarfjarðar og Ólafsvíkur verið frestað til kvölds og verður farið frá Stykkishólmi, Grundarfirði og Ólafsvík kl. 16:00 og frá Reykjavík kl. 17:00. Áætlunarferðinni frá Reykjavík til Hólmavíkur sem átti að fara kl. 08:30 hefur einnig verið frestað til kl. 13:00. Ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum hefur verið felld niður og verður því ekki farið í Þorlákshöfn kl. 09:30. 11.2.2011 09:09
Fundu 60 lítra af gambra á Selfossi Lögreglan á Selfossi lagði í gærkvöldi hald á 60 lítra af gambra og bruggtæki í heimahúsi í bænum. Húsráðandi var á vettvangi þegar lögreglu bar að og viðurkenndi hann að hafa verið að brugga, en engin fullbúinn landi var í húsinu. 11.2.2011 08:31
Sjaldséð eðla í Landakotskirkju Séra Patrick Breen, sóknarpresti í Landakotskirkju, brá nokkuð í brún í gær þegar hann frétti af því að á kirkjugólfinu stæði rúmlega meters löng græneðla (e. iguana). Séra Patrick segir að kirkjuræknar eðlur teljist undantekning í kirkjustarfinu og fól hann lögreglu lausn málsins. 11.2.2011 08:30
Fjórar á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Akureyri Fjórar ungar konur voru fluttar á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar eftir harðan árekstur tveggja bíla á gatnamótum Borgarbrautar og Merkigils á Akureyri í gærkvöldi. 11.2.2011 07:28
Fá skip á sjó - fyrstu ferð Herjólfs frestað Sárafá skip eru á sjó og eru sum þeira í vari, meðal annars við Vestmannaeyjar. Herjólfur fór ekki fyrri ferðina sem sigla átti klukkan 7:30 vegna veðurs og eru farþegar sem áttu bókað far beðnir um að hafa samband við afgreiðslu. 11.2.2011 07:26
Millilandaflugi frestað og innanlandsflug liggur niðri Öllu millilandaflugi frá Keflavík hefur verið frestað um eina til þrjár klukkustundir vegna veðursins sem nú gengur yfir og Ameríkuvélarnar koma seinna en áætlað var. Erfitt er að hemja vélarnar við landgangana við þessar aðstæður. Innanlandsflug liggur niðri. 11.2.2011 07:24
Mikið rok á Suðvesturlandi - björgunarsveitir að störfum Verulega fór að hvessa suðvestanlands upp úr klukkan fimm í morgun og voru björgunarsveitir kallaðar út í Reykjanesbæ til að hefta fok í bænum og í Vogunum. Sömuleiðis í Hafnarfirði, þar sem járnplata fauk meðal annars inn um glugga, en engan sakaði. Þar fuku líka tveir vinnuskúrar. 11.2.2011 07:17
Enginn skóli á Kjalarnesi - foreldrar í öðrum hverfum meti aðstæður Skólahald fellur niður í Klébergsskóla á Kjalarnesi í dag vegna óveðurs, foreldrar í öðrum hverfum eru hvattir til að meta aðstæður áður en þeir senda börn sín af stað í skólann. 11.2.2011 07:07
Fjöldi vísindamanna gagnrýnir þingmenn Harðort bréf hefur borist Alþingi frá 37 vísindamönnum þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við þingsályktunartillögu um bann við útiræktun erfðabreyttra lífvera. Flutningsmenn frumvarpsins eru átta frá þrem stjórnmálaflokkum; Vinstri grænum, Hreyfingunni og Samfylkingunni. 11.2.2011 07:00
Baðst afsökunar og tók bíl af dótturinni Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, baðst í gær afsökunar á að hafa túlkað ráðningarsamning sinn þannig að aðrir en hún gætu ekið um á bíl sem Kópavogsbær leggur henni til. 11.2.2011 05:00
Agnes og Ingi semja um sátt Ingi F. Viljálmsson, fréttastjóri DV, hefur fallið frá meiðyrðamáli á hendur Agnesi Bragadóttur, blaðamanni á Morgunblaðinu, sem hann höfðaði vegna umfjöllunar um meintan þátt sinn í sakamálum sem til rannsóknar eru. Agnes og Morgunblaðið gerðu sátt við Inga sem meðal annars felur í sér að Morgunblaðið biðst afsökunar á fréttaflutningi sínum á afdráttarlausari hátt en fram til þessa. 11.2.2011 04:00
Eiði Smára dæmdar bætur Eiði Smári Guðjohnsen hafa verið dæmdar 400 þúsund krónur í miskabætur vegna umfjöllunar DV um fjármál hans í desember 2009. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. 11.2.2011 04:00
Synjun umhverfisráðherra ógilt Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem synjun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun er ógilt. Svandís áfrýjaði málinu í október síðastliðnum eftir að hún tapaði í héraði. 11.2.2011 04:00
Viðræður í gang á ný Viðræður ASÍ og SA um kjarasamninga á almennum vinnumarkaði hófust á ný í gærmorgun eftir um tveggja vikna hlé. 11.2.2011 03:00
Stuttur fundur og árangurslaus „Fundurinn stóð mjög stutt og var algjörlega árangurslaus,“ sagði Sverrir Albertsson, formaður Afls – starfsgreinafélags Austurlands, eftir fund ríkissáttasemjara þar sem reynt var að ná sáttum í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og starfsmanna í fiskimjölsverksmiðjum. 11.2.2011 02:00
Verja 150 milljónum í átaksverkefni Reykjavíkurborg mun verja 150 milljónum til ýmissa átaksverkefna verði tillaga sem Jón Gnarr, borgarstjóri, lagði fram á fundi borgarráðs í dag. Um er að ræða fjármuni sem koma til með að renna til verkefna í þágu ungs fólks, til virkniverkefna fyrir fólk á fjárhagsaðstoð, til fólks með takmarkaða starfsgetu, til nýsköpunarsjóðsverkefna og til að kosta laun sérstaks verkefnisstjóra árið 2011. 11.2.2011 00:01
Iceland Express seinkar flugi vegna veðurs Brottför véla Iceland Express til London og Kaupmannahafnar í fyrramálið hefur verið seinkað um klukkustund vegna spár um ofsaveður á Suðurnesjum. Vélarnar áttu báðar að fara klukkan 7, en fara þess í stað klukkan 8. Þessar seinkanir eru líklegar til þess að hafa áhrif á komutíma vélanna síðdegis, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. 10.2.2011 23:57
Íslenskri hönnun stolið Tískuvikunni í Sao Paulo í Brasilíu lauk nú fyrir nokkrum dögum. Þar mátti sjá bregða fyrir íslenskri hönnun sem höfundurinn kannast þó ekki við að hafa selt til Brasilíu. 10.2.2011 21:00
Sparneytnir bílar í sókn Bílasala í landinu virðist vera að komast aftur á skrið eftir að hafa náð sögulegri lægð á síðasta ári. Þannig hafa rösklega helmingi fleiri nýjar fólksbifreiðar selst í janúar miðað við sama tíma í fyrra. 10.2.2011 21:00
Nýsköpunarsjóður fær 10 milljón króna aukafjárveitingu Menntamálaráðherra tilkynnti í gær um 10 milljón króna aukafjárveitingu til Nýsköpunarsjóðs Námsmanna. Fjárveitingunni er ætlað að gera ríkisstofnunum kleift að greiða mótframlag ríkisins til þeirra verkefna, sem sjóðurinn styður. 10.2.2011 20:30
Lýsi og oreganó gleðigjafar Fiskneysla á meðgöngu getur gert börn greindari. Skort á omega-3 fitusýrum sem fást úr sjávarfangi má svo tengja þunglyndi hjá börnum og fullorðnum. Þetta segir Michael Clausen, barna- og ofnæmislæknir, sem hefur um árabil stundað rannsóknir á fæðuofnæmi og hefur mikinn áhuga á því hvernig fæða hefur áhrif á okkur. Hann segir að við getum beinlínis orðið glaðari við að borða sjávarfang og ef við kryddum matinn okkar með óreganó. 10.2.2011 19:57
Þjónusta Stígamóta virkar fyrir þolendur kynferðisofbeldis Fólki sem hefur leitað aðstoðar Stígamóta eftir að hafa lent í áfalli vegna kynferðisofbeldis virðist líða mun betur andlega en því sem ekki hefur fengið ráðgjöf. Þetta sýnir rannsókn sem gerð var við Háskóla Íslands og kynnt var í dag. 10.2.2011 19:51
Landsdómur á óformlegum fundi Landsdómur kom saman til fundar í dag til þess að fjalla um atriði sem snýr að málshöfðun Alþingis gegn Geir H. Haarde. Um óformlegan fund var að ræða sem haldinn var í húsakynnum Hæstaréttar, en 15 dómendur eiga sæti í Landsdómi. 10.2.2011 19:47
Stjórn Ísavía kemur saman vegna kynferðislegrar áreitni starfsmanns Starfsmaður Ísavía sem áreytti samstarfskonu sína kynferðislega hefur verið sendur í ótímabundið leyfi. Stjórn Ísavía mun koma saman til að fjalla um málið. 10.2.2011 19:30
Mikill áfellisdómur yfir stjórnsýslu ráðherra Hæstiréttur Íslands komst að þeirri niðurstöðu í dag að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefði brotið lög þegar hún neitaði að staðfesta aðalskipulag vegna Urriðafossvirkjunar. Mikill áfellisdómur yfir stjórnsýslu ráðherrans, segir lögmaður Flóahrepps. 10.2.2011 19:01
Sat saklaus í varðhaldi í fjórar vikur Saklaus maður sat fjórar vikur í gæsluvarðhaldi fyrir meinta nauðgun. Honum var sleppt úr haldi á föstudaginn eftir að lífsýni sönnuðu sakleysi hans. 10.2.2011 19:00
Óttast um fagleg sjónarmið í skólum Fyrirhuguð hagræðing í skólastarfi Reykjavíkurborgar hefur valdið nokkrum úlfaþyt þar sem óljósar hugmyndir um sameiningu eða samrekstur stofnana hafa mætt töluverðri andstöðu meðal starfsfólks, stjórnenda og foreldra. 10.2.2011 19:00
Fólk hugi að öllu lauslegu: Varað við ofsaveðri Veðurstofan varar við ofsaveðri í nótt og í fyrramálið. Björgunarsveitir hvetja fólk til að vera ekki á ferli og gera viðeigandi varúðarráðstafanir. 10.2.2011 18:51
Handahófskennd nálgun meirihlutans Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, gagnrýndi vinnubrögð meirihluta Besta flokks og Samfylkingarinnar varðandi sameiningu grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila á fundi borgarráðs í dag. Hún sagði vinnubrögðin handahófskennd og að meirihlutinn hefði sett næstum hvern einasta starfsstað borgarinnar í uppnám. 10.2.2011 18:15
Sammála um að ná sem bestum samningi Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur ekki áhyggjur af því að óeining við ríkisstjórnarborðið geti tafið fyrir aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins. 10.2.2011 18:00
Ók fullur gegn einstefnu Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Sá fyrri, karl um fimmtugt, var stöðvaður í Hafnarfirði síðdegis í gær en hinn, karl á fertugsaldri, var stöðvaður í miðborginni í nótt þar sem hann ók gegn einstefnu. 10.2.2011 17:16
Hæstiréttur staðfestir ógildingu á synjun Svandísar Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem synjun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra á þeim hluta aðalskipulags Flóahrepps er varðar Urriðafossvirkjun. 10.2.2011 16:48
Ásdís Rán tapaði í Hæstarétti Hæstiréttur hefur sýknað tryggingafélagið Vörð af kröfum fyrirsætunnar Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur. Ásdís krafði Vörð um bætur úr slysatryggingu vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir í bílslysi. 10.2.2011 16:41
Umfjöllun um skuldastöðu Eiðs ófréttnæm og ómálefnaleg Dómari Héraðsdóms Reykjavíkur kemst að þeirri niðurstöðu að ritstjórar DV og blaðamaður séu sekir um brot á friðhelgi einkalífs Eiðs Smára Guðjohnsens, meðal annars á þeim forsendum að fréttir af skuldastöðu hans hafi ekki haft fréttagildi auk þess sem hún sé ómálaefnaleg. 10.2.2011 16:37
Selfyssingar varaðir við dæmdum kynferðisbrotamanni Íbúar í hluta Hólahverfis á Selfossi fengu nafnlaust dreifibréf inn um bréfalúguna hjá sér síðdegis í gær þar sem bent er á að dæmdur kynferðisafbrotamaður búi í hverfinu. 10.2.2011 16:20