Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tækifæri til að kynna samninginn Lárus Blöndal, fulltrúi stjórnarandstöðunnar í Icesave-samninganefndinni, telur að með synjun forsetans gefist tækifæri á að kynna samninginn betur fyrir þjóðinni. 21.2.2011 10:00
Ég er hömlulaus ofæta - Missti 200 kíló alls "Ég vinn miklu betur úr áföllum í lífi mínu. Ég fell ekki lengur saman. Ég þarf ekki lengur að innbyrða 5 þúsund kalóríur því einhver í vinnunni sagði eitthvað við mig sem mér leið illa út af,“ segir kona um fimmtugt sem hefur glímt við offitu frá því hún var unglingur. Hún hefur verið í OA-samtökunum í þrjú ár og segir þau bókstaflega hafa bjargað lífi sínu. 21.2.2011 09:25
Innbrot á Akureyri Brotist var inn i höfuðstöðvar Endurvinnslunnar á Akureyri um miðnætti. 21.2.2011 07:27
Forseti Íslands aftur kominn í sviðsljós heimsfréttanna Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er aftur komin í sviðsljós heimsfréttanna í framhaldi af því að hann ákvað að vísa nýjasta Icesave samningnum til þjóðaratkvæðis. 21.2.2011 07:21
Gríðarlegt líf í Breiðafirðinum Gríðarlegt líf er nú í Breiðafirðinum þar sem háhyrningar bjóða meðal annars upp á ókeypis hvalaskoðun nánast upp í landsteinum og láta sér ekkert bregða við forvitið fólk, sem skoðar þá úr fjörunni í Grundarfirði. 21.2.2011 07:11
Mikið kapp í loðnuveiðum til að ná öllum kvótanum Loðnuskipin eru nú að veiðum við Snæfellsnes, skammt undan landi og leggja nú mikið kapp á veiðarnar. því það styttist óðfluga í vertíðarlok með hverjum deginum. 21.2.2011 07:02
Ganga Laugaveginn til styrktar góðu málefni Hópur fólks frá Jersey á Ermarsundi ætlar að ganga Laugaveginn í haust til styrktar góðu málefni. 21.2.2011 06:54
Olían úr Goðafossi orðin eins og malbik í miklu frosti Svo kann að fara að ekki þurfi að dæla svartolíunni úr Goðafossi yfir í önnur skip, þar sem það er á strandstað við Noregsstrendur, því hún hefur harðnað svo í frostinu á svæðinu, að hún er sögð vera orðin eins og malbik. 21.2.2011 06:52
Forstjóri Eimskips biðst afsökuanr Hafist var handa í gær við að afferma Goðafoss sem strandaði í Oslóarfirði á fimmtudag. Í gærmorgun var byrjað á því að flytja tvo gáma frá borði sem voru fullir af sprengiefni, en í gærkvöldi var búið að flytja um 20 gáma í allt. Um 200 gámar voru í fyrstu á dekki skipsins. Talið er að það gæti tekið nokkrar vikur að tæma Goðafoss. 21.2.2011 04:00
Ekki verður samið frekar um Icesave Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra voru bæði undrandi á ákvörðun forseta Íslands í Icesave-málinu. Jóhanna segist óttast að forsetinn hafi með henni tekið verulega áhættu og segir að ekki verða lengra komist í samningaviðræðum. 21.2.2011 03:30
Ánægðir með Ólaf Samtök þjóðar gegn Icesave, hópurinn sem stóð að undirskriftasöfnun gegn Icesave-frumvarpinu á vefsíðunni kjosum.is, fagnar ákvörðun forseta Íslands um að synja Icesave-lögunum staðfestingar og vísa þar með málinu til þjóðarinnar. Þá eru forsetanum færðar þakkir. 21.2.2011 03:00
Samhliða Icesave verði kosið til stjórnlagaþings Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, vill að samhliða þjóðaratkvæðagreiðslunni um nýju Icesave-samninganna fari fram kosningar til stjórnlagaþings. Líkt og áður hefur komið fram tilkynnti Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í dag að hann hefði ákveðið að vísa Icesave-frumvarpinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. 20.2.2011 16:54
Vilhjálmur vill samþykkja samninginn "Ég tel að það yrði skynsamleg fyrir þjóðina að samþykkja samninginn,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Vísi. Hann vill þó ekki spá neitt fyrir um það hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara. 20.2.2011 16:30
Hollendingar: Tími samninga er liðinn Hollenska ríkisstjórnin segir að tími samningaviðræðna í Icesave sé liðinn og að Íslendingar verði sjálfir að vinna úr ákvörðun forseta Íslands að vísa Icesave frumvarpinu til þjóðarinnar. 20.2.2011 16:25
Forsetinn gerði könnun áður en hann synjaði lögunum staðfestingar Forsetaembættið gerði könnun á áreiðanleika undirskriftasöfnunarinnar sem staðið var að eftir að hann fékk afhentar undirskriftirnar á föstudag. Þetta gerði embættið áður en Ólafur Ragnar Grímsson forseti tók þá ákvörðun að synja lögunum um Icesave staðfestingar í dag. Hann sagði að úrtakið sem forsetaembættið hefði notast við væri stærra en það sem aðstandendur söfnunarinnar hefðu notast við, en það var um 100 manns. 20.2.2011 15:51
Yfirlýsing forsetans í heild Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að ákvörðun um að Icesave frumvarpið hefði horft öðruvísi við sér ef Alþingiskosningar hefðu farið fram frá þeim tíma sem kosið var um Icesave samninginn fyrir ári síðan og núna. Það Alþingi sem hafi tekið ákvörðun um samninginn núna sé sama Alþingi og tók afstöðu til samningsins fyrir ári. Þjóðin hefði tvær aðferðir til að lýsa afstöðu sinni, í almennum kosningum og í þjóðaratkvæðagreiðslu til ákveðinna mála. 20.2.2011 15:31
Forsetinn synjar Icesave lögunum staðfestingar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ákveðið að synja Icesave lögunum staðfestingar. Þar með er ljóst að þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara fram um málið. Alþingi mun á næstu dögum þurfa að koma sér saman um það hvaða dag kosningarnar verða haldnar. 20.2.2011 15:12
Axarárásarmenn látnir lausir Lögreglan hefur sleppt öllum fjórum mönnunum sem handteknir voru í gær vegna árásar með exi á tvo menn á Selfossi í gær. Málið er upplýst og fyrir liggur að ástæða árásarinnar var einhverskonar uppgjör þess sem beitti exinni og hins sem varð fyrir henni. 20.2.2011 14:51
Ákvörðun forsetans um Icesave - blaðamannafundur í beinni Blaðamannafundur forsetans, þar sem hann mun væntanlega kynna afstöðu sína til Icesave, hefst klukkan þrjú. Fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis sendir fundinn beint út á Vísi. Smelltu á „Horfa á myndskeið með frétt“ þegar útsendingin hefst til að sjá það sem fram fer. 20.2.2011 14:45
Spádómskýrin Glæta óviss um Icesave Spádómskýrin Glæta hefur ekki gert upp hug sinn varðandi Icesave samninginn, segir eigandi hennar. Glæta, frá bænum Kotlaugum í Hrunamannahreppi reyndist margsinnis sannspá þegar hún var að spá fyrir um leiki íslenska handknattleiksliðsins. 20.2.2011 14:00
Búið að losa sprengiefnið úr Goðafossi Tveir gámar sem voru fullir af sprengiefni voru fluttir úr Goðafossi um tíuleytið í morgun að íslenskum tíma. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að verkið hafi gengið mjög vel. Aftenposten segir jafnframt að í skipinu sé málningaþynnir og etanól sem gæti skapað eldhættu. 20.2.2011 13:47
Stungið á tugi dekkja í Vesturbæ Stungið var á dekk á hátt í 30 bifreiðum í Vesturbæ Reykjavíkur í nótt. Lögreglan hefur þegar fengið tilkynningar um 26 bifreiðar sem stungið var á og býst við því að þeim fari fjölgandi. Bifreiðarnar voru á Melunum, við Sundlaug Vesturbæjar og við Hofsvallagötu. Nú síðast barst svo tilkynning um að stungið hefði verði á dekk á bifreið við Sóleyjargötu. 20.2.2011 13:20
Svandís leggst gegn álveri í Helguvík Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra segir álver í Helguvík vera óraunhæft. Hægt sé að gera bæði umhverfisvænari og arðbærari verkefni fyrir atvinnulífið á Reykjanesi. Bæjarstóri Reykjanesbæjar, Árni Sigfússon, hefur lýst því yfir í fréttum að hann vilji nú í framhaldi af kísilveri í Helguvík að álversverkefni á sama stað gangi eftir. Það verkefni sé mun stærra og hafi víðtækari áhrif svo sem fyrir atvinnulífið. 20.2.2011 12:10
Stjórnarþingmaður: Erfitt fyrir forsetann að synja ekki "Mér finnst mjög erfitt fyrir forsetann að fara gegn því að senda þennan samning í þjóðaratkvæðagreiðslu þegar þessi fjöldi undirskriftasöfnunar er kominn,“ sagði Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þar tókst Lilja á við þær Ragnheiði Ríkharðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins, og Ólínu Þorvarðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar, um Icesave lögin sem samþykkt voru á Alþingi í síðustu viku. 20.2.2011 11:06
Krónprinsparið býður 1900 manns í brúðkaupið sitt Tilkynnt hefur verið að Vilhjálmur prins og Katrín verðandi eiginkona hans ætli að bjóða 1900 manns í brúðkaupsveislu sína þann 29.apríl næstkomandi. Það er Breska ríkisútvarpið sem greinir frá en engin nöfn hafa verið nefnd. Meira en helmingur gesta eru fjölskyldumeðlimir og vinir. 20.2.2011 10:23
Forsetinn boðar til blaðamannafundar Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson boðar til blaðamannafundar á Bessastöðum í dag klukkan þrjú. Gera má ráð fyrir að þar muni hann gera grein fyrir afstöðu sinni til Icesave laganna sem samþykkt voru í síðustu viku. Um 40 þúsund manns hafa skorað á forsetann að synja lögunum staðfestingar. 20.2.2011 10:02
Sprengiefni fjarlægt af Goðafossi í dag Gámar fullir af sprengiefni verða fjarlægðir úr Goðafossi í dag. Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, sagði í samtali við fréttastofu að sprengiefnið hefði forgang þegar byrjað væri að afferma skipið. 20.2.2011 09:50
Lögreglan lokaði skemmtistað í borginni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað á Grensásvegi um eittleytið í nótt. Inni á staðnum voru ungmenni að skemmta sér. Um 250 manns voru á staðnum og fæstir þeirra höfðu aldur til að vera inni á vínveitingastað. Ungmennin inni á staðnum voru allt niður í 16 ára að aldri. Þá voru sex einstaklingar handteknir í miðborginni í nótt með fíkniefni í fórum sínum. 20.2.2011 09:06
Þúsundir manna á Háskóladeginum Haldið var upp á Háskóladaginn í dag og fjöldi fólks á öllum aldri nýtti tækfærið og kynnti sér starfsemi og námsframboð í íslenskum háskólum. Háskólinn í Reykjavík tók á móti gestum í húsakynnum sínum við Nauthólsvík, en það er í fyrsta sinn sem HR heldur upp á Háskóladaginn á eigin spýtur og í eigin húsnæði . Jóhann Hlíðar Harðarson, forstöðumaður almannatengsla við HR, var að vonum ánægður með afrakstur dagsins og sagði daginn hafi gengið vonum framar og að aldrei áður hafi tekist eins vel til og nú. Þúsundir manna sóttu HR-inga heim og kynntu sér starfsemina og tóku þátt í ýmsum viðburðum á vegum starfsmanna og nemenda skólans. 19.2.2011 18:05
Losun skipsins verði lokið um miðja vikuna Aðgerðarstjóri hjá norsku strandgæslunni, Johan Marius Ly, hefur efasemdir um það að hægt verði að að afferma Goðafoss alveg á næstunni. Í samtali við Aftenposten segist hann þó vita fyrir víst að björgunarlið muni gera áætlanir fyrir kvöldið um það hvernig að björguninni verði staðið. 19.2.2011 17:38
Framsóknarkonur skora á forsetann "Íslenska þjóðin á að eiga síðasta orðið um Icesave samninginn sem ljóst er að felur í sér þungar en löglausar byrðar fyrir Íslendinga og komandi kynslóðir." Þetta segir framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna í ályktun sem send var fjölmiðlum í gær. 19.2.2011 14:29
Brátt byrjað að afferma Goðafoss "Björgunarfélag hefur nú metið aðstæður og lagt fram nákvæma björgunaráætlun fyrir norsku strandgæsluna og sérfræðinga Eimskips sem unnið verður eftir,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips. "Spáð er áframhaldandi logni á strandsvæðinu sem mun auðvelda björgunaraðgerðir en verkefnið krefst nákvæmni og þolinmæði og ekki verður flanað að neinu,“ segir Ólafur jafnframt. 19.2.2011 14:19
Óvíst hvenær byrjað verður að bjarga Goðafossi Enn er alls óvíst hvenær byrjað verður að reyna að ná Goðafossi af strandstað, segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips í samtali við fréttastofu. Menn á vegum rannsóknarnefndar sjóslysa í Noregi eru komnir um borð í Goðafoss, sem strandaði við Frederiksstadt í Noregi á fimmtudaginn. Þeir munu verja mestum hluta dagsins í að taka skýrslur af áhöfninni og skipstjóranum um hvað fór úrskeiðis og hvers vegna, eftir því sem fréttamaður TV 2 fréttastöðvarinnar fullyrðir. 19.2.2011 13:16
Ströndinni verður breytt Til stendur að gera breytingar á ströndinni, þar sem Goðafoss strandaði á fimmtudag, til þess að reyna að koma í veg fyrir að óhöpp af þessu tagi verði aftur. Það munu þó líða nokkur ár þangað til breytingarnar ganga í gegn, að því er fram kemur í Dagsavisen. 19.2.2011 10:51
Kannabissali handtekinn á Selfossi Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af ungum manni inni á veitingastað á selfossi í gærkvöldi. Lögregluþjónar þóttust finna kannabislykt af manninum sem brást illa við afskiptum lögreglu og var hann að lokum handtekinn eftir smá átök. Á manninum fundust kannabisefni og vörur sem notaður eru til að búa kannabisefni undir sölu. Hann gisti fangageymslur og bíður skýrslutöku. 19.2.2011 10:12
Þrír fréttamenn hjá 365 tilnefndir Þrír fréttamenn hjá 365 miðlum eru tilnefndir til Blaðamannaverðlauna 2010, en tilnefningarnar voru opinberaðar á miðnætti. Annars vegar er um að ræða blaðamennina Stíg Helgason og Trausta Hafliðason, hjá Fréttablaðinu, sem fá tilnefningu í flokknum Rannsóknarblaðamennska ársins 2010 fyrir greinargóða og upplýsandi umfjöllun um málefni meðferðarheimilisins Árbótar. Í rökstuðningi segir að umfjöllunin hafi varpað nýju ljósi á umdeild vinnubrögð í stjórnmálum og stjórnsýslu. 19.2.2011 09:56
Jónsi fékk Norrænu tónlistarverðlaunin Tónlistarmaðurinn Jón Þór Birgisson hlaut í gær Norrænu tónlistarverðlaunin. Margir þekkja eflaust Jón Þór sem Jónsa úr hljómsveitinni Sigurrós en hann hlaut verðlaunin fyrir sólóplötu sína Go, sem kom út á síðasta ári. Þetta var í fyrsta skipti sem Norrænu tónlistarverðlaunin eru afhent. Auk Jónsa var tónlistarkonan Ólöf Arnalds tilnefnd til verðlaunanna. Jónsi var að vonum kátur með verðlaunum en hann var af tilviljun staddur í Osló í rómantískri helgarferð þegar verðlaunin voru afhent. 19.2.2011 09:47
Í kappakstri á 130 kílómetra hraða Tveir ökumenn voru teknir á 132 kílómetra hraða á Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði um miðnættið í gær. Þar er hámarkshraði 60 kílómetrar á klukkustund. Mennirnir gáfu engar skýringar á athæfi sínu, en lögreglan á Vestfjörðum segir að það líti út fyrir að mennirnir hafi verið í kappakstri. Að sögn lögreglunnar mega mennirnir búast við því að verða sviptir ökuleyfi í þrjá mánuði, fá hundrað þúsund króna sekt og fjóra punkta í ökuferilsskrá. 19.2.2011 09:43
Vilja tryggja hæfa dómara Dómstólaráð gerir ráð fyrir aukafjárveitingu frá Alþingi til að standa undir kostnaði við tímabundna launahækkun dómara. Laun dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur og laun hæstaréttardómara hækka um tæpar 102 þúsund krónur á mánuði til janúarloka 2013. 19.2.2011 09:00
Hrinti sambýliskonu sinni fram af svölum Ríkissaksóknari hefur ákært mann á fertugsaldri fyrir að halda konu nauðugri og misþyrma henni. Að því búnu sló hann hana svo hún féll niður af svölum. Hann er einnig ákærður fyrir hótun og tilraun til fjárkúgunar. Hann játaði að hafa haldið konunni nauðugri en neitaði að hafa misþyrmt henni. Þá tók hann ekki afstöðu til ákæru um hótun og tilraun til fjárkúgunar við þingfestingu. 19.2.2011 08:00
Talaði aldrei fyrir dómstólaleiðinni Formaður íslensku Icesave-samninganefndarinnar, Lee C. Buchheit, telur samþykkt Alþingis á Icesave-frumvarpinu vera farsæla lausn fyrir Ísland. Alþingi hafi unnið góða vinnu og komist að skynsamlegri niðurstöðu. Þá neitar Buchheit því að hafa mælt fyrir dómstólaleiðinni á fyrri stigum málsins. 19.2.2011 07:00
60 þúsund veiktust af svínaflensu Talið er að um 60 þúsund manns hafi veikst af svínainflúensu hérlendis. Um 170 voru lagðir inn á sjúkrahús vegna hennar haustið 2009. Af þeim þurfti að leggja 22 inn á gjörgæsludeild. Lágu margir í öndunarvélum vikum saman. 19.2.2011 06:00
Skipstjórinn viðurkenndi mistök Skipstjórinn á Goðafossi hefur viðurkennt við yfirheyrslur hjá norsku lögreglunni að hafa tekið ranga stefnu þegar skipið strandaði, að sögn fréttavefs norska ríkissjónvarpsins. Fleiri úr áhöfn skipsins hafa verið yfirheyrðir. 19.2.2011 06:00
Lýst eftir góðum verkum Nú eru að verða síðustu forvöð fyrir lesendur að tilnefna til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins en tilnefningarfrestur rennur út á mánudag. 19.2.2011 05:00
Yfir 500 námsleiðir kynntar Háskóladagurinn verður haldinn í dag. Kynning verður á námsframboði næsta árs í háskólum á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð. Kynningarnar fara fram í Ráðhúsi Reykjavíkur, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Kynntar verða yfir 500 mismunandi námsleiðir. 19.2.2011 04:30