Innlent

Forsetinn gerði könnun áður en hann synjaði lögunum staðfestingar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lét kanna áreiðanleika undirskrifta.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lét kanna áreiðanleika undirskrifta.
Forsetaembættið gerði könnun á áreiðanleika undirskriftasöfnunarinnar sem staðið var að eftir að hann fékk afhentar undirskriftirnar á föstudag.

Þetta gerði embættið áður en Ólafur Ragnar Grímsson forseti tók þá ákvörðun að synja lögunum um Icesave staðfestingar í dag. Hann sagði að úrtakið sem forsetaembættið hefði notast við væri stærra en það sem aðstandendur söfnunarinnar hefðu notast við, en það var um 100 manns.

Forsetinn sagði jafnframt að hærra hlutfall þeirra sem skrifuðu undir hefðu gengist við því að hafa skrifað undir áskorunina í könnun forsetaembættisins heldur en í könnun aðstandenda söfnunarinnar, eða 99% á móti 93%.

Aðferðafræði við undirskriftakönnunina var harðlega gagnrýnd á meðan hún fór fram.


Tengdar fréttir

Forsetinn boðar til blaðamannafundar

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson boðar til blaðamannafundar á Bessastöðum í dag klukkan þrjú. Gera má ráð fyrir að þar muni hann gera grein fyrir afstöðu sinni til Icesave laganna sem samþykkt voru í síðustu viku. Um 40 þúsund manns hafa skorað á forsetann að synja lögunum staðfestingar.

Yfirlýsing forsetans í heild

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að ákvörðun um að Icesave frumvarpið hefði horft öðruvísi við sér ef Alþingiskosningar hefðu farið fram frá þeim tíma sem kosið var um Icesave samninginn fyrir ári síðan og núna. Það Alþingi sem hafi tekið ákvörðun um samninginn núna sé sama Alþingi og tók afstöðu til samningsins fyrir ári. Þjóðin hefði tvær aðferðir til að lýsa afstöðu sinni, í almennum kosningum og í þjóðaratkvæðagreiðslu til ákveðinna mála.

Spádómskýrin Glæta óviss um Icesave

Spádómskýrin Glæta hefur ekki gert upp hug sinn varðandi Icesave samninginn, segir eigandi hennar. Glæta, frá bænum Kotlaugum í Hrunamannahreppi reyndist margsinnis sannspá þegar hún var að spá fyrir um leiki íslenska handknattleiksliðsins.

Þingið starfar áfram þrátt fyrir ákvörðun forsetans

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að ekki standi til að rjúfa þing þrátt fyrir ákvörðun forsetans um að synja Icesave lögunum staðfestinga. Það er ekki á dagskrá, enda ekki á bætandi,“ sagði Steingrímur í fréttum RÚV eftir að forsetinn kunngjörði ákvörðun sína. "Ég er fyrst og fremst undrandi. Það liggur við að ég sé forundrandi,“ sagði Steingrímur.

Forsetinn synjar Icesave lögunum staðfestingar

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur ákveðið að synja Icesave lögunum staðfestingar. Þar með er ljóst að þjóðaratkvæðagreiðsla mun fara fram um málið. Alþingi mun á næstu dögum þurfa að koma sér saman um það hvaða dag kosningarnar verða haldnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×