Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meintur nauðgari ætlaði heim Karlmaður á fimmtugsaldri sem situr í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa nauðgað konu í Reykjavík um síðustu helgi hugðist fara úr landi tveim sólarhringum síðar. Þetta kemur fram í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu til Héraðsdóms Reykjavíkur. Hæstiréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms þess efnis að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi þar til í dag. 14.1.2011 06:15
Ráðuneytið gerir allt til að fá Jóel heim „Þetta mál hefur ekki strandað í ráðuneytinu, heldur í indverskri stjórnsýslu,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um mál íslensku fjölskyldunnar sem er föst á Indlandi. „Innan- og utanríkisráðuneytin hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til þess að greiða úr málinu hið fyrsta. Við erum að vonast til þess að niðurstaða fáist innan skamms.“ 14.1.2011 06:15
Halldór væntanlegur til landsins Sérstakur saksóknari yfirheyrði í gær sjö starfsmenn gamla Landsbankans vegna rannsóknar á meintri stórfelldri markaðsmisnotkun fyrir hrun. Nokkrir voru handteknir. Tugmilljarðar viðskipta eru undir í rannsókninni. 14.1.2011 06:00
Icesave-viðræður ávallt vingjarnlegar – fréttir um hörku rangar Icesave-viðræður íslensku sendinefndarinnar undir forystu Svavars Gestssonar og breskra stjórnvalda voru ávallt árangursríkar og vinsamlegar. Frásagnir fjölmiðla um harðar deilur voru ekki á rökum reistar. Þetta segir í minnisblaði sem sendiráð Bandaríkjanna í London sendi utanríkisráðuneytinu í Washington 6. janúar 2010, daginn eftir að Ólafur Ragnar Grímsson synjaði lögum um Icesave-samninginn staðfestingar. 14.1.2011 06:00
ESB vill ekki höfnun Íslands Evrópuþingmenn á opnum fundi utanríkismálanefndar Evrópuþingsins, sem fjallaði um aðildarferli Íslands, lýstu yfir miklum skilningi á sérstöðu Íslands í gær, að sögn Baldurs Þórhallssonar prófessors sem ávarpaði fundinn. Fundurinn er liður í stefnumótun þingsins um aðildarviðræður Íslands. 14.1.2011 06:00
„Jeppagengjanna“ var sárt saknað Sendiráð Bandaríkjanna í Kabúl sendi langt minnisblað í Hvíta húsið, til CIA og æðstu herstjórnar, til að reyna að koma í veg fyrir brotthvarf íslensku „jeppagengjanna“ frá Afganistan. Íslendingarnir hlaðnir lofi fyrir sín störf. 14.1.2011 05:45
Fréttaskýring: Opnað á útgönguleið úr viðræðum við ESB Yfirlýsing Árna Þórs Sigurðssonar, formanns utanríkismálanefndar Alþingis, um að aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið kunni að verða slitið, gengur í berhögg við leiðarvísa stjórnvalda í málinu. Viðræðurnar grundvallast á samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar og þingsályktun sjálfs Alþingis um aðildarumsóknina. Í hvorugu skjalinu er að finna fyrirvara líkt og þann sem Árni Þór gerði í Fréttablaðinu í fyrradag. 14.1.2011 05:45
Sæti í Öryggisráði styrki samband við Bretland og BNA Íslendinga í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hefði veitt færi á að styrkja enn frekar samvinnu Íslendinga við Breta og Bandaríkjamenn og færa rótgróið samstarf þjóðanna inn á ný svið. 14.1.2011 05:45
Hvalveiðiráðið telur að ESB-aðild Íslands bindi enda á hvalveiðar í atvinnuskyni Innan Alþjóðahvalveiðiráðsins var talið að barátta íslenskra hvalveiðimanna gegn aðild að Evrópusambandinu væri líkleg skýring á auknum hvalveiðum hér við land árið 2009. 14.1.2011 05:30
Verður að taka mótmælin alvarlega Alls settu 41.524 einstaklingar nafn sitt við undirskriftasöfnun Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) þar sem vegtollum var mótmælt. Nafnalistinn var afhentur Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra í gær. 14.1.2011 05:00
Spyr sýslumenn um túlkamál Innanríkisráðuneytið hefur sent sýslumannsembættum um allt land fyrirspurn vegna túlkaþjónustu erlendra einstaklinga í málum sem embættin hafa til meðferðar. 14.1.2011 05:00
Sigurjón fór í fylgd lögreglumanna Sigurjón Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, yfirgaf húsakynni embættis sérstaks saksóknara í lögreglufylgd rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Hvorki Sigurjón né Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður hans, vildu tjá sig við fjölmiðla um rannsókn sérstaks saksóknara sem snýr að stórfelldri markaðsmisnotkun Landsbankans. 13.1.2011 22:59
Spádómskýrin Glæta spáir Íslandi sigri Fyrsti leikur Íslands gegn Ungverjalandi á Heimsmeistaramótinu í handbolta verður jafn og spennandi en sigurinn dettur okkar megin á lokasekúndunum. Þessu spáir kýrin Glæta frá Kotlaugum í Hrunamannahreppi, sem sögð er búa yfir spádómsgáfu. 13.1.2011 21:23
Yfirheyrslur enn í fullum gangi Yfirheyrslur enn í fullum gangi hjá sérstökum saksóknara. Samkvæmt fréttamanni Vísis sem er fyrir utan húsnæði sérstaks saksóknara hefur enginn farið inn né út úr húsinu. Fyrrum bankastjórarnir Sigurjón Árnason og Elín Sigfúsdóttir hafa sést utanfrá inn í húsinu. 13.1.2011 20:48
Jón Gnarr sagði dæmisögu úr Múmíndal Jón Gnarr afhenti íþróttamanni Reykjavíkur viðurkenningu í Höfða í dag við hátíðlega athöfn. Í upphafi ræðu sinnar talaði hann um hvað forverar sínar hefðu sagt á undanförnum árum. „Borgarstjóri hefur gjarnan rætt um blómlegt íþróttalíf í borginni,“ sagði Jón og sagði síðar: „Ég ætla ekki að tala um þetta í dag.“ 13.1.2011 20:26
Brjálað veður undir Eyjafjöllum Brjálað veður er nú undir Eyjafjöllum, vestan við Skóga, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli. Björgunarsveitin á Vík aðstoðaði erlendan ferðamann fyrir stundu en sá treysti sér ekki til að keyra lengra vegna veðursins. Þá eru fjölmargir ökumenn í vanda. 13.1.2011 20:07
Áskriftir rifnar út Mikið álag er í áskriftarsölu Stöðvar Sport vegna HM í handbolta sem hefst í Svíþjóð í kvöld. Fyrsti leikur Íslands er á móti Ungverjalandi og hefst sá leikur klukkan 16 á morgun og verður hann í opinni dagskrá. Næsti leikur Íslands á móti Brasilíu er strax daginn eftir eða á laugardag kl. 20 en hann er í læstri dagskrá. 13.1.2011 19:47
Losnaði undan 1,7 milljóna króna ábyrgð Samkomulag sem viðskiptaráðherra gerði við fjármálastofnanir árið 2001 kveður á um að skuldarar, sem fá meira en milljón að láni, verði að fara í greiðslumat. Fullorðinn maður losnaði undan sautján hundruð þúsund króna ábyrgð þar sem Landsbankinn lét undir höfuð leggjast að fylgja þessari verklagsreglu. 13.1.2011 19:39
Bankarnir eru ekki alvöru bankar heldur innheimtufyrirtæki Hæstaréttarlögmaður hvetur fólk sem skrifað hefur upp á fyrir vini og vandamenn að kanna hvort greiðslumat hafi farið fram við lántöku áður en þeir borga skuldir í vanskilum. Bankastofnanir eigi ekki frumkvæði að því að kynna fólki rétt sinn. 13.1.2011 19:34
Götusóparar í hár saman Breskir götusóparar, með bresk tæki og tól, munu brátt láta til sín taka á götum Reykjavíkur. Tveir verktakar hafa kært Reykjavíkurborg og segja ákvörðunina nær óskiljanlega. 13.1.2011 19:21
Eldur í Bónus á Smáratorgi Eldur kviknaði í bílageymslu, sem er undir Bónus á Smáratorgi. Eldsupptök eru óljós en líklegt þykir að kveikt hafi verið í. Úðarnir í kjallaranum fóru í gang en eldurinn var minniháttar og var slökktur snöggt. 13.1.2011 18:59
Mál Þorsteins Kragh ekki tekið upp aftur Hæstiréttur mun ekki taka upp mál Þorsteins Kragh sem nú afplánar níu ára fangelsisdóm vegna innflutnings á tæpum 200 kílóum af fíkniefnum. Þorsteinn hafði óskað eftir endurupptöku meðal annars vegna nýrra gagna sem hann telur hafa komið fram í málinu. 13.1.2011 18:32
Margir ökumenn treysta sér ekki lengra á Hellisheiði Vörubíll fór á hliðina í Kömbunum fyrir stundu. Þá eru tveir aðrir vörubílar fastir en mikið vonskuveður er á svæðinu þessa stundina. Ökumaður vörubílsins slasaðist ekki. 13.1.2011 18:03
Ásdís íþróttamaður Reykjavíkur annað árið í röð Íþróttamaður Reykjavíkur árið 2010 er Ásdís Hjálmsdóttir frjálsíþróttakona úr Ármanni annað árið í röð. Jón Gnarr borgarstjóri í Reykjavík afhenti Ásdísi verðlaunin við hátíðarlega athöfn í Höfða í dag. Hún fékk farandbikar sem gefinn er af Reykjavíkurborg ásamt eignarbikar og 200 þúsund króa styrk frá íþróttabandalagi Reykjavíkur. 13.1.2011 17:55
Hugsanlega farið fram á gæsluvarðhald Ólafur Þór Haukssonar, sérstakur saksóknari, segir í samtali við fréttamann Vísis að hugsanlega verði farið fram á gæsluvarðhald yfir sjö manns sem hafa verið í yfirheyrslum hjá embættinu í allan dag. Búist er við að yfirheyrslurnar standi fram á kvöld. 13.1.2011 17:41
Fjölmiðlar sinni íslenskunni betur Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, lektor í íslensku við menntavísindasvið Háskóla Íslands, segir að fjölmiðlar ættu heldur að beina sjónum sínum að móðurmálinu, íslenskunni, fremur en að reyna að kenna börnum erlend tungumál. 13.1.2011 17:28
Lýst eftir hugsanlegu vitni á dökkleitum bíl Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð í Borgartúni í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld. 13.1.2011 16:45
Sigurjón Árnason á meðal hinna yfirheyrðu Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, er einn þeirra sem hefur verið í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í dag. Eins og fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis greindi frá í dag hafa sjö menn verið í yfirheyrslum vegna starfsemi Landsbankans fyrir hrun. Á meðal þess sem verið er að rannsaka er stórfelld markaðsmisnotkun. 13.1.2011 16:28
Fíkniefni í Hafnarfirði Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Hafnarfirði í gær samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Um var að ræða bæði amfetamín og kannabis en grunur leikur á að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu. 13.1.2011 16:23
Svandís vill stjórnsýsluúttekt vegna sorpbrennslustöðva Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur farið þess á leit við Ríkisendurskoðun að fram fari stjórnsýsluúttekt á afskiptum ráðuneytisins, Umhverfisstofnunar, sveitarfélaga og annarra aðila af sorpbrennslustöðvum sem fengu starfsleyfi fyrir 28. desember 2002. 13.1.2011 16:09
Bifreið Matthíasar fannst brunnin Bifreið Matthíasar Þórarinssonar, sem leitað hefur verið að undanfarna daga, fannst í gær í malarnámum nærri heimili hans. 13.1.2011 15:48
Sjö færðir í skýrslutöku - grunur um stórfellt auðgunarbrot Í tengslum við rannsóknir embættis sérstaks saksóknara á kaupum Landsbanka Íslands á hlutbréfum útgefnum af bankanum og lánveitingum bankans til hlutabréfakaupa fóru fram húsleitir á þremur stöðum í dag á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tilkynningu frá Sérstökum saksóknara. Þar kemur fram, eins og Vísir greindi frá, að sjö manns voru á sama tíma færðir til skýrslutöku. 13.1.2011 15:19
Gróft hótunarbréf sent aðstoðarmanni ráðherra „Þið eruð bara heppinn þarna niður frá að ekki sé búið að kveikja í þessari stofnun af eh helsjúkum einstaklingum," segir í hótunarbréfi sem Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, fékk sent á Facebook frá manni sem heitir Þórarinn Guðlaugsson. Tilefni bréfsins virðast vera skrif Höllu frá árinu 2007 um staðgöngumæðrun sem farið hafa fyrir brjóstið á Þórarni, en greint var frá þeim hér á Vísi fyrr í dag. Halla birtir hótunarbréfið á Facebook síðu sinni fyrir um hálfri klukkustund. Þórarinn viðhefur þar mjög gróft málfar, vegur að persónu Höllu og segir að ef hún tilkynni bréfið til lögreglu þá muni hann neita því að um hótunarbréf sé að ræða. Bréfið fer hér að neðan, óbreytt, en ástæða er til að vara viðkvæma við lestrinum 13.1.2011 14:57
Þrjár húsleitir framkvæmdar í tengslum við Landsbankann Embætti sérstaks saksóknara hefur framkvæmt þrjár húsleitir í dag sem eru tengdar rannsókn á málefnum gamla Landsbankans. 13.1.2011 14:50
Íslendingur sakaður um árás á góðan smekk Svisslendinga Leikstjórinn Þorleifur Arnar Arnarsson hefur hrist heldur betur upp í Svisslendingum en leikritið Die Kontrakte des Kaufmanns (Samningar kaupmannsins) eftir nóbelskáldid Elfriede Jelinak, i uppsetningu Þorleifs, var frumsýnt í St. Gallen í Sviss á dögunum. 13.1.2011 14:14
Undarleg samsuða „af vændi og barnasölu“ „Með því að borga konu fyrir að ganga með barn er því verið að búa til undarlega samsuðu af vændi og barnasölu. Vændi í þeim skilningi að verið er að kaupa afnot af líkama annarrar manneskju og barnasölu því barnið er jú selt." Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra, í pistli sem hún skrifar á vefsíðu sína árið 2007. Halla var ekki aðstoðarmaður Ögmundar þegar þessar línur voru ritaðar. 13.1.2011 14:01
Hugsanlega stærsti skjálfti síðan 1934 Líklegast er jarðskjálfti sem varð í Grímsfjalli, við Grímsvötn í Vatnajökli í morgun, sé sá stærsti sem verið hefur á þessum slóðum síðan árið 1934. Sérfræðingar Veðurstofunnar er nú að kanna gögn yfir jarðskjálfta á síðustu öld til að sannreyna þetta. 13.1.2011 13:58
Sjötti dagur ársins með lélegum loftgæðum Styrkur svifryks í Reykjavík verður sennilega yfir heilsuverndarmörkum í dag, 13. janúar, og yrði það í sjötta skiptið á þessu ári. Ástæða svifryksmengunar þennan hálfa mánuð sem liðinn er af nýju ári er fjölþætt meðal annars vegna ryks úr umhverfi, bílaumferðar og uppþyrlunar ryks af götum. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. 13.1.2011 13:19
Síbrotamaður skal dúsa í fangelsi Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður, Hreiðar Örn Svansson, var í morgun dæmdur í tveggja og hálfsárs fangelsi fyrir ítrekuð afbrot. 13.1.2011 13:18
120 íslenskar bækur þýddar á þýsku „Við höfðum gert okkur vonir um að þetta yrðu kannski hundrað titlar þannig að þetta fer fram úr því sem við bjuggumst við,“ segir Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar Íslands, sem heldur utan um heiðursgestahlutverk Íslands á bókamessunni í Frankfurt en hún verður formlega sett í október. 120 íslenskir titlar koma út á þýsku á næstu mánuðum og Halldór segist reikna með að verk yfir áttatíu höfunda verði aðgengileg á þýsku. „Þarna inni á milli eru safnrit, ljóða- og smásagnasöfn þannig að höfundarnir gætu verið miklu fleiri.“ 13.1.2011 13:00
Herjólfur siglir ekki í dag Allar ferðir Herjólfs falla niður í dag, 13. janúar 2011, vegna veðurs. Veðurspá fyrir morgundaginn er slæm og farþegar því beðnir um að fylgjast með tilkynningum í fyrramálið, að því er segir í tilkynningu. 13.1.2011 12:41
Jón Baldvin í Litháen: 20 ára sjálfstæðisafmæli Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi utanríkisráðherra ávarpaði litháenska þingið í dag, í tilefni þess að tuttugu ár eru liðin frá því landið hlaut sjálfstæði frá Sovétríkjunum. 13.1.2011 12:29
Harma afnám þjónustutryggingar Sjálfstæðisflokkurinn harmar þá ákvörðun meirihluta Besta flokksins og Samfylkingarinnar að leggja niður mikilvægt úrræði fyrir foreldra með ung börn með því að afnema þjónustutryggingu. 13.1.2011 12:03
Hákarlaþjófnaður: Meistari á Múlakaffi aldrei heyrt annað eins „Maður hefur aldrei heyrt um svona lagað,“ segir matreiðslumeistari á Múlakaffi, Jón Örn Jóhannesson, um stórþjófnað á kæstum Hákarli í Reykjanesbæ. Þjófarnir stálu 500-700 kílóum af fullverkuðum hákarli en létu þann óverkaða í friði. Kunnáttumenn segja fagmenn hafa verið að verki. 13.1.2011 11:41
Snarpur jarðskjálfti við Grímsfjall Jarðskjálfti upp á 4,2 á Richter var rétt norðan við Grímsfjall, nærri Grímsvötnum, á tíunda tímanum í morgun. Um stundarfjórðungi áður hafði orðið annar skjálfti upp á 3,5 á Richter á svipuðum stað. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segist ekki sjá neinn gosóróa, en sem komið er. Hins vegar hafi verið aukin skjálftavirkni á norðaustursvæðinu, við Vatnajökul, undanfarinn mánuð og því sé grannt fylgst með. Grímsvötn eru ein virkasta eldstöð landsins. 13.1.2011 11:34