Innlent

Sigmundur um Icesave: Spurning að gefa út spunaviðvörun

Valur Grettisson skrifar
Sigmundur Davíð er ekki beinlínis upprifinn yfir nýrri Icesave-lausn.
Sigmundur Davíð er ekki beinlínis upprifinn yfir nýrri Icesave-lausn.

„Jæja, hvaða sýningu á að setja á svið núna? Blaðamannafundur í Iðnó kl.18 til að kynna ,,niðurstöðu viðræðna" boðaður án samráðs við nokkurn úr stjórnarandstöðu," skrifar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, á Facebook, en hann er staddur erlendis.

Hann gefur lítið fyrir nýja Icesave-lausn sem verður kynnt opinberlega klukkan sex í dag.

Sigmundur virðist ekki upprifinn vegna nýs samkomulags sem enn á eftir að kynna.

„Svo á að kalla aðila vinnumarkaðarins fram á sviðið (eftir æfingar síðustu vikna). Það er ekki laust við að maður fái ,,backflash" til mánaðamótanna jan./feb.... 2009. Ætli það sé ekki rétt að gefa út spunaviðvörun?" skrifar Sigmundur sem virðist telja að þarna sé um spuna að ræða.

Sjálfur verður hann viðstaddur fund formanna stjórnmálaflokkanna ásamt Icesave-samninganefndinni í gegnum fjarbúnað. Eins og fyrr greinir frá þá verður samkomulagið kynnt klukkan 6 í dag og fer blaðamannafundurinn fram í Iðnó.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×