Innlent

Saga Fjárfestingarbanki: Rannsóknin tengist ekki bankanum

Frá Akureyri, en höfuðstöðvar Saga Fjárfestingarbanka eru í bænum.
Frá Akureyri, en höfuðstöðvar Saga Fjárfestingarbanka eru í bænum.

Saga Fjárfestingarbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna rannsóknar Sérstaks saksóknara, en húsleit var gerð á skrifstofum bankans á Akureyri og í Reykjavík. Í yfirlýsingunni segir að bankinn hafi frá upphafi liðsinnt saksóknara og hans fólki við rannsóknina og að Ólafur Þór Hauksson sérstakur saksóknari hafi staðfest að rannsóknin beinist ekki að Saga Fjárfestingarbanka.

Í tilkynningu frá bankanum segir: „Starfsmenn frá Sérstökum saksóknara komu í dag á skrifstofur Saga Fjárfestingarbanka í Reykjavík og á Akureyri vegna rannsóknar á málefnum sem tengjast lánveitingum Glitnis, þar á meðal vegna félagsins Stím. Sérstakur saksóknari hefur staðfest að rannsóknin beinist ekki að Saga Fjárfestingarbanka, heldur sé verið að leita gagna sem hugsanlega liggja hjá bankanum og tengjast málinu."

Þá segir að aðkoma Saga Fjárfestingarbanka að málinu sé sú að „í nóvember 2007 keypti bankinn 6% hlut í Stím af Glitni og samþykkti að veita félaginu heimilisfesti. Af þessum 6% hlut hélt Saga Fjárfestingarbanki litlum hlut sjálfur en miðlaði öðrum bréfum áfram til viðskiptavina sinna. Saga afskrifaði sinn hlut í árslok 2007. Einnig átti bankinn skuldabréf á hendur Stím, sem var selt í ágúst 2008."

„Saga Fjárfestingarbanki hefur frá upphafi liðsinnt saksóknara og hans starfsfólki við rannsókn málsins og afhent öll þau gögn sem um hefur verið beðið," segir að lokum.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×