Fleiri fréttir

Assange stofnar fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi

„Þetta er fyrirtæki sem er stofnað í tengslum við Wikileaks, það er engin starfsemi hafin, við erum ekki komnir með húsnæði og ég veit ekki hvenær starfsemi mun hefjast. Það hafa engir starfsmenn verið ráðnir og ég veit ekki hvað við verðum margir,“ segir Kristinn Hrafnsson blaðamaður. Julian Assange, oftast kenndur við Wikileaks, hefur stofnað fjölmiðlafyrirtækið Sunshine Press Productions hér á landi en þetta er sama fyrirtækjanafn og rekstraraðili Wikileaks notar.

Flugfélagið er sátt og ætlar að byggja sjálft

„Það er ánægjuefni að niðurstaða sé komin,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Borgarstjóri og samgönguráðherra hafa ákveðið að samgöngumiðstöð rísi ekki í Vatnsmýri. Rætt hefur verið um slíka framkvæmd í áratug og undirbúningur staðið í sex ár.

Brenndu rútu til kaldra kola

Ríkissaksóknari hefur ákært þrjá unga menn, á aldrinum átján ára til rúmlega tvítugs, fyrir að kveikja í rútu í Vestmannaeyjum og brenna hana til kaldra kola. Piltarnir eru ákærðir fyrir að hafa valdið almannahættu með þessu tiltæki sínu.

Óeirðaseggir gætu skaðað málstaðinn

Margir námsmenn í Bretlandi telja að ólætin sem settu svip sinn á mótmælin í Lundúnum á miðvikudag, gætu skaðað málstað námsmanna og varpað skugga á kröfur þeirra. Þetta segir íslenskur leiklistarnemi, Sigurbjörg Alma Ingólfsdóttir, að einkenni umræðuna í hennar kunningjahópi, en hún nemur við Rose Bruford Acting College.

Hótuðu ítrekað ofbeldi og lífláti

Ríkissaksóknari hefur ákært nítján ára stúlku fyrir ofbeldi og hótanir gegn lögreglu. Í ákæru segir að aðfaranótt sunnudagsins 30. maí síðastliðins hafi stúlkan ráðist með ofbeldi að tveimur lögreglumönnum sem voru við skyldustörf, sparkað í hægri sköflung annars þeirra og í hægra læri hins.

Ætla að draga úr mengun um tuttugu prósent á áratug

Fréttaskýring: Ríkisstjórnin hefur samþykkt aðgerðaáætlun til næstu tíu ára sem draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda. Áætlunin nær til allra samgangna á Íslandi og landgræðslu. Flýta á fyrir metanvæðingu bílaflotans. Vonir standa til að nota lífefnaeldsneyti á fiskiskipaflotann.

Nýsköpun er leiðin úr kreppu

Eiríkur Steingrímsson og Magnús Karl Magnússon segja að laustengdur hópur fræðafólks úr Háskóla Íslands, Háskóla Reykjavíkur og Landspítala vilji breyta vísindaumhverfinu hér á landi til hins betra, og hefur hann meðal annars kallað eftir því að opinberum fjárframlögum til rannsókna verði í auknum mæli beint í gegnum svokallaða samkeppnissjóði, enda sé það virk og öflug leið til að verja fjármunum á sem bestan hátt.

Loftsteinn lagður sem hornsteinn HR

Nýbygging Háskólans í Reykjavík (HR) við Nauthólsvík var vígð við hátíðlega athöfn í gær þar sem Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Magnús Júlíusson, formaður Stúdentafélags HR, lögðu hornstein að byggingunni. Steinn þessi er ansi merkilegur því um er að ræða fimm kílóa loftstein sem lenti á jörðinni fyrir um 4.000 árum.

Þetta er bara kjaftæði

„Þetta er bara kjaftæði. Það er búið að segja þetta svo oft.“ Þetta eru viðbrögð Hilmars Konráðssonar, forstjóra Magna verktaka, við tíðindum um að vegagerð fyrir tugi milljarða sé í sjónmáli.

„Þetta eru auðvitað bara göngin okkar“

Þjóðvegurinn á milli Húsavíkur og Þórshafnar hefur nú styst um 53 kílómetra, eftir að Hófaskarðsleið var opnuð við hátíðlega athöfn í stórhríð síðastliðinn laugardag. Vegurinn leysir nú af Öxarfjarðarheiði, sem hefur aðeins verið fær að sumri til.

Landgræðsluverðlaunin afhent

Landgræðsluverðlaunin voru veitt í dag við hátíðlega athöfn í Gunnarsholti. Verðlaunin að þessu sinni hlutu Ársæll Hannesson, Hermann Herbertsson, Ingólfur Helgason og Unnur Sveinbjörnsdóttir, Sandgerðisbær og Þjórsárskóli.

Einar K: Beittu hótunum og kúgunum

„Niðurstaðan var fengin með hótunum og kúgunum," segir Einar K. Guðfinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um atkvæðagreiðsluna á Alþingi í júlí 2009 þegar samþykkt var að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, sagði í umræðum á Alþingi í dag að Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, hefði verið hótað við atkvæðagreiðsluna. Ef hann myndi ekki styðja tillögu utanríkisráðherra yrði hann ekki lengi ráðherra.

Frumvarp Árna Páls vegna gengislána lagt fram

Frumvarp Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, um gengisbundin lán hefur verið lagt fram á Alþingi. Markmið frumvarpsins er að tryggja öllum einstaklingum sem tóku gengisbundin fasteignaveðlán eða bílalán lægri eftirstöðvar, til samræmis við dóm Hæstaréttar frá 16. september.

Bóndi ekur í fyrsta sinn á olíu af eigin akri

Olíuframleiðsla er hafin á Þorvaldseyri og ók Ólafur Eggertsson bóndi í fyrsta sinn í dag traktor sem gekk fyrir olíu af hans eigin akri. Hjá Siglingastofnun vonast menn til að íslenski fiskiskipaflotinn verði í framtíðinni knúinn með íslenskri jurtaolíu.

Davíð: Ekkert nýtt í skjölunum

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir ekkert nýtt vera að finna í tugum skjala sem utanríkisráðuneytið birti í morgun, um aðdraganda þess að Ísland studdi innrás í Írak, vorið 2003.

Mikið talað fyrir almennri lækkun vaxta

Hagsmunaaðilar komu saman til samráðsfundar í Þjóðmenningarhúsinu í dag, þar sem skýrsla sérfræðingahóps forsætisráðuneytisins um skuldavanda heimilanna var rædd.

Telur niðurskurðinn fela í sér gróf mannréttindabrot

Hópur Sunnlendinga afhentu Guðbjarti Hannessyni heilbrigðisráðherra, í dag lista með mótmælum íbúa á Suðurlandi gegn áformuðum niðurskurði á fjárframlögum til heilbrigðisþjónustunnar á svæðinu. Við sama tækifæri voru ráðherra einnig afhentir undirskriftalistar úr fleiri heilbrigðisumdæmum. Alls skrifaði 10.071 íbúi nafn sitt á mótmælalistana á Suðurlandi.

Opið í Bláfjöllum

Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnaði klukkan 15 og verður opið til klukkan 21 íkvöld. Skíðalyftan Kóngurinn er opinn og barnalyftur við skála, að því er fram kemur á heimasíður Reykjavíkurborgar. Diskalyftur á suðursvæðinu opnuðu klukkan 17. „Fólk er beðið um að klæða sig vel, það bítur aðeins í. Þar er NA 7-12m/sek og -6° frost,“ segir á heimasíðu borgarinnar.

Almenn leiðrétting skynsamlegust

Þingmenn Hreyfingarinnar telja að almenn leiðrétting lána sé sú aðgerð sem skynsamlegast sé að ráðast í samhliða sértækum úrræðum fyrir þá sem almenn leiðrétting dugar ekki til hjá. Þingmennirnir telja að með þeirri nálgun megi leggja grunn að þjóðarsátt um skuldavanda heimilanna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá Hreyfingunni.

Fagráð kirkjunnar takmarkar upplýsingaflæði

Fagráð um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar gefur ekki upplýsingar um fjölda mála sem ráðinu hafa borist fyrr en á nýju ári. Eftir það verða þessar upplýsingar teknar saman með reglulegu millibili, líklega árlega eða á hálfs árs fresti. Þess utan gefur fagráðið ekki upplýsingar um störf sín. Þetta var ákveðið á fundi fagráðins í morgun.

Arnar Már borinn út í kyrrþey

Arnar Már Þórisson, verktaki, var borinn út í gærmorgun en sjálfur segir hann í orðsendingu til fjölmiðla að hann hafi verið borinn út í kyrrþey.

Nýtt húsnæði BUGL tekið formlega í notkun

Húsnæði móttökudeildar unglinga og dagdeildar barna á barna- og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, var tekið formlega í notkun með viðhöfn í dag eftir gagngerar endurbætur.

Björgvin aftur yfir kynferðisafbrotadeildina

Lögreglustjórinn í Reykjavík, Stefán Eiríksson, óskaði eftir því að Björgvin Björgvinsson, aðtoðaryfirlögregluþjónn, tæki aftur við sem yfirmaður kynferðisbrotadeildarinnar sem og hann hefur samþykkt.

Bubbi vill fría smokka í grunnskóla

„Miðað við þær fréttir sem við fáum af gríðarlegri útbreiðslu kynsjúkdóma held ég að sú herferð hljóti að hafa mistekist hrapalega," segir Bubbi Morthens um 24 ára gamla auglýsingaherferð þar sem fólk var hvatt til að nota smokkinn. Bubbi tók sjálfur þátt í herferðinn en nú hefur verið ákveðið að endurgera hana og hafa um hundrað þekktir einstaklingar samþykkt að taka þátt.

Um tuttugu mótmælendur berja tunnur

Um tuttugu mótmælendur berja tunnur fyrir utan Þjóðmenningarhúsið þar sem samráðsfundur ríkisstjórnar með hagsmunaaðilum er haldinn vegna skýrslu sérfræðingahóps ríkisstjórnarinnar um skuldavanda heimilanna.

Buðu staðföstum í mat tæpum mánuði eftir innrás

Fulltrúum ríkjanna, sem voru á stuðningslista Bandaríkjanna vegna innrásarinnar í Írak, var boðið í mat heima hjá varnamálaráðherra Bandaríkjanna, Donald Rumsfield, um tæpum mánuði eftir innrásina.

Kýldi lögreglumann og neitaði að yfirgefa lögreglubíl

Kona á fertugsaldri var dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir það að neita að yfirgefa lögreglubíl sem hún fór inn í án heimildar í mars síðastliðnum og fyrir að kýla lögreglumann í bringuna. Konan játaði að hafa hundsað fyrirmæli lögreglunnar um að yfirgefa bifreiðina en neitaði að hafa kýlt lögreglumanninn. Dómurinn segir hins vegar að framburður þeirra lögreglumanna sem voru á staðnum hafi hins vegar verið á einn veg um það. Hún var því sakfelld.

Leyniskjal segir innrásina í Írak lagalega vafasama

Þjóðréttarfræðingur, sem vann álit fyrir forsætisráðherra og ráðuneytisstjóra, um lagalegan grundvöll til beitingar vopnavalds gagnvart Írak, komst að þeirri niðurstöðu þann 20. mars 2003, að það væri ekki ótvíræður lagalegur grundvöllur fyrir innrás í Írak.

Kom Íslendingum í opna skjöldu þegar CNN birti listann

Það virðist hafa komið utanríkisráðuneytinu í opna skjöldu þegar listi hinna staðföstu þjóða var birtur á fréttastöðinni CNN þann 18. mars 2003. Þá höfðu engin svör borist frá Bandaríkjastjórn um hvernig listinn yrði notaður.

Listi hinna staðföstu var algjört trúnaðarmál

Íslensk stjórnvöld voru á lista „hinna staðföstu þjóða" sem studdu innrás í Írak, tveimur dögum áður en innrásin hófst. Þá var litið á listann sem „algjört trúnaðarmál".

Skuldugasta kynslóðin á fertugsaldri

Rúmlega 80% þeirra heimila sem eru í vanda, samkvæmt skýrslu reiknimeistarahóps stjórnvalda, keypti fasteign eftir að bankarnir fóru að veita fasteignalán árið 2004. Skuldugusta kynslóðin er fólk á fertugsaldri.

Dorrit með sýnikennslu í kvöld

Dorrit Moussaieff forsetafrú og Solla Eiríks hráfæðisgúrú þjófstarta alþjóðlegu athafnavikunni með léttri sýnikennslu í matargerð með nýsköpunarívafi á veitingastaðnum Gló í Laugardal kl 18. í kvöld.

Helmingur vill stjórnarflokkana áfram við ríkisstjórnarborðið

Rúmur helmingur þjóðarinnar telur æskilegt að núverandi stjórnarflokkar komi áfram að ríkisstjórn. Um þriðjungur þjóðarinnar vill að skipuð verði utanþingsstjórn. Þetta eru niðurstöður MMR sem kannaði afstöðu almennings til nokkurra kosta við samsetningu ríkisstjórnar sem hafa verið í umræðunni að undanförnu.

Smokkurinn má ekki vera feimnismál

Til stendur að endurgera þekkta smokkaauglýsingu sem vakti mikla athygli fyrir 24 árum síðan. Það eru félagasamtökin Smokkur -sjálfsögð skynsemi og Ástráður félag læknanema sem standa að auglýsingunni ásamt Íslensku auglýsingastofunni. Smokkaherferðin sem gekk undir yfirskriftinni „Smokkur má ekki vera feimnismál" árið 1986 verður þannig endurvakin.

Innbrotum fækkar verulega á höfuðborgarsvæðinu

Innbrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um 29% frá árinu 2009 og fjöldi þeirra er nú svipaður og 2008 en mesta fækkunin í ár varð í janúar og september. Frá ársbyrjun til októberloka fækkaði innbrotum hlutfallslega mest í stofnanir og verslanir í samanburði við sama tímabil í fyrra. Á umræddum tíma fækkaði innbrotum á heimili um fjórðung, eða 26%, og enn meira þegar um ökutæki var að ræða, eða 34%. Fækkun innbrota er mismikil eftir hverfum eða svæðum.

Da Vinci fléttan: „Svindlarar af hæstu gráðu“

Roger Davidson, píanistinn og milljarðaerfinginn sem Helga Ingvarsdóttir og Vickram Bedi eru sökuð um að hafa féflétt, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins og segist vera fórnarlamb svindlara af hæstu gráðu. Parið er sakað um að hafa haft af Davidson fúlgur fjár, að minnsta kosti sex milljónir dollara, með því að sannfæra hann um að lífi hans væri ógnað af pólskum munkum með tengsl við Opus Dei samtökin.

Sjá næstu 50 fréttir