Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðin kjósi um breytingar á kvótakerfinu Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að til greina komi að leggja breytingar á kvótakerfinu í dóm þjóðarinnar í sérstakri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki sé gott að bullandi ágreiningur sé meðal þjóðarinnar um sjávarútvegskerfið. 25.1.2010 10:57
Engin slasaðist í tveimur veltum Lögreglan á Selfossi þurfti að sinna útkalli vegna tveggja bílveltna sem urðu með klukkustundar bili síðastliðið föstudagskvöld. Fyrra óhappið varð á Biskupstungnavegi við Þrastarlund þar sem jepplingur með fimm manns innanborðs valt. 25.1.2010 10:32
Unglingar stöðvaðir á óskráðum torfæruhjólum Lögreglan á Selfossi hafði afskipti af tveimur unglingspiltum í síðustu viku en þeir voru á óskráðum torfæruhjólum í Hveragerði. Akstur þeirra var talinn ógætilegur og hættulegur að auki voru bæði hjólin ótryggð. 25.1.2010 10:24
Rannsóknarnefnd Alþingis tilkynnir um útgáfu og skil á hrunskýrslu Rannsóknarnefnd Alþingis boðar til fréttamannafundar í Alþingishúsinu klukkan 11 í dag en þar verður tilkynnt um útgáfu og skil á skýrslu nefndarinnar um efnahagshrunið. 25.1.2010 10:09
Árni fann loðnutorfu austur af Langanesi Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson, sem nú er djúpt austur af Langanesi, fann þar loðnutorfu í gær og eru skipverjar enn að mæla hana. Sjómenn, útvegsmenn og aðrir, sem hafa hagsmuna að gæta af loðnuveiðum, bíða nú átekta eftir niðurstöðum mælinganna, því hingað til hefur ekki mælst nóg til að hægt verði að gefa út veiðikvóta. 25.1.2010 10:08
Kosið verði um álversstækkun í vor Samtökin Sól í Straumi vilja ekki að kosið verði um stækkun álversins í Straumsvík samhliða fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave en vilja þess í stað að kosningin fari fram sama dag og bæjarstjórnarkosningarnar í vor. 25.1.2010 09:30
Aðalmeðferð hafin í mansalsmáli Aðalmeðferð er hafin í dómsmáli gegn sex mönnum sem hafa verið ákærðir fyrir að ætla að selja nítján ára Litháenska stúlku í kynlífsþrældóm. Dómshaldið er lokað almenningi en það hófst í morgun. 25.1.2010 09:15
Norðmenn neita hlutverki sáttasemjara fyrir Ísland en... Norðmenn neita því að vera í sáttasemjarahlutverki fyrir Íslendinga í Icesave málinu. Þetta kemur fram í frétt á Reuters í morgun. Haft er eftir talskonu norska utanríkisráðuneytisins að Noregur..."hafi engu hlutiverki að gegna sem sáttasemjari fyrir Ísland í augnablikinu," eins og hún orðar það. 25.1.2010 07:50
Vilja ættleiða börn frá Haítí til Íslands Ætli alþjóðasamfélagið að bregðast við hörmungum á Haítí með því að ættleiða munaðarlaus börn úr landi bíða yfir 130 fjölskyldur og einstæðar konur þess hér á landi að geta ættleitt börn, segir Hörður Svavarsson, formaður Íslenskar ættleiðingar. 25.1.2010 06:00
Tími samninga að renna út Náist ekki samkomulag við Breta og Hollendinga um að taka upp viðræður vegna Icesave í vikunni gengur það tækifæri mönnum úr greipum. Það er mat þeirra stjórnmálamanna sem Fréttablaðið ræddi við. Fari svo, verði haldið óhikað í þjóðaratkvæðagreiðslu, en undirbúningur hennar hefur haldið áfram samhliða viðræðum við Breta og Hollendinga. 25.1.2010 06:00
Halda stórfé sem var innheimt í leyfisleysi Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar var ranglega látið greiða tæpar 83 milljónir króna í skipulagsgjald vegna bygginga sinna á varnarsvæðinu en fær aðeins rúmar 4 milljónir endurgreiddar vegna þess að kærufrestur var að mestu liðinn. 25.1.2010 06:00
Segja vegið að kvikmyndagerð í landinu „Það er verið að veita íslenskri kvikmyndagerð náðarhöggið,“ segir Hjálmtýr Heiðdal, formaður Félags kvikmyndagerðarmanna um niðurskurðaraðgerðir RÚV. Þær fela meðal annars í sér að dregið verður úr kaupum á innlendum kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og heimildarmyndum. 25.1.2010 06:00
Féll í lest við siglingu úr höfn Rúmlega þrítugur sjómaður slasaðist alvarlega á höfði þegar hann féll í lest skips þegar það var nýlagt frá bryggju seinnipart dags í gær. 25.1.2010 05:00
Fær erlenda fyrirlesara heim Búist er við að rúmlega þúsund manns, þar af um hundrað erlendir gestir og fyrirlesarar, sæki alþjóðlega risaráðstefnu Microsoft á Íslandi um upplýsingatækni, sem haldin verður í Reykjavík á morgun og miðvikudag. Á ráðstefnunni er að finna rjómann af þremur ráðstefnum sem haldnar voru í Bandaríkjunum og í Evrópu í fyrra. 25.1.2010 04:00
Ekkert ákveðið um stækkun álversins Ekki er tryggt að ráðist verði í stækkun álversins í Straumsvík, þó það yrði samþykkt í íbúakosningu. Fyrirtækið mun athuga málið komi sú staða upp. Stækkun er enn talinn hagkvæmur kostur, segir Ólafur Teitur Guðnason hjá Rio Tinto Alcan. 25.1.2010 04:00
Vilja vita hvar til stendur að virkja „Skorað er á ríkisstjórnina, einkum forsætisráðherra, umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra, að taka saman yfirlit og gera rækilega grein fyrir því hvaða háhitasvæði og vatnsföll verður nauðsynlegt að virkja til þess að afla orku fyrir 360 þúsund tonna álverksmiðju í Helguvík.“ Svo hljóðar áskorun sem birt var á vef Náttúruverndarsamtaka Íslands. 25.1.2010 04:00
Úttekt ýfir upp deilu um strandveiðarnar Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra hefur gott sem tekið af allan vafa um að strandveiðar eru komnar til að vera. Niðurstöður úttektar Háskólaseturs Vestfjarða (HV) á framgangi og áhrifum veiðanna túlkar ráðherra sem svo að reynsla af veiðunum sé góð. Smábátasjómenn hvetja til þess að veiðarnar verði festar í sessi á meðan útgerðir innan LÍÚ finna þeim allt til foráttu. 25.1.2010 03:30
Einn maður býr í Skeifunni Einn maður er með lögheimili í Skeifunni, meðan jafn stórt svæði hinum megin Miklubrautar hýsir þrettán hundruð manns, að mestu í einbýlishúsum. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi bendir á þetta. Skeifan sé gott dæmi um tækifæri til að þétta byggð í borginni. 25.1.2010 03:00
Veikleiki listans er skortur á endurnýjun Niðurstaða prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík skilar lista sem lítur ágætlega út, með óumdeildan leiðtoga. Veikleiki listans er helst skortur á endurnýjun, segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. 25.1.2010 01:15
Fékk viðurkenningu FKA Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentors, hlaut í gær viðurkenningu Félags kvenna í atvinnurekstri (FKA) fyrir árið 2010. Viðurkenningin var afhent í Perlunni fyrir helgi. 25.1.2010 01:00
Fullyrt að forsætisráðuneytið telji þrjú ríki koma til greina sem sáttasemjarar Íslensk stjórnvöld vilja helst að Norðmenn, Þjóðverjar eða Frakkar miðli málum í Icesave deilunni. Þetta er haft eftir Einari Karli Haraldssyni, upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins, í samtali við norska Dagbladet. 24.1.2010 21:17
Dæmi um að foreldrar selji lyf frá börnum sínum Dæmi eru um að foreldrar hafi selt rítalín og fleiri lyf frá börnum sínum í ábataskyni. Aðstoðarlandlæknir veit til þess að söluturn í Reykjavík selji lyfseðilsskyld lyf undir borðið og undrast að lögregla láti sig þetta ekki varða. 24.1.2010 19:29
Afborganir vegna Icesave litlu meiri en lán til Kaupþings Afborganir og vextir af erlendum lánum opinberra aðila næstu fjórtán árin eru um 2.260 milljarðar króna. Þar af eru afborganir vegna Icesave um 289 milljarðar, sem er öllu minni upphæð en Seðlabankinn lánaði Kaupþingi meira og minna án veða áður en Seðlabankinn fór á hausinn. 24.1.2010 18:30
Íslensk börn verða illa úti í kreppunni Íslenskir sérfræðingar á sviði lýðheilsu telja merki um aukin fjölskylduvandræði eftir fjármálahrunið árið 2008 sem skildi fjölda foreldra eftir í fjárhagsvanda. Fjallað er um málið á vef breska blaðsins Guardian í dag. 24.1.2010 14:12
Íslensk kona stjórnar hjálparstarfi á Haiti Íslensk kona, Hlín Baldvinsdóttir, gegnir lykilhlutverki á vegum Alþjóða Rauða krossins á Haiti við að skipuleggja flóttamannabúðir fyrir yfir tvöhundruð þúsund manns sem misstu heimili sín í jarðskjálftanum. Hún segir margra ára hjálparstarf framundan. 24.1.2010 18:45
Segir erindi Borgarahreyfingarinnar „ævintýralega heimskulegt“ Erindi Borgarahreyfingarinnar til lagadeildar Háskóla Íslands er svo ævintýralega heimskulegt að ósofinn leikskólakrakki með hor í nös og króníska eyrnabólgu hefði ekki getað ropað málinu út úr sér í sandkassanum. Þetta segir Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður. 24.1.2010 17:20
Prófkjör óheppileg leið til að tryggja endurnýjun á lista Prófkjör eru ekki heppileg aðferð til þess að bjóða upp á endurnýjun á lista og til þess að laða nýtt fólk inn í stjórnmálin, segir Magnús Árni Magnússon, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar. 24.1.2010 15:55
Segir nýtt vaktakerfi til bóta Nýtt vaktafyrirkomulag hjá almennum læknum á Landspítalanum verður til bóta fyrir sjúklinga og læknanna sjálfa. Þetta segir Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á spítalanum. Formaður félags almennra lækna segir hins vegar að flestir læknar séu mjög uggandi vegna breytinganna. 24.1.2010 12:19
Gagnrýnir þátt fjölmiðla í mótmælunum Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn gagnrýnir frásagnir fjölmiðla af mótmælum á Austurvelli og segir að það sé eins og þeir hafi verið að ýta undir eitthvað. „Ég þurfti að skamma fjölmiðlamann,“ sagði Geir Jón. Hann sagði þó að sumir fjölmiðlamenn hefðu verið ábyrgir. 24.1.2010 11:11
Þrjár líkamsárásir tilkynntar lögreglunni Þrjár líkamsárásir voru tilkynntar lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld og í nótt. Engin þeirra er alvarleg. 24.1.2010 09:29
Guðmundur B Guðmundsson efstur á Akureyri Guðmundur Baldvin Guðmundsson hlaut 66% gildra atkvæða í fyrsta sæti í prófkjöri Framsóknarmanna á Akureyri. Petrea Ósk Sigurðardóttir varð í öðru sæti. Alls greiddu 1.106 einstaklingar atkvæði í prófkjörinu sem var opið öllum þeim sem kosningarétt hafa í sveitarfélaginu í 24.1.2010 08:53
Júlíus Vífill náði öðru sæti - búið að telja Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk rúm 84% gildra atkvæða í fyrsta sæti sjálfstæðismanna í prófkjörinu fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Talningu er lokið. Júlíus Vífill Ingvarsson hafnaði í öðru sæti og í því þriðja er Kjartan Magnússon. Á kjörskrá voru 19.715 manns. Atkvæði greiddu 7.173 en gild atkvæði voru 6.847. Ógild atkvæði og auð voru 317. Af þeim voru auð atkvæði 9. 23.1.2010 22:39
Hanna Birna: Stuðningsyfirlýsing við borgarstjórnarflokkinn „Ég er mjög þakklát fyrir þann stuðning sem ég fæ í gegnum þetta prófkjör, en ég er sérstaklega ánægð með það hversu sterkur listinn er og hversu vel sjálfstæðismenn hafa valið í þessu prófkjöri,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri sem er í efsta sæti á lista sjálfstæðismanna eftir prófkjör flokksins í dag. 23.1.2010 20:59
Búið að telja rúm 6100 atkvæði - staðan óbreytt Staðan í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins er óbreytt eftir að 6137 atkvæði hafa verið talin. Hanna Birna Kristjánsdóttir er með um það bil 85% greiddra atkvæða í fyrsta sæti listans. 23.1.2010 20:38
Jórunn Frímannsdóttir: Þetta eru klárlega vonbrigði „Þetta eru klárlega vonbrigði,“ segir Jórunn Frímannsdóttir borgarfulltrúi sem er í áttunda sæti lista sjálfstæðismanna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, ef marka má stöðuna eins og hún er núna. 23.1.2010 20:21
Börn og unglingar veigra sér við að nota geðlyf vegna fordóma Aðstoðarlandlæknir segir talsvert bera á því að börn og unglingar sem þurfa að taka geðlyfið ritalín vilji það ekki af ótta við að vera stimpluð sem fíklar. 23.1.2010 19:26
Rætt við fleiri en eina ríkisstjórn um að miðla málum Ríkisstjórnin hefur átt í viðræðum við fleiri en eina ríkisstjórn varðandi milligöngu í að fá Breta og Hollendinga aftur að samningaborðinu um Icesave. Líklegast er að útlendur sáttasemjari komi frá Noregi, verði að nýjum viðræðum. 23.1.2010 21:17
Áslaug María komin upp fyrir Jórunni Áslaug M. Friðriksdóttir hefur náð sjöunda sæti af Jórunni Frímannsdóttur þegar talin hafa verið 4797 atkvæði af um það bil 7200 í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar. 23.1.2010 19:49
Júlíus Vífill: Of snemmt að fagna „Ég er afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem fram kemur í þessum fyrstu tölum. Maður vill náttúrlega ekki byrja að fagna neinum niðurstöðum fyrr en þær liggja endanlega fyrir,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson sem er í öðru sæti á lista sjálfstæðismanna eftir að búið er að telja um helming atkvæða. 23.1.2010 19:21
Hanna Birna efst - Júlíus Vífill annar Hanna Birna Kristjánsdóttir er efst í prófkjöri sjálfstæðismanna eftir að fyrstu tölur hafa verið lesnar. Júlíus Vífill Ingvarsson er í öðru sæti, en fast á hæla honum fylgir Kjartan Magnússon. 23.1.2010 18:32
Land Cruiser jeppi Árna Johnsen fór fimm veltur Árni Johnsen var fluttur á spítala í gær eftir að Land Cruiser bifreið hans fór fimm veltur við Litlu kaffistofuna í gær. Árni segist hafa sloppið óbrotinn úr óhappinu en lemstraður. 23.1.2010 17:44
Rösklega fimm þúsund hafa kosið - fyrstu tölur í beinni á Stöð 2 og Vísi Rúmlega 5200 manns höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um klukkan hálffimm í dag, samkvæmt upplýsingum frá Sigurbirni Magnússyni, formanni kjörstjórnar. Sigurbjörn segir að fjöldi kjósenda geti farið upp fyrir 7000 manns. 23.1.2010 16:44
Á þriðja hundrað mótmælti á Austurvelli Á þriðja hundrað manns mættu á kröfu og mótmælafund sem var haldinn á Austurvelli í dag. Jóhannes Björn Lúðvíksson höfundur bókarinnar Falið vald hélt ræðu. 23.1.2010 15:43
Yfir 3000 manns hafa kosið Rúmlega 3000 manns höfðu kosið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um tvöleytið í dag, samkvæmt upplýsingum frá Sigurbirni Magnússyni, formanni kjörstjórnar. 23.1.2010 14:47
Urgur í læknum Mikill urgur er í fjölda lækna eftir að stjórn Landspítalans ákvað að breyta vaktarfyrirkomulagi þar. Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir, formaður Félags almennra lækna, segir breytinguna geta orðið til þess að vinnan aukist um allt að tuttugu prósent viku. 23.1.2010 13:51