Fleiri fréttir

Einn slasaðist í Kríuhólum - fimm í haldi

Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild með höfuðáverka eftir ryskingarnar í Kríuhólum eftir hádegið. Fimm voru handteknir og segir lögregla að svo virðist vera sem fimmmenningarnir hafi ráðist á manninn sem slasaðist.

Draumalandið slær aðsóknarmet

Kvikmyndin Draumalandið eftir Þorfinn Guðnason og Andra Snæ Magnason er orðin aðsóknarmesta og tekjuhæsta heimildarmyndin frá upphafi mælinga á Íslandi. Alls hafa 13.359 manns séð myndina og hún og hún halað inn tekjur upp á rúmlega 13 milljónir eftir aðeins 28 daga í sýningu. Draumalandið sló þar við nýlegu meti Sólskinsdrengsins.

Birgitta kjörin þingflokksformaður

Birgitta Jónsdóttir var kjörin þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar á fundi þingflokksins í dag. Í kosningunum 25. apríl fékk Borgarahreyfingin 7,2% atkvæða og fjóra þingmenn kjörna.

Stelpuslagur á Selfossi

Nítján ára stúlka hefur verið ákærð fyrir líkamsárás fyrir utan 800 Bar á Selfossi í október á síðasta ári. Þá reif hún í hár kynsystur sinnar þannig að hún féll í götuna. Stúlkan lét ekki staðar numið þar heldur sparkaði í hana þar sem hún lá í götunni, með þeim afleiðingum að sú síðarnefnda hruflaðist á báðum fótum við hné og á framanverðum fótleggjum og skarst á hægri fæti fyrir neðan hnéskel þannig að sauma þurfti 10 spor.

Þrír stjórnmálaflokkar tefja endurskoðun laga

Seinagangur Framsóknarflokksins og Frjálslynda flokksins og veldur því að vinna nefndar við endurskoðun laga um fjármál stjórnmálaflokkanna tefst. Flokkarnir áttu að skila tilnefningum sínum í nefndina til forsætisráðherra fyrir 1. maí eða fyrir tæpri viku síðan. Eftir þingkosningarnar 25. apríl var Borgarahreyfingunni boðið að skipa fulltrúa í nefndina og skilaði flokkurinn tilnefningum sínum í dag.

Enn verið að yfirheyra smyglskútumennina

Yfirheyrslur standa ennþá yfir mönnunum sem handteknir voru í smyglskútumálinu svokallaða í síðasta mánuði. Gæsluvarðhald yfir sex mönnum sem handteknir voru vegna málsins rennur út í byrjun næstu viku,

ASÍ ítrekar kröfur sínar gagnvart stjórnvöldum

ASÍ á ekkert erindi í nánara samstarf við stjórnvöld um framvindu efnahagsmála fyrr en búið er að koma stöðu almennings og heimila í landinu í rétt horf. Þetta kemur fram í ályktun miðstjórnar sambandsins. Þar er lýst yfir megnri óánægju með seinagang við að endurskipuleggja fjárhag heimilanna, þrátt fyrir að Alþingi hafi samþykkt mikilvægar breytingar á réttar- og samningsstöðu almennings gagnvart kröfuhöfum.

Brennuvargur með hass á Litla Hrauni

Guðmundur Freyr Magnússon sem dæmdur var í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa meðal annars kveikt í parhúsi á Þorlákshöfn sem hann hafði skömmu áður rænt árið 2007 hefur verið kærður fyrir fíkniefnalagabrot. Guðmundur var í tvígang tekinn fyrir vörslu hass og tóbaksblandaðra kannabisefna í klefa sínum á Litla Hrauni.

Ragnar gæti þurft að bíða lengi eftir dómi

Íslandsdeild Amnesty International ætlar ekki að beita sér í máli Ragnars Erlings Hermannssonar sem handtekinn var vegna fíkniefnasmygls í Brasilíu. Hann situr nú í fangelsi í bænum Recife og hefur lýst slæmum aðbúnaði í fangelsinu, en hann deilir meðal annars klefa með fimmtán öðrum föngum.

Háskólinn kennir fólki að stofna sprotafyrirtæki

Eitt af fjölmörgum námskeiðum sem Háskóli Íslands mun standa að í sumar er Nýsköpunar- og frumkvöðlafræði. Markmið með námskeiðinu er að kenna fólki að hrinda hugmyndum í framkvæmd þannig að úr geti orðið sprotafyrirtæki. Jóhann Pétur Malmquist, prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands, er umsjónarkennari námskeiðsins en hann hefur tekið þátt í að stofna á annan tug fyrirtækja.

Gylfi: Í takt við það sem ég óttaðist

„Þetta er í takt við það sem ég hafði óttast, en ekki í takt við það sem ég hafði vonast eftir," segir Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands um vaxtaákvörðun Seðlabankans.

Afplánun á Íslandi ekki skoðuð fyrr en dómur fellur í Brasilíu

Afplánun hér á landi kemur ekki til tals fyrr en Ragnar Hermannsson hefur hlotið sinn dóm í Brasilíu segir dómsmálaráðherra. Unnið er að samningi milli Brasilíu og Íslands um flutning á föngum. Ragnar varar aðra við því að smygla eiturlyfjum, honum hafi aldrei liðið verr.

Inflúensan: Mest fjölgun tilfella í Bandaríkjunum

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) voru alls 2.217 í morgun í 24 ríkjum í heiminum og hafði fjölgað um 568 á síðastliðnum sólarhring samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB. Í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og Almannavarnadeild segir að inflúensan hafi nú verið staðfest í fyrsta sinn í Svíþjóð og Póllandi, eitt tilfelli í hvoru landi en sem fyrr er ástandið alvarlegast í Mexíkó þar sem staðfest tilfelli eru ríflega 1.100 og 42 dauðsföll eru rakin til veikinnar.

Krabbameinssjúklingar studdir með bleikum hrærivélum

Krabbameinsfélag Íslands skrifaði nýlega undir samkomulag við Einar Farestveit & co hf., umboðsaðila Kitchenaid á Íslandi þess efnis að 10 þúsund krónur af söluandvirði hverrar bleikrar Kitchenaid hrærivélar

Aðsókn á skíðasvæði eykst mikið

Aðsókn á öllum skíðasvæðum á landinu jókst mikið veturinn 2008 til 2009. Aukning frá því í fyrra var um 42%, en gestir voru 241 þúsund í vetur samanborið við 170 þúsund gesti árið áður.

Nefbraut fórnarlambið óvart

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir tvær líkamsárásir.

Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra skoðar mál Ragnars

Alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra hefur sent fyrirspurn til Brasilíu vegna máls Ragnars Erlings Hermannssonar þar sem óskað er allra upplýsinga sem að gagni koma. Þetta segir Smári Sigurðsson yfirmaður Alþjóðadeildar við fréttastofu. Ragnar Erling var handtekinn á föstudaginn í síðustu viku í bænum Recife í Brasilíu með tæp 6 kíló af hreinu kókaíni.

Styttist í nýja ríkisstjórn

Vinnu við gerð stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna heldur áfram í dag og funduðu forystumenn flokkanna í stjórnarráðinu í morgun. „Við sitjum núna og förum yfir drög að stjórnarsáttmálanum,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, í samtali við fréttastofu.

Höfuðpaurinn í Pólstjörnumálinu tekinn með fíkniefni

Einar Jökull Einarsson sem fékk þyngsta dóminn í Pólstjörnumálinu svokallaða hefur verið ákærður fyrir vörslu fíkniefna. Einar Jökull afplánar nú níu og hálfs árs fangelsisdóm á Litla Hrauni fyrir að hafa skipulagt smygl á tæpum fjörutíu kílóum af fíkniefnum sem komu hingað til lands með skútu.

Eyddu fimm kílóum af sprengiefni

Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyddu á tólfta tímanum í gærkvöldi rúmum fimm kilóum af dynamit-sprengiefni sem fundust í gær í og við grjótnámu rétt utan við byggðina á Þórshöfn á Langanesi. Menn, sem voru að sækja efni í námuna í gær, urðu efnisins varir og lokaði lögregla svæðinu strax.

„Ég vonaði að þetta væri bara ekki satt“

„Það er rosalegt að vita af honum þarna,“ segir Hermann Þór Erlingsson, faðir Íslendings sem situr nú í brasilísku fangelsi og bíður dóms vegna kókaínsmygls. Hann hefur enn ekkert heyrt í syni sínum. „Ég frétti þetta á mánudaginn. Allan daginn var ég að vona að þetta væri bara ekki satt. Ég er búinn að vera í sjokki síðan og veit satt að segja ekki mitt rjúkandi ráð,“ segir Hermann.

Skoða framtíðarskipulag kirkjugarða

Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri kirkjumáladeildar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, segir að rætt verði við forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkur vegna skipulagningar á kirkjugörðum í framtíðinni.

Alræmd brasilísk fangelsi

Cotel-fangelsið nærri Recife er alræmt fyrir illan aðbúnað og uppreisnir. Það, líkt og raunar mörg önnur fangelsi í Brasilíu, hefur sætt harðri gagnrýni mannréttindasamtaka. Árið 2007 létust nokkrir fangar í uppreisn í fangelsinu og í febrúar í fyrra var einnig gerð þar uppreisn. Þá slapp 51 fangi úr fangelsinu. Í nokkurra ára gamalli skýrslu um fangelsi í Brasilíu kemur fram að árið 2002 hafi 303 fangar verið myrtir í brasilískum fangelsum af samföngum sínum.

Drauganet til vandræða í heimshöfunum

Talið er að 640 þúsund tonn af veiðarfærum bætist árlega við þau drauganet, sem fyrir eru í heimshöfunum, en drauganetin halda áfram að fanga fisk, fugl, skjaldbökur og hvali árum saman eftir að þau týnast eða er hent í sjóinn.

Innbrot í bátaskýli í Skorradal

Brotist hefur verið inn í nokkur bátaskýli í Vatnsendalandi við Skorradalsvatn í vikunni og þaðan stolið ýmsum búnaði. Lögreglan í Borgarnesi rannsakar málið og óskar eftir upplýsingum um mannaferðir við bátaskýlin. Þykir þetta til marks um hve þjófar eru farnir að leita víða fanga.

Enginn strætó í Hvalfjarðarsveit

Ekkert verður úr því að Strætó hefji akstur um Hvalfjarðarsveit, eins og fyrirhugað var, og Borgarbyggð hefur sagt upp samningi við Strætó um akstur upp í Borgarnes.

Meirihluti landsmanna vill aðildarviðræður

Meirihluti landsmanna, eða rúmlega 61 prósent, vill aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt skoðanakönnun Ríkisútvarpsins. Mest er fylgið meðal tekjuhárra vel menntaðra íbúa höfuðborgarsvæðisins, en andstaðan er mest á landsbyggðinni.

Innbrotsþjófur á fermingaraldri

Fjórtán ára piltur og annar nokkrum árum eldri voru handteknir undir morgun eftir að þeir brutust inn í Nýherja við Borgartún og stálu þaðan stórum flatskjá.

Þúsund störf gætu bjargast

Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga (SÍSF) mun reyna að ná samstöðu meðal sveitarstjórnarmanna um að laun starfsmanna verði lækkuð um fimm prósent í stað þess að segja fólki upp starfi í þeim óumflýjanlega niðurskurði sem er fram undan. Hugmyndin verður kynnt á samráðsfundi í næstu viku þar sem fjárhagsstaða sveitarfélaganna verður rædd.

Svo vonar maður það besta

Heilbrigðismál Valgerður Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur heldur í dag til Íraks á vegum Rauða kross Íslands til starfa fyrir Alþjóða Rauða krossinn. Mun hún dvelja í hálft ár í borginni Najaf og vinna að eflingu bráðaþjónustu á sjúkrahúsi borgarinnar.

Hafragrautur þrisvar í viku

Að bjóða upp á hafragraut í matinn þrisvar í viku í leikskólum er meðal hagræðingaraðgerða sem Reykjavíkurborg hefur gripið til vegna efnahagsástandsins.

Sjö boð bárust í hafnargæsluna

Sjö sendu inn tilboð í útboð Faxaflóahafna á hafnargæslu vegna komu skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur. Lægsta boð var frá Öryggismiðstöð Íslands og hefur verið samið við fyrirtækið um verkefnið.

Fjölsmiðjan stækkar við sig

samfélagsmál „Við tókum ekki þátt í góðærinu og verðum eiginlega bara vör við kreppuna í aukinni aðsókn ungs fólks,“ segir Þorbjörn Jensson, forstöðumaður Fjölsmiðjunnar.

Lömbin fá nafn

Sex lömb höfðu bæst í hóp dýra í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær en sauðburður hófst í garðinum í fyrradag.

Hengdi sig eftir tap Arsenal

Suleiman Alphonso Omondi, 29 ára Keníumaður og aðdáandi enska knattpyrnuliðsins Arsenal, framdi sjálfsmorð eftir leik liðsins gegn Manchester United í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fyrrakvöld. Arsenal tapaði leiknum og féll úr keppni.

Erfitt að yfirgefa ofbeldissambandið

Samfélagsmál Erlendum konum hefur fækkað mjög hjá Kvennaathvarfinu síðan í haust en á sama tíma hefur íslenskum konum fjölgað mjög mikið. Þetta segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.

Ending hjálma þrjú til fimm ár

Ending reiðhjólahjálma er fimm ár frá framleiðsludegi en þrjú ár frá söludegi. Þetta kemur fram í frétt frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg sem hvetur hjólreiðafólk til að nota hjálma nú þegar átakið „Hjólað í vinnuna“ er hafið.

Catalina aftur í gæsluvarðhald

Lögreglumál Catalina Mikue Ncogo, sem komst í fréttir vegna meints mansals fyrr á árinu, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til 12. maí. Hún er grunuð um aðild að nokkuð umfangsmiklu smygli á fíkniefnum hingað til lands.

Bíltúr eftir ís borgaði sig upp

Það getur margborgað sig að bjóða börnunum sínum í ísbíltúr, eins og kona ein sem búsett er á Suðurlandi komst að um síðastliðna helgi.

Dyraverðir grunaðir um nauðgun

Mennirnir tveir sem handteknir voru um helgina grunaðir um að hafa nauðgað nítján ára stúlku við Tryggvagötu um helgina, starfa báðir sem dyraverði. Samkvæmt heimildum Vísis störfuðu þeir á sitthvorum skemmtistaðnum nálægt Tryggavgötunni.

Sextán ríkisborgarar í erlendum fangelsum

Alls dvelja sextán íslenskir ríkisborgarar í erlendum fangelsum samkvæmt fréttastofu RÚV. Ekki er útilokað að fleiri einstaklingar dvelji í erlendum fangelsum. Utanríkisráðumneytið hefur reynt að ná sambandið við Ragnar Erling sem var handtekinn fyrir helgi með rúm fimm kíló af kókaíni í farangri sínum.

Tugmilljóna kosningabarátta skilar sér í ESB könnun

„Það er alltaf spurning um það hvernig spurt er," segir Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, um skoðanna könnunn Gallup sem RÚV greindi frá í kvöld. Þar kom fram að 61,2 prósent vilja fara í aðildarviðræður við ESB. Þá voru rétt tæp 27 prósent sem voru alfarið á móti því. Tæp tólf prósent tóku ekki sérstaka afstöðu til málsins.

Sjá næstu 50 fréttir