Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líklega um eðlilegar jarðskorpuhreyfingar að ræða Allstór jarðskjálfti varð á svæði um 11 kílómetra suðvestur af Hafnarfirði klukkan 21:33 í kvöld. Skjálftinn varð nánast undir Reykjanesbraut nálægt Kúgerði, segir Sigurður Þ. Ragnarsson jarðeðlisfræðingur. Fyrstu tölur bentu til að hann væri 3,9 á Richter en endurreiknaðar tölur Evrópsku jarðskjálftamiðstöðvarinnar benda til þess að hann hafi verið 4,8 á Richter og á um tveggja kílómetra dýpi, segir Sigurður. 29.5.2009 21:40
Lögreglu ekki borist tilkynningar um tjón Lögreglunni á Suðurnesjum hefur ekki borist neinar tilkynningar um tjón vegna jarðskjálftann sem varð klukkan hálf tíu í kvöld norðvestan af Grindavík. 29.5.2009 22:14
Mikil óvissa ríkir um framgang viðræðna Mikil óvissa ríkir um framgang viðræðna Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, að fram kemur á vef ASÍ. Í viðræðum samninganefndar ASÍ við fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í dag var tekist á um tímasetningar launahækkana í gildandi kjarasamningi. 29.5.2009 20:09
Telur að stjórnarflokkarnir styðji tillögu framsóknarmanna Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er bjartsýn á að stjórnarflokkarnir muni styðja frumvarp sem þingmenn flokksins lögðu fram á Alþingi í dag. 29.5.2009 20:00
Tryggt að hryðjuverkalögum verði ekki beitt í óskyldum málum Ráðherrar fjölmiðlamála hjá 47 ríkja Evrópuráðsins, þar á meðal Íslands, samþykktu einróma í dag ályktun um að ríki ráðsins skuli tryggja að hryðjuverkalögum sé ekki beitt í málum óskyldum hryðjuverkum eða til að hefta tjáningafrelsi. Ráðherrafundi Evrópuráðsins um fjölmiðla og nýmiðlun lauk í Reykjavík í dag. 29.5.2009 19:21
Eitt undarlegasta safn landsins er í Hólminum Mismunandi gruggugt vatn í glersúlum og veðurorð á gólfi eru einu sýningargripirnir í einu undarlegasta safni á Íslandi. Stykkishólmsbær fórnaði meira að segja bóksafninu á fegursta útsýnisstað bæjarins undir skringilegheitin. 29.5.2009 19:12
Hefðu ekki getað afstýrt árekstri Aðeins tilviljun réði því að ekki varð árekstur milli farþegaþotu Icelandair og svifvængsflugmanns yfir Bláfjöllum fyrr í mánuðinum, að sögn talsmanns rannsóknarnefndar flugslysa, en frumrannsókn er á lokastigi. 29.5.2009 18:48
Félög Jóns Ásgeirs og Björgólfsfeðga styrktu Samfylkinguna um tugi milljóna Félög tengd Jóni Ásgeir Jóhannessyni og feðgunum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni styrktu Samfylkinguna um ríflega fjörtíu milljónir króna á árinu 2006. 29.5.2009 18:48
Þýsk stjórnvöld hótuðu Íslendingum Þýsk stjórnvöld hótuðu að hafa áhrif á viðræður Íslands við Evrópusambandið og samninginn við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn ef þýskir innstæðueigendur Kaupþing Edge fengju ekki greitt. 29.5.2009 18:36
Olíuskattar klúðruðu Drekaútboðinu Einn helsti sérfræðingur Noregs í olíumálum segir að dræm þátttaka í Drekaútboðinu hljóti að vera vonbrigði fyrir íslensk stjórnvöld og telur að fráhrindandi og illskiljanleg skattalöggjöf sé meginástæðan. Hann segir áformað vinnslugjald fáránlega hátt. 29.5.2009 18:35
Lögregla rannsakar andlát aldraðar konu á Hrafnistu Hrafnistuheimilin hafa tilkynnt Landlækni um lát 87 ára gamallar konu á Hrafnistu í Hafnarfirði og samkvæmt vinnuferlum óskað eftir lögreglurannsókn. Fram kemur í tilkynningu frá Hrafnistuheimilunum eru ekki uppi grunsemdir um að saknæmt athæfi hafi átt sér stað. 29.5.2009 17:56
Samfylkingin þáði 73 milljónir í styrki frá 25 aðilum árið 2006 Samfylkingin hefur aflað upplýsinga um fjáröflun einstakra aðildarfélaga hennar, kjördæmis- og sveitastjórnarráða árið 2006. Í tilkynningu frá flokknum segir að þessar fjáraflanir hafi að mestu farið fram í aðdraganda sveitastjórnarkosninga og komu til viðbótar fjáröflun Samfylkingarinnar á landsvísu á árinu 2006. 29.5.2009 16:34
Papeyjarsmyglið: Þrír áfram í gæsluvarðhaldi Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 9. júní og einn til 5. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þrír þeirra hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. 29.5.2009 16:24
Barðastrandaránið: Þriðja manninum sleppt Þriðja manninum sem handtekinn var í tengslum við hrottalegt rán á Seltjarnarnesi í vikunni hefur verið sleppt. Að sögn Ómars Smára Ármannssonar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu átti maðurinn ekki beinan þátt í ráninu sjálfu en lögregla taldi hann búa yfir vitneskju sem þá vantaði. Eftir að maðurinn hafði veitt þær upplýsingar var honum sleppt. Hinir mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við ránið hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 3.júní. 29.5.2009 15:58
Fipaðist á hlaupabretti, fór í mál og tapaði Tryggingamiðstöðin var sýknuð af skaðabótaskyldu vegna óhapps sem varð í heilsuræktarstöðinni Hreyfigreiningu ehf árið 2006. Forsaga málsins er sú að kona á fimmtugsaldrinum mætti í heilsuræktina og bjóst þá við að finna einkaþjálfara sem myndi fara með henni í salinn. Ekki náðist samstundis í einkaþjálfarann vegna bilunar í tölvubúnaði. 29.5.2009 15:38
Hryðjuverkalög verði endurskoðuð reglulega Meðal helstu atriða í lokayfirlýsingu ráðherrafundar Evrópuráðsins sem haldinn var hér á landi í vikunni er hvatning fundarins til Evrópuríkja að þau skuli reglulega endurskoða lög sín um baráttu gegn hryðjuverkum og beitingu þeirra. „Þannig skuli koma í veg fyrir að þeim sé misbeitt í málefnum sem eru alls óskyld hryðjuverkum - til að mynda til að hefta tjáningarfrelsi eða halda upplýsingum leyndum,“ segir ennfremur. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sótti fundinn fyrir Íslands hönd. 29.5.2009 15:24
Tilnefningar til Grímunnar 2009 Tilkynnt var um tilnefningar til Grímunnar 2009 kl. 15 í Borgarleikhúsinu og afhenti forseti Ísland hinum tilnefndur viðurkenningarskjal því til staðfestingar. Gríman verður veitt þann 16. júní samkvæmt venju. 29.5.2009 15:00
Kastaðist ekki út úr bílnum á Grindavíkurvegi Í frétt Stöðvar 2 og Vísis frá því í gær sem fjallaði um banaslys á Grindavíkurvegi var sagt að ökumaður annars bílsins hefði slasast talsvert þegar hann kastaðist út úr bílnum við áreksturinn, þar sem hann hafi ekki verið í öryggisbelti. Valdimar Leó Friðriksson framkvæmdarstjóri Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna segir þetta ekki rétt. Hið rétta sé að báðir mennirnir hafi verið klipptir út úr bifreiðunum. 29.5.2009 14:39
Papeyjarsmyglið: Óskað eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi Fíkniefnalögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir fjórum mönnum sem voru handteknir vegna Papeyjarsmyglsins svokallaða. Þeir hafa allir verið í varðhaldi frá því snemma í apríl en það rennur út í dag. 29.5.2009 14:35
Algjörlega fráleitt að verið sé að tefja Evrópumálið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins mælti fyrir tillögu stjórnarandsötðunar um mögulega umsókn um aðild að Evrópusambandinu í Alþingi í dag. Sagði hann meðal annars að algjörlega fráleitt væri að halda því fram að tillagan væri tilraun til þess að tefja málið líkt og haldið hefur verið fram. 29.5.2009 14:04
Lýsi vill refsa skipulagsfulltrúa Ölfuss Lýsi hf. hefur krafist þess að ummæli sem Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingafulltrúi Ölfuss, lét falla í viðtali við hádegisfréttir RÚV í apríl síðastliðnum verði dregin til baka og á þeim beðist afsökunar. Þá krefst fyrirtækið þess einnig að hann verði áminntur fyrir brot í starfi. 29.5.2009 13:43
Nýr aðstoðarmaður iðnaðarráðherra Arnar Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Arnar hefur starfað í Hagfræðideild Landsbankans, hjá Fjárfestingarstofunni og Útflutningsráði Íslands, Aflvaka hf. atvinnuþróunarfélagi Reykjavíkur og sem upplýsingafulltrúi, ritstjóri og blaðamaður, m.a. hjá Alþýðusambandi Íslands. 29.5.2009 12:43
Flugmaður tekinn með fölsuð vegabréf Landamæraeftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á þrjú fölsuð vegabréf sem fundust í fórum flugmanns. Maðurinn millilenti á Reykjavíkurflugvelli nýlega. Við leit kom í ljós að hann hafði undir höndum vegabréfin þrjú sem tilheyrðu greinilega ekki flugmanninum sjálfum. 29.5.2009 12:40
Lilja Mósesdóttir sat hjá við aðra umræðu Athygli vakti við Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, studdi ekki skattahækkanafrumvörp ríkisstjórnarinnar við aðra umræðu í gærkvöldi. Þetta gerði Lilja til að knýja á um að málið yrði ekki afgreitt án þess að upplýsingar lægju fyrir um áhrif hækkananna á ýmsa bótaflokka ríkissjóðs og varð þetta til þess að fulltrúar fjármálaráðuneytis voru ræstir út með hraði. 29.5.2009 12:22
Bensínlítrinn hækkar um 16 og fjörutíu Bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu hefur hækkað um 16 krónur og 40 aura frá því í gær, sem er líklega mesta bensínhækkun á einum sólarhring til þessa. 29.5.2009 12:19
Rauðvínið hækkar um 123 krónur - bjórinn um 18 Fimmtán prósenta áfengisgjaldið, sem samþykkt var á Alþingi í gærkvöldi, er innheimt við innflutning og er innifalið í innkaupsverði ÁTVR frá byrgjum. Vinsælt rauðvín í þriggja pela flösku hækkar um 123 krónur, vodka um 437 krónur, koníak um 467 og stór bjórdós um 18 krónur. 29.5.2009 12:11
Skattahækkanirnar stoppa lítið upp í fjárlagagatið Skattahækkanirnar sem Alþingi ákvað í gærkvöldi á bensín, áfengi og bíla eru aðeins einn fertugasti af því sem þarf til að loka risastóru fjárlagagatinu. 29.5.2009 12:09
Sakar bæjarfulltrúa um óheiðarleika Formaður Bæjarráðs Vestmannaeyja, Páley Borgþórsdóttir, segir í grein sem birtis á Eyjar.net, að hana blöskri óheiðarleiki oddvita V-listans. Ástæðan fyrir skrifum Páleyjar eru átök sem hafa verið innan bæjarstjórnar vegna mannaráðningar í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyjar. Þá var eiginmaður Páleyjar ráðinn sem forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar en einnig var faðir bæjarstjóra Vestmannaeyja, Elliða Vignissonar, ráðinn sem umsjónarmaður íþróttahússins. 29.5.2009 11:27
Faglegar ráðningar og stöður auglýstar Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra út í ráðningar í bönkunum og þeim fyrirtækjum sem ríkið hefur tekið yfir á undanförnum mánuðum í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í morgun. Spurði hann hvort stefnan væri að auglýsa stöðurnar. Menn voru léttir. 29.5.2009 11:10
Aftur kannabis í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gær. 29.5.2009 11:01
Flanagan: Þið standið undir skuldunum Mark Flanagan, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, lagði áherslu á það á blaðamannafundi á Kjarvalsstöðum í dag að Íslendingar geti staðið undir skuldabyrði hins opinbera. Flanagan sagði að margir hefðu spurt sig að þessu á meðan á heimsókn hans hefur staðið síðustu daga en að hann sé sé þeirrar skoðunnar að landið geti staðið undir skuldunum. 29.5.2009 10:47
Endurskoðun efnahagsáætlunar „nær lokið“ Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins undir stjórn Mark Flanagans hefur í samstarfi við íslensk stjórnvöld nær lokið fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar stjórnvalda vegna lánafyrirgreiðslu sjóðsins. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að sendinefndin hafi einnig átt fundi með þingmönnum, aðilum vinnumarkaðarins, háskólasamfélaginu og ýmsum hagsmunaaðilum til þess að kynna sér þróun íslensks efnahagslífs og framtíðarhorfur. 29.5.2009 10:17
Ákvörðun um gæsluvarðhald í dag Það ræðst í dag hvort lögregla krefst gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þriðja manninum sem handtekinn var í gær vegna innbrots á heimili manns á Seltjarnarnesi fyrr í vikunni, en hinir tveir eru nú báðir í gæsluvarðhaldi. 29.5.2009 07:08
Haldið sofandi eftir slys Fimmtán ára stúlku, sem varð fyrir bíl á Breiðholtsbraut síðdegis í gær, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans. Að sögn lækna er hún alvarlega slösuð. 29.5.2009 07:04
Áfengi hækkar ekki í verði í dag Töluvert annríki var undir kvöld í þeim verslunum ÁTVR sem opnar eru lengst eftir að greint var frá frumvarpi um hækkanir á áfengisgjaldi í gær. Ekki var þó nein ástæða til að hamstra vínið enda mun áfengisverð ekki hækka í dag, að sögn Sigrúnar Óskar Sigurðardóttur, aðstoðarforstjóra ÁTVR. 29.5.2009 06:00
Rannsóknin tíu mánaða spretthlaup Þeir tíu mánuðir sem rannsóknarnefnd Alþingis fékk til að ljúka rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna eru hálfnaðir. Formaður nefndarinnar segir vinnuna minna á tíu mánaða spretthlaup. 29.5.2009 06:00
Stöðvar líka pólitík Netvari Símans er forrit sem á að verja notendur fyrir óæskilegu efni og lokar fyrir aðgang að því, svo sem ofbeldi og klámi. Svo virðist þó sem Netvarinn loki einnig fyrir aðgang að ýmsu pólitísku efni. Þannig hafa notendur hans sagt frá því að þeir geti ekki lesið efni á róttækum pólitískum umræðusíðum, svo sem um anarkisma, eða til dæmis netsíðu tímarits Byltingarsinnaða bandaríska kommúnistaflokksins. 29.5.2009 05:45
Hóta aftur ragnarökum Náttúruverndarsamtökin Sea Shepherd mótmæla því að íslensk stjórnvöld hafi leyft hvalveiðar í atvinnuskyni á ný og hóta að grípa tið aðgerða. 29.5.2009 05:30
Laugavegi lokað í góðu veðri Til íhugunar er að loka hluta Laugavegs fyrir bílaumferð á góðviðrisdögum í sumar. Dofri Hermannsson, fulltrúi Samfylkingar í umhverfis- og samgönguráði, lagði fram tillögu þess efnis á fundi ráðsins á þriðjudag. 29.5.2009 05:30
Efnahagsþrengingar ógna mannréttindum Mannréttindabrotum fjölgar í efnahagsþrengingunum og á sama tíma hljóta þau minni athygli. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Amnesty International. 29.5.2009 05:00
Bótaþegar kallaðir í viðtal Vinnumálastofnun er nú í átaki til að tryggja að þeir sem skráðir eru á atvinnuleysisbætur séu ekki jafnframt í vinnu. Líkt og Fréttablaðið greindi frá uppgötvaðist að svo var ástatt um fimmtán til tuttugu starfsmenn undirverktaka við Tónlistarhúsið. 29.5.2009 05:00
Deila um tónlistarskóla leyst Borgaryfirvöld komu til móts við forsvarsmenn tónlistarskóla í Reykjavík á fundi í gær með því að bjóða fram 50 milljóna króna viðbótarframlag fram til haustsins frá því sem áður stóð til. 29.5.2009 04:30
Stefna mörkuð í nýmiðlun Ráðherrafundur Evrópuráðsins um fjölmiðlun og nýmiðla hófst í Reykjavík í gær. Ráðherrar allra 47 aðildarríkja ráðsins eða fulltrúar þeirra sitja fundinn ásamt fulltrúum alþjóðlegra hagsmunasamtaka. 29.5.2009 04:30
Alþingi samþykkir hærri neysluskatta Samtök ferðaþjónustunnar óttast að hækkun stjórnvalda á neyslusköttum muni koma illa við fyrirtæki í ferðaþjónustu. Frekar ætti að auka tekjur með markaðsátaki erlendis. Talsmaður neytenda óttast áhrif hækkana á verðtryggð lán. 29.5.2009 04:30
Nauðsynlegar ráðstafanir „Sé ekki gripið til viðeigandi ráðstafana þegar á þessu ári verður halli ríkissjóðs á árinu 2009 meiri en áætlað var og meiri en viðunandi getur talist,“ segir í athugasemdum með frumvarpi fjármálaráðherra um hækkanir á gjöldum á eldsneyti, bílum, áfengi og tóbaki. 29.5.2009 04:15