Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Talningu lokið Nú er talningu lokið í Alþingiskosningunum. 193.934 greiddu atkvæði en síðustu tölur komu frá Norðausturkjördæmi. Úrslit kosninganna eru á þann veg að Sjálfstæðisflokkurinn missir níu þingmenn á landsvísu, með 22.9 prósent og fá þeir 16 þingmenn kjörna. 26.4.2009 00:01
Munum sækja fylgið til baka „Við erum með fólkið. Við erum með stefnuna í farteskinu til að snúa stöðunni við. Og við munum sækja fylgið til baka," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á kosningavöku Sjálfstæðisflokksins. 25.4.2009 23:39
Á von á að viðræður hefjist á morgun „Ég geri ráð fyrir að við hittumst jafnvel strax á morgun," sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, fyrir stundu um möguleika á stjórnarsamstarfi VG og Samfylkingarinnar. Steingrímur sagði í samtali við fréttastofu Ríkissjónvarpsins að úrslit kosninganna væru söguleg. Þetta væri hrun Sjálfstæðisflokksins og nýfrjálshyggjunnar. Um væri að ræða gríðarlega vinstri sveiflu í þessum kosningum. Hann sagði að það væru mikil tíðindi hve mikinn stuðning VG fær í Norðausturkjördæmi, sem er kjördæmi Steingríms. 25.4.2009 23:21
Ríkisstjórnin heldur velli Ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt fyrstu tölum allra kjördæma. Ríkisstjórnin hefur 52,9 prósent eða 35 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn er að tapa í öllum kjördæmum. 25.4.2009 22:18
Ögmundur Jónasson: Sallarólegur þrátt fyrir að vera ekki inni „Ég hef áður reynt að vera inni og úti alla nóttina, síðast var það í þingkosningum árið 1995," segir heilbrigðisráðherrann Ögmundur Jónasson sem er ekki inni fyrir Vinstri græna í suðvestukjördæmi. Hann segist haga sér eins og hann gerði nóttina árið 1995: „Ég er sallarólegur og að landið rísi með nóttinni." 25.4.2009 23:54
Mikið um útstrikanir í Reykjavík Fyrrum formaður Samfylkingarinar, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, var mikið strikuð út samkvæmt RÚV, en ekki er búið að birta nákvæmar tölur um útstrikanir. Það verður ekki get fyrr en eftir helgi. Athygli vekur að Ingibjörg er mikið strikuð út en hún vermdi síðasta sæti lista Samfylkingarinnar í Reykjavík norður. 25.4.2009 23:21
Kosningaskýring: ESB sinnuð framboð sigurvegararnir Evrópusambandssinnar eru sigurvegarar þessa kosninga. Samfylkingin hlýtur sína bestu kosningu frá upphafi og bætir við sig fjórum þingmönnum. Og Borgarahreyfingin er sem stendur með þrjá menn kjördæmakjörna á suðvesturhorni landsins. 25.4.2009 22:40
VG stærst í Norðaustur kjördæmi Vinstri Grænir eru stærsti í Norðaustur kjördæmi með 1819 atkvæði eða 30,3 prósent. Samfylkinging er næst stærst með rúm 26 prósent atkvæða. 25.4.2009 22:13
Kosningasjónvarpið í beinni á Vísi Kosningasjónvarp Stöðvar 2 er í beinni útsendingu á Vísi frá klukkan níu í kvöld. Fréttastofa Stöðvar 2 verður með fréttatíma klukkan tíu í kvöld og aftur á miðnætti. Logi Bergman Eiðsson mun hins vegar halda úti eldhressum kosningaþætti í opinni dagskrá. Logi mun fylgjast með gangi mála í bland við lauflétt skemmtiatriði. Félagarnir Auddi og Sveppi munu einnig heimsækja kosningavökur og taka púlsinn á frambjóðendum flokkanna. 25.4.2009 19:53
Þarf að nást samstaða um Evrópusambandið „Aðild að Evrópusambandinu hefur fengið miklu meiri hljómgrunn en margir áttu von á. Niðurstaðan er þannig að við erum í mjög sterkri stöðu varðandi það," sagði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í samtali við RÚV. Þá sagði Steingrímur að það væri sögulegt að vinstri flokkarnir fengu meirihluta í kosningum. Össur sagði að Samfylkingin þyrfti að ræða við samstarfsflokkinn á morgun en það þyrfti að nást samstaða um Evrópusambandið. Það yrði reynt til þrautar. 25.4.2009 23:56
Kosningaskýring: Samningsstaða VG hefur versnað Þótt Vinstri grænir geti vel unað við kosningaútslitin, enda auka þeir þingmannafjölda sinn um fjóra menn, er staðreyndin samt sú að samningsstaða þeirra hefur versnað. Einkum hvað varðar aðildarviðræður við Evrópusambandið sem var höfuðstefnumál Samfylkingarinnar í kosningabaráttunni. 25.4.2009 23:40
Jóhanna: Ég er hrærð, stolt og auðmjúk „Okkar tími er kominn," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra við stuðningsmenn sína á Grand hótel fyrir stundu og fjöldinn ærðist þegar þau fögnuðu góðu gengi flokksins eftir að fyrstu atkvæði hafa verið talinn. 25.4.2009 23:36
Steingrímur er fyrsti þingmaður í Norðausturkjördæmi Steingrímur J. Sigfússon er fyrsti þingmaður í Norðausturkjördæmi samkvæmt fyrstu tölum. Þetta er í fyrsta skipti í sögu Vinstri grænna sem þeir eru með fyrsta þingmann í kjördæmi. „Við erum samkæmt þessum fyrstu tölum stærsti flokkurinn í Norðausturkjördæmi. Það eru auðvitað bara frábær tíðindi ef það gengur eftir. Það sýnir bara hvað hann hefur styrkt sig - ekki bara í kjördæminu heldur á landinu öllu," sagði Katrín Jakobsdóttir í kosningasjónvarpi Stöðvar 2. 25.4.2009 23:06
Á von á áframhaldandi stjórnarmynstri Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra á von á því að stjórnarsamstarf Samfylkingarinnar og Vinstri grænna verði endurnýjað ef stjórnin fær eins stóran meirihluta og fyrstu tölur benda til. 25.4.2009 22:39
Ákall um aðild að Evrópusambandinu „Þetta eru auðvitað skýr skilaboð um það að það er ákall um aðild að Evrópusambandinu," sagði Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, í samtali við Ríkissjónvarpið í kvöld. Hann sagðist hlakka til að hægt yrði að taka Evrópumálin upp úr hjólförum flokkapólitíkurinnar. 25.4.2009 22:31
Niðurstaðan í samræmi við kannanir „Þetta er nú reyndar mjög í samræmi við kannanir. Okkar hlutverk er að endurvinna það traust. Ég er rétt að hefja þessa vinnu," sagði Bjarni Benediktsson í samtali við Ríkissjónvarpið nú í kvöld. Sjálfstæðisflokkurinn tapar 10 þingmönnum samkvæmt fyrstu tölum. Hann sagði að ríkisstjórnarinnar biði mjög erfið verkefni. Hann óskaði henni góðs gengis. 25.4.2009 22:24
Ögmundur á leið út samkvæmt fyrstu tölum Ögmundur Jónasson kemst ekki inn á þing samkvæmt kosningaspá sem byggð er á fyrstu tölum úr Suðvesturkjördæmi og þeim skoðanakönnunum sem voru gerðar. Ögmundur var í öðru sæti Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs en Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er í fyrsta sæti. Guðfríður Lilja nær kjöri samkvæmt sömu kosningaspá. 25.4.2009 22:04
Bjarni Ben: Verðum léttari í þingmannafjölda „Við verðum aðeins léttari í þingmannafjölda en hefur verið," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali í kosningaþætti Loga Bergmans. Viðtalið tóku spraugararnir Auddi Blöndal og Sveppi. 25.4.2009 21:53
Þráinn Bertelsson braut kosningalög Þráinn Bertelsson, efsti maður á lista Borgarahreyfingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, braut kosningalög þegar að hann greiddi atkvæði í dag. Þegar Þráinn skilaði atkvæði sínu í kjörkassann gerði hann merki listans með fingrunum. 25.4.2009 21:31
Pétur Blöndal: Bara spurning hvað við töpum miklu „Það er bara spurning hvað við töpum miklu,“ sagði Pétur Blöndal í kosningaþætti Loga Bergmans en ummælin lét hann falla í viðtali við grínarana Auðunn Blöndal og Sveppa. 25.4.2009 21:24
71 prósent búnir að kjósa í Reykjavík Suður Alls höfðu 71,62 prósent kosið í Reykjavíkurkjördæmi Suður klukkan níu í kvöld. Það eru 31332 einstaklingar. 25.4.2009 21:16
69 prósent búnir að kjósa í RVK suður Alls höfðu 30184 kosið í Reykjavík Suður klukkan átta í kvöld eða 69 prósent. Það er ívið betra en fyrir tveimur árum síðan þegar 29488 höfðu kosið á sama tíma eða 67,96 prósent. 25.4.2009 20:59
Finnur fyrir stemningu fyrir Vinstri grænum „Við þurfum að telja upp úr kjörkössunum og sjá hvernig þetta endar allt saman," segir Svandís Svavarsdóttir, en hún verður nýr þingmaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs ef marka 25.4.2009 20:57
Ívið betri þáttaka í Reykjavík norður en síðast Kjörsókn klukkan átta í Reykjavíkurkjördæmi norður var 67,02 prósent. Þá höfðu 29.332 manns kosið í kjördæminu. Samanborið við kosningarnar árið 2007 er kjörsóknin þetta árið ívið betri en þá höfðu 65,92 prósent mætt á kjörstað. 25.4.2009 20:39
Meiri kjörsókn á Suðurlandi en síðast Alls voru 18870 búnir að kjósa klukkan 18:00 á Suðurlandi samkvæmt tölum frá kjörstjórn. Það eru 1447 fleiri en kusu á sama tíma fyrir tveimur árum síðan eða 17423. 25.4.2009 20:37
71,2 prósenta kjörsókn í Suðvesturkjördæmi Kjörsókn í Suðvesturkjördæmi klukkan átta var 71,2 prósent. Þá höfðu 41.462 manns kosið. Í samanburði við síðustu kosningar er þetta betri kjörsókn en árið 2007 þegar 36.490 manns höfðu kosið eða 66,9 prósent. 25.4.2009 20:24
Blá kosningatjöld í Hafnarfirði „Þau eru varla hreinblá, eiginlega frekar gráblá," segir Jóna Ósk Guðjónsdóttir, yfirmaður kjörstjórnar í Hafnarfirði en kjósendur hafa sett sig í samband við Vísi í dag og bent á að tjöldin fyrir kjörklefunum Í Setbergsskóla séu blá. 25.4.2009 19:56
Rúmlega 60% kjörsókn í Reykjavík Rúmlega 27.000 manns höfðu kosið í Reykjavíkurkjördæmi Norður klukkan 19:00 í kvöld sem er 62,49% kjörsókn en á sama tíma árið 2007 höfðu 61,49% kosið. 25.4.2009 19:54
Töluverður áhugi á kosningunum erlendis Erlendir fjölmiðlar sýna kosningunum töluverðan áhuga. Stórar fréttaveitur á borð við Reuters og Bloomberg fjalla um málið í dag sem og margir aðrir fjölmiðlar á Norðurlöndunum og í Evrópu. 25.4.2009 19:47
Viðbúnaður við Hallgrímskirkju Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu upp úr 18:00 í kvöld frá manni sem sagðist vera uppi í Hallgrímskirkjuturni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mátti á manninum skilja að hann ætlaði að hoppa niður úr turninum sem er umlukinn byggingarstillönsunum. 25.4.2009 19:17
Útsending Stöðvar 2 komin í lag Tímabundin bilun sem kom upp í útsendingu Stöðvar 2 er nú komin í lag. Þeir sem ekki hafa myndlykil þurftu að horfa á læsta dagskrá þegar fréttir fóru í loftið í kvöld. Nú er hinsvegar búið að kippa þessu í lag. 25.4.2009 18:47
Jóhanna þurfti túlk Fjölmenni var á blaðamannafundi forsætisráðherra fyrir erlenda fréttamenn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Erlendir miðlar hafa vikum saman reynt að ná tali að ráðherra og fengu í dag að spyrja hana spurninga með aðstoð túlks. 25.4.2009 18:22
Liðlega 50% kjörsókn í Kópavogsbæ Kópavogsbær birtir á klukkustundar fresti upplýsingar um kjörsókn á heimasíðu sinni www.kopavogur.is. Klukkan 17:00 hafði liðlega helmingur kjósenda á kjörskrá í Kópavogi neytt atkvæðisréttar síns í alþingiskosningunum eða 52,9%, 5.441 karl og 5.968 konur. Þetta er umtalsvert meiri kjörsókn en á sama tíma árið 2007. Þá höfðu 48,8% kjósenda kosið í Kópavogi. Aukningin nemur 8,4%. 25.4.2009 17:53
Var klukkutíma inni í kjörklefa „Eigum við ekki að segja að ég hafi beitt atkvæðaþófi gegn málþófi þingmanna gegn stjónlagaþingi, persónukjöri og það að koma auðlindunum í þjóðareigu,“ segir Þorvaldur Óttar Guðlaugsson kjósandi í Reykjavík. Segja má að Þorvaldur hafi vakið nokkra athygli í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag þar sem hann mætti með umferðarmerki sem merkir „Aðalbraut endar“. 25.4.2009 16:47
Kjörseðlarnir kláruðust í Borgarnesi Sýslumaðurinn í Borgarnesi sér um utankjörstaðaatkvæðagreiðslu nú fyrir alþingiskosningarnar. Mikið af fólki dvelur í sumarbústöðum í grenndinni og kýs utankjörstaða í Borgarnesi. Það gerðist hinsvegar í dag að kjörseðlarnir kláruðust og var þónokkur fjöldi sem gat ekki kosið og þurfti að bíða eftir fleiri atkvæðaseðlum. Sækja þurfti þá í Búðardal. 25.4.2009 15:48
79 ára gamall maður játar íkveikju í Grímsnesi Karlmaður fæddur 1930 hefur játað að vera valdur að bruna í sumarbústað við Borgarleyni í Grímsnesi í gær. Hann var handtekinn skammt frá brunastað á meðan slökkvistarf stóð yfir og gisti fangageymslur í nótt en var látinn laus eftir yfirheyrslu um hádegisbil í dag. 25.4.2009 15:40
Kjörsókn í Reykjavík meiri nú en árið 2007 Kjósendur á höfuðborgarsvæðinu virðast sýna kosningunum mikinn áhuga samkvæmt tölum yfirkjörstjórna í báðum Reykjavíkurkjördæmunum. Í Reykjavík suður höfðu 19.738 kosið klukkan 16:00 sem er 45,12% kjörsókn. Það er þremur prósentum meira en í kosningunum árið 2007, en þá höfðu á sama tíma 41,89% kosið. 25.4.2009 14:55
Kosningavaka á Vísi í alla nótt Fréttamenn Vísis verða á kosningavaktinni í alla nótt þar sem fylgst verður með gangi mála. Von er á fyrstu tölum upp úr klukkan 22:00 í kvöld og munum við strax í kjölfarið leita viðbragða hjá hinum ýmsu aðilum. Stjórnmálamenn, stjórnmálafræðingar og ýmsir aðrir sérfræðingar munu spá í spilin fram eftir nóttu. Fréttavaktin mun síðan halda áfram strax í fyrramálið þar sem atburðir næturinnar verða gerðir upp. 25.4.2009 14:13
Segir styrkjamálin hafa verið Sjálfstæðisflokknum erfið Björn Bjarnason fyrrum ráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir allt tal um Evrópusambandið í aðdraganda kosninganna vera mikla blekkingu þar sem íslendingar séu ekki að fara inn. Hann segist ekki hafa góða tilfinningu fyrir hönd síns flokks og segir margt að finna í aðdraganda kosninga sem hafi komið flokknum illa. Björn segist ekki hafa gert upp við sig hvað hann taki sér nú fyrir hendur en hann hefur látið af þingmennsku. 25.4.2009 14:04
Guðjón Arnar búnn að kjósa Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslyndaflokksins mætti á kjörstað á Ísafirði um klukkan 10:15 í morgun. Fyrsti kjósandinn á kjörstað mætti klukkan 09:00 jafnvel þótt kjörfundur hæfist ekki fyrr en klukkan 10:00. Eftir að Guðjón Arnar hafði skilað atkvæði sínu í kassan hitti hann yfirkjörstjórn til þess að koma utankjörfundaratkvæði til skila. 25.4.2009 12:48
Upp úr sauð í kosningaþætti í gærkvöldi Upp úr sauð milli leiðtoga stjórnarflokkanna annars vegar og formanns Framsóknarflokksins hins vegar þegar tekist var á um fullyrðingar formanns Framsóknarflokksins í kosningaþætti Stöðvar tvö í gærkvöldi, um að annað bankahrun væri yfirvofandi. 25.4.2009 12:12
Kosningadagurinn fer vel af stað Tvöhundruð tuttugu og átta þúsund manns eru á kjörskrá fyrir Alþingiskosningarnar í dag. Kjörsókn hefur verið með ágætum það sem af er degi. 25.4.2009 11:58
Sigmundur á kjörstað: Eina vitið að kjósa framsókn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mætti á einum af nýju framsóknarbílunum í kjörstað fyrir stundu en hann kýs í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hann sagðist vera búinn að ákveða sig eftir ágætis yfirlegu og ekkert vit væri í öðru en að kjósa Framsóknarflokinn þar sem hann væri eini flokkurinn sem boðaði raunhæfar aðgerðir. Þetta kom fram í máli Sigmundur sem ræddi við strákana á Bylgjunni í Ráðhúsinu. 25.4.2009 11:15
Kosningabíll Sturlu skemmdur Sturla Jónsson efsti maður á lista Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður hefur keyrt um á vörubíl með auglýsingu frá sjálfum sér í aðdraganda kosninganna. Honum brá því heldur betur í brún þegar hann ætlaði af stað í morgun og búið var að losa gám sem var á vagni aftan á bílnum. Litlu munaði að gámurinn færi af vagninum en það var fyrir snarræði Sturlu að ekki fór verr. Hann segir að einnig hafi verið búið að særa slöngu sem liggur úr bílnum í vagninn. 25.4.2009 10:58
Verkalýðssamtök útrásarvíkinga á svölum Fríkirkjuvegar 11 Hópur sem kallar sig Verkalýðssamtök útrásarvíkinganna hefur sent frá sér tilkynningu og boðar kynningu á stefnumálum sínum á svölum Fríkirkjuvegar 11 í Reykjavík fyrir hádegi í dag. Húsið er sem kunnugt er í eigu þeirra Björgólfsfeðga en svo virðist sem samtökin hafi komið nokkurskonar brúðum fyrir á svölum hússins. 25.4.2009 10:43