Fleiri fréttir

Guðlaugur sýnir hugrekki

,,Nú hefur ungur ráðherra, Guðlaugur Þór, látið vinna greiningu og stefnu um breytta verkskiptingu í íslenska heilbrigðiskerfinu. Til þess þarf hugrekki í ljósi afdrifa fyrri til rauna," segir Margrét Björnsdóttir en hún situr í nefnd heilbrigðisráðherra um framtíðarhlutverk og skipulag Landspítlans. Margrét er náin samstarfskona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar.

Breytingar í heilbrigðiskerfinu: Ánægja í Ólafsvík

Breytingar í heilbrigðiskerfinu sem kynntar voru af Guðlaugi Þór Þórðarsyni í fyrradag hafa vakið mikið umtal og nokkuð hörð viðbrögð hjá starfsfólki í heilbrigðisgeiranum. Þó eru ekki allir á móti hugmyndunum því á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins er greint frá mikilli ánægju í Ólafsvík með þær breytingar sem snúa að Vesturlandi.

Borgarafundur á Sauðárkróki: Heilbrigðisráðherra mótmælt

Borgarafundur verður haldinn á sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki klukkan fjögur í dag. Á fréttamiðlinum Feyki er greint frá þessu en aðstandendur fundarins er hópur fólks sem vill mótmæla „þeim vinnubrögðum og áformum heilbrigðisráðherra að Heilbrigðisstofnunin á Sauðárkróki renni undir stjórn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands sem stýrt verði frá Akureyri,“ eins og segir í fréttinni.

Samfylkingarfólk gagnrýnir Guðlaug

Stjórn Samfylkingarfélagsins í Hafnarfirði mótmælir harðlega tillögum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um niðurlagningu St. Jósefsspítala og flutning á starfsemi hans, sem stjórnin segir að hafi verið lagðar fram án samráðs við hluteigandi starfsfólk og bæjaryfirvöld. Breytingin falli vel að hugmyndum ráðherrans um einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu.

Hreppaflutningum mótmælt á Akureyri

Á morgun laugardag verður farið í mótmælagöngu frá Samkomuhúsinu á Akureyri niður að Ráðhústorginu. ,,Við mótmælum hreppaflutningum á eldri kynslóðinni, lokun geðdeilda, uppsögnum ljósmæðra og skerðingu á þjónustu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri," segir í tilkynningu áhugahóps.

Fimm fluttir á slysadeild eftir árekstur

Fimm manns voru fluttir með sjúkrabílum á slysadeild Landsspítalans eftir harðann árekstur þriggja bíla á Vesturlandsvegi á móts við Grundarhverfi á Kjalarnesi laust fyrir klukkan átta í morgun.

Brutust inn í mannlaust hús á Vallarheiði

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gærkvöldi tvo fjórtán ára pilta, sem höfðu brotist inn í mannlaust fjölbýlishús á Vallarheiði við Keflavíkurflugvöll og valdið þar töluverðum skemmdum.

200.000 SMS úr kerfi Vodafone á nýársnótt

Tvö hundruð þúsund SMS-skeyti voru send úr farsímakerfi Vodafone á nýársnótt, þar af 100 þúsund á fyrstu klukkustundinni eftir áramótin. Þá eru ótalin SMS-skeyti í hinum farsímakerfunum.

Gera það gott í síld og kolmunna

Á meðan sjómenn og útvegsmenn bíða í ofvæni eftir að Hafrannsóknarstofnun gefi út kvóta til loðnuveiða, eru nokkur skip að gera það gott á síldveiðum í Breiðafirði og á kolmunnaveiðum suður af Færeyjum.

Þrír á slysadeild eftir harðan árekstur

Þrír voru fluttir á slysadeild Landspítalans í gærkvöldi eftir harðan árekstur tveggja bíla rétt við húsvegg slysadeildarinnar, á mótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar.

Bifreið stolið af móður fatlaðs drengs

Grárri Mazda CX9 bifreið var stolið fyrir utan Hverfisgötu 4-6 á milli klukkan 19 og 22 í kvöld. Um er að ræða gráan jeppling. Sigríður Kristjánsdóttir eigandi bílsins segir að fáir slíkir bílar séu á götunni vegna þess að þeir séu innfluttir af eigendum. Þessi bíll er sérhannaður fyrir fatlaðan son minn og þess vegna mikils virði fyrir mig," segir Sigríður. Hún biður þá sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.

Kemur til greina að kjósa um aðildarviðræður að ESB

Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segist hafa efasemdir um það að Íslendingar eigi að ganga í Evrópusambandið en finnst koma til greina að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort fara eigi í aðildarviðræður. Þetta sagði Guðlaugur í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld. Guðlaugur segist ekki telja að á landsfundi sjálfstæðismanna sem haldinn verður í lok mánaðarins verði tekin afstaða um hvort ganga eigi í ESB eða ekki.

Nauðsynlegt að flytja vistfólk af Seli á Kristnesspítala

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands segir að nauðsynlegt hafi verið að flytja vistfólk úr einbýli á Dvalarheimilinu Seli á Akureyri í tvíbýli á Kristnesspítala. Heilbrigðisráðherra segir það stefnu stjórnvalda að sem flestir vistmenn elli- og hjúkrunarheimila búi í einbýli.

Heilbrigðisráðherra þarf að skera niður um 6,7 milljarða

Heilbrigðisráðherra þarf að spara, hagræða og skera niður fyrir 6,7 milljarða á þessu ári. Mikil ólga er hjá íbúum og bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði með framgöngu heilbrigðisráðherra varðandi Sankti Jósefsspítala og í Vestmannaeyjum vilja bæjaryfirvöld taka yfir rekstur sjúkrahús bæjarins.

Eldur í rusli við Ingunnarskóla

Slökkviliðinu barst tilkynning um eld við Ingunnarskóla í Grafarholti nú fyrir stundu. Eldur logaði í þremur ruslatunnum þar og er um minniháttar eld að ræða samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðnu.

Reykjavíkurborg hækkar fjárhagsaðstoð við nauðstadda

Samkvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2009 er gert ráð fyrir að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar við þá íbúa borgarinnar sem eiga rétt á aðstoð verði hækkuð um 16,35% og fjármagn til fjárhagsaðstoðar verði aukið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Guðlaugur sýnir starfsfólki lítilsvirðingu

Starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki átelur ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um að leggja niður stofnunina í núverandi mynd og sameina reksturinn Sjúkrahúsinu á Akureyri. Í ályktun sem samþykkt var á starfsmannafundi fyrr í dag segir að ekkert samráð hefur verið haft við heimamenn um þessi mál. Starfsmenn stofnunnar telja að öryggi sjúklinga sé stefnt í voða.

Hálfs árs fangelsi fyrir að lemja Bödda í Dalton

Karlmaður sem sló Böðvar Rafn Reynisson söngvara hljómsveitarinnar Dalton í höfuðið með flösku eða glasi á balli á Höfn í Hornafirði í mars á síðasta ári var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í dag. Honum var einnig gert að greiða Böðvari 300.000 krónur í skaðabætur.

Fasteignasalar losaðir undan siðareglum

Grétar Jónasson framkvæmdastjóra Félags fasteignasala segir að í frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um sölu fasteigna sé gert ráð fyrir að fasteignasalar séu ekki lengur bundnir af því að fylgja siðareglum í störfum sínum.

Guðrún skipuð framkvæmdastjóri LÍN

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað Guðrúnu Ragnarsdóttur í stöðu framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna að fenginni umsögn stjórnar sjóðsins. Guðrún tekur við 1. febrúar næst komandi en skipunartími hennar er fimm ár.

Brotist inn í sex bíla í gær

Nokkuð hefur verið um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en sex slíkar tilkynningar bárust lögreglunni í gær. Fjórir bílanna voru í Reykjavík en tveir í Kópavogi.

Fær ekki milljónina frá Háskólanum

Jafnréttisstofa tapaði í dag máli sem stofnunin höfðaði fyrir hönd Önnu Ingólfsdóttur, prófessors í tölvunarfræði við Hákólann í Reykjavík, gegn Háskóla Íslands. Þess var krafist að viðurkennt yrði að gengið hafi verið fram hjá Önnu við ráðningu dósents í tölvunarfræði við verkfræðideild og að henni yrði dæmd ein milljón króna í skaðabætur. Því hafnaði Héraðsdómur Reykjavíkur.

Tjónið vegna Kryddsíldarmótmæla rúmar þrjár milljónir

Kostnaður vegna skemmda sem unnar voru á tækjabúnaði þegar mótmælendur rufu útsendingu á Kryddsíldinni á gamlársdag hefur verið tekinn saman auk þess fjárhagstjóns sem Stöð 2 varð fyrir þegar útsending var rofin. Ari Edwald, forstjóri 365, segir að tjónið nemi alls um 3,3 milljónum króna. Áfallið sem starfsmenn sem lentu í átökunum hafi orðið fyrir sé hinsvegar mun alvarlegra mál. Starfsfólkið ræddi málið á fundi í fyrrakvöld með sálfræðingi.

Björn skipar nefnd

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað nefnd til að fara yfir reglur barnalaga um forsjá barna, búsetu og umgengni. Nefndinni ber meðal annars að skoða hvort ástæða sé til að breyta íslenskri löggjöf og veita dómurum heimild til að ákveða að foreldrar skuli fara sameiginlega með forsjá barns þrátt fyrir að annað foreldri sé því andvígt.

Kókaínsmyglari laus úr haldi - rannsókn lokið

Gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var í Leifsstöð með um 1,5 kg af kókaíni rann út í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn málsins lokið og fer nú sína leið í dómskerfinu. Maðurinn er því laus úr haldi en samferðamaður hans var einnig handtekinn á sínum tíma Hann losnaði úr varðhaldi á Þorláksmessu.

Fundar með starfsfólki St. Jósefsspítala

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, mun funda með starfsfólki St. Jósefsspítala í kvöld klukkan 21. Ráðherrann tilkynnti á blaðamannafundi á Hótel Hilton í gær að spítalinn verður öldrunarstofnun og núverandi starfsemi flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Landspítalann.

Gaza: Börn héldu dauðahaldi í látnar mæður sínar

Rauði krossinn ásakar Ísraelsmenn um að standa ekki við skuldbindingar sínar um að koma óbreyttum borgurum til hjálpar á Gaza svæðinu. Ásakanirnar koma í kjölfar þess að starfsmenn Rauða krossins á Gaza fundu fjögur veikburða og hrædd börn sem héldu dauðahaldi í látnar mæður sínar eftir loftárásir í bænum Zeitun.

Borgarafundur um St. Jósefsspítala

Áhugamannahópur um framtíð St. Jósefsspítala hefur ákveðið að boða til borgarafundar í Íþróttahúsinu í Hafnarfirði á laugardaginn. Hópurinn væntir þess að Guðlaugur Þór Þórðarsson, heilbrigðisráðherra, sjái sér fært að mæta.

Engin hamborgarabrauð á McDonalds

Viðskiptavinum McDonalds í Kringlunni brá heldur betur í brún um kvöldmatarleytið í gær. Þá var ekki hægt að panta hinn hefðbundna ostborgara þar sem hamborgarabrauðin voru búin. Framkvæmdarstjórinn segir brauðskortinn ekki tengjast erfiðum efnahagsaðstæðum á nokkurn hátt og vill skrifa brauðleysið á jólafrí opinberra starfsmanna.

Sátt um 19. aldar götumynd á Laugavegi

Afstaða meirihlutans í Reykjavík til skipulags og uppbyggingar á reitnum Laugavegi 4 til 6 hefur ekkert breyst. Á síðasta sumri hafi náðst góð sátt um skipulag á reitnum í anda þeirrar götumyndar sem mikilvægt sé að standa vörð um á þessum stað.

Tæpur sjö milljarða samdráttur fyrirhugaður í heilbrigðiskerfinu

Heilbrigðisráðherra bíður það verkefni að draga saman í heilbrigðismálum upp á 6,7 milljarða króna á þessu ári miðað við forsendur í upphaflegu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Það sem nást á með skipulagsbreytingum, sem kynntar voru í gær, er því aðeins lítill hluti af samdrættinum í heilbrigðiskerfinu.

Minnisvarði um misnotkun sjálfstæðismanna

Húsin að Laugavegi 4 og 6 munu standa óhreyfð næstu ár og eru minnisvarði um misnotkun sjálfstæðismanna, að mati Dags B. Eggertssonar oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn.

Málflutningi lokið í máli Jóns Ásgeirs

Fyrir stundu lauk málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem snýst um kröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um að úrskurðað verði að rannsóknin sem fram hefur farið á skattamálinu svokallaða verði dæmd ólögmæt. Gísli Guðni Hall sem flytur málið fyrir Gest Jónsson lögmann Jóns Ásgeirs segir að dómari hafi ekki gefið upp hvenær niðurstöðu sé að vænta í lok þinghalds, en býst við að úrskurður komi fljótlega.

Atvinnulausir yfir 10.000

Atvinnulausum heldur áfram að fjölga og eru meira en 10.000 einstaklingar án atvinnu samkvæmt vef Vinnumálastofnunar. Þeim hefur fjölgað um rúmlega 400 frá því í lok seinasta mánaðar.

Brenndist illa á hendi vegna flugelda

Nemandi við Njarðvíkurskóla brenndist illa á hendi í gær þegar hann fékk í sig skotelda í frímínútum í skólanum í gær. Víkurfréttir greina frá þessu og segja forráðamenn Njarðvíkurskóla hafa sent foreldrum og forráðamönnum nemenda tölvuskeyti þar sem fólk er beðið um að fylgjast með því að börn fari ekki í skólann með kveikjara, skotelda eða annað slíkt.

Segir Guðlaug Þór brjóta lög

Jón Bjarnason þingmaður Vinstri-grænna segir Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra brjóta lög og sýna starfsfólki heilbrigðisstofnana, sveitastjórnarfólki og íbúum heilla héraða dæmafáa lítilsvirðingu með fyrirvaralausum og einhliða breytingum á skipulagi heilbrigðismála. Hann vill að Guðlaugur Þór víki sem ráðherra.

Vilja yfirtaka rekstur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja

Yfirvöld í Reykjanesbæ vilja yfirtaka starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og fylgja þarmeð í fótspor Vestmannaeyinga sem vilja yfirtaka rekstur Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í morgun var samþykkt að óska eftir viðræðum við Heilbrigðisráðuneytið um að sveitarfélagið taki yfir starfsemi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.

Heiminum er ofboðið

Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmæla fyrir utan Bandaríska sendiráðið klukkan 17:00 í dag. Sveinn Rúnar Hauksson formaður félagsins segir að mótmæla eigi stuðningi Bandaríkjanna við árásir Ísraelsmanna. „Þeir sjá þeim fyrir vopnum og fjármagni við að heyja þetta árásarstríð og við ætlum að minna á þá staðreynd og um leið fordæma þennan stuðning,“ segir Sveinn Rúnar en hópurinn mun einnig afhenda mótmælayfirlýsingu. Hann boðar mikinn fund á laugardaginn í Iðnó.

Bíll valt skammt frá Reyðarfirði

Laust fyrir klukkan átta í morgun varð bílvelta á þjóðveginum milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar, rétt utan við þéttbýlið á Reyðarfirði. Þrír voru í bílnum og voru þeir fluttir með sjúkrabílum á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað.

Sjá næstu 50 fréttir