Fleiri fréttir

Færri fíkniefnabrot en á sama tíma í fyrra

Í júní 2008 voru 1.139 hegningarlagabrot skráð sem eru álíka mörg brot og á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum frá ríkislögreglustjóra.

Hefur miklar áhyggjur af þróun löggæslumála

Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi segist lengi hafa haft áhyggjur af löggæslumálum í Reykjavík og viðrað þær. Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að einungis 14 lögreglumenn stóðu vaktina á höfuðborgarsvæðinu síðastliðið laugardagskvöld.

Benedikt nálgast land

Benedikt Hjartarson, sundgarpur sem syndir nú yfir Ermarsund, er búinn að synda 43 kílómetra og er bein lína í land sjö kílómetrar. Hann syndir nú á 3,8 kílómetra meðalhraða.

Sakaði ekki eftir að fisvél hvolfdi

Fisflugvél hvolfdi í fjörunni í Hornvík á Vesfjörðum klukkan rúmlega fjögur fyrr í dag þegar hún var að lenda. Tvennt var um borð í flugvélinni og sakaði þau ekki.

Bílvelta í Vatnsskarði

Smárúta velti í Vatnsskarði á þriðja tímanum í dag. Að sögn lögreglunnar á Blönduósi slösuðust sex manns, en ekki er vitað hve mikið. Hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fengust þær upplýsingar að einn hinna slösuðu væri kominn, en von væru á fleiri.

Fisvél hlekktist á í flugtaki

Fisvél hlekktist á í flugtaki í Hornvík á Ströndum um klukkan 16. Tveir menn voru um borð en ekki er vitað um ástand þeirra að svo stöddu.

Bannað að selja kveikjara án barnalæsingar

Viðskiptaráðuneytið hefur birt nýja reglugerð um bann við markaðssetningu, dreifingu og sölu kveikjara án barnalæsingar og kveikjara með óhefðbundið útlit sem höfða sérstaklega til barna.

Benedikt verður að bíta á jaxlinn - Stunginn af marglyttu í dag

"Hann verður bara að bíta á jaxlinn. Það er það eina í stöðunni," segir Benedikt Lafleur sjósundkappi aðsurður hvaða ráð hann eigi handa Bendedikti Hjartarsyni sem freistar þess í dag að verða fyrsti Íslendingurinn til þess að synda yfir Ermasundið.

Benedikt Hjartarson kominn 17 kílómetra

Sundmaðurinn Benedikt Hjartarson sem nú er á sundi yfir Ermasund er kominn 17 kílómetra á fimm klukkustundum. Benedikt sem lagði af stað klukkan eldsnemma í morgun finnur fyrir smá krampa í læri en er að öðru leyti í góðu lagi.

Segir Geir taka skell fyrir ríkisstjórnina

Katrín Júlíusdóttir þingmaður Samfylkingar segir niðurstöður úr skoðanakönnun fréttastofu stöðvar 2 frá því í gærkvöldi koma sér nokkuð á óvart. Niðurstöður könnunarinnar sem Capacent Gallup framkvæmdi fyrir fréttastofuna sýna að 47% svarenda treysta Geir Haarde ekki til þess að leiða Ísland út úr þeirri kreppu sem nú stendur yfir.

Hreindýraveiðitímabil hófst í gær

Hreindýraveiðitímabilið hófst á Austurlandi í gær og voru sex tarfar felldir. Nú má veiða rösklega 13 hundruð dýr, sem er 200 dýrum fleira en í fyrra.

Formaður Framsóknarflokksins segir Geir líða fyrir deyfð

Forsætisráðherra hefur sýnt forystuleysi við stjórn efnhagsmála og geldur nú fyrir það að mati formanns Framsóknarflokksins. Aðeins fjórðungur þjóðarinnar treystir Geir H. Haarde til þess að leiða Ísland út úr kreppunni.

Hver á eiginlega Keflavíkurflugvöll ?

Þegar Varnarmálastofnun tók til starfa birti utanríkisráðuneytið auglýsingu þar sem var listi yfir mannvirki sem stofnunin bæri ábyrgð á en sem væru í eigu NATO.

Benedikt hefur lagt 12 kílómetra að baki

Benedikt Hjartarsyni gengur vel á leið sinni yfir Ermarsund. Að sögn Grétu Ingþórsdóttur, upplýsingafulltrúa Benedikts, hefur hann lagt að baki tólf kílómetra og er hann búinn að synda í um þrjár klukkustundir og fjörutíu og fimm mínútur.

Eldsneytisverð hefur lækkað um 1,20 krónur

Öll stóru olíufélögin, N1, Skeljungur og Olís hafa lækkað verð á eldsneyti um 1,20 krónur í morgun. Magnús Ásgeirsson, hjá N1, segir menn bíða og fylgjast með þróun heimsmarkaðsverðs og gengisþróun áður en tekin verði ákvörðun um framhaldið. Atlantsolía er enn að skoða hvort þeir lækki verð hjá sér í dag.

Hvalreki á Hvalskoti

Hvalreki var á Hvalskoti rétt fyrir austan þorpið á Bakkafirði. Um Andanefju var að ræða og er mál manna að hvalskot hafi verið næstum réttnefni í þessu tilviki.

5700 atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi

Atvinnuleysi á Íslandi mældist 3,1 prósent á öðrum ársfjórðungi 2008 samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Það þýðir að 5700 hafi verið án vinnu að meðaltali en það er aðeins minna atvinnuleysi en 2007 þegar 5800 voru atvinnulausir að meðaltali. Mest var atvinnuleysið á meðal ungs fólks á aldrinum 16-24 ára eða 10,8 prósent.

Skattamál Jóns þingfest í dag

Í dag verða í Héraðsdómir Reykjavíkur þingfestar ákærur gegn Jóni Ólafssyni athafnamanni en hann er grunaður um að hafa skotið undan skatti 361 milljón króna. Hin meintu brot Jóns áttu sér stað á árunum 1999-2002. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa ekki greitt eignaskatt af fasteignum í Lundúnum og Cannes.

Eldsneytisverð gæti lækkað í dag

Stóru olíufélögin, Olís, Skeljungur og N1 íhuga nú hvort lækka skuli verð á eldsneyti í dag, en heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði um 6 dollara tunnan í gær sem er ein mesta lækkun í 17 ár. Fulltrúar stóru olíufélaganna sögðu við Vísi í dag að þróun gengismarkaða myndi ráða miklu um það hvort lækkunin skili sér til neytenda.

Benedikt Hjartarson er lagður af stað í Ermarsund

Benedikt Hjartarson sundmaður er lagður af stað yfir Ermarsund. Hann tók fyrstu sundtökin nú um hálfátta og á framundan 12-15 tíma sund. Aðstæður eru fínar, veður ágætt en spáin fyrir seinni partinn er ekkert sérstök og spurning hvort Benedikt verður þá ekki kominn langleiðina í land á ný.

Tugir bíða eftir aðstoð vegna fjárhagserfiðleika

Tugir manna hafa verið á biðlista eftir viðtali við ráðgjafa hjá Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna undanfarna mánuði. Ásta Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafastofunnar, hefur áhyggjur af ástandinu.

Björn bannar allt þyrluflug á Þingvöllum

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og formaður Þingvallanefndar, hefur ákveðið að banna allt þyrluflug í þjóðgarðinum á Þingvöllum til fyrsta október.

Slapp frá eldhafi eftir gassprengingu

Verkamaður slapp lítið meiddur eftir að verða fyrir eldhafi þega gaskútur sprakk fyrir utan lögreglustöðina á Akureyri síðdegis í gær.

Yfirgangur og tillitsleysi í Kópavogi

,,Þetta er ekkert annað en yfirgangur og tillitsleysi við íbúa í Kópavogi," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, um ákvörðun bæjarráðs Kópavogs að setja umdeildar skipulagsbreytingar á Kársnesi í auglýsingu.

Hugmynd Björns er forleikur að aðild

Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að hjá Sjálfstæðisflokknum hafi hugsanleg aðild að Evrópusambandinu snúist um hagsmunamat. Hann segir hugmynd Björns Bjarnasonar vera forleik að fullri aðild að Evrópusambandinu.

Fjórðungur treystir Geir

Aðeins fjórðungur þjóðarinnar treystir forsætisráðherra til að leiða hana út úr efnahagsþrengingunum sem nú ganga yfir. Framsóknarmenn og Vinstri grænir treysta honum síst. Þetta kemur fram í nýrri könnun Capacent fyrir Stöð 2 sem gerð var í byrjun þessa mánaðar.

Skemmtilegt að jarða framsóknarmenn

Presturinn sem sagði að sér þætti skemmtilegast að jarða framsóknarmenn segist hafa látið þessi orð falla til að brjóta upp vandræðasamkomu fréttaspyrils.

Geir útilokar ekki ráðherraskipti

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segir engin ráðherraskipti yfirvofandi í ríkisstjórninni en útilokar ekki að það geti gerst á kjörtímabilinu.

Deilt um Kársnes

Bæjarstjórnarfundur í Kópavogi hófst klukkan 16 um skipulagsbreytingar á Kársnesi sem meirihlutinn vill setja í auglýsingu. Minnihlutinn vill fresta því fram á haust og íbúar á Kársnesi saka bæjarstjórn um lítið samráð.

Í gæsluvarðhald vegna lífshættulegrar árásar

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa lagt til annars manns með hnífi fyrir utan skemmtistað á Trygvagötu aðfaranótt laugardags.

Hefur ekkert heyrt frá dómsmálaráðuneytinu

Katrín Theódórsdóttir, lögfræðingur Paul Ramses hefur ekki enn heyrt neitt frá dómsmálaráðuneytinu. Hún lagði inn kæru síðastliðinn miðvikudag vegna ákvörðunar Útlendingastofnunar um að taka hælisbeiðni Ramsesar ekki til umfjöllunar hér á landi heldur senda hann til Ítalíu á grundvelli Dyflinnar-samningsins.

Góð veiði þrátt fyrir slæm veðurskilyrði

Eftirspurn eftir veiðileyfum hefur minnkað vegna slæms efnahagsástands, að sögn Haraldar Eiríkssonar, hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur. Hann segir þó að stangveiði sé sívaxandi sport, enda sé félagatalið að nálgast 4000.

Mótmæla svæðisskipulagstillögum á Kársnesi

Boðað hefur verið til aukafundar í bæjarstjórn Kópavogs kl. 16:00 í dag til að afgreiða aðal- og svæðisskipulagstillögur fyrir Kársnes. Í fréttatilkynningu frá samtökunum, Betri byggð á Kársnesi, segir að áætlanir um mestu þéttingu sem sögur fara af í grónu íbúðarhverfi standi óbreyttar, með meira en tvöföldun á íbúafjölda og mikilli aukningu á atvinnustarfsemi.

Embættistaka forseta Íslands rædd á ríkisstjórnarfundi

Embættistaka forseta Íslands var rædd á ríkisstjórnarfundi í Stjórnarráðinu í morgun. Ólafur Ragnar Grímsson verður settur í embætti þann 1.ágúst næst komandi og hefst dagurinn með athöfn í dómkirkjunni klukkan hálf fjögur.

Sjá næstu 50 fréttir