Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skutu flugeldum að lögreglu á Akureyri Mikil ölvun og ólæti voru í miðbæ Akureyrar í nótt og eru fangageymslur lögreglunnar fullar. Mikið fjölmenni er í bænum í tengslum við Bíladaga. Lögregla furðar sig á grófri og ruddalegri framkomu fólks í sinn garð og var dósum og flöskum meðal annars kastað í átt að lögreglu. Þá var flugeldum skotið á lögreglu á Ráðhústorginu. 15.6.2008 09:58
Barinn í höfuðið með golfkylfu Mjög annasamt var hjá lögreglunni í miðborg Reykjavíkur í nótt. Fjórir ungir menn réðust á annan og börðu hann í höfuðið með golfkylfu af þvílíku afli að hún brotnaði. Lögregla segir ótrúlegt að maðurinn skuli ekki hafa slasast meira en raunin varð en hann fékk að fara heim að lokinni skoðun á slysavarðstofunni. Lögregla handsamaði mennina en þrír þeirra eru 17 ára og einn 18. Að öðru leyti var mjög mikið að gera hjá lögreglunni, mikið um útköll vegna ölvununar og fólk var víða ósjálfbjarga vegna hennar, að sögn lögreglu. 15.6.2008 09:55
Tuðran sprakk á leiðinni til Reykjavíkurhafnar „Þetta gekk bara ágætlega fyrir utan smá óhapp sem við lentum í við Viðey þegar önnur tuðran sprakk, eða eitt hólfið í henni,“ segir Alma Eðvaldsdóttir, talsmaður framtaksins Kraftur í kringum Ísland. Þar er um að ræða níu manna hóp sem ætlar að sigla hringinn í kringum landið á tveimur tuðrum, eða slöngubátum. 14.6.2008 20:24
Olíuhækkanir hafa áhrif á störf lögreglu Hækkanir á bensíni og olíu eru farnar að hafa áhrif á störf lögregluembættanna í landinu þar sem fjárveitingar hafa ekki hækkað í takt við hækkanirnar. Embættin hafa brugðist við hækkunum með því að draga úr akstri og sinna í auknum mæli staðbundnu eftirliti. 14.6.2008 18:45
Aldrei fleiri útskrifaðir Aldrei hafa jafnmargir kanditatar útskrifast úr háskólum hér á landi og í dag. Samtals voru þeir tæplega tvöþúsund og fjögur hundruð. Ekkert lát virðist vera á þekkingarleit landsmanna, því metaðsögn er að háskólunum fyrir haustið. 14.6.2008 18:30
Slökkvilið fær veglega gjöf Nú á dögunum var slökkviliði Hveragerðis fært veglegt hjartastuðtæki að gjöf. í tilkynningu frá slökkviliðinu kemur fram að aðili sem ekki vildi láta nafns síns getið hafi gefið liðinu tækið. En slökkviliðsmenn vilja koma á framfæri miklum þökkum til viðkomandi aðila. 14.6.2008 15:48
Sjö milljónum veitt úr Háskólasjóði KEA Kristján Möller, samgönguráðherra og Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA afhentu í dag sjö milljónir króna úr Háskólasjóði KEA. 14.6.2008 15:41
Háskólinn stefnir hátt Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði við útskrift tæplega 1100 kandídata í dag, að á næstu fimm árum stefndi Háskólinn að því að byggja upp fjögur til sex afburðasvið eða stofnanir, sem tryggt yrði sérstakt fjármagn og grundvöllur til að skara framúr á alþjóðavísu. 14.6.2008 15:08
Stúlkan komin í leitirnar Stúlkan sem leitað var að í Setbergslandi í Hafnarfirði í hádeginu er fundin, heil á húfi. Íbúi í hverfinu tilkynnti til lögreglu að hann hefði séð til hennar og þegar lögregla kom á staðinn fannst hún í nágrenninu. 14.6.2008 13:25
Leitað að stúlku í Hafnarfirði Nú stendur yfir leit að ellefu ára gamalli stúlku í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Lögregla og björgunarsveitir taka þátt í leitinni og þyrla landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið. Stúlkan, sem er fötluð, hvarf frá heimili sínu rétt fyrir hádegið en sökum fötlunar hennar var ákveðið að bregðast skjótt við og kalla út lið til leitar. 14.6.2008 12:58
Hanna Birna: Ekki unað við stöðu flokksins í borginni Ekki verður unað við stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni segir Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti borgarstjórnarflokks Sjálfstæðismanna. Hún segir andstæðinga meirihlutans hafa vegið ómaklega að borgarstjóra. 14.6.2008 12:48
Hringferð um landið á tuðrum Snemma í morgun lögðu tvær tuðrur, eða slöngubátar, upp frá Vestmannaeyjum í hringferð í kringum landið. Hér er á ferðinni átaksverkefni sem standa mun í þrjár vikur. Fyrsti áfangastaður er Reykjavík og er búist við þeim á milli klukkan tvö og þrjú í dag. 14.6.2008 11:43
Ölvaður ók á kyrrstæðan bíl Harður árekstur varð á Sæbraut rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Ekið var aftan á bíl sem var kyrrstæður á rauðu ljósi. Ökumaður og farþegi í kyrrstæða bílnum voru fluttir á slysadeild í sjúkrabíl. Sá sem var valdur að slysinu er grunaður um ölvun við akstur. 14.6.2008 10:36
Landaverksmiðja í hesthúsi Lögreglan á Selfossi fann í gærkvöldi landabruggverksmiðju í hesthúsi í sveitarfélaginu Árborg. Karlmaður var handtekinn grunaður um að hafa staðið að brugginu en um er að ræða um það bil 250 til 300 lítra af gambra og 70 til 80 lítra af fullunnum landa. Manninum var sleppt að loknum yfirheyrslum en lögregla lagði hald á bruggið og tækin. 14.6.2008 09:39
Mikil ölvun á Bíladögum á Akureyri Mikil ölvun var í miðbæ Akureyrar í nótt en þar standa yfir Bíladagar. Sjö gistu fangageymslur lögreglunnar vegna ölvunar og óspekta. Fjórar líkamsárásir komu til kasta lögreglu en þær voru allar minniháttar. 14.6.2008 09:36
Velti fjórhjóli Ökumaður fjórhjóls velti hjólinu skammt fyrir ofan Heiðarbraut í Garði í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum fann hann til eymsla í mjöðm og höfði og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar. Hann mun hafa verið vel búinn til fjórhjólaaksturs sem sennilega hefur komið í veg fyrir frekari meiðsli. 14.6.2008 09:20
800 grömm af hassi í Breiðholti Lögreglan lagði í gærkvöldi hald á að um 800 gr af hassi og um 200 þúsund í peningum við húsleit í Breiðholti. Að sögn lögreglu var húsleitin gerð á grundvelli úrskurðar frá Héraðsdómi Reykjavíkur. Tveir voru handteknir vegna málsins. 14.6.2008 09:14
Fjórir fluttir á slysadeild í árekstri á Sæbraut Fjórir voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir umferðarslys á Sæbraut um klukkan háfltólf í kvöld. 14.6.2008 00:29
Malbikað á Miklubraut Á morgun verða malbikunarframkvæmdir á Miklubraut, Skútuvogi og Sægörðum með tilheyrandi töfum á umferð. 13.6.2008 23:00
Bílslys í Hrútafirði Einn var fluttur á brott með sjúkrabíl eftir að bifreið fór út af veginum rétt norðan við Staðarskála í Hrútafirði í kvöld. Fleiri voru í bílnum en hlutu ekki alvarleg meiðsli. 13.6.2008 22:47
Frakkinn ekki grunaður um brot hér á landi Engar vísbendingar eru um að Frakkinn, sem handtekinn var í miðbænum í vikunni vegna gruns um að hann hafi dregið að sér 24 milljónir í heimalandi sínu, hafi gerst sekur um fjársvik þann tíma sem hann hefur verið hér á landi. 13.6.2008 17:19
Framkvæmdir við Landeyjahöfn hefjast á næstu vikum Öll tilboð í hafnar- og vegagerð við Landeyjahöfn voru töluvert undir kostnaðaráætlun. Framkvæmdir hefjast á næstu vikum en áætlað er að höfnin verði tilbúin eftir tvö ár 13.6.2008 18:42
Málað í miðborginni Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar fékk í morgun heimild til að mála illa farið hús við Bergsstaðastræti, en ítrekað hefur verið kvartað yfir ásýnd þess, sem og ástandi lóðar. 13.6.2008 17:55
Matsferli hafið vegna álvers á Bakka Hafið er matsferli vegna álvers á Bakka við Húsavík. Til skoðunar er bygging álvers með allt að 250.000 tonna ársframleiðslu. Alcoa er framkvæmdaraðili verksins. 13.6.2008 17:01
Rúmenar og Þjóðverji dæmdir fyrir milljónakortasvik Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo Rúmena og einn Þjóðverja í fangelsi fyrir kortasvik og tilraunir til kortasviks hér á landi. Svikin nema milljónum króna. 13.6.2008 16:55
Sleppt úr haldi á Akranesi Manni, sem handtekinn var með aðkomu sérsveitar eftir ofsaakstur á Akranesi í gær, var sleppt úr haldi um hádegisbil í dag að sögn lögreglu á Akranesi. 13.6.2008 16:44
Dæmdur fyrir nauðgun á Hótel Sögu Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvítugan pólskan karlmann, Robert Dariusz Sobiecki í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun sem átti sér stað á salerni í kjallara Hótels Sögu í Reykjavík í mars í fyrra. Þá var hann dæmdur til að greiða henni eina og hálfa milljón í bætur. 13.6.2008 16:08
Fær leyfi til kolvetnisleitar á Drekasvæði Orkustofnun hefur í dag veitt norska olíuleitarfyrirtækinu Wavefield-InSeis þriggja ára leyfi til leitar að kolvetni á norðanverðu Drekasvæðinu og hefjast hljóðbylgjumælingar með mæliskipi fyrirtækisins væntanlega innan nokkurra daga. 13.6.2008 15:55
Pósthússtræti lokað annan daginn í röð vegna blíðviðris Annan daginn í röð er Pósthússtræti lokað fyrir bílaumferð vegna veðurblíðu. Tilgangur lokunarinnar er að gera Austurvöll þægilegri fyrir gangandi gesti og hjólreiðafólk. Heimilt er að gefa þessum hópum meira rými meðfram Austurvelli á góðviðrisdögum. 13.6.2008 15:37
Kaupsamningum fækkar um nærri 75 prósent milli ára Ríflega 250 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í maí síðastliðnum sem er 74 prósentum minna en í sama mánuði í fyrra. Þá reyndust þeir nærri 970. 13.6.2008 15:36
Mikil áta í kringum landið Mikil áta var víðast hvar í kringum landið, einkum úti fyrir Suðurströndinni, þegar rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fór í sinn árlega vorleiðangur. 13.6.2008 15:28
MH og Verzló vinsælustu skólarnir Umsóknafrestur í framhaldskóla landsins rann út á miðnætti 11. júni. Alls bárust 4400 umsóknir frá nemum í 10 bekk en sá árgangur telur 4600 manns. Einnig sóttu um 3400 eldri nemendur, bæði nemendur sem vilja skipta um skóla og hefja nám að nýju. 13.6.2008 15:20
Fullkomlega eðlilegt að spyrja Geir út í efnahagsmálin Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, segir fullkomlega eðlilegt að spyrja forsætisráðherra út í aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum. Geir H. Haarde firrtist við þegar Sindri Sindrason spurði hann út í málið í dag og sakaði forsætisráðherra hann um dónaskap. „Mér finnnst hún nú frekar skiljanleg í ljósi frétta undanfarna sólarhringa, nýrrar afkomuspár ríkissjóðs, hagspár ASÍ og fleiri frétta,“ segir Steingrímur, aðspurður hvort spurning Sindra til ráðherra hafi verið eðlileg. 13.6.2008 14:59
Auglýst eftir nýjum forstjóra Landspítala Heilbrigðisráðuneytið hefur formlega auglýst embætti forstjóra Landspítalans laust til umsóknar. Á vef ráðuneytisins er þess krafist í auglýsingu að forstjórinn skuli hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi og jafnframt þurfi hann að búa yfir reynslu af rekstri og stjórnun. 13.6.2008 14:49
Vill hefja aðildarviðræður um inngöngu í ESB Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri á Ísafirði, segist vilja að Ísland hefji sem fyrst aðildarviðræður um inngöngu í Evrópusambandið. 13.6.2008 14:25
Landsliðið á leið á EM í bridds Íslenska landsliðið Í bridds hefur í morgun þátttöku á Evrópumótinu í bænum Pau í Frakklandi þar sem það keppir í opnum flokki. 13.6.2008 14:01
Írskir sjómenn mótmæla innflutningi á fiski frá Íslandi Írskir sjómenn hafa staðið fyrir mótmælum síðustu daga en þeir eru afar óánægðir með innflutning á fiski frá Íslandi. Þeir hyggja á hungurverkfall á næstunni. 120 sjómenn lokuðu hliði að flugvellinum í Cork á mánudagskvöldið og komu þannig í veg fyrir að flutningabílar kæmust frá flugvellinum með fiskinn. 13.6.2008 13:34
Útigangsmaður vildi inn á forsetaskrifstofu Lögregla var kvödd að skrifstofu forseta Íslands um eittleytið vegna útigangsmanns sem hringdi ítrekað bjöllunni og vildi komast inn. Hann var hins vegar horfinn á braut þegar lögregla kom á vettvang en lögregla svipast nú um eftir honum til þess að spyrjast fyrir um hverju þetta hafi gegnt. 13.6.2008 13:33
Fólk dragi úr orkunotkun vegna hás eldsneytisverðs Það væri röng ákvörðun að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti að mati formanns efnhags- og skattanefndar Alþingis. Hann segir að fólk eigi frekar að finna leiðir til að minnka orkunotkun til að bregðast við háu eldsneytisverði. 13.6.2008 13:01
Byko kvartar undan Litaveri til Neytendastofu Vísir hefur undir höndunum bréf til Neytendastofu þar sem kvartað er undan opinberum ásökunum Litavers á hendur Byko vegna viðskiptaskilmála. Telur Byko að ásakanir Péturs Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Litvers, á hendur fyrirtækisins um breytt fyrirkomulag á greiðslufresti vegna reikninga bæði rangar og tilhæfulausar. 13.6.2008 12:59
Minni samdráttur á sjúkrahúsum í sumar en í fyrra Minni samdráttur verður á sjúkrahúsum á suðvesturhorni landsins í sumar en í fyrra. 13.6.2008 12:55
Verkefnaskortur endurspeglast í tilboðum í Landeyjarhöfn Verkefnaskortur hjá verktökum virðist endurspeglast í óvenju lágum tilboðum verktaka í hafnar- og vegagerð í Landeyjahöfn. Lægsta tilboðið er upp á rúman helming af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. 13.6.2008 12:49
Síðasta útskrift Kennaraháskóla Íslands á morgun Á morgun kl. 11 munu 496 kandídatar útskrifast úr KHÍ í Laugardagshöll. Mun þetta verða seinasta útskriftin úr Kennaraháskólanum en háskólinn er að fara að sameinast Háskóla Íslands 1. júli næstkomandi. 409 eru að útskrifast úr grunnnámi og 86 úr framhaldsnámi, þar af 12 með meistaragráðu. Um seinustu helgi útskrifuðust fyrstu og seinustu nemendurnir með doktorsgráðu frá skólanum. KHÍ átti 100 ára afmæli á dögunum þannig að mikið er um merkisviðburði í kringum skólann um þessar mundir. 13.6.2008 12:39
Skilorðsbundið fangelsi fyrir heimilisofbeldi Karlmaður fékk í gær í Héraðsdómi Norðurlands eystra fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir að ganga í skrokk á sambýliskonu sinni á heimili þeirra. 13.6.2008 12:34
Skilorðsbundinn dómur fyrir árás og hótanir gegn lögreglu Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir árás og hótanir í garð lögreglumanna. 13.6.2008 11:51