Fleiri fréttir

Sálfræðingur aðstoðar vitni í Baugsmálinu

Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræðingur og fyrrverandi landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur verið vitnum í Baugsmálinu til aðstoðar en ákærðu segja málið hafa reynt mjög á sig. Í dag var dómnum sýndur tölvupóstur frá settum ríkissaksóknara, sem einn af lögmönnum Baugs hafði falsað.

Mistekist að koma á samkeppni á raforkumarkaði

Það er verið að búa til einn samansúrraðan einokunarrisa, sagði formaður vinstri grænna í þingræðu um frumvarp ríkisstjórnarinnar um að leggja Rafmagnsveitur ríkisins og Orkubú Vestfjarða undir Landsvirkjun. Fjármálaráðherra segir ljóst að markaðsvæðing raforkukerfisins hafi ekki tekist sem skyldi og mistekist hafi að koma á samkeppni.

Gæsluvarðhald vegna stærsta kókaínsmygls

Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsdóm yfir fertugum karlmanni sem er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa smyglað fjórum kílóum af kókaíni til landsins. Áætlað götuvirði efnanna gæti numið um 50 milljónum króna, en þetta er eitt mesta magn af kókaíni sem lagt hefur verið hald á hér á landi.

Ný heimasíða um íslenska hestinn

Ný heimasíða Félags eigenda íslenskra hesta erlendis FEIF var opnuð á ársfundi félagsins sem haldinn var í Glasgow um helgina. Í félaginu eru 56 þúsund meðlimir frá 18 löndum. Á fundinum var ákveðið að færa öllum meðlimunum WorldFeng, upprunabók íslenska hestins.

Falsaði tölvupóst til setts ríkissaksóknara

Einn af aðstoðarlögmönnum Baugsmanna falsaði tölvupóst frá Sigurði Tómasi Magnússyni, settum saksóknara, til Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs. Pósturinn var í dag sýndur dómurum í Baugsmálinu af lögmanni Tryggva til að sýna fram á óáreiðanleika tölvupósta.

Ofsakastur rannsakaður sem almannahættubrot

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mál tveggja ökuníðinga sem létu til sín taka um síðustu helgi sem almannahættubrot og þannig brot á hegningarlögum en ekki umferðarlögum. Við slíkum brotum er allt að tveggja ára fangelsi. Lögreglustjóri segir tíma til kominn að segja hingað og ekki lengra.

Rændi glænýju fjórhjóli við verslun

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í gær afskipti af bíræfnum þjófi sem rændi glænýju fjórhjóli fyrir utan verslun í austurborginni. Hjólið var ósamsett fyrir utan verslunina þegar því var stolið en lögregla fann það á verkstæði í öðru hverfi skömmu síðar.

Tréverkshúsið á Bíldudal illa farið eftir bruna

Miklar skemmdir urðu á Tréverkshúsinu á Bíldudal í dag þegar eldur kviknaði í húsinu. Eftir því lögreglan á Ísafirði segir var tilkynnt um eldinn um hádegisbil og var allt tiltækt lið frá Brunvörnum Vesturbyggðar og Tálknafjarðar kallað til að ráða niðurlögum eldsins.

Kartöflugeymslur fá nýtt líf á Vetrarhátíð

Gömlu kartöflugeymslurnar í Ártúnsbrekkunni ganga í endurnýjun lífdaga á föstudag og laugardag í tengslum við Vetrarhátíð 2007. Geymslunum verður breytt í listasmiðju þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir bæði unga og aldna eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Mýs eða kartöflur? - skorið úr um það í Íslandi í dag í kvöld

Nokkur umræða hefur skapast um það á bloggsíðum landsins í dag hvort tvær mýs hafi skotist yfir gólfið í verslun Bónuss í Holtagörðum í úttekt Íslands í dag á matvöruverði á landinu á Stöð 2 í gærkvöld. Tveir litlir hlutir sjást í innslaginu skjótast yfir gólfið þar sem Sölvi Tryggvason, fréttamaður Íslands í dag, er að fara yfir verð á tiltekinni kextegund.

Harma komu klámframleiðenda til landsins

Félag kvenna af erlendum uppruna á Íslandi harma það að framleiðendur kláms skuli hafa valið Ísland sem samkomustað og ætli sér að nota dvöl sína hér til að styrkja viðskiptatengsl og tækifæri. Í yfirlýsingu til fjölmiðla fordæmir félagið komu hópsins til landsins og hvetur stjórnvöld til þess að fylgjast grannt með ferðum hans og athæfi á meðan á heimsókninni stendur.

Breytingar á mælingu neysluverðsvísitölu

Geir H. Haarde forsætisráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum vísitölu neysluverðs. Með frumvarpinu er lagt til að vístalan verði reiknuð í hverjum mánuði miðað við verðlag í um það bil vikutíma um miðjan hvern mánuð en miðað við núverandi lög er vísitalan reiknuð út frá verðlagi fyrstu tveggja virkra daga í mánuði.

Heilsuverndarstöðin verður hótel

Nýir eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg hafa uppi hugmyndir um að breyta henni í hótel en þeir keyptu húsið af Mark-Húsum fyrir um mánuði. Mark-Hús keyptu húsið hins vegar af borginni og ríkinu í hitteðfyrra og var starfsemin sem þar var flutt í húsnæði í Mjódd og á Landspítalann.

Laxaseiðum eytt á Laxeyri

Nýrnaveiki kom upp í seiðum og hrognum í laxeldisstöðinni á Laxeyri. Þeim hefur öllum verið eytt. Veikin hefur ekki dreift sér um stöðina.

Lýst eftir vitnum að ofsaakstri tveggja manna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að ofsaakstri tveggja ökumanna um síðustu helgi en hún segir að þá hafi nánast allar umferðarreglur verið þverbrotnar. Allt að sex ára fangelsi liggur við brotum mannanna.

Harma það að almennir borgarar taki lögin í sínar hendur

SAFT, vakningarverkefni Heimilis og skóla - landssamtök foreldra, um örugga netnotkun barna og unglinga á Íslandi, harmar það að hinn almenni borgari skuli taka lögin í sínar eigin hendur og geri út tálbeitur fyrir barnaníðinga á netinu.

Segir Vestfirði og Norðurland vestra hafa verið vanrækt

Vestfirðir og Norðurland vestra hafa verið vanrækt, þar fækkar íbúum stöðugt, og það er til skammar að láta slíkt gerast árum saman. Þetta sagði þingmaður Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi í harðri ádeilu á ríkisstjórnina í fyrirspurnartíma á Alþingi.

Draga barnaperra á tálar og hafa af þeim fé

Svo virðist sem nýr leikur sé að ryðja sér til rúms meðal unglinga í Hafnarfirði. Leikur að eldi myndu margir kalla það, enda gengur hann út á að lokka til sín barnaperra, hafa af þeim fé og ná svo mynd af þeim.

Fleiri rafhlöðum verði skilað til endurvinnslu

Íslendingar nota hátt í hálft tonn af rafhlöðum á degi hverjum en aðeins lítið brot af þessu magni skilar sér í endurvinnslu. Úrvinnslusjóður boðaði til blaðamannafundar í morgun til að kynna átak til þess að fá Íslendinga til að gera þarna bragarbót á.

Dreggjum af svartolíu dælt úr Wilson Muuga

Þyrla frá Landhelgisgæslunni flutti í morgun dælur og mannskap út í Wilson Muuga á strandstað við Hvalsnes á Reykjanesi, til að dæla dreggjum af svartolíu úr lestum skipsins. Þar í grennd fannst olía í þanghrönn síðdegis í gær.

Lýsa þungum áhyggjum af kjaradeilu kennara og launanefndar

Borgarmálaráð Samfylkingarinnar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í viðræðum kennara og launanefndar sveitarfélaganna. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á síðasta fundi ráðsins.

Röð mistaka hefði ráðið færslu yfirlýsingar

Skýrslutaka af Tryggva Jónssyni, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, hélt áfram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þar sagði Tryggvi meðal annars að röð mistaka hefði ráðið því að yfirlýsing um markaðsstuðning frá færeyska fyrirtækinu SMS upp á hátt í 47 milljónir króna hefði verið færð Baugi til tekna í bókhaldi fyrirtækisins.

Ölvaður maður beit tvo lögreglumenn

Lögreglan á Hvolsvelli þurfti í liðinni viku að hafa afskipti af manni vegna heimilisófriðs en hann var gestur í húsi í umdæmi lögreglunnar. Maðurinn mun hafa verið ölvaður og þegar færa átti hann í fangageymslur á Selfossi réðst hann að lögreglumönnum og náði að bíta tvo þeirra auk þess sem hann eyðilagði gleraugu annars lögreglumannsins.

Utanríkisráðherra á ferð um Afríku

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra heldur í dag af stað til Úganda þar sem hún mun hitta þarlenda ráðamenn og kynna sér starfsemi Þróunarsamvinnustofnunar Íslands í landinu.

Harmar að ekki náist sátt

Skólastjórafélag Reykjavíkur harmar það að samninganefndir Launanefndar sveitarfélaganna og Kennarasambands Íslands hafi ekki náð samkomulagi um framkvæmd endurskoðunarákvæðis greinar 16.1. í samningi aðila frá árinu 2004.

Grunur um losun olíu að næturlagi

Grunur leikur á að ókunnugt skip hafi, í skjóli nætur, dælt úrgangsolíu frá borði og valdið olíumengun í hundruðum sjófugla við Reykjanes. Landhelgisgæslan hefur ekki enn búnað til að fylgjast með slíku að næturlagi. Fokkervél Landhelgisgæslunnar flaug yfir svæðið í morugn að beiðni Umhverfisstofnunar en áhöfnin varð ekki vör við neina olíuflekki.

Lét ekki vita af eldi

Vanheil kona, sem nágrannar hafa lengi talið að þyrfti að vistast á geðsjúkrahúsi kveikti í íbúð sinni í fjölbýlishúsi í Reykjavík í gærkvöldi og ógnaði þar með öryggi allra í húsinu. Nágrannarnir hafa óttast að hún gæti orðið sjálfri sér og öðrum að voða. Á tólfta tímanum í gærkvöldi fann fólk í nálægum húsum brunalykt og sá hvar reykur stóð út um glugga á íbúð konnnar.

Steggjunin fór úr böndunum

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag karlmann á þrítugaldri í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa slegið konu í andlitið með glerflösku þannig að hún hlut skurð á enni. Janframt var hann dæmdur til að greiða henni hundrað þúsund krónur í miskabætur. Maðurinn var sakfelldur meðal annars með vísan til Mannhelgisbálks Jónsbókar frá árinu 1281.

Klámráðstefnan rataði inn á Alþingi í dag

Þátttakendur í samkomu framleiðenda klámefnis ætla ekki að hætta við komu sína hingað til lands. Forsætisráðherra sagðist á Alþingi í dag hafa óbeit á klámiðnaðinum og öllu því sem honum fylgir. Honum væri hins vegar ekki kunnugt um að þeir framleiðendur sem hingað koma standi fyrir mansali eða framleiðslu á barnaklámi.

Hringvegurinn klárast ekki

Halldór Blöndal, fyrrverandi samgönguráðherra, gagnrýnir Sturlu Böðvarsson, eftirmann sinn á ráðherrastól, fyrir að klára ekki að malbika hringveginn í samgönguáætlun næstu tólf ára.

Samstarf við Djíbútí

Orkuveita Reykjavíkur og fulltrúar Afríkuríkisins Djíbútí undirrituðu í dag samstarfssamning um þróun jarðhitasvæða til raforkuframleiðslu í Djíbútí. Forseti Djíbútí og stjórnarformaður Orkuveitunnar segja þetta mikilvægan samning sem vonandi tryggi orku í sem flest hús í landinu.

Síminn og Landsvirkjun fallast á háa fjársekt fyrir ólögmætt samráð

Síminn og Landsvirkjun hafa viðurkennt að hafa haft með sér ólögmætt samráð vegna kaupa Símans á fjarskiptafyrirtæki og ljósleiðarastrengjum af Landsvirkjun og fallist á að greiða samtals áttatíu milljóna króna sekt í ríkissjóð. Þetta er hæsta sekt sem samið hefur verið um hérlendis vegna brota á samkeppnislögum.

Tré á svörtum markaði

Grunur leikur á að mörgum stórum trjám, sem rifin voru upp með rótum í Heiðmörk vegna óleyfilegra vatnsveituframkvæmda Kópavogsbæjar, hafi verið komið undan til gróðursetningar á einkalöndum. Öll tré, sem rifin voru upp í Heiðmörk voru fjarlægð þaðan, í stað þess að búa sem best um þau á staðnum til gróðursetningar í Heiðmörk á ný. Þau virðast vera komin í einskonar svartamarkaðsdreyfingu.

Hugsanleg samvinna nýtingu jarðvarma í Djíbútí

Möguleiki á samvinnu íslenskra aðila og aðila frá Djíbútí við að nýta jarðvarma til orkuframleiðslu var ræddur á fundi utanríkisráðherra landanna í dag. Utanríkisráðherrarnir Valgerður Sverrisdóttir og Mahmous Ali Youssouf ræddu einnig stöðu kvenna og barna í Djíbútí og aðgerðir ríkisstjórnar landsins til að útrýma fátækt.

Flughált á Breiðdalsheiði

Vegagerðin varar við flughálku á Breiðdalsheiði. Þá eru víða hálkublettir á stöku stað á Norður- og Austurlandi. Á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku eru einnig hálkublettir hér og þar, en annars greiðfært um allt Suður- og Vesturland. Á vestfjörðum er hálka á hálsum og heiðum.

Vilja hækkun lífeyrisbóta

Félag eldri borgara í Reykjavík vill að lífeyrisbætur aldraðra verði hækkaðar úr 125 þúsund krónum á mánuði í 210 þúsund krónur og fylgi síðan launavísitölu. Félagið leggur mikla áherslu á fjölgun sambýla, leigu- og hjúkrunaríbúða og að málefni aldraðra verði alfarið flutt til sveitarfélaganna.

Fær ekki að snerta bílinn eftir ölvunarakstur

Tuttugu og fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina, langflestir í Reykjavík. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar í Reykjavík var um að ræða tuttugu karlmenn og fjórar konur.

Lögregla og björgunarsveitir endurnýja samstarfssamning

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Neyðarlínan hafa skrifað undir nýjan samning við svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.

OR semur um jarðhitarannsóknir í Djíbútí

Orkuveita Reykjavíkur mun starfa að þróun jarðhitasvæða til raforkuframleiðöslu í Djúbúti ásamt yfirvöldum þar samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í dag.

Síminn og Landsvirkjun viðurkenna samráð og borga sektir

Síminn, Landsvirkjun og Fjarski ehf., sem er dótturfélag Landsvirkjunar, hafa gert sátt við Samkeppniseftirlitið og fallist á að hafa haft með sér ólögmætt samráð í tengslum við kaup Símans á eignarhlut í Fjarska og við kaup Símans á sex ljósleiðarastrengjum á milli Hrauneyjarfossstöðvar og Akureyrar.

Stjórnarskránefnd þarf lengri tíma en vill breyta 79. greininni

Stjórnarskrárnefnd undir formennsku Jóns Kristjánssonar hefur sent frá sér áfangaskýrslu með yfirlit yfir starf nefndarinnar undanfarin tvö ár. Nefndin segist þurfa lengri tíma til að ljúka heildarendurskoðun á stjórnarskránni eins og að var stefnt.

Urðu ekki varir við olíuflekki úti fyrir Reykjanesi

Starfsmenn Landhelgisgæsllunnar sem fóru í eftirlitsflug á flugvél Gæslunnar, TF-SYN, í dag á svæðinu frá Garðaskaga inn að Njarðvík urðu ekki varir við neina olíuflekki á svæðinu. Þetta kemur fram í tilkynningu Landhelgisgæslunnar.

Sjá næstu 50 fréttir