Fleiri fréttir

Íslendingar töpuðu fyrir Spánverjum - enduðu í áttunda sæti

Íslendingar enduðu í áttunda sæti á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem fram fer í Þýskalandi en liðið tapaði fyrir Spánverjum í dag, 40-36. Staðan í leikhléi var 19-13 fyrir Spánverja og tókst íslenska liðinu aldrei að vinna upp forystu sem Spánverjar náðu um miðbik fyrri hálfleiks.

Íslendingar sex mörkum undir í hálfleik

Íslenska landsliðið er sex mörkum undir, 19-13, þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureigninni við Spánverja um sjöunda sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Þýskalandi.

Fundu 30 þúsund steratöflur í gær

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði í gærdag hald á um 30 þúsund steratöflur á nokkrum stöðum í borginni. Maður á fimmtugsaldri var handtekinn í tengslum við málið en hluti taflnanna fannst á heimili hans. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildar lögreglunnar, er þetta líklega mesta magn sterataflna sem hald hefur lagt á hér á landi.

Athugar hvort minnka þurfi sandburð vegna svifryks

Formaður framkvæmdaráðs á Akureyri segir til skoðunar að minnka sandburð í hálku en vill ekki skipta sandinum út fyrir salt. Bærinn þarf að finna leiðir til að minnka svifryksmengun.

Dúettinn Já féll úr leik í X-factor í gærkvöld

Dúettinn Já, sem skipaður er systkinunum Ásdísi og Hans Júlíusi, féll úr leik í Hæfileikakeppninni X-Factor í gærkvöldi. Í síðustu viku féll Tinna úr leik og því er Einar Bárðarson sá eini af dómurunum þremur sem ekki hefur misst keppanda úr sínum hópi.

Forseti skuldar ekki Alþingi skýringar

Forsetinn skuldar Alþingi engar skýringar vegna setu sinnar í Þróunarráði Indlands að mati Þorsteins Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðsins. Segir hann að þau indversku stórfyrirtæki sem annist rekstur Þróunarráðs Indlands fylgi öll metnaðarfullri stefnu í umhverfismálum og standast þau fyllilega samanburð við stefnu Alcoa í Reyðarfirði

Mikill munur á afstöðu karla og kvenna í skoðanakönnunum

Miklu munar á afstöðu karla og kvenna í þeim skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar á fylgi flokkanna fyrir alþingiskosningarnar í vor. Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur hefur reiknað út að munur á afstöðu kynjanna til flokka ráðist af því hvort konur séu í forsvari flokkanna og sé hlutfallslega mestur hér í samanburði við önnur Norðurlönd.

Viðurkennir íkveikju í húsí í Þorlákshöfn

Karlmaður á þrítugsaldri, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í nærri tvær vikur vegna íkveikju í Þorlákshöfn þann 20. janúar, hefur játað að hafa brotist inn í húsið, stolið þaðan ýmsum munum og síðan borið eld að því.

Hálka og éljagangur víða um land

Vegagerðin varar við hálkublettum á Reykjanesbraut og hálku og éljagangi á á Sandskeiði, Þrengslum og Hellisheiði. Á Suðurlandi er hálka og hálkublettir og þá er hálka á öllum vegum á Vesturlandi og auk þess éljagangur á Holtavörðuheiði.

Breyting á aðalskipulagi auglýst vegna álvers í Helguvík

Breyting á aðalskipulagi Reykjanesbæjar verður auglýst en breytingin er gerð vegna fyrirhugaðs álvers Norðuráls við Helguvík. Samþykkt var að auglýsa skipulagsbreytinguna á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar í gær.

Tennur slegnar úr manni í átökum í nótt

Mikill erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru allar fangageymslur fullar eftir skemmtanahald næturinnar. Ein líkamsárás var kærð eftir slagsmál í miðborginni og gékk þar einn lemstraður af velli, tveimur tönnum fátækari. Einn af gestum fangageymslu tengist því máli.

Bíll valt út í Hörgá í gærkvöld

Ökumaður fólksbíls slapp með lítils háttar meiðsl þegar bíll hans rann út af veginum í Hörgárdal og endaði á hvolfi ofan í Hörgá um áttaleytið í gærkvöld. Ökumanninum tókst sjálfum að komast út úr bílnum og var hann kominn upp á veg þegar lögreglu bar að.

Sextán milljóna króna skuld ógreidd

Byrgið fékk aukafjárveitingu árið 2002 til að greiða upp í tæplega sextán milljóna króna skuld við Hitaveitu Suðurnesja. Hitaveitan sá ekki krónu af þeim peningum.

Spennandi að skoða ókeypis strætó

Stjórnarformaður Strætó telur spennandi að prófa að hafa ókeypis í almenningsvagna á höfuðborgarsvæðinu en telur óvíst að notkunin aukist við það. Álitlegra sé að fjölga sérakreinum fyrir strætó til að gera kostinn vænni í umferðarþunganum.

Misskilja eðli Þróunarráðs Indlands

Loftslagsskýrslan, sem boðuð var í dag, boðar ógnvænleg tíðindi að mati Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Hann segir að samkvæmt henni geta áhrifin orðið verri en af báðum heimstyrjöldum síðustu aldar. Hann telur að gagnrýni á setu hans í Þróunarráði Indlands sé að hluta byggð á misskilningi og skorti á þekkingu á eðli ráðsins.

Loforð um fjölgun hjúkrunarrýma svikin

Hraustir makar veikra eldri borgara ættu að geta keypt þjónustu á hjúkrunarheimili. Þetta segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingar. Hún segir loforð um fjölgun hjúkrunarrýma ekki hafa verið efnd.

240 íslenskar þjónustuíbúðir á Spáni

Tvöhundruð og fjörutíu þjónustuíbúðir fyrir íslenska eldri borgara verða byggðar á Spáni á næstunni. Ellilífeyririnn margfaldast á Spáni, segir forstjóri Gloria Casa.

Tæplega 30 milljarðar á höfuðborgarsvæðið

Um tuttugu og átta milljarðar fara í vegaframkvæmdir í Reykjavík og nágrenni samkvæmt samgönguáætlun sem lögð verður fyrir Alþingi eftir helgina. Fjármunir verða tryggðir svo hægt verði að lengja flugbrautina á Akureyri þannig að farþegaþotur geti tekið þar á loft fullfermdar.

Sauðfjárbóndi fær yfir níu milljónir frá ríkinu

Tugir sauðfjárbænda fá yfir fjórar milljónir króna úr ríkissjóði á hverju ári, en sá sem mest hefur, fær árlega rúmar níu milljónir króna í sinn hlut. Bróðurpartur þeirra fær þó miklu minna en sex af hverjum tíu sauðfjárbænum nær ekki milljón í opinbera styrki.

Átök innan Framtíðarlandsins

Átök eru innan stjórnar Framtíðarlandsins um hvort ráðist verður í framboð á vegum félagsins fyrir alþingiskosningar í vor. Félagsmenn koma væntanlega saman á fundi á þriðjudagskvöldið til að ræða framboðsmálin. Á þriðja þúsund félagar eru í Framtíðarlandinu.

Framkvæmdastjóri Strætó bs. lætur af störfum

Ásgeir Eiríksson hefur ákveðið í samráði við stjórn byggðasamlagsins að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Strætó bs. Þetta kom fram í fréttatilkynningu sem Strætó bs. sendi frá sér í dag.

Andri Snær og Ólafur Jóhann fá Íslensku bókmenntaverðlaunin

Andri Snær Magnason hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka fyrir Draumalandið og Ólafur Jóhann Ólafsson hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir Aldingarðinn. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin á Bessastöðum síðdegis.

Nýr sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar

Ragnar Þorsteinsson framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Breiðholts hefur verið ráðinn sviðsstjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar. Borgarráð samþykkti ráðninguna samhljóða á fundi í gær. Ragnar er með MA próf í stjórnun með sérstakri áherslu á mannauðsstjórnun frá Viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Hann er einnig menntaður kennari í grunn- og framhaldsskóla frá KHÍ og með BS próf í landafræði og jarðfræði frá HÍ.

Ölvun á framhaldsskólaböllum

Nokkur ölvun var á tveimur skólaböllum framhaldsskólanema sem haldin voru í Reykjavík í gærkvöld. Á öðrum staðnum var hringt í foreldra á þriðja tug nemenda og þeir látnir sækja börn sín. Eitt ungmennið var svo illa haldið af áfengisdrykkju að því var ekið á slysadeild. Annar ölvaður unglingur var handtekinn vegna óláta og færður á lögreglustöð.

Umdeildu hafsvæði loks skipt

Samskipti Íslands og Færeyja voru rædd á hádegisverðarfundi Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra í dag og Jóannesar Eidesgaard lögmanns Færeyja. Undirritaður var samningur um skiptingu umdeilds hafsvæðis milli landanna og sérstaklega farið yfir stöðu og framkvæmd Hoyvíkursamningsins, sem er fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja.

Iðnaðarráðherra vill auðlindasjóð

Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra lagði til í dag að stofnaður yrði auðlindasjóður sem myndi styðja við bakið á nýsköpunarfyrirtækjum. Þetta kom fram í ræðu sem hann hélt við upphaf Sprotaþings í Laugardalshöll í dag.

Ríkiseinokun bjór- og vínsölu aflétt?

Frumvarp um að aflétta ríkiseinokun af sölu á víni og bjór var lagt fram á Alþingi í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður lagði frumvarpið fram og sagði að það hafi komið honum á óvart hversu margir tóku þátt í umræðunni, en flutningsmenn voru 14. Frumvarpið leggur til að aldurstakmark sölufólks verði 20 ár eins og kaupendanna.

Áhrifaleysi Seðlabankans vex

Aukin notkun erlendra gjaldmiðla á íslenska markaðnum stuðlar að áhrifaleysi Seðlabanka Íslands. Þetta sagði Guðmundur Ólafsson hagfræðingur í þætti Sigurðar G. Tómassonar á Útvarpi Sögu í dag. Hann sagði að áhrifasvæði vaxtastefnu Seðlabankans í dag væri líklega 13% peningamarkaðarins. Þannig vísaði hann til álits Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins.

Viðskiptasendinefnd og nýtt sendiráð í S-Afríku

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra mun leiða viðskiptasendinefnd Útflutningsráðs til S-Afríku í lok mánaðarins. Um 15 fyrirtæki hafa staðfest þátttöku í ferðinni. Í fréttatilkynningu frá Útflutningsráði íslands kemur fram að skráningarfrestur hafi verið framlengdur til 7. febrúar. Það sé gert til að gefa fleiri fyrirtækjum tækifæri á að taka þátt í ferðinni og nýta sér þetta tækifæri til að koma vöru sinni og þjónustu á framfæri við rétta aðila í S-Afríku.

Fagaðstoð fyrir heyrnarlaus fórnarlömb ábótavant

Félag heyrnarlausra segja tvö dómsmál og ábendingar vera kveikju að könnun um kynferðislega misnotkun heyrnarlausra á Íslandi. Kristinn Jón Bjarnason framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra segir í fréttatilkynningu að könnunin hafi verið gerð til viðmiðunar fyrir aukin og markviss úrræði fyrir fórnarlömb kynferðislegrar misnotkunar. Hún hafi ekki verið unnin í þeim tilgangi að finna sökudólga.

Stórauknar tekjur og fjölgun starfa

Skatttekjur af álverinu í Straumsvík munu aukast um allt að þrjá milljarða á ári, þar af um milljarð til Hafnarfjarðar, við stækkun þess. Beinum og óbeinum störfum fjölgar um tæplega tólf hundruð en við hvert starf í álverinu verða til 2,5 störf annars staðar, að mati Samtaka atvinnulífsins. Talsmaður Sólar í Straumsvík segir nær að styðja við bakið á annarri og minna mengandi starfsemi.

Blaðamannasamtök undrast skipan ráðherra

Þing norrænu blaðamannasamtakanna hefur sent Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra bréf vegna skipunar fulltrúa í stjórn Norræna blaðamannaskólans, NJC, í Árósum. Að sögn Örnu Schram formanni Blaðamannafélags Íslands tilnefndi félagið tvo aðila að beiðni ráðuneytisins í stjórnina. Menntamálaráðherra skipaði hins vegar aðra aðila í stjórn skólans.

Gæsluvarðhald vegna innflutnings fíkniefna

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í gærkvöldi tvo menn á þrítugsaldri í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á innflutningi fíkniefna. Annar maðurinn fékk úrskurð um gæsluvarðhald til fostudagsins 9. febrúar og hinn til þriðjudagsins 6. febrúar. Lögreglan í Árnessýslu fer með rannsókn málsins en gefur ekki frekari upplýsingar á þessu stigi.

Netsímaþjónusta í fyrsta sinn hérlendis

Lággjaldasímafyrirtækið SKO hefur nú slegist í hóp þeirra sem bjóða upp á svokallaða netsímaþjónustu. Netsíminn verður að sögn Ragnhildar Ágústsdóttur framkvæmdastjóra ódýrari valkostur á netsímamarkaði hérl á landi. Með nýju þjónustunni geta viðskiptavinir SKO hringt og tekið á móti símtölum í tölvum og lækkað þannig símkostnað sinn.

Deep Purple og Uriah Heep í Höllinni

Hljómsveitirnar fornfrægu Deep Purple og Uriah Heep munu leika á tónleikum hérlendis í Laugardalshöll þann 27. maí næstkomandi. Það er tónleikafyrirtækið Concert sem stendur fyrir tónleikunum. Böndin voru bæði upp á sitt besta fyrir yfir 30 árum en liðsmenn hafa engu gleymt.

Þýskaland og Pólland mætast í úrslitum HM

Þýskaland og Pólland leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn í handbolta en Ísland mætir Spánverjum í leik um sjöunda sætið. Báðir undanúrslitaleikir keppninnar í gær voru tvíframlangdir. Þjóðverjar lögðu Frakka í æsispennandi leik sem þurfti að framlengja tvívegis. Eftir fyrri framlenginguna, var staðan 29-29 þar sem Florian Kehrmann náði að jafna fyrir Þjóðverja á síðustu stundu eftir að Frakkar misnotuðu tækifæri á að komast tveimur mörkum yfir.

Verkakar byrjaðir á Djúpvegi

Framkvæmdir eru hafnar við Djúpveg í Ísafjarðardjúpi. Um er að ræða eitt stærsta verkefni sem boðið hefur verið út í vegagerð hérlendis en samningsupphæðin við verktakana KNH og Vestfirska verktaka er um milljarður króna. Innifalið í verkinu eru þrjár brýr, sú stærsta á Mjóafirði en hún verður um 130 metra löng.

Bandaríkin ætla ekki að ráðast á Íran

Bandaríkin ætla sér ekki að ráðast á Íran til þess að koma í veg fyrir að þau sjái hryðjuverkamönnum í Írak fyrir vopnum. Þetta fullyrti háttsettur bandarískur embættismaður í dag.

Stúlkan fundin

Sigríður Hugrún Sigurðardóttir, stúlkan sem hefur verið leitað að síðan á laugardaginn 27. janúar, er fundin. Lögregla skýrði frá þessu í kvöld. Hún vildi einnig koma þökkum á framfæri fyrir aðstoðina.

Skattur lagður á nagladekk?

Umhverfisráðuneytið og Akureyrarbær boðuðu til blaðamannafundar á Akureyri í dag þar sem kynnt var ný skýrsla um svifryksmengun á Íslandi og leiðir til úrbóta. Þar kom fram að svifryksmengun horfir í að verða alvarlegt vandamál og boðar umhverfisráðherra aðgerðir sem byggðar eru á tillögu starfshóps. Þar verður þeim sem aka um á nagladekkjum refsað með því að greiða hærri tolla en þeir sem nota ónegld dekk.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks líklegust

Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að núverandi stjórnarflokkar endurnýi samstarf sitt að loknum kosningum, fái þeir til þess traustan meirihluta. Að öðrum kosti myndi Sjálfstæðisflokkur ríkisstjórn með Samfylkingunni. Þetta kom fram í hádegisviðtalinu á Stöð 2.

Tölvuleikjafíkn vaxandi vandamál

Unglingur í Hafnarfirði gekk berseksgang á heimilinu sínu í gærkvöldi af því að foreldrar hans sögðu upp nettengingu og hann gat ekki spilað uppáhalds tölvuleikinn sinn. Lögreglan var kölluð á staðinn og segir að tilfellum af þessu tagi fara fjölgandi. Engin sérstök úrræði eru fyrir tölvuleikjafíkla hér á landi og viðfangsefnið er órannsakað. Ólafur Guðmundsson yfirlæknir á barna og unglingageðdeild landsspítalans telur þörf á rannsóknum en segir um hegðunarvanda að ræða.

Fjármunir verði teknir frá hátæknisjúkrahúsi í vegagerð

Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, vill að framkvæmdum við hátæknisjúkrahús verði frestað og fjármunirnir settir í staðinn í vegagerð. Stjórnarandstaðan þrýstir á að samgönguáætlun verði lögð fram og að í henni verði gert ráð fyrir tvöföldun Suðurlandsvegar.

Utanríkisráðherra ekki ofboðið af forseta Íslands

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra telur að ekki verði neinir eftirmálar af því að forseti Íslands settist í þróunarráð Indlands, án samráðs við utanríkisráðuneytið, en telur að brýna þurfi samskiptareglur forsetans og ráðuneytisins. Formaður utanríkismálanefndar hefur kallað utanríkisráðherra á fund nefndarinnar vegna forsetans.

Sjá næstu 50 fréttir