Fleiri fréttir

Tollar felldir niður á vatn og tómata

Ísland og Evrópusambandið hafa gert samkomulag sem felur í sér almenna tollalækkun á kjöti og kjötafurðum um fjörutíu prósent. Samkomulagið felur einnig í sér gagnkvæma tollfrjálsa kvóta í viðskiptum með nokkuð magn af landbúnaðarvörum.

„Auðvelt að vera vitur eftir á,“ segir Birkir Jón

Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi segir félagsmálaráðuneytið bera ábyrgðina á eftirlitsleysi með fjárreiðum Byrgisins. Hann kom fyrir sameiginlega fund félagsmálanefndar og fjárlaganefndar í morgun til að ræða Byrgismálið. Birkir Jón Jónsson ,formaður fjárlaganefndar, hefur vísað ábyrgðinni á Ríkisendurskoðun en dró aðeins í land í morgun og bætti jafnframt við að fleiri hafi misstigið sig í málinu.

Berjast gegn nýjum hættum á Netinu

Alþjóðalögreglan Interpol hefur komið á fót sérstökum hópi til að berjast gegn nýjum hættum sem börnum af barnaníðingum á Netinu. Í tilkynningu frá Interpol kemur fram að glæpamenn séu nú farnir að koma upp nokkurs konar fyrirsætusíðum til þess að ná til barna.

MinnSirkus leyfði ekki birtingu

Forsvarsmenn MinnSirkus vefsins neituðu því í dag að hafa leyft einum notenda sínum að birta myndir sem sagðar eru vera af Guðmundi í Byrginu að stunda BDSM kynlíf með ungri stúlku. Notandinn hafði sett inn myndir og sagt að hann hefði fengið leyfi hjá forráðamönnum vefsins.

Kom ofurölvi heim

Lögreglan á Suðurnesjum sótti mann á Flugstöð Leifs Eiríkssonar um miðjan dag í gær. Hann kom til landsins ofurölvi og að sögn lögreglu hvorki öruggur sjálfum sér né umhverfi sínu.

Byrgismál sagt sitja á hakanum vegna þráhyggju ráðherra

Er ekki mál að linni, sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra þegar Valdimar Leó Friðriksson vakti athygli á yfirlýsingu BSRB og BHM um að efasemdir væru um að starfsmönnum RÚV yrði tryggð sömu kjör og réttindi eftir hlutfélagavæðingu RÚV. Þá kvörtuðu stjórnarandstöðuþingmenn yfir því fundi Alþingis hefði ekki verið frestað í dag svo að betur mætti fara yfir mál Byrgisins í fjárlaganefnd.

Kjörnefnd ræðir ákvörðun Kristins

Kjörnefnd Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fundar nú um ákvörðun Kristins H. Gunnarssonar að taka ekki sæti á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Fyrir fundinn vildi formaður kjörnefndar ekki tjá sig neitt um málið á þessu stigi eða viðbrögð kjörnefndar.

Rektorsskipti í HR á laugardaginn

Rektorsskipti verða í Háskólanum í Reykjavík á laugardaginn í lok útskriftarathafnar frá skólanum á laugardaginn. Dr. Guðfinna Bjarnadóttir ávarpar þá útskriftarnemendur í síðasta sinn sem rektor og dr. Svafa Grönfeldt tekur við embætti rektors í HR.

Einn á slysadeild eftir umferðaróhapp á Frakkastíg

Einn maður var fluttur á slysadeild eftir að bíll hans skall á kyrrstæðum, mannlausum bílum á Frakkastíg, skammt frá Hverfisgötu. Margir árekstrar hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna hálku, alls 27 óhöpp, þó flest minniháttar.

Bílvelta í Kömbunum

Jeppabifreið valt í neðstu beygjunni í Kömbunum um sjöleytið í kvöld. Ökumaður var einn í bílnum og slapp ómeiddur en bíllinn var dreginn af vettvangi með kranabíl.

Guðmundur í Byrginu ætlar að kæra nauðgun

Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, segist ætla að kæra stúlku fyrir nauðgun, sem sjálf hefur kært hann fyrir nauðgun. Þetta sagði hann í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld. Myndband hefur gengið manna á millum á netinu í dag þar sem Guðmundur sést í BDSM kynlífsleikjum með stúlkunni.

Aukið öryggi fyrir aldraða

Skynjari sem gerir öryggismiðstöð viðvart ef hann nemur ekki hreyfingu í ákveðið langan tíma var kynntur í dag. Skynjarinn er til þess fallinn að auka öryggi aldraðra sem búa heima.

Fráleitt að benda á Ríkisendurskoðun

Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingar, segir fráleitt að vísa ábyrgð á eftirlitsleysi með fjárreiðum Byrgisins á Ríkisendurskoðun. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi er kallaður fyrir Fjárlaganefnd á morgun til að ræða eftirlit með framlögum og styrkjum til félagasamtaka. Ríkisendurskoðandi fékk ekki í hendur fimm ára gamla trúnaðarskýrslu um fjárreiður Byrgisins.

Útlendingar kærkomin kæling

Það dró úr launaskriði í byggingariðnaði og verslun á síðasta ári, líklega vegna tilkomu útlendinga á íslenskan vinnumarkað, segir hagfræðingur hjá Greiningardeild Kaupþings. Hún segir útlendingana hafa slegið á verðbólgu og verið kærkomna kælingu fyrir atvinnulífið.

Stjórnarandstaðan segir herlög í þinginu

Þingmenn stjórnarandstöðu saka forseta þingsins um að virða vilja þingmanna og þingsköp að vettugi til að knýja frumvarp um Ríkisútvarpið í gegn um þingið og segja herlög gilda í þinginu. Formaður Menntamálanefndar segir þá hinsvegar stunda grímulaust málþóf.

Margrét útilokar ekki formannsframboð

Margrét Sverrisdóttir útilokar ekki framboð til formennsku Frjálslynda flokksins. Margrét lýsti yfir framboði til varaformanns í gærkvöldi, en eftir að formaðurinn, Guðjón Arnar Kristjánsson lýsti yfir eindregnum stuðningi við sitjandi varaformann skipuðust veður í lofti.

Stela verkfærum til að selja eða flytja úr landi

Verkfærum fyrir á þriðju milljón króna var stolið nýlega úr tveimur nýbyggingum hjá byggingaverktaka. Starfsmaður hjá fyrirtækinu segir menn fara á milli verktaka til að selja notuð, stolin verkfæri.

Innbrot í Keflavík og ölvun á flugvellinum

Brotist var inn í íbúðarhús í Keflavík í morgun og höfðu þjófarnir á brott með sér ýmsa muni. Síðar í dag voru menn handteknir í Reykjavík sem höfðu undir höndum hluta af þýfinu. Þjófarnir unnu spjöll á húsi og eignum í innbrotinu. Þá fékk maður sem kom ofurölvi til landsins í flugvél að sofa úr sér í fangageymslu í Keflavík.

Stærsta hvalaskoðunarfyrirtæki á landinu verður til

Slagnum um ferðamennina er lokið við Reykjavíkurhöfn. Hvalaskoðunarfyrirtækin tvö sem hafa verið starfrækt við Ægisgarð undanfarin ár hafa verið sameinuð. Nýja hvalaskoðunarfyrirtækið verður það stærsta á landinu þar sem samanlagður farþegafjöldi fyrirtækjanna var um 50 þúsund á síðasta ári.

21 umferðaróhapp í dag

21 árekstur hefur orðið í höfuðborginni í dag, þó enginn harður. Flestir urðu vegna hálku í íbúðarhverfum. Engin slys hafa orðið á fólki.

Eldur í bílskúr í Breiðholti

Eldur kviknaði í bílskúr í Breiðholti síðdegis í gær en þar var 18 ára piltur að setja bensín á fjórhjól um leið og hann reykti sígarettu. Að sögn lögreglu fór eitthvað af eldsneytinu á gólfið og þegar á það féll glóð úr sígarettunni kviknaði eldur.

Þykjast ekki vera opinber vefsíða

Fyrirtækið USAFIS sem birti auglýsingu á Vísi segist ekki vera að svindla á fólki. Auglýsingin var hlekkur á heimasíðuna usafis.org. Þar er fólki boðið að sækja um Græna kortið til Bandaríkjanna.

Meirihluti dagforeldra ætlar að lækka gjaldskrá

84 prósent dagforeldra í Reykjavík ætla að lækka gjaldskrá sína í kjölfar aukinna niðurgreiðslna frá borginni. Þetta kemur fram í könnun sem þjónustumiðstöðvar í Reykjavík gerðu meðal dagforeldra í janúarbyrjun og kynnt var í leikskólaráði Reykjavíkurborgar í dag.

Samgönguverðlaun veitt í vor

Samgönguráðherra hefur komið á fót sérstökum samgönguverðlaunum sem ætlunin er að veita árlega einstaklingi, samtökum eða stofnun sem þykir hafa lagt fram verðmætan skerf á einhverju sviði samgöngumála. Um er að ræða peningaverðlaun auk verðlaunagrips.

Fjögurra ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítuga konu í fögurra ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl. Þrír karlmenn voru jafnframt dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir smyglið. Fólkið smyglaði inn tæpum tveimur kílóum af kókaíni sem fundust við tollleit á Keflavíkurflugvelli í ágúst á síðasta ári.

Kristinn tekur ekki sæti á lista Framsóknarflokksins

Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að taka ekki sæti á lista flokksins við næstu Alþingiskosningar. Fréttavefur Bæjarins besta segir að Kristinn hafi tilkynnt formanni kjördæmasambands Framsóknarflokksins í kjördæminu um ákvörðun sína í dag.

Margrét íhugar að bjóða sig fram til formanns í stað varaformanns

Margrét Sverrisdóttir íhugar nú að draga framboð sitt til varaformanns Frjálslynda flokksins til baka og bjóða sig fram til formanns í staðinn. Þetta gerir hún vegna afdráttarlauss stuðnings Guðjóns Arnar Kristjánsssonar, formanns flokksins, við Magnús Þór Hafsteinsson, núverandi varaformann flokksins.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir að geta ekki borgað fyrir mat

Karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa pantað og neytt veitinga að upphæð ríflega 10 þúsund krónur á veitingastað í borginni án þess að geta greitt fyrir þær.

Gengið frá lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi

Sjálfstæðismenn í Suðurkjördæmi ganga frá lista sínum fyrir komandi Alþingiskosningar á sunnudaginn kemur. Prófkjör flokksins í kjördæminu fór fram í nóvember síðastliðnum. Þeir sem urðu í sex efstu sætunum þar fengu allir bindandi kosningu nema Kjartan Ólafsson.

Síldarviðræður standa enn yfir

Viðræður standa enn yfir í Osló milli íslenskra og norskra stjórnvalda um veiðar á norsk-íslenska síldarstofninum. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku samninganefndarinnar, segir engan niðurstöðu komna en meðan menn séu að ræðast við séu möguleiki á að ná saman.

Litlar breytingar á stjórn úrvinnslusjóðs

Umhverfisráðherra hefur skipað í stjórn Úrvinnslusjóðs til næstu fjögurra ára. Fyrir henni fer Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur en auk hans sitja Guðfinnur G. Johnsen, Bryndís Skúladóttir, Sigurður Jónsson og Sigurður Óli Kolbeinsson í stjórninni.

Páfagaukur flúði frostið inn á veitingahús

Viðskiptavinur á veitingahúsinu Tívolí í miðbæ Reykjavíkur varð fyrir nokkuð óvenjulegri reynslu í dag. Þegar hann var að ganga inn um dyr veitingastaðarins settist páfagaukur á öxl hans. Fuglinn er hinn sprækasti þrátt fyrir að hafa verið flögrandi um í frostinu.

Stjórnarandstaðan undrast orð Sólveigar

Þingmenn stjórnarandstöðunnar lýstu í dag yfir undrun sinni yfir orðum Sólveigar Pétursdóttur, forseta þingsins, í hádegisfréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar í dag. Þar sagðist Sólveig vilja breyta þingsköpum á þann hátt að takmarkanir yrðu settar á ræðutíma alþingismanna..

Skilorðsbundið fangelsi fyrir hnífsstungu við Select

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt nítján ára gamlan pilt í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stungið öryggisvörð við bensínsstöð Shell við Suðurfell í bakið í haust.

Grunaður um fjölda innbrota og þjófnaði

Hæstiréttur Íslands staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem grunaður er um innbrot og þjófnaði. Maðurinn var handtekinn í síðustu viku eftir að hafa brotist inn á hárgreiðslustofu í Hlíðarsmára og stolið sjóðsvél. Maðurinn hefur játað brot sín.

Ríkisendurskoðandi fékk ekki trúnaðarskýrslu um Byrgið

Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi er kallaður fyrir fjárlaganefnd Alþingis á morgun til að ræða eftirlit með framlögum og styrkjum til aðila utan velferðarkerfisins. Ríkisendurskoðandi fékk ekki í hendur trúnaðarskýrslu um fjárreiður Byrgisins sem gerð var af fulltrúum þriggja ráðuneyta.

Tíu teknir fyrir hraðaakstur í vetrarfærðinni

Tíu ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í vetrarfærðinni í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Langflestir mældust á yfir eitt hundrað kílómetra hraða.

Vill takmarka ræðutíma alþingismanna

Forseti Alþingis vill að takmarkanir verði settar á ræðutíma alþingismanna. Sólveig Pétursdóttir segir að ótakmarkaður ræðutími þekkist almennt ekki í þjóðþingum nágrannalanda.

Guðjón styður Magnús Þór

Formaður Frjálslynda flokksins lýsir yfir stuðningi við sitjandi varaformann, Magnús Þór Hafsteinsson. Margrét Sverrisdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri flokksins, bauð sig fram til varaformanns í gærkvöldi.

Rannsakað hvort fimm ára telpu hafi verið nauðgað

Sérstaklega er nú rannsakað hvort maðurinn, sem handtekinn var í Reykjavík í gær eftir að hafa áreitt fjórar ungar stúlkur kynferðislega, hafi komið fram vilja sínum við fimm ára stúlku úr hópnum.

Þriðja umræða um RÚV-frumvarp heldur áfram

Þriðja umræða um frumvarp um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins hélt áfram nú fyrir stundu eftir umræður um störf þingsins og fundarstjórn forseta sem stóðu í rúman klukkutíma.

Sjá næstu 50 fréttir