Byrgismál sagt sitja á hakanum vegna þráhyggju ráðherra 18. janúar 2007 10:56 MYND/GVA „
Er ekki mál að linni," sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra þegar Valdimar Leó Friðriksson vakti athygli á yfirlýsingu BSRB og BHM um að efasemdir væru um að starfsmönnum RÚV yrði tryggð sömu kjör og réttindi eftir hlutfélagavæðingu RÚV. Þá kvörtuðu stjórnarandstöðuþingmenn yfir því fundi Alþingis hefði ekki verið frestað í dag svo að betur mætti fara yfir mál Byrgisins í fjárlaganefnd. Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, benti á að fjárlaganefnd hefði fengið ríkisendurskoðanda á fund sinn klukkan hálfníu í morgun og þá hefði einnig átt að ræða við fulltrúa félagsmála- og fjármálaráðuneytis. Byrgismálið væri hins vegar svo stórt að aðeins hefði verið rætt við ríkisendurskoðanda en ekki gefist tími til að ræða við hina vegna þess að fundur var ákveðinn á Alþingi klukkan hálfellefu. Ósk um að fresta þeim fundi hefði verið hafnað og það væri vegna þráhyggju menntamálaráðherra við að koma frumvarpinu um RÚV í gegn. Menntamálaráðherra sagði hins vegar umhugsunarvert að stjórnarandstaðan hefði eytt meiri tíma í umræður um RÚV-frumvarpið en Kárahnjúka og EES-samninginn. Vildi hún ganga sem fyrst til atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Sagðist hún jafnframt myndu svara spurningum um réttindi starfsmanna RÚV í þriðju umræðu um málið í dag. Fjórða daginn í röð var tekist á um þingstörfin og áhrif RÚV-frumvarpsins á þau. Þar sökuðu stjórnarandstæðingar ráðherra um þráhyggju í málinu en stjórnarliðar sökuðu stjórnarandstæðinga um að bera sjálfir ábyrgð á því að önnur mál væru ekki rædd með málþófi um RÚV-frumvarpið. Því er enn stál í stál hjá stjórn og stjórnarandstöðu á þingi.
Mest lesið Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Innlent Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Innlent „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Innlent Lögreglan lýsir eftir Birni Þorláki Innlent Ekið á konu á Langholtsvegi Innlent Fleiri Epstein-skjöl birt: Prinsinn bað um „óviðeigandi vinkonur“ Erlent Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Erlent Undrandi á ráðningu ráðgjafa Innlent Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu Innlent Fleiri fréttir Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Lögreglan lýsir eftir Birni Þorláki Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sektaður um hundruð þúsunda fyrir að sparka í hund Stýra fjármálum og mannauðsmálum Þjóðleikhússins Sló mann í höfuðið með glerflösku á ísfirskum skemmtistað Ekið á konu á Langholtsvegi Ríkissjóður greiðir fyrir flutning hinna látnu til Íslands Undrandi á ráðningu ráðgjafa „Krítískur massi af snarbrjáluðu fólki nær yfirhöndinni“ Fjölgun eldri kvenna í Kvennaathvarfi: „Þessar konur bíða ekki“ Ráðist á pilt á heimleið Stytting framhjá Blönduósi ekki á samgönguáætlun Vestmannaeyingar fá að eiga Vestmannaeyjar Hyggst kæra dyraverði Auto til lögreglu „Ótrúlega sorglegt að pabbi sé búinn að vera svona lengi í þessari stöðu“ Höfðu samband við dönsku herstjórnina á Grænlandi Ný könnun Maskínu: „Væri alveg ný staða í íslenskum stjórnmálum“ Glæný Maskínukönnun og jólaóveður Sjá meira