Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Yfirréttur í Englandi ógildir meiðyrðadóm gegn Hannesi Yfirréttur í Lundúnum ógilti í dag dóm sem felldur var sumarið 2005 í meiðyrðamáli Jóns Ólafssonar athafnamanns á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor. 8.12.2006 15:05
Jónínu Ben dæmdar bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Mikael Torfason og Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóra DV, til að greiða Jónínu Benediksdóttur bætur vegna umfjöllunar DV um einkalíf hennar. 8.12.2006 15:00
Lögregluskólinn útskrifar þrjátíu og fimm nemendur Lögregluskóli ríkisins útskrifar í dag þrjátíu og fimm nemendur frá grunnnámsdeild skólans. Útskriftin fer fram í Bústaðarkirkju og syngur meðal annars Lögreglukórinn fyrir útskriftarhópinn. 8.12.2006 14:27
Tók fimm stráka fyrir veggjakrot Fimm ungir skemmdarvargar voru gripnir í austurborg Reykjavíkur um hálfníuleytið í gærkvöld en þeir eru grunaðir um veggjakrot. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. Um var að ræða stráka á grunnskólaaldri og fann lögregla í kjölfarið nokkuð af sprebrúsum og pennum. 8.12.2006 14:23
Frumvarpi um RÚV vísað til þriðju umræðu Samþykkt var fyrir um tvöleytið á Alþingi að vísa frumvarpinu um Ríkisútvarpið ohf. til þriðju umræðu með 49 atkvæðum. Eins og fram hefur komið í fréttum fer þriðja umræða um frumvarpið fram eftir áramót samkvæmt samkomulagi stjórnarliða og stjórnarandstöðu. 8.12.2006 14:01
Gæsluvarðhaldsúrskurður í hnífstungumáli felldur úr gildi Hæstiréttur Íslands hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð yfir pilti, sem stakk annan pilt með hnífi, í Kópavogi um síðustu helgi. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness fyrr í vikunni. 8.12.2006 13:58
Þingmenn á leið í skemmtiferð til útlanda? Tekist var á um það á Alþingi nú eftir hádegið hvort ákveðinn hópur þingmanna væri á leið í skemmtiferð nú eftir þinglok. Það var Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sem kvaddi sér hljóðs um fundarstjórn forseta og vakti athygli á orðum Guðjóns Ólafs Jónssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, í fréttum Ríkisútvarpisins í hádeginu. 8.12.2006 13:53
Neitað um skaðabætur eftir að hafa ekið á hest Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað hestamann og Vátryggingafélag Íslands af ríflega 670 þúsund króna skaðabótakröfu manns vegna tjóns sem varð á bíl hans þegar hann ók á hest hestamannsins. 8.12.2006 13:17
Karlmaður um tvítugt lést í umferðarslysi Karlmaður um tvítugt beið bana í umferðarslysi á Stykkishólmsvegi við afleggjarann að Stykkishólmsflugvelli í nótt. Slysið var rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Nokkur ísing og hálka var á veginum en talið er að maðurinn hafi misst stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hann hafnaði á ljósastaur. Talið er að að maðurinn hafi látist samstundis. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. 8.12.2006 13:16
Segir borgarstjóra tvísaga í lóðakaupamáli Oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur segir borgarstjóra tvísaga um þátt sinn í kaupum borgarinnar á fjórum hekturum í Norðlingaholti sem voru í eigu Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins. 8.12.2006 13:00
Baugsmenn ætla ekki að kæra úrskurðinn Verjendur Baugsmanna ætla ekki að kæra úrskurð Héraðsdómur Reykjavíkur þess efnis að Haraldur Johannessen, ríkislögreglustjóri og Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar, þurfi ekki að bera vitni um samskipti sín við við blaðamann á Blaðinu. Lögfræðingar Baugsmanna segja þessa ákvörðun tekna þar sem þeir vilji ekki tefja málið frekar heldur klára það sem fyrst. 8.12.2006 12:43
Sautján ára piltar missa nýfengin ökuskírteini sín Þrír sautján ára piltar, með glæný ökuskírteini, voru teknir úr umferð í nótt eftir að hafa mælst á allt of miklum hraða. 8.12.2006 12:30
Full samstaða stjórnarliða um RÚV Full samstaða er meðal stjórnarliða um RÚV-frumvarpið segir menntamálaráðherra og átelur menn fyrir að setja frestun lokaumræðunnar í annarlegt ljós. 8.12.2006 12:25
Ekið frá Selfossi til Alþingis með undirskriftir í dag Sunnlendingar og fleiri hyggjast fjölmenna í bílalest þar sem ekið verður frá Tryggvaskála á Selfossi og niður að Alþingishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Þar ætla þeir að afhenda Alþingi undirskriftir 25 þúsund Íslendinga sem skora á þingið að lögfesta tvöföldun Suðurlandsvegar án tafar. 8.12.2006 12:12
Fullar atvinnuleysisbætur hækka um 3.000 krónur um áramótin Atvinnuleysisbætur hækka um 2,9% 1. janúar á næsta ári. Hækkun atvinnuleysisbóta helst í hendur við hækkun launa í landinu almennt. Fullar atvinnuleysisbætur hækka um rúmar 3.000 krónur. Þær eru nú 111.015 krónur en verða 114.234 krónur 1. janúar 2007. 8.12.2006 11:51
Læknafélagið vill endubætur á vegum Stjórn Læknafélags Íslands telur brýnt að gerðar verði viðunandi endurbætur á fjölförnum vegum við þéttbýli eins og þeim sem mesta umferð bera við höfuðborgina. Stjórnin telur sannað að úreltir vegir séu ástæða slysa sem orðið hafa á vegum landsins. Hún telur þó rétt að minna á að flest slys megi forðast með varlegum akstri og réttri notkun öryggisbúnaðar. 8.12.2006 11:41
Vann lúxusferð á Eragon í London Frá því að nýr Vísir var opnaður hafa þeir sem gert hafa vefinn að upphafssíðu sinni farið í pott og eiga möguleika á að vinna glæsilega vinninga. Í gær vann Birgitta Sigursteinsdóttir ferð fyrir tvo á sérstaka gala forsýningu Eragon í London með öllum leikurum myndarinnar. 8.12.2006 11:23
Ríkisstjórnin fallin samkvæmt könnun Mannlífs Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri grænir bæta við sig verulegu fylgi frá síðustu kosningum, samkvæmt könnun sem Mannlíf lét gera í samvinnu við Plúsinn. Meirihluti stjórnarflokkanna á Alþingi er fallinn samkvæmt henni. 8.12.2006 11:11
Neytendasamtökin standa á bak við áfrýjun vegna olíusamráðsmáls Stjórn Neytendasamtakanna hefur tekið ákvörðun um að standa á bak við kæru Sigurðar Hreinssonar, húsasmiðs á Húsavík, til Hæstaréttar vegna frávísunar héraðsdóms á máli hans á hendur Keri hf., sem áður var Olíufélagið Esso. 8.12.2006 11:01
Miklar annir á lokaspretti þingsins fyrir jól Miklar annir verða á Alþingi Íslendinga í dag enda hafa stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar orðið ásáttir um að hefja jólafrí þingsins á morgun. 35 mál eru á dagskrá þingfundar í dag sem hófst klukkan tíu. 8.12.2006 10:49
Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp til að bæta stöðu erlendra starfsmanna Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag frumvarp Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. 8.12.2006 10:25
Átján ára Selfyssingur handtekinn á Gaza-svæðinu Átján ára Selfyssingur var handtekinn á Gaza-svæðinu um síðustu helgi og var honum haldið í gæsluvarðhaldi í fimm klukkustundir. Pilturinn hefur verið á ferðalagi um svæðið síðan í september á þessu ári. 8.12.2006 10:23
Stofna sameiginlega byggingar- og skipulagsnefnd um varnarsvæði Þrjú sveitarfélög á Suðurnesjum, Garður, Sandgerði og Reykjanes hafa ákveðið að stofna sameiginlega byggingar- og skipulagsnefnd á fyrrum varnarsvæði á Miðnesheiði. 8.12.2006 10:14
Fór einn hring í mjúkum snjó Lítil meiðsl urðu á ökumanni og farþega fólksbíls sem valt einn hring í mjúkum snjó á Háreksstaðaleið, norðan við Jökuldal í kvöld. Lögregla dró bílinn upp á veginn og var hann keyrður á leiðarenda áfallalaust eftir það. Skafrenningur er og blint á köflum fyrir austan að sögn lögreglu. 7.12.2006 23:30
Lítil meiðsli í bílveltu skammt frá Hellu Þrennt slapp mjög vel þegar amerískur pallbíll valt heilan hring á Suðurlandsvegi skammt vestan við Hellu í kvöld. Ökumaðurinn missti stjórn á bílnum í hálku og er bíllinn mikið skemmdur. Fólkið var flutt á heilsugæslustöðina á Hellu en reyndist lítið slasað. 7.12.2006 23:21
Prófkjörskostnaður Nikolovs 2.615 krónur Paul Nikolov, frambjóðandi Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs, birtir í dag uppgjör sitt vegna framboðs í forvali Vinstri - Grænna um liðna helgi. Heildarreikningurinn er 2.615 krónur, þá er með talið frímerkið á prófkjörstilkynninguna. 7.12.2006 21:46
Fyrsta nýja húsið í Grímsey í 6 ár Hreppsnefndin í Grímsey fær afhent nýtt parhús um helgina sem ákveðið var að byggja í vor. Að sögn oddvita Grímseyjarhrepps, Brynjólfs Árnasonar, er þetta fyrsta sinn í 6 ár sem smiðshöggið er rekið á nýbyggingu í eynni. Hreppsnefndin tók af skarið í vor og ákvað að byggja nýtt hús, vegna mikil húsnæðisskorts. 7.12.2006 20:52
Skautasvell opnað á Ingólfstorgi Á torgum stórborga víða um heim eru skautasvell órjúfanlegur þáttur af jólastemningunni og í ár eru íslendingar engir eftirbátar New York-borgar eða Parísar. Í tilefni af 50 ára afmæli Tryggingamiðstöðvarinnar leigir fyrirtækið svellið frá Austurríki, en það þekur tvo þriðju Ingólfstorgs. Óskar Magnússon forstjóri fyrirtækisins og Vilhjálmur Vilhjálmsson borgarstjóri opnuðu svellið við hátíðlega athöfn í dag og tókust svo á í krullu að því loknu. 7.12.2006 19:10
Án auglýsinga yrði engin Rás 2 Útvarpsstjóri telur sér ekki sætt í starfi ef frumvarp um hlutafélagavæðingu RÚV verður ekki samþykkt á vormánuðum. Afgreiðslu frumvarpsins hefur nú verið frestað fram á vorþing. Í morgun hófst á Alþingi önnur umræða um málefni Ríkisútvarpsins, en ákveðið hefur verið að fresta þriðju umræðu um Ríkisútvarpið ohf þar til í janúar. Frumvarpið verður sent til umræðu menntamálanefndar í millitíðinni. 7.12.2006 19:01
Olíusamráðsdómur ekki fordæmi Sýknudómur í gær, þar sem Essó er sýknað af skaðabótakröfu einstaklings vegna samráðs olíufélaganna, hefur ekki frodæmisgildi gagnvart bótakröfum Reykjavíkurborgar. Þetta segir Vilhjálmur Vilhjálmsson lögmaður sem rekur málið fyrir borgina. 7.12.2006 18:59
Ritstjóri Kompáss sektaður Lögreglustjórinn hefur sektað ritstjóra fréttaskýringaþáttarins Kompáss um fimmtíu og fjögur þúsund krónur fyrir vörslu fíkniefna. Þetta voru fíkniefni sem Kompás lét kaupa til að sýna auðvelt aðgengi barna að þeim en þau voru síðan afhent lögreglu með formlegum hætti. 7.12.2006 18:55
Lítill munur á slysatíðni á 3ja og 4ra akreina vegum Lítill munur er á slysatíðni á þriggja akreina vegum og fjögurra akreina. Fjögurra akreina vegur er hins vegar tvöfalt til þrefalt dýrari. Þriggja akreina lausn gæti því nýst til að bæta umferðaröryggi á jafnvel þrefalt lengri vegalengd. 7.12.2006 18:54
Finnst rjúpan best Vegfarendur ráku upp stór augu í gær þegar fálki steypti sér niður á Lækjartorgi, fyrir framan Héraðsdóm Reykjavíkur. Þrátt fyrir að komið væri ansi nærri, fór hann hvergi þar sem hann gæddi sér á hettumáfi. Guðmundur A Guðmundsson fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun segir ekki vera óalgengt að fálkar leiti matar í byggð þegar rjúpnastofnsinn er rýr eins og kom í ljós eftir rjúpnaveiðitímabilið, en óvenjufáar rjúpur veiddust í ár. 7.12.2006 18:53
Bandarískar hleranir á íslandi Skjalfestar sannanir liggja fyrir um að bandarísk yfirvöld blönduðust með beinum hætti í hleranir íslenskra stjórnvalda á eigin þegnum á tímum kalda stríðsins. Utanríkisráðuneytið tregðast við að opinbera þessi skjöl og bíður eftir heimild eða leiðbeiningum frá Bandaríkjunum 7.12.2006 18:51
Risaborar á leið úr landi Tveir af þremur risaborum hafa nú lokið hlutverki sínu við Kárahnjúkavirkjun og verða þeir fluttir úr landi eftir áramót. Þriðji borinn heldur hins vegar áfram og mun á næstu átján mánuðum bora göng í átt að Eyjabökkum til að sækja Jökulsá í Fljótsdal. 7.12.2006 18:46
Um hundrað merktir í tölvukerfi vegna bakteríunnar Svokölluð Mosa-baktería hefur ekki fundist í þeim sýnum sem hafa verið rannsökuð á Landsspítalanum eftir að hún greindist í sjúklingi á þriðjudag. Búið er að rannsaka um helming sýnanna. Þeir sem eitt sinn hafa greinst með bakteríuna fara ávallt í einangrun við komu á sjúkrahús en um hundrað manns eru þannig merktir í kerfi Landsspítalans. 7.12.2006 18:30
Grunaður um að hafa aftur nauðgað Maður á sextugsaldri situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa nauðgað konu á föstudag. Í október var sami maður dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hrottfengið ofbeldi og nauðganir. 7.12.2006 18:30
Fjórir dópmenn handteknir í nótt Fjórir aðilar komu við sögu í þremur fíkniefnamálum hjá lögreglunni í Reykjavík í gær og nótt. Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í úthverfi síðdegis en í híbýlum hans fundust ætluð fíkniefni. Í gærkvöld hafði lögreglan afskipti af tveimur karlmönnum um tvítugt. Þeir voru í bíl í austurbænum en mennirnir eru grunaðir um fíkniefnamisferli. 7.12.2006 17:53
14 mánaða fangelsi fyrir amfetamínframleiðslu Hæstiréttur staðfesti í dag 14 mánaða fangelsisdóm héraðsdóms yfir manni fyrir að hafa í félagi við annan mann framleitt amfetamín. 7.12.2006 17:20
Eins og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Hæstiréttur hefur dæmt karlmann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu og til að greiða henni átta hundruð þúsund krónur í bætur. 7.12.2006 17:03
Sex ára fangelsi fyrir sveðjuárás Hæstiréttur staðfesti í dag sex ára fangelsisdóm yfir Tindi Jónssyni fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ráðist að mann vopnaður sveðju og höggvið í höfuð hans og líkama. 7.12.2006 16:51
Fjórðungi færri á nagladekkjum í ár en í fyrra Mun færri bílar eru á negldum hjólbörðum í ár en á sama tíma fyrra samkvæmt mælingu sem Línuhönnun gerði í fyrradag og greint er frá á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. 7.12.2006 16:28
Fangelsi og sekt fyrir ölvunarakstur og ranga skýrslugjöf Karlmaður var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í eins mánaðar fangelsi og til greiðslu 250 þúsund króna fyrir ölvunarakstur og fyrir að framvísa ökuskírteini annars manns þegar lögreglan hafði afskipti af honum. Þá var hann jafnfram sviptur ökuréttindum í fimm ár. 7.12.2006 16:18
Gerður hættir sem sviðsstjóri menntasviðs Gerður G. Óskarsdóttir, sviðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar, hefur beðið um lausn frá störfum. Beiðni hennar þar að lútandi var lögð fram á fundi borgaráðs í dag. 7.12.2006 16:05
Meiddist í andliti vegna öryggispúða Tíu ára drengur var fluttur á slysadeild í gær eftir árekstur tveggja bifreiða í borginni. Fram kemur á vef lögreglunnar að drengurinn hafi verið farþegi í bíl sem ekið var aftan á annabn bíl en við áreksturinn blés út öryggispúði í bílnum og meiddi hann í andliti. 7.12.2006 15:44