Fleiri fréttir Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna eftir að fór að bera á töfum vegna gríðarlegrar sóknar útlendinga í vinnu hér í sumar. Þjóðskrá afgreiðir nú yfir eitthundrað kennitölubeiðnir á dag. Næstum 4000 útlendingar eða 3.946 útlendingar fengu úthlutað kennitölu hjá Þjóðskrá í ágúst og september. 6.10.2006 16:37 Sonja B. Jónsdóttir sækist eftir 4. - 5. sæti Sonja B. Jónsdóttir myndlistarkennari og kvikmyndagerðarmaður býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember n.k. Hún sækist eftir 4.-5. sæti og vill einkum vinna að auknum jöfnuði í samfélaginu, forvarnamálum, bættum hag barna, unglinga, fatlaðra, öryrkja og aldraðra og einnig að fræðslu- og menningarmálum. 6.10.2006 15:27 Gæslan "stal" tækjunum í herstöðinni 6.10.2006 15:26 Geðhjálp skorar á ríkisstjórnina Stjórn Geðhjálpar skorar á ríkisstjórn Íslands, að tafarlaust verði tryggt fjármagn til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar um kennslu fyrir geðsjúka og heilaskaðaða. Þessi kennsla hefur verið til staðar síðan 2003 og rúmlega 80 manns njóta góðs af henni í vetur. Áætlað er að kostnaður nemi um 24 milljónum kr. á ári. Ár eftir ár hefur óvissa ríkt um fjármögnun verkefnisins. Tvívegis áður hefur þurft að segja kennurum upp störfum og nemendur verið í fullkominni óvissu um skólann sinn, segir í tilkyningu frá Geðhjálp. 6.10.2006 14:50 Bjarni Harðarson stefnir á 2. sæti Bjarni Harðarson, fyrrverandi ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins og væntalegur bóksali á Selfossi, hefur aðkveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna komandi kosninga til Alþingis. fréttavefurinn sudurland.is greinir frá. 6.10.2006 14:34 Ragnheiður Ríkharðsdóttir í prófkjör Ragnheiður Ríkharðsdóttir stefnir á 3. sæti í prófkjöri í Kraganum. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ hefur tekið ákvörðun um bjóða sig fram i í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningarnar sem fram fer 11. nóvember. Ragnheiður sækist eftir 3 sæti listans. 6.10.2006 14:25 Virkjanadeilur í Skagafirði Stórátök eru í uppsiglingu um virkjun jökulfljóta Skagafjarðar eftir að sveitarstjórn samþykkti að gera ráð fyrir þeim í aðalskipulagi í gær. Meirihluti fimm fulltrúa Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar í Sveitarfélaginu Skagafirði samþykkti í gærkvöldi að setja tvær virkjanir, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, inn á aðalskipulagstillögu. Ómar Ragnarsson segir að bardagi sé að bresta á um Skagafjarðarvirkjanir. 6.10.2006 13:11 ESB vill kæfa EES-samninginn Evrópusambandið er meðvitað að reyna að kæfa EES-samninginn, segir forstöðumaður Evrópufræðasetursins á Bifröst. Við stækkun ESB um næstu áramót verður þess líklega krafist að framlag Íslands í þróunarsjóð hækki um tuttugu prósent - úr hálfum milljarði króna árlega í rúmar sex hundruð milljónir. 6.10.2006 12:51 Staða Guðfinnu skýrist Bjarni Ármannsson, bankastjóri og stjórnarmaður í Háskólanum í Reykjavík, og Guðfinna S. Bjarnadóttir rektor, tilkynna væntanlega í hádeginu hver verður staðgengill Guðfinnu og einnig hver framtíðarstaða hennar verður í skólanum. 6.10.2006 12:41 Rummungsþjófar 6.10.2006 11:28 Sigurbjörg sleppir erninum sínum Haförninn Sigurörn sem hefur dvalið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því í lok júní sl. fær nú brátt að njóta frelsisins á ný. Örninn hafði steypst ofan í lón en náði að koma sér að landi þar sem Sigurbjörg S. Pétursdóttir, ung stúlka úr Grundarfirði, handsamaði hann og kom honum, með góðri hjálp, undir hendur sérfræðinga. 6.10.2006 10:19 ÍE gerir hlé á prófunum á tilraunalyfi Íslensk erfðagreining hefur ákveðið að gera hlé á prófunum á tilraunalyfi meðal bandarískra hjartasjúklinga. Við reglubundnar leysnimælingar hafi komið í ljós að tíminn sem það tekur fyrir lyfið að losna úr töflum hafi lengst. Í tilkynningu frá félaginu segir að ekkert bendi til þess að þetta hafi haft áhrif á upptöku lyfsins hjá þátttakendum í rannsókninni, né á öryggi lyfsins. 5.10.2006 23:47 Einelti gegn stóriðju Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir umræðu þá sem hafi verið ráðandi í fjölmiðlum um stóriðju og virkanir síðustu misseri minna um margt á einelti. Þetta kemur fram í grein Vilhjálms á vefsíðu samtakanna. 5.10.2006 23:15 Ráðherra gagnrýnir Draumalandið Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir tímabili virkrar stóriðju- og virkjanastefnu íslenskra stjórnvalda hafa lokið 2003, með breytingum sem þá voru gerðar á stjórnsýslu og umhverfi á þeim vettvangi. Nú séu þau verkefni sem helst séu á döfinni við Húsavík, í Helguvík og í Straumsvík á vegum heimamanna og undir stjórn þeirra og sjálfstæðra fyrirtækja, en ekki undir forræði iðnaðarráðuneytis. Þetta kom fram í ræðu sem ráðherra flutti á fundi Samtaka iðnaðarins í dag sem bar yfirskriftina Náttúruvernd og nýting auðlinda. Þar gagnrýnir hann einnig Draumalandið, bók Andra Snæ Magnasonar, og segir tengingu höfundar við stórframkvæmdir á Austurlandi ekki sannfærandi. 5.10.2006 22:46 Óttast að Framsóknarmenn komi í veg fyrir þingsetu Svo gæti farið að varaþingmaður, sem sagði sig úr Framsóknarflokknum, taki sæti á þingi á næstunni. Hann óttast þó að flokkurinn reyni að koma í veg fyrir það. 5.10.2006 21:00 70 ár á þingi samanlagt Sigríður Anna Þórðardóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi umhverfisráðherra, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Sigríður Anna er fjórða reynslumikla þingkonan sem dregur sig í hlé fyrir þessar kosningar en þær hafa samtals setið á þingi í sjötíu ár. 5.10.2006 20:45 Nýr aðgerðarhópur og greiningardeild meða nýjunga Nýr aðgerðahópur og greiningardeild verða meðal nýjunga í starfsemi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar miklar skipulagsbreytingar taka gildi um áramót. Með breytingunum verður lögreglan betur í stakk búin til að berjast gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi og alvarlegri glæpum, segir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. 5.10.2006 20:23 Peningaleg staða Reykjavíkurborgar versnað Peningaleg staða Reykjavíkurborgar hefur versnað um hátt í 90 milljarða króna frá árinu 1994. Þetta kemur fram í nýrri úttekt á fjárhagsstöðu borgarinnar sem KPMG gerði fyrir núverandi meirihluta. Þriggja ára fjárhagsáætlanir hafa ekki náð fram að ganga síðustu árin. 5.10.2006 20:15 ASÍ fagnar úrskurði Kjararáðs Kjararáð hefur úrskurðað að laun þjóðkjörinna manna, ráðherra, dómara og annarra ríkisstarfsmanna sem ekki hafa samningsrétt, hækki um 3% og er hækkunin afturvirk til 1. júlí. Alþýðusamband Íslands telur úrskurðinn fagnaðarefni. 5.10.2006 19:53 600 hjón með 60% fjármagnstekjna 600 hjón eru með 60% allra fjármagnstekna á Íslandi. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, í utandagskrárumræðu um aukinn ójöfnuð í íslensku samfélagi á Alþingi í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segist ekki missa svefn þótt einhverjir hafi hagnast á viðskiptum, aðalatriðið sé að kaupmáttur landsmanna allra hafi aukist gríðarlega undanfarin ár. 5.10.2006 19:45 Landsvirkjun hafnar gagnrýni prófessors Sex og hálfur milljarður fór í undirbúning fyrir Kárahnjúkavirkjun, segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og blæs á gagnrýni prófessors í jarðeðlisfræði um að þær hafi verið algerlega ófullnægjandi. 5.10.2006 18:49 Voru minntir á þagmælsku vegna sprengjuflugvéla Flugumferðarstjórar í Keflavík fengu tölvupóst frá yfirmanni sínum á föstudag þar sem þeir voru minntir á þagnarskyldu í starfi, í kjölfar þess að rússneskar sprengjuflugvélar flugu inn á íslenskt flugumferðarstjórnarsvæði. Tilmælin komu frá stjórnvöldum. Flugmaður bandarískrar farþegavélar á svipuðum slóðum sá rússnesku vélarnar út um gluggann. 5.10.2006 18:30 Flugfélag Íslands tekur væntanlega við flugi til Eyja Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hefur falið Vegagerðinni að leita eftir samningum við Flugfélag Íslands um flug á milli Reykjavíkur og Vestmanneyja, sem stutt verður af ríkinu. Um er að ræða tímabundin samning meðan útboð til lengri tíma er undirbúið. 5.10.2006 17:45 Sokurov hlaut heiðursverðlaun RIFF Rússneski leikstjórinn Aleksandr Sokurov hlaut í dag heiðursverðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátiðar í Reykjavík. Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarssdóttir, afhenti verðlaunin við athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnagötu nú síðdegis. Sokurov fær verðlaunin fyrir ævistarf sitt í þágu kvikmyndalistarinnar. 5.10.2006 17:32 Réðst tvisvar á sama manninn Rúmlega tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir á sama manninn. 5.10.2006 16:06 Siðmennt vill trúarstarf út úr skólunum Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, vill að allt starf Vinaleiðar, sem er kristileg sálgæsla og fer fram í skólum, verði stöðvuð á öllu landinu. Siðmernnt leggur til í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag, að útbúnar verði skýrar verklagsreglur fyrir skólastjórnendur og kennara svo tryggt verði að trúarlegt starf verði ekki stundað í opinberum skólum. 5.10.2006 15:55 Leið S5 í Árbæinn hefst á ný Strætó bs. ætlar að hefja á ný akstur á stofnleið fimm sem keyrir frá Árbæjar- og Seláshverfi í miðbæinn. Þessi akstursleið var lögð af í sumar en stjórn Strætó bs. hefur ákveðið að akstur verði hafinn á ný í fyrramáli. Ekið verður á annatímum. 5.10.2006 15:52 Ný skýrsla áfellisdómur yfir fyrri meirihluta að mati borgarstjóra Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, segir nýja skýrslu KPMG um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar, áfellisdóm yfir fjármálastjórn síðasta meirihluta. Skýrslan var kynnt í borgarráði í dag og segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að sérfræðingar KPMG telji að ná megi fram aukinni skilvirkni í fjármálastjórn og reikningshaldi borgarinnar. Fara þurfi yfir fjármálastjórn borgarinnar í heild sinni og leita leiða til að ná betri rekstrarárangri. 5.10.2006 15:21 Prófkjör hjá Vinstri-grænum í desember Vinstri grænir halda prófkjör í Reykjavíkurkjördæmi suður, Reykavíkurkjördæmi norður og í Suðvesturkjördæmi þann 2. desember næstkomandi. Í prófkjörinu verða valdir fjórir efstu frambjóðendurnir á þrjá framboðslista svæðisins. 5.10.2006 14:56 Óflokksbundinn gæti lent á þingi Svo gæti farið að varaþingmaður sem sagði sig úr Framsóknarflokknum taki sæti á þingi á næstunni. Hann óttast þó að flokkurinn reyni að koma í veg fyrir það. 5.10.2006 14:15 Skorað á Skagafjörð að fresta Villinganesvirkjun Náttúruverndarsamtök Íslands skora á sveitarstjórn Skagafjarðar að fresta áformum um að setja Villinganes, og í framhaldinu Skatastaðavirkjun, inn á aðalskipulag. Sveitarstjórn Skagafjarðar fjallar um málið á fundi síðdegis. Héraðsvötn ehf, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og Rarik er virkjanaaðili við Villinganes. vill að sveitarfélögin gangi sem fyrst frá staðfestu aðalskipulagi svo framkvæmdaleyfi fáist. 5.10.2006 14:14 Vernharð Guðnason vill 6. sæti hjá Sjálfstæðisflokki Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 27. og 28. október vegna þingkosninganna í vor. Vernharð er 44 ára, kvæntur og þriggja barna faðir. Samhliða starfi sínu sem formaður LSS starfar hann sem slökkviliðsmaður og bráðatæknir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS). 5.10.2006 13:27 Harma lækkun til leikhópa 5.10.2006 13:23 Helga Jónsdóttir nýr framkvæmdastjóri BSRB 5.10.2006 12:53 ALCOA svermar fyrir konum 5.10.2006 12:48 Frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð breytt Ríkisstjórnin hefur samþykkt breytt frumvarp um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar. Eldra frumvarp olli miklum deilum á síðasta vorþingi. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir búið að sníða vankanta af eldra frumvarpi. Eftir er þó að koma í ljós hvort tekist hafi að sætta ólík sjónarmið. 5.10.2006 12:37 Eldri virkjanir betur rannsakaðar Rannsóknir fyrir Blönduvirkjun og Sultartangavirkjun voru mun vandaðri en þær rannsóknir sem fóru fram áður en ráðist var í stærstu og dýrustu framkvæmd Íslandssögunnar - Kárahnjúkavirkjun. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. 5.10.2006 12:36 Linnulaus hernaður gegn jöfnuði Ríkisstjórnin hefur verið í linnulausum hernaði gegn jöfnuði og ójöfnuður hefur aukist á Íslandi á síðustu árum; þetta sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Forsætisráðherra segist hins vegar ekki vera andvaka þótt einhverjir aðilar hafi hagnast á viðskiptum. 5.10.2006 12:21 Bara Vodafone Og Vodafone heitir nú bara Vodafone. Nýr tímamótasamningur við alþjóðlega stórfyrirtækið Vodafone Group um nánara samstarf var kynntur í morgun. Vodafone á Íslandi er fyrsta sjálfstæða farsímafélagið sem fær að nota vörumerki Vodafone. 5.10.2006 11:59 Bensín lækkar Atlantsolía og Olíufélagið hafa tilkynnt veðlækkun á bensíni og olíuvörum. Bensínlítrinn ´kominn niður fyrir 116 krónur hjá Atlantsolíu. 5.10.2006 11:38 Toppar fá 3% afturvirka hækkun Kjararáð hefur ákveðið að embættismenn og þjóðkjörnir fulltrúar fái þriggja prósenta kauphækkun, sem reiknast frá fyrsta júlí. 5.10.2006 11:13 Bjartar horfur á hlutabréfamarkaði Greiningardeild Glitnis telur nokkuð bjartar horfur á innlendum hlutabréfamarkaði litið til næstu missera. Grunnrekstur flestra fyrirtækja í Kauphöll Íslands sé með ágætum og megi reikna með að afkoma þeirra verði góð bæði í ár og á næsta ári. 5.10.2006 11:13 Sviptur fyrir hraðakstur Nítján ára karlmaður, sem stöðvaður var í Ártúnsbrekku í fyrrakvöld eftir að hafa mælst á rúmlega 140 kílómetra hraða, hefur nú verið sviftur ökuréttindum og sektaður um tugi þúsunda króna. 5.10.2006 11:08 Umferðartruflanir á Reykjanesbraut 5.10.2006 10:25 Róbert Marshall í framboð í Suðurkjördæmi Róbert Marshall, fyrrverandi forstöðumaður NFS, sækist eftir 1. til 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar næsta vor. 4.10.2006 23:30 Sjá næstu 50 fréttir
Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna Þjóðskrá annar nú útgáfu kennitalna eftir að fór að bera á töfum vegna gríðarlegrar sóknar útlendinga í vinnu hér í sumar. Þjóðskrá afgreiðir nú yfir eitthundrað kennitölubeiðnir á dag. Næstum 4000 útlendingar eða 3.946 útlendingar fengu úthlutað kennitölu hjá Þjóðskrá í ágúst og september. 6.10.2006 16:37
Sonja B. Jónsdóttir sækist eftir 4. - 5. sæti Sonja B. Jónsdóttir myndlistarkennari og kvikmyndagerðarmaður býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember n.k. Hún sækist eftir 4.-5. sæti og vill einkum vinna að auknum jöfnuði í samfélaginu, forvarnamálum, bættum hag barna, unglinga, fatlaðra, öryrkja og aldraðra og einnig að fræðslu- og menningarmálum. 6.10.2006 15:27
Geðhjálp skorar á ríkisstjórnina Stjórn Geðhjálpar skorar á ríkisstjórn Íslands, að tafarlaust verði tryggt fjármagn til samstarfsverkefnis Fjölmenntar og Geðhjálpar um kennslu fyrir geðsjúka og heilaskaðaða. Þessi kennsla hefur verið til staðar síðan 2003 og rúmlega 80 manns njóta góðs af henni í vetur. Áætlað er að kostnaður nemi um 24 milljónum kr. á ári. Ár eftir ár hefur óvissa ríkt um fjármögnun verkefnisins. Tvívegis áður hefur þurft að segja kennurum upp störfum og nemendur verið í fullkominni óvissu um skólann sinn, segir í tilkyningu frá Geðhjálp. 6.10.2006 14:50
Bjarni Harðarson stefnir á 2. sæti Bjarni Harðarson, fyrrverandi ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins og væntalegur bóksali á Selfossi, hefur aðkveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna komandi kosninga til Alþingis. fréttavefurinn sudurland.is greinir frá. 6.10.2006 14:34
Ragnheiður Ríkharðsdóttir í prófkjör Ragnheiður Ríkharðsdóttir stefnir á 3. sæti í prófkjöri í Kraganum. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ hefur tekið ákvörðun um bjóða sig fram i í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi Alþingiskosningarnar sem fram fer 11. nóvember. Ragnheiður sækist eftir 3 sæti listans. 6.10.2006 14:25
Virkjanadeilur í Skagafirði Stórátök eru í uppsiglingu um virkjun jökulfljóta Skagafjarðar eftir að sveitarstjórn samþykkti að gera ráð fyrir þeim í aðalskipulagi í gær. Meirihluti fimm fulltrúa Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar í Sveitarfélaginu Skagafirði samþykkti í gærkvöldi að setja tvær virkjanir, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, inn á aðalskipulagstillögu. Ómar Ragnarsson segir að bardagi sé að bresta á um Skagafjarðarvirkjanir. 6.10.2006 13:11
ESB vill kæfa EES-samninginn Evrópusambandið er meðvitað að reyna að kæfa EES-samninginn, segir forstöðumaður Evrópufræðasetursins á Bifröst. Við stækkun ESB um næstu áramót verður þess líklega krafist að framlag Íslands í þróunarsjóð hækki um tuttugu prósent - úr hálfum milljarði króna árlega í rúmar sex hundruð milljónir. 6.10.2006 12:51
Staða Guðfinnu skýrist Bjarni Ármannsson, bankastjóri og stjórnarmaður í Háskólanum í Reykjavík, og Guðfinna S. Bjarnadóttir rektor, tilkynna væntanlega í hádeginu hver verður staðgengill Guðfinnu og einnig hver framtíðarstaða hennar verður í skólanum. 6.10.2006 12:41
Sigurbjörg sleppir erninum sínum Haförninn Sigurörn sem hefur dvalið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því í lok júní sl. fær nú brátt að njóta frelsisins á ný. Örninn hafði steypst ofan í lón en náði að koma sér að landi þar sem Sigurbjörg S. Pétursdóttir, ung stúlka úr Grundarfirði, handsamaði hann og kom honum, með góðri hjálp, undir hendur sérfræðinga. 6.10.2006 10:19
ÍE gerir hlé á prófunum á tilraunalyfi Íslensk erfðagreining hefur ákveðið að gera hlé á prófunum á tilraunalyfi meðal bandarískra hjartasjúklinga. Við reglubundnar leysnimælingar hafi komið í ljós að tíminn sem það tekur fyrir lyfið að losna úr töflum hafi lengst. Í tilkynningu frá félaginu segir að ekkert bendi til þess að þetta hafi haft áhrif á upptöku lyfsins hjá þátttakendum í rannsókninni, né á öryggi lyfsins. 5.10.2006 23:47
Einelti gegn stóriðju Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir umræðu þá sem hafi verið ráðandi í fjölmiðlum um stóriðju og virkanir síðustu misseri minna um margt á einelti. Þetta kemur fram í grein Vilhjálms á vefsíðu samtakanna. 5.10.2006 23:15
Ráðherra gagnrýnir Draumalandið Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir tímabili virkrar stóriðju- og virkjanastefnu íslenskra stjórnvalda hafa lokið 2003, með breytingum sem þá voru gerðar á stjórnsýslu og umhverfi á þeim vettvangi. Nú séu þau verkefni sem helst séu á döfinni við Húsavík, í Helguvík og í Straumsvík á vegum heimamanna og undir stjórn þeirra og sjálfstæðra fyrirtækja, en ekki undir forræði iðnaðarráðuneytis. Þetta kom fram í ræðu sem ráðherra flutti á fundi Samtaka iðnaðarins í dag sem bar yfirskriftina Náttúruvernd og nýting auðlinda. Þar gagnrýnir hann einnig Draumalandið, bók Andra Snæ Magnasonar, og segir tengingu höfundar við stórframkvæmdir á Austurlandi ekki sannfærandi. 5.10.2006 22:46
Óttast að Framsóknarmenn komi í veg fyrir þingsetu Svo gæti farið að varaþingmaður, sem sagði sig úr Framsóknarflokknum, taki sæti á þingi á næstunni. Hann óttast þó að flokkurinn reyni að koma í veg fyrir það. 5.10.2006 21:00
70 ár á þingi samanlagt Sigríður Anna Þórðardóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi umhverfisráðherra, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu. Sigríður Anna er fjórða reynslumikla þingkonan sem dregur sig í hlé fyrir þessar kosningar en þær hafa samtals setið á þingi í sjötíu ár. 5.10.2006 20:45
Nýr aðgerðarhópur og greiningardeild meða nýjunga Nýr aðgerðahópur og greiningardeild verða meðal nýjunga í starfsemi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þegar miklar skipulagsbreytingar taka gildi um áramót. Með breytingunum verður lögreglan betur í stakk búin til að berjast gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi og alvarlegri glæpum, segir Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. 5.10.2006 20:23
Peningaleg staða Reykjavíkurborgar versnað Peningaleg staða Reykjavíkurborgar hefur versnað um hátt í 90 milljarða króna frá árinu 1994. Þetta kemur fram í nýrri úttekt á fjárhagsstöðu borgarinnar sem KPMG gerði fyrir núverandi meirihluta. Þriggja ára fjárhagsáætlanir hafa ekki náð fram að ganga síðustu árin. 5.10.2006 20:15
ASÍ fagnar úrskurði Kjararáðs Kjararáð hefur úrskurðað að laun þjóðkjörinna manna, ráðherra, dómara og annarra ríkisstarfsmanna sem ekki hafa samningsrétt, hækki um 3% og er hækkunin afturvirk til 1. júlí. Alþýðusamband Íslands telur úrskurðinn fagnaðarefni. 5.10.2006 19:53
600 hjón með 60% fjármagnstekjna 600 hjón eru með 60% allra fjármagnstekna á Íslandi. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, í utandagskrárumræðu um aukinn ójöfnuð í íslensku samfélagi á Alþingi í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segist ekki missa svefn þótt einhverjir hafi hagnast á viðskiptum, aðalatriðið sé að kaupmáttur landsmanna allra hafi aukist gríðarlega undanfarin ár. 5.10.2006 19:45
Landsvirkjun hafnar gagnrýni prófessors Sex og hálfur milljarður fór í undirbúning fyrir Kárahnjúkavirkjun, segir Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, og blæs á gagnrýni prófessors í jarðeðlisfræði um að þær hafi verið algerlega ófullnægjandi. 5.10.2006 18:49
Voru minntir á þagmælsku vegna sprengjuflugvéla Flugumferðarstjórar í Keflavík fengu tölvupóst frá yfirmanni sínum á föstudag þar sem þeir voru minntir á þagnarskyldu í starfi, í kjölfar þess að rússneskar sprengjuflugvélar flugu inn á íslenskt flugumferðarstjórnarsvæði. Tilmælin komu frá stjórnvöldum. Flugmaður bandarískrar farþegavélar á svipuðum slóðum sá rússnesku vélarnar út um gluggann. 5.10.2006 18:30
Flugfélag Íslands tekur væntanlega við flugi til Eyja Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hefur falið Vegagerðinni að leita eftir samningum við Flugfélag Íslands um flug á milli Reykjavíkur og Vestmanneyja, sem stutt verður af ríkinu. Um er að ræða tímabundin samning meðan útboð til lengri tíma er undirbúið. 5.10.2006 17:45
Sokurov hlaut heiðursverðlaun RIFF Rússneski leikstjórinn Aleksandr Sokurov hlaut í dag heiðursverðlaun Alþjóðlegrar kvikmyndahátiðar í Reykjavík. Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarssdóttir, afhenti verðlaunin við athöfn í Ráðherrabústaðnum við Tjarnagötu nú síðdegis. Sokurov fær verðlaunin fyrir ævistarf sitt í þágu kvikmyndalistarinnar. 5.10.2006 17:32
Réðst tvisvar á sama manninn Rúmlega tvítugur karlmaður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir á sama manninn. 5.10.2006 16:06
Siðmennt vill trúarstarf út úr skólunum Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, vill að allt starf Vinaleiðar, sem er kristileg sálgæsla og fer fram í skólum, verði stöðvuð á öllu landinu. Siðmernnt leggur til í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag, að útbúnar verði skýrar verklagsreglur fyrir skólastjórnendur og kennara svo tryggt verði að trúarlegt starf verði ekki stundað í opinberum skólum. 5.10.2006 15:55
Leið S5 í Árbæinn hefst á ný Strætó bs. ætlar að hefja á ný akstur á stofnleið fimm sem keyrir frá Árbæjar- og Seláshverfi í miðbæinn. Þessi akstursleið var lögð af í sumar en stjórn Strætó bs. hefur ákveðið að akstur verði hafinn á ný í fyrramáli. Ekið verður á annatímum. 5.10.2006 15:52
Ný skýrsla áfellisdómur yfir fyrri meirihluta að mati borgarstjóra Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, segir nýja skýrslu KPMG um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar, áfellisdóm yfir fjármálastjórn síðasta meirihluta. Skýrslan var kynnt í borgarráði í dag og segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að sérfræðingar KPMG telji að ná megi fram aukinni skilvirkni í fjármálastjórn og reikningshaldi borgarinnar. Fara þurfi yfir fjármálastjórn borgarinnar í heild sinni og leita leiða til að ná betri rekstrarárangri. 5.10.2006 15:21
Prófkjör hjá Vinstri-grænum í desember Vinstri grænir halda prófkjör í Reykjavíkurkjördæmi suður, Reykavíkurkjördæmi norður og í Suðvesturkjördæmi þann 2. desember næstkomandi. Í prófkjörinu verða valdir fjórir efstu frambjóðendurnir á þrjá framboðslista svæðisins. 5.10.2006 14:56
Óflokksbundinn gæti lent á þingi Svo gæti farið að varaþingmaður sem sagði sig úr Framsóknarflokknum taki sæti á þingi á næstunni. Hann óttast þó að flokkurinn reyni að koma í veg fyrir það. 5.10.2006 14:15
Skorað á Skagafjörð að fresta Villinganesvirkjun Náttúruverndarsamtök Íslands skora á sveitarstjórn Skagafjarðar að fresta áformum um að setja Villinganes, og í framhaldinu Skatastaðavirkjun, inn á aðalskipulag. Sveitarstjórn Skagafjarðar fjallar um málið á fundi síðdegis. Héraðsvötn ehf, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og Rarik er virkjanaaðili við Villinganes. vill að sveitarfélögin gangi sem fyrst frá staðfestu aðalskipulagi svo framkvæmdaleyfi fáist. 5.10.2006 14:14
Vernharð Guðnason vill 6. sæti hjá Sjálfstæðisflokki Vernharð Guðnason, formaður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), sækist eftir 6. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 27. og 28. október vegna þingkosninganna í vor. Vernharð er 44 ára, kvæntur og þriggja barna faðir. Samhliða starfi sínu sem formaður LSS starfar hann sem slökkviliðsmaður og bráðatæknir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS). 5.10.2006 13:27
Frumvarp um Nýsköpunarmiðstöð breytt Ríkisstjórnin hefur samþykkt breytt frumvarp um stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar. Eldra frumvarp olli miklum deilum á síðasta vorþingi. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra segir búið að sníða vankanta af eldra frumvarpi. Eftir er þó að koma í ljós hvort tekist hafi að sætta ólík sjónarmið. 5.10.2006 12:37
Eldri virkjanir betur rannsakaðar Rannsóknir fyrir Blönduvirkjun og Sultartangavirkjun voru mun vandaðri en þær rannsóknir sem fóru fram áður en ráðist var í stærstu og dýrustu framkvæmd Íslandssögunnar - Kárahnjúkavirkjun. Þetta segir Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. 5.10.2006 12:36
Linnulaus hernaður gegn jöfnuði Ríkisstjórnin hefur verið í linnulausum hernaði gegn jöfnuði og ójöfnuður hefur aukist á Íslandi á síðustu árum; þetta sagði formaður Samfylkingarinnar á Alþingi í dag. Forsætisráðherra segist hins vegar ekki vera andvaka þótt einhverjir aðilar hafi hagnast á viðskiptum. 5.10.2006 12:21
Bara Vodafone Og Vodafone heitir nú bara Vodafone. Nýr tímamótasamningur við alþjóðlega stórfyrirtækið Vodafone Group um nánara samstarf var kynntur í morgun. Vodafone á Íslandi er fyrsta sjálfstæða farsímafélagið sem fær að nota vörumerki Vodafone. 5.10.2006 11:59
Bensín lækkar Atlantsolía og Olíufélagið hafa tilkynnt veðlækkun á bensíni og olíuvörum. Bensínlítrinn ´kominn niður fyrir 116 krónur hjá Atlantsolíu. 5.10.2006 11:38
Toppar fá 3% afturvirka hækkun Kjararáð hefur ákveðið að embættismenn og þjóðkjörnir fulltrúar fái þriggja prósenta kauphækkun, sem reiknast frá fyrsta júlí. 5.10.2006 11:13
Bjartar horfur á hlutabréfamarkaði Greiningardeild Glitnis telur nokkuð bjartar horfur á innlendum hlutabréfamarkaði litið til næstu missera. Grunnrekstur flestra fyrirtækja í Kauphöll Íslands sé með ágætum og megi reikna með að afkoma þeirra verði góð bæði í ár og á næsta ári. 5.10.2006 11:13
Sviptur fyrir hraðakstur Nítján ára karlmaður, sem stöðvaður var í Ártúnsbrekku í fyrrakvöld eftir að hafa mælst á rúmlega 140 kílómetra hraða, hefur nú verið sviftur ökuréttindum og sektaður um tugi þúsunda króna. 5.10.2006 11:08
Róbert Marshall í framboð í Suðurkjördæmi Róbert Marshall, fyrrverandi forstöðumaður NFS, sækist eftir 1. til 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar næsta vor. 4.10.2006 23:30