Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
20 milljónir króna til Darfur Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita sem svarar 20 milljónum króna til neyðar- og mannúðaraðstoðar í Darfúr. 31.8.2006 22:28
Slátra meira en hundrað tonn af fiski Starfsmenn laxeldisfyrirtækisins Sæsilfurs hf. í Mjóafirði vinna nú að því slátra meira en hundrað tonn af laxi. Ástæðan fyrir því er að marglytta barst með sterkum hafstraumum í nótt og laggðist á kvíarnar. 31.8.2006 20:39
Alþjóðlegri æfingu sprengjusérfræðinga lýkur Íslendingar hafa safnað ómetanlegri reynslu í alþjóðlegri sprengjueyðingaræfingu sem lýkur í dag. Sprengjusérfræðingar frá erlendum herjum sækja í auknum mæli eftir að komast á æfingar á Íslandi og vex hún ár frá ári að umfangi. Áttatíu sprengjueyðingarsérfræðingar tóku þátt í æfingunni en hún er skipulögð af Landhelgisgæslunni. 31.8.2006 19:31
Ísraelar gagnrýndir fyrir klasasprengjur Ísraelar eru harðlega gagnrýndir fyrir að hafa dreift verulegu magni af klasasprengjum í Suður-Líbanon rétt áður en löngu boðað vopnahlé tók gildi. Jónas Þorvaldsson, íslenskur sprengjusérfræðingur sem starfaði við að eyða þessum sprengjum í Írak lýsir þeim sem miklum skaðvaldi sem aðallega limlesti og drepi börn. 31.8.2006 19:25
Sjálfsstæðisflokkurinn setji sér verkreglur um skilyrði frambjóðenda flokksins Kominn er tími til þess að Sjálfstæðisflokkurinn setji sér vinnureglur um skilyrði sem frambjóðendur flokksins til Alþingiskosninga verði að uppfylla. Þetta segir væntanlegur frambjóðandi í Suðurkjördæmi vegna uppreisnar æru Árna Johnsen. 31.8.2006 19:24
Engin sérmeðferð fyrir eldri starfsmenn Varnarliðsins Um þrjú hundruð starfsmenn Varnarliðsins eru enn án atvinnu en eftir mánuð verður herstöðinni í Keflavík lokað. Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur áhyggjur af að erfitt verði fyrir þá sem eldri eru að fá vinnu og segir að þvertekið hafi verið fyrir að aðstoða þá við að fara snemma á eftirlaun. 31.8.2006 19:17
Dýrasta kvikmynd Íslandssögunnar frumsýnd í kvöld Dýrasta kvikmynd Íslandssögunnar, Bjólfskviða í leikstjórn Sturlu Gunnarssonar, verður frumsýnd hér á landi í kvöld. Kostnaður við myndina var einn milljarður króna 31.8.2006 19:16
Hekla, Katla og Grímsvötn búa sig undir gos Þrjár virkustu eldstöðvar Íslands, Hekla, Katla og Grímsvötn, eru allar að búa sig undir gos um þessar mundir. Bárðarbunga sýnir sömuleiðis grunsamleg merki, að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings. 31.8.2006 19:15
Gæslan tilbúin að beita klippunum ef kallið kemur Landhelgisgæslan er tilbúin að beita togvíraklippunum um leið og dómsmálaráðherra gefur merki. Landssamband íslenskra útvegsmanna vill að þær verði notaðar á sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg. 31.8.2006 18:33
Ók inn í skrifstofur Sinfóníunnar Töluverðar skemmdir urðu á skrifstofum Sinfóníuhljómsveitar Íslands við Hagatorg rétt fyrir klukkan fimm í dag þegar körfubíll rak hliðartékk sinn inn í vesturhorn hússins og reif það niður 31.8.2006 17:25
RÚV brást skyldu sinni segir Steingrímur J. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs segir ofboðslegt að verða vitni að því að Ríkisútvarpið skuli þjóna valdinu með þeim hætti að láta það eftir Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra og fyrrverandi iðnaðarráðherra að ryðja andstæðingi í stjórnmálum og talsmanni ólíkra sjónarmiða út úr umræðuþætti. Umsjónarmenn Kastljóss höfðu að sögn Steingríms óskað eftir að hann mætti Valgerði til að ræða Kárahnjúkamál. Þátttaka Steingríms var svo afþökkuð skömmu fyrir Kastljós en Valgerður sat ein og ræddi Kárahnjúka við umsjónarmann Kastljóss. Í opnu bréfi til Páls Magnússonar, útvarpsstjóra RÚV spyr Steingrímur J. hvort útvaprsstjóri telji réttlætanlegt að sumir stjórnmálamenn geti með þessum hætti skilyrt og stýrt þátttöku sinni í umræðum um þjóðmál. 31.8.2006 15:15
Nágranni sá þjófinn Það var athugull nágranni sem sá til innbrotsþjófs setja muni í tösku í fjölbýlishúsi í gær. Nágranninn skaut þjófnum skelk í bringu sem lagði á flótta án þess að taka töskuna með sér. Þó að þjófurinn hafi sloppið björguðust verðmætin þökk sé nágrannanum. 31.8.2006 14:45
Sýslumaður minnir ökumenn á að fara varlega Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungavík, hefur sent frá sér tilkynningu vegna fyrirhugaðs hópaskstur um Óshlíð í kvöld. Hann segir að lögregla muni ekki hafa önnur afskipti af viðburðinum en að halda upp almennu eftriliti. Einnig býnir hann fyrir ökumönnum að hafa gott bil á milli ökutækja vegna hættu á grjóthruni. 31.8.2006 14:30
Félagslegum íbúðum fjölgað um 100 í stað 50 Stjórn Félagsbústaða hefur ákveðið að endurskoða áform um fjölgun félagslegra íbúða á árinu og fjölga þeim um hundrað í stað fimmtíu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Félagsbústöðum. 31.8.2006 14:15
Hátekjufólk borgar hlutfallslega lægri skatta en meðalmaður Íslensk skattalöggjöf eykur ójöfnuð launafólks en skattbyrði hátekjufólks hefur lækkað frá árinu 1993 en hækkað hjá láglaunafólki. Þetta segir Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands. 31.8.2006 14:00
Lögregla minnir á breyttan útivistartíma barna Lögreglan í Reykjavík minnir foreldra á að útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20 en 13 til 16 ára unglingar til klukkan 22. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. 31.8.2006 14:00
Afþreyingarhúsum lokað á vellinum Í dag verður kvikmyndahúsinu á Keflavíkurflugvelli lokað ásamt skyndibitastað, Windbraker klúbbnum og gistihúsi vallarins. Nánast engin starfsemi er þá eftir á vegum Varnarliðsins í herstöðinni. 31.8.2006 13:15
Vill að klippt verði á veiðarfæri Framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna vill að Landhelgisgæslan klippi veiðarfærin aftan úr togurum á Reykjaneshrygg, sem veiða þar án heimilda. Hann segir nauðsynlegt að taka mun harðar á veiðiþjófum en gert hefur verið til að koma í veg fyrir ofveiði. 31.8.2006 13:14
Annatími fram undan vegna vals á framboðslista Það verður einnig annatími hjá stjórnmálaflokkunum næstu vikurnar og mánuðina þar sem víða verða teknar ákvarðanir um hvernig valið skuli á framboðslista fyrir alþingiskosningar næsta vor. Frjálslyndir virðast lengst á veg komnir í undirbúningi. 31.8.2006 12:45
Vestmannaeyjabær fær tæpar 44 miljónir Að tillögu tekjustofnanefndar frá 17. mars árið 2005 hefur verið ákveðið að greiða árlega 700 miljón króna aukaframlag til Jöfnunarsjóðs á árunum 2006-2008. Tilgangurinn er að jafna aðstöðumun sveitarfélaga sem talin eru í mestri þörf fyrir viðbótarframlag vegna þróunar í rekstarumhverfi þeirra og erfiðra ytri aðstæðna. 31.8.2006 12:15
Anna Kristín sækist eftir 1. - 2. sæti Anna Kristín Gunarsdóttir,þingmaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. - 2. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi kosningar. Ekki liggur fyrir hvernig skipað verður á listann en ýmislegt bendir til að viðhaft verði prófkjör af einhverri gerð. Ákvörðun um það verður tekin 16. september. 31.8.2006 12:12
Útlit fyrir harða og spennandi prófkjörsbaráttu Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi borgarstjóri, sækist eftir fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir alþingiskosningarnar í vor. Útlit er fyrir harða prófkjörsbaráttu, en að öllum líkindum sækjast flestir núverandi þingmenn flokksins í Reykjavík eftir endurkjöri. 31.8.2006 12:00
Síðustu kerin tekin í notkun í Straumsvík í dag eftir bilun Síðustu kerin í kerskála þrjú hjá álveri Alcan í Straumsvík verða tekin í gagnið nú eftir hádegið, tveimur mánuðum fyrr en áætlað var. 31.8.2006 11:00
Nýr bæjarstjóri í Vesturbyggð ráðinn Ragnar Jörundsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri Vesturbyggðar til ársins 2010 eða út kjörtímabilið. Ráðning Ragnars var samþykkt með atkvæðum meirihluta bæjarstjórnar en minnihlutinn sat hjá samkvæmt fréttavefnum Bæjarins besta. 31.8.2006 09:45
Íslendingar björguðust úr flugvélarbraki Tveir ungir Íslendingar björguðust á ótrúlegan hátt þegar eins hreyfils flugvél sem þeir voru í brotlenti skömmu eftir flugtak frá Oxford-flugvelli í gær. Flugvélin sjálf var í molum en Íslendingarnir tveir auk eins útlendings löbbuðu ómeiddir út úr brakinu og þykir það ganga kraftaverki næst. 31.8.2006 09:23
Kveikt í Hampiðjuhúsinu í tvígang Slökkviliðið fór í tvígang að húsi Hampiðjunnar við Brautarholt í Reykjavík þar sem kveikt hafði verið í. Eldurinn var ekki mikill en reykur töluverður og þurfti því tvívegis að reykræsta húsið í gærdag. Hampiðjuhúsið hýsti síðast galleríið og listasmiðjuna Klink og bank en er nú vatns- og rafmagnslaust þar sem til stendur að rífa það. 31.8.2006 09:00
Steinunn Valdís gefur kost á sér í fjórða sætið Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarfulltrúi og fyrrverandi borgarstjóri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir þingkosningar sem fram fer 11. nóvember næstkomandi. 31.8.2006 09:00
Prófkjör hjá Samfylkingunni í Reykjavík 11. nóvember Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur ákvað á fundi sínum í gærkvöld að halda sameiginlegt prófkjör í kjördæmunum vegna komandi þingkosninga 11. nóvember næstkomandi. 31.8.2006 08:00
Fundi iðnaðarnefndar frestað Fundi iðnaðarnefndar Alþingis var frestað upp úr níu í gærkvöldi án þess að niðurstaða fengist. Að sögn Jóhanns Ársælssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, var hart tekist á á fundinum sem byrjaði klukkan hálfþrjú í gær. 31.8.2006 07:44
Steingrímur afboðaður í Kastljós Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, hefur óskað eftir útskýringum frá útvarpsstjóra á því, að hætt var við að hafa Steingrími í Kastljósi í gær, þar sem hann átti að mæta Valgerði Sverrisdóttur, fyrrverandi iðnaðarráðherra. Valgerður sat ein fyrir svörum í þættinum 31.8.2006 16:59
Skilaði Neistanum 1,1 milljón Markheppni leikmanna í síðustu umferðum Landsbankadeilda karla og kvenna skilaði Neistanum, Félagi hjartveikra barna, rúmlega milljón krónum. Landsbankinn hafði heitið á liðin sem leika í úrvalsdeild karla og kvenna í knattspyrnu að skora sem flest mörk en fyrir hvert mark sem skorað var í úrvalsdeild kvenna greiðir Lansdbankinn 30.000 krónur. Upphæðin fyrir markið í karladeildinni var 25.000 krónur. 30.8.2006 23:07
Enn á ný kveikt í tunnu í Hampiðjuhúsinu Enn á ný var kveikt í rusli í Hampiðjuhúsinu í Reykjavík um sjöleytið í kvöld en slökkviliðið hafði áður verið kallað á staðinn klukkan tvö í dag. Slökkviliðið hefur slökkt eldinn en töluverður reykur hafði myndast í húsinu. Húsið var svo reykræst í annað skiptið í dag. 30.8.2006 22:51
Dvalarleyfi metinn eftir aðstæðum Útlendingastofnun segir að útlendingum sé ekki vísað úr landi meti stofnunin að viðkomandi falli undir lagabókstaf sem kveður á um að útlendingar geti fengið dvalarleyfi vegna tengsla við landið eða á grundvelli mannúðarsjónarmiða 30.8.2006 22:19
Látinn laus úr haldi Fangavörðurinn á Litla-Hrauni sem handtekinn var síðasliðinn laugardag vegna fíkniefnasmygls var látinn laus úr haldi í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar á Selfossi telst málið upplýst. 30.8.2006 20:56
Og Vodafone eflir GSM kerfið fyrir Ljósanótt Og Vodafone ætlar að stækka GSM kerfi sitt fyrir Ljósanótt í Reykjanesbæ, sem hefst á fimmtudag og stendur fram á sunnudag. 30.8.2006 20:30
Iðnaðarráðherra vissi ekki af greinagerð Gríms Greinagerð Gríms Björnssonar náði ekki inn á borð iðnaðarráðherra né ríkisstjórnar fyrr en eftir að lög um Kárahnjúkavirkjun voru samþykkt í apríl 2002. Þetta kom frá á fundi iðnaðarnefndar sem nú stendur yfir. 30.8.2006 19:01
Nemendur í Rimaskóla gefa til ABC-Barnahjálpar Nemendur í níunda R í Rimaskóla sýndu í morgun svo ekki verður um villst aðþað býr ýmislegt í ungmennum þessa lands. 30.8.2006 18:30
Valgerður segir Samfylkinguna vera að losa sig frá ábyrgð Valgerður Sverrisdóttir segir stjórnarandstöðuna standa að upphlaupi vegna greinagerðar Gríms Björnssonar, jarðeðlisfræðings um Kárahnjúkavirkjun. Hún segir Samfylkinguna hafa beðið eftir tækifæri til að losa sig frá ábyrgð í málinu. 30.8.2006 18:12
Fjármálavefurinn MSN fer yfir viðskipti Jóns Ásgeirs í Bretlandi Fjármálavefur MSN greinir frá því í dag að ljóshærði víkingurinn, Jón Ásgeir Jóhannesson, hafi á undanförnum árum fjárfest í breskri smásöluverslun fyrir milljarða punda í Bretlandi, nú síðast með kaupum á House of Fraiser fyrir um 47 milljarða króna. 30.8.2006 18:01
Útlit fyrir metfjölda ferðamanna í ár Útlit er fyrir að met verði slegið í fjölda erlendra ferðamanna hér á landi í ár og að í kringum 400 þúsund manns sæki landið heim. Kvörtunum vegna lakrar þjónustu hefur hins vegar fjölgað í ár og hvetur ferðamálastjóri íslenska ferðaþjónustu til þess að vera á varðbergi gagnvart því. 30.8.2006 18:00
Valgerður vissi ekki af athugasemdum Gríms Valgerður Sverrisdóttir fékk ekki athugasemdir Gríms Björnssonar í sínar hendur fyrr en eftir að lög sem heimiluðu Kárahnjúkavirkjun voru samþykkt á Alþingi. 30.8.2006 16:57
Ökumenn kærulausir í sumar Daglega þarf lögreglan í Reykjavík að hafa afskipti af kærulausum ökumönnum sem ekki fara eftir settum reglum. Á meðal þeirra reglna sem þessir ökumenn fara ekki eftir er að spenna beltin, nota handfrjálsan búnað og aka á löglegum hraða. Þá hefur fólk ekið um á nagladekkjum um hásumar og ekið niður hæðarslár. 30.8.2006 15:30
Verkalýðsfélag Húsavíkur vill ekki fórna störfum til að ná niður matvælaverði Verkalýðsfélag Húsavíkur og nágrennis tekur undir ályktun formanna stéttarfélaga innan Starfsgreinasambands og segist ekki tilbúið að fórna íslenskum kjarasamningum til að ná niður matvælaverði. 30.8.2006 14:56
Verð á eldsneyti lækkar Verð á eldsneyti lækkaði í morgun og er lítrinn nú kominn í 124 krónur og tuttugu aura. Það var Essó sem reið á vaðið og lækkaði verð á bensíni um tvær krónur og tíu aura. 30.8.2006 14:52
Eldur í gamla Hampiðjuhúsinu Eldur kom upp í gamla Hampiðjuhúsinu í Brautarholti rétt fyrir klukkan tvö í dag. Kviknað hafði í rusli á annarri hæð hússins og var mikill reykur. Slökkviliðið slökkti eldinn og vinnur nú við að reykraæsta. Ekki er vitað hve miklar skemmdir urðu í húsinu. 30.8.2006 14:17