Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fleiri íslenskir friðargæsluliðar á leið til Sri Lanka Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, tilkynnti utanríkismálanefnd Alþingis í morgun, að Íslendingar myndu halda áfram friðargæslustörfum á Sri Lanka. Íslenskum friðargæsluliðum verður fjölgað úr fjórum til fimm í tíu. 18.8.2006 09:36
Handteknir vegna fíkniefnamála Lögreglumenn úr Hafnarfirði og Kópavogi fóru aftur í fíknefnaleit í gærkvöldi, eftir að hafa handtekið sex menn vegna fíkniefnamála í fyrrakvöld, og handtóku aðra sex í gærkvöldi og í nótt. 18.8.2006 09:15
Og Vodafone eflir GSM kerfi sitt Og Vodafone ætlar að efla GSM kerfið í Stykkishólmi um þessa helgi en þá fara fram Danskir dagar í bænum. Hátíðin, sem hefst í dag og lýkur á sunnudag, fer nú fram í 13. sinn. Danskir dagar hefur verið vel sóttir síðustu árin og með eflingu GSM kerfis Og Vodafone í Stykkishólmi verður hægt að tryggja viðskiptavinum enn betri þjónustu um helgina. 18.8.2006 08:30
Bifhjólamaður á of miklum hraða Lögreglan í Reykjavík stöðvaði bifhjólamann á Kjalarnesi í gær eftir að lögreglan í Borgarnesi hafði mælt hann á eitthvað á þriðja hundrað kílómetra hraða í grennd við bæinn. Þrátt fyrir þennan mikla hraða hóf Borgarneslögreglan eftirför, en maðurinn hvarf þeim sjónum. Var þá haft samband við Reykjavíkurlögregluna, sem gerði manninum fyrirsát á Kjalarnesi. Það skýrist í dag þegar lögreglan fer nánar yfir mælitæki sín úr lögreglubílnum, hvort þetta er mesti hraði, sem mælst hefur hér á landi til þessa. 18.8.2006 08:25
Avion gerir samstarfssamning við Advent Air Limited Avion Group hefur gert samstarfssamning við Advent Air Limited sem er ástralskt flugrekstrarfélag. Samstarf fyrirtækjanna felst í því að dótturfélög AvionGroup, Star Airlines í Frakklandi og Star Europe í Þýskalandi leigja allt að fjórar Airbus A320 flugvélar til dótturfélags Advent Air, Skywest Ltd. 17.8.2006 22:44
Fagaðilar óttast breytingar Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, segir viðbrögð fagaðila við nýju leikskólaráði lýsa ótta við breytingar. Leikskólinn muni styrkjast við breytinguna. 17.8.2006 22:15
Bænastund í Sandgerði Fjöldi fólks kom saman í Safnaðarheimilinu í Sandgerði í kvöld til að minnast þeirra tveggja sem létust í bílslysi í gær. Mikil samkennd ríkti á bænastundinni og var víðsvegar flaggað í hálfa stöng í bænum. 17.8.2006 21:51
Nöfn mannanna sem létust í gær Mennirnir sem létust í bílslysi í gær heita Jóhann Fannar Ingibjörnsson og Guðmundur Adam Ómarsson. Jóhann Fannar var 34 ára og lætur eftir sig konu og þrjú börn. Hann var búsettur í Njarðvík. Guðmundur Adam var 21 árs og var búsettur í Sandgerði. 17.8.2006 21:10
Vísitala íbúðaverðs lækkar Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,7% milli júní- og júlí-mánaða. Vísitalan fyrir sérbýli lækkaði meira en fyrir fjölbýli. Þetta er í fyrsta sinn í tæpt ár sem vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu lækkar milli mánaða. Þetta kemur fram á vef Fasteignamats ríkisins, www.fmr.is. 17.8.2006 20:11
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs hættir rekstri Þrátt fyrir mikla uppbyggingu á Austurlandi er eitt rótgrónasta verktakafyrirtæki fjórðungsins komið í rekstrarstöðvun. Um þrjátíu starfsmenn voru sendir heim og þeim tilkynnt að uppsagnarbréf væri á leiðinni. 17.8.2006 20:06
KS gerir tilraun með rafrænt kjötmat Kindaskrokkar, sem eru metnir með því að láta þá renna í gegnum eftirlitshlið, eins og þau sem flugfarþegar ganga í gegnum á flugvöllum, eru ekki fjarlæg framtíð. 17.8.2006 20:02
KÍ fordæmir vinnubrögð borgarstjórnar Kennarasamband Íslands fordæmir vinnubrögð meirihluta borgarstjórnar við stofnun nýs leikskólaráðs. Í ályktun stjórnar KÍ segir að ekkert samráð hafi verið haft við fagaðila og ákvörðunin samræmist ekki stefnu þeirra um samræmingu milli skólastiga. Stjórnin segist vænta þess að borgarstjórn endurskoði ákvörðun sína. 17.8.2006 19:22
Flugmálastjóri segir ekki rétt að flugumferðastjóri hafi verið neyddur til vinnu Þorgeir Pálsson, flugmálastjóri sendi frá sér bréf í dag, til Félags íslenkra flugumferðastjóra, þar sem hann segir rangt að flugumferðastjóri, sem tilkynnt hafði sig veikan, hafi verið neyddur til vinnu. 17.8.2006 19:11
Mótmælendur ákærðir og krafðir bóta Tuttugu mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar voru ákærðir í dag vegna aðgerða á virkjanasvæðinu, í húsnæði Hönnunar og á byggingarsvæði ALCOA í gær.Jafnframt lagði Alcoa fram bótakröfu upp á tæplega þrjátíu milljónir króna. 17.8.2006 18:58
Full ástæða er til að óttast sprungumyndun Full ástæða er til að óttast að sprungur geti myndast í Kárahnjúkastíflu þegar byrjað verður að fylla Hálslón í haust. Þetta segir prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands. 17.8.2006 18:51
Litháar vilja þakka fyrir stuðninginn Von er á tæplega tvöhundruð Litháum til Íslands nú um helgina, en þeir eru á leið hingað til lands til að votta Íslendingum þakklæti fyrir stuðninginn í sjálfstæðisbaráttu baltnesku landanna. 17.8.2006 18:49
Aukin áhersla á flug til Evrópu Í vetraráætlun Icelandair liggur fyrir aukin áhersla á flug til áfangastaða í Evrópu en að sama skapi mun draga lítilega úr flugi til Bandaríkjanna. 17.8.2006 18:39
Samkomulag um fyrirtækið Framvegis Verzlunarskóli Íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja undirrituðu í dag samkomulag um stofnun fyrirtækis sem á að sjá um rekstur Framvegis, miðstöðvar um símenntun. 17.8.2006 17:59
Hæstiréttur dæmir mann í gæsluvarðhald fyrir kókaínsmygl Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem talinn er viðriðinn stórfellt kókaínsmygl til landsins. 17.8.2006 17:55
Mótmælendur ákærðir Í dag voru þingfestar í héraðsdómi Austurlands fjórar ákærur á hendur nítján manns sem mótmælt hafa virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka og byggingu álvers Alcoa á Reyðarfirði að undanförnu. 17.8.2006 17:43
Seðlabankastjóri setur ekki lög Seðlabankastjóri hefur ekki vald til stefnumótunar varðandi Íbúðalánasjóð, segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins. Hann segir að Framsóknarmenn muni standa fast á því að ákvæði í stjórnarsáttmála um sjóðinn standi. 17.8.2006 17:30
Bænastund í Safnaðarheimilinu í Sandgerði Klukkan sex í kvöld hefst bænastund í Safnaðarheimilinu í Sandgerði til að minnast þeirra tveggja sem létust í bílslysi í gærkvöldi rétt fyrir utan Sandgerði. 17.8.2006 17:28
Nafn stúlkunnar sem lést í gær Stúlkan sem lést í umferðarslysi á Kjalarnesi í gær hét Linda Björg Rafnsdóttir, til heimilis að Klukkurima 49 í Grafavogi. Hún var sextán ára gömul. 17.8.2006 17:20
Slapp vel eftir útafkeyrslu Kona var flutt með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Fossvogi eftir útafkeyrslu um klukkan tvö í dag. Slysið átti sér stað á Reykjanesbrautinni rétt austan við Voga. Konan var ein í bílnum. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild er konan ekki mikið slösuð og á heimleið. Bíllinn er mikið skemmdur og var fluttur burt með kranabíl. 17.8.2006 17:12
Fjalla þarf um skýrslu FÍB Jón Bjarnason, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í samgöngunefnd, hefur ritað Guðmundi Hallvarðssyni, formanni samgöngunefndar, bréf þess efnis að nefndin komi saman til að fjalla um nýútkomna skýrslu Félags íslenskra bifreiðaeigenda. 17.8.2006 16:45
Gert upp á staðnum Lögreglan í Árnessýslu býður fólki upp á að ganga frá sektum sínum á fljótlegan og einfaldan hátt. Svo virðist sem ökumenn, sem teknir eru fyrir hin ýmsu umferðarlagabrot á þjóðvegum landssins, fagni því að geta gengið frá málinu á staðnum og greitt sektina með debet- eða kreditkorti. 17.8.2006 16:15
Hagfræðingar Alþýðusambandsins telja ríkið bera ábyrgð Hagfræðingar Alþýðusambandsins telja ríkisvaldið bera mikla ábyrgð á þenslunni í efnahagslífinu, með því að hafa ekki dregið úr framkvæmdum á sama tíma og ráðist var í stórfellda uppbyggingu stóriðju. 17.8.2006 15:13
Alcoa krefst 26 milljóna fyrir vinnutap Kæra Alcoa Fjarðaráls og skaðabótakrafa á hendur mótmælendum sem réðust inn á byggingasvæði álversins við Reyðarfjörð í gær var tekin fyrir í Héraðsdómi Austurlands í dag. Alcoa fer fram á 26 milljónir króna til að bæta fyrir tap sem varð vegna vinnustöðvunar meðan verið var að fjarlægja mótmælendurna. 17.8.2006 14:45
14 mótmælendur kærðir Álfyrirtækið Alcoa í Reyðarfirði hefur formlega kært 14 mótmælendur, sem ruddust inn á lokað athafnasvæði fyrirtækisins í gærmorgun til að mótmæla framkvæmdum þar. Skaðabótakröfur gætu numið allt að 40 milljónum króna. 17.8.2006 12:15
Bílslys í rannsókn Rannsóknanefnd umferðaslysa, tvö lögregluembætti og rannsóknamenn tryggingafélaga rannsaka tildrög bílslysanna tveggja , sem urðu í gær, þar sem tveir karlmenn og ein stúlka létust. 17.8.2006 12:01
Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins þekkjast boð Ómars Ragnarssonar Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa þegið boð Ómars Ragnarssonar um að skoða Kárahnjúkasvæðið undir leiðsögn Ómars, að sögn Morgunblaðsins. Þá hafa yfirmenn NFS, Ríkisútvarpsins og Blaðsins einnig þekkst boð Ómars, en frestur til að þiggja það rann út í gær. 17.8.2006 11:30
Varar við íshellunum við Hrafntinnusker Kunnur göngugarpur og höfundur leiðsögubóka ráðleggur göngufólki að hætta sér ekki í íshellana við Hrafntinnusker þar sem erlendur ferðamaður lést í gær. Hann segir að fólk verði að vera við öllu búið í ferðum um hálendi Íslands. 17.8.2006 11:30
Alþjóðasamtök flugumferðarstjóra hafa áhyggjur af vaktakerfi Alþjóðasamtök flugumferðastjóra lýsa áhyggjum vegna nýs vaktakerfis íslenskra flugumferðastjóra. Flugumferðarstjórar hafa neitað að vinna yfirvinnu frá því nýtt vaktakerfi var innleitt hjá Flugmálastjórn um miðjan marsmánuð. 17.8.2006 11:00
Skarst á kviðarholi Sjómaður um borð í íslenskum togara skarst á kviðarholi á sjöunda tímanum í gærkvöldi, þegar togarinn var að veiðum á Halamiðum, út af Vestfjörðum. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti hann og mun sjómaðurinn ekki í lífshættu. 17.8.2006 10:45
Símtöl í þjónustuver OR hljóðrituð Öll símtöl við þjónustuver Orkuveitu Reykjavíkur eru hljóðrituð, meðal annars til þess að vernda öryggi starfsmanna, að sögn Eiríks Hjálmarssonar upplýsingafulltrúa Orkuveitunnar, í viðtali við Fréttablaðið. 17.8.2006 10:15
Lokað fyrir umferð í suðurátt eftir Vesturlandsvegi Vegna malbikunar verður lokað fyrir umferð í suðurátt eftir Vesturlandsvegi, þjóðvegi númer eitt, frá Grundartangavegi að Akrafjallsvegi við Hvalfjarðargöng í dag og næstu tvo daga. 17.8.2006 10:00
Krónan styrkist Krónan styrktist um liðlega eitt prósent eftir tilkynningu Seðlabankans um stýrivaxtahækkun í gær. Hún hefur nú styrkst um átta prósent frá því í lok júní. 17.8.2006 09:45
ASÍ og SA segja stýrivaxtahækkun misráðna Bæði Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins telja vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í gær misráðna. Seðlabanki Íslands hækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig, í 13,5%. Í kjölfarið hækkaði Landsbankinn vexti og síðar Sparisjóðirnir og Glitnir. 17.8.2006 09:30
Maður í haldi vegna nauðgunartilraunar Maður á þrítugsaldri viðurkenndi við yfirheyrslur hjá lögreglunni í Reykjavík í gær að hafa gert tilraun til að nauðga ungri konu, þegar hún var á leið til vinnu sinnar í Breiðholti aðfaranótt fimmtudags, fyrir viku. Árásin var hrottaleg. Ekki liggur fyrir hvort krafist verður gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manninum. 17.8.2006 09:15
Hald lagt á fíkniefni og vopn Sex menn á þrítugsaldri voru handteknir í sameiginlegri aðgerð lögreglunnar í Hafnarfirði og Kópavogi, eftir að talsvert af fíkniefnum og vopn fundust við húsleilt í gærkvöldi. 17.8.2006 08:45
Þrír létust í umferðarslysum Þrír létust í umferðarslysum í gær. Tuttugu og tveggja ára karlmaður, sem var farþegi í sendibíl, sem lenti í hörðum árkestri við fólksbíl á Garðskagavegi , rétt utan við Sandgerði um sjöleitið í gærkvöldi, lést skömmu eftir að sjúkraflutningamenn komu með hann á Slysadeild Landsspítalans. Ökumaður sendibílsins er talinn hafa látist samstundis. 17.8.2006 08:30
Mistök hjá Seðlabanka Íslands Bæði Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins telja vaxtahækkun Seðlabanka Íslands í dag misráðna. ASÍ spáir harðri lendingu á næsta ári og SA segja bankann vinna gegn aðgerðum aðila vinnumarkaðarins. 16.8.2006 22:45
Hvetur göngufólk að búa sig vel Páll Ásgeir Ásgeirsson, blaðamaður og höfundur leiðsögubóka um hálendið, ráðleggur göngufólki að hætta sér ekki í íshellana við Hrafntinnusker þar sem erlendur ferðamaður lést í morgun. Hann segir að fólk verði að vera við öllu búið í ferðum um hálendi Íslands. 16.8.2006 22:19
Banaslys á Garðskagavegi Einn lést og tveir eru alvarlega slasaðir eftir bílslys á Garðskagavegi rétt norðan við Sandgerði. 16.8.2006 22:00
Alvarlegar athugasemdir Bandarískur vatnsaflsverkfræðingur gerir alvarlegar athugasemdir við Kárahnjúkastíflu og óttast að hún sé ótraust. Þrjár stíflur sömu tegundar, annars staðar í heiminum, leka og ein þeirra er ónýt. 16.8.2006 21:18