Fleiri fréttir

Amfetamín flæðir til landsins

Sprenging hefur orðið í innflutningi á amfetamíní ef marka má tölur um magnið sem yfirvöld hafa lagt hald á undanfarið. Frá áramótum hefur lögregla og tollgæsla tekið 60 kíló af amfetamíni í nokkrum stórum málum - en til samanburðar fundust 16 kíló allt árið í fyrra. Löggæsluyfirvöld telja engan vafa leika á því að þessi innflutningur sé hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.

Slasaðist í rallý

Ökumaður í rallaksturskeppni í Skagafirði slasaðist í dag þegar hann ók út af sérleið. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur, og er hugsanlega hryggbrotinn. Tuttugu mínútum eftir slysið slasaðist annar rallökumaður þegar bíll hans flaug yfir hæð og lenti harkalega á veginum.

Boðar bjarta framtíð

Stefán Eiríksson nýskipaður lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins boðar betri löggæslu með sameiningu embætta.

Skipulögð glæpastarfsemi

Sprenging hefur orðið í innflutningi á amfetamíní ef marka má tölur um magnið sem yfirvöld hafa lagt hald á undanfarið. Frá áramótum hefur lögregla og tollgæsla tekið 60 kíló af amfetamíni í nokkrum stórum málum - en til samanburðar fundust 16 kíló allt árið í fyrra. Löggæsluyfirvöld telja engan vafa leika á því að þessi innflutningur sé hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.

Ódýr leiga

Stefán Kjærnested, eigandi 80 fermetra íbúðar, sem sjö pólskir starfsmenn Atlantsskipa greiddu 245 þúsund króna mánaðarleigu fyrir, segir það ódýra leigu.

Slagsmál á Írskum dögum

Ólæti, ofbeldi og ölvun setti svip sinn á Írska daga á Akranesi í gærnótt. Fjöldi unglinga eru í bænum og ætlar lögreglan að herða eftirlit fyrir kvöldið.

Skemmdarverk í miðbænum

Þrír menn gengu berserksgang á Skólavörðustíg í nótt og brutu rúður í átta bílum. Eigandi eins bílsins segir ófremdarástand ríkja í bænum um helgar og vill fá eftirlitsmyndavélar í götuna.

Ekki fundað um varnarmál

Rætt var um framtíðarfyrirkomulag á vörnum landsins á fundi viðræðunefnda Íslands og Bandaríkjanna sem lauk í Þjóðmenningarhúsinu í gærkvöld. Ekki þótti ástæða til þess að funda áfram í dag.

Fingrabendingar í Pólverjamáli

Leigusali Pólverjanna, sem þurftu að greiða um 250.000 krónur á mánuði fyrir um 100 fermetra íbúð, neitar að tjá sig. Í gærkvöldi reyndi hann að koma ábyrgðinni yfir á Atlantsskip en því hafnar skipafélagið alfarið.

Foreldrar fá ekki greiðslur

Foreldrar barna sem greinast með langvinna sjúkdóma fá ekki greiðslur frá tryggingarfélögum ef börnin greinast fyrir þriggja mánaða aldur.

Enginn viðræðufundur í varnarmálum á morgun

Viðræðunefndir Bandaríkjamanna og Íslendinga um varnarmálin hafa setið á fundi í allan dag. Fundinum lauk á sjöunda tímanum í kvöld. Enginn fundur verður á morgun eins jafnvel stóð til.

Avion sagt hafa hagrætt bókhaldi

Dótturfyrirtæki Avion í Bretlandi, Excel Airways, er sakað um að hafa hagrætt bókhaldi sínu á síðasta ári þannig að milliuppgjör sýndi milljarði króna betri stöðu en raunin var. Milliuppgjörið var lagt til grundvallar í hlutafjárútboði Avion undir lok síðasta árs. Avion hefur nú leiðrétt ársuppgjör dótturfyrirtækisins.

Tilboð í flugleiðir innanlands opnuð

Tilboð í ríkisstyrkt áætlunarflug voru opnuð í húsakynnum Vegagerðarinnar í gær. Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboð í tvær flugleiðanna, Sauðárkrók og Hornafjörð. Flugfélagið Ernir átti lægsta tilboð í flug á Bíldudal og Gjögur og Flugfélag Íslands átti lægsta tilboð í Norðursvæði, það er Vopnafjörð, Þórshöfn og Grímsey.

Vilja endurráðningu án skilyrða

Læknafélag Íslands býður Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi, að leggja sitt að mörkum við að semja um starfsskyldur tveggja lækna sem sagt hefur verið upp störfum, ef spítalinn endurræður þá án skilyrða.

Fá ekki greiðslur frá tryggingarfélögum

Foreldrar barna sem greinast með langvinna sjúkdóma fá ekki greiddar greiðslur frá tryggingarfélögum ef börnin greinast fyrir þriggja mánaða aldur. Margrét Össurardóttir móðir, tíu mánaða langveikrar stúlku fær engar launagreiðslur í veikindum barnsins vegna þess að það greindist með sjúkdóms sinni tveimur mánuðum áður en nýtt frumvarp um launagreiðslur foreldrar í veikindum barna tók gildi.

Samstaða um forgang vegaframkvæmda á Vestfjörðum

Skyndilega virðist orðin samstaða um að vegaframkvæmdir á Vestfjörðum og Norðausturlandi eigi að hafa forgang. Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra og fyrrverandi þingmaður Vestfjarðakjördæmis.

Stefán Eiríksson nýr lögreglustjóri

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hefur skipað Stefán Eiríksson, skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, í embætti lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins frá og með 15. júlí næst komandi. Um er að ræða nýtt embætti sem varð til með sameiningu nokkurra lögregluembætta á höfuðborgarsvæðinu, þegar lögregluembættum landsins var fækkað.

Nýr framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs

Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins samþykkti á fundi sínum í gær, 6. júlí, að ráða Finnboga Jónsson, sem framkvæmdastjóra sjóðsins. Finnbogi er fæddur á Akureyri 18. janúar 1950 . Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1970, fyrrihlutaprófi í eðlisverkfræði frá HÍ 1973, lokaprófi í eðlisverkfræði frá Tækniháskólanum í Lundi í Svíþjóð 1978 og lokaprófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Lundi sama ár.

Páll Bragi Kristjónsson hættur hjá Eddu

Páll Bragi Kristjónsson, sem verið hefur forstjóri Eddu útgáfu í þrjú ár og stjórnarformaður félagsins í eitt ár þar á undan, hefur ákveðið að láta af störfum. Edda hefur um árabil átt við erfiðan rekstur að etja, þótt verulega hafi miðað í rétta átt síðustu ár, að sögn stjórnenda.

Ræða ráðstöfun mannvirkja varnarliðsins

Ráðstöfun mannvirkja á Keflavíkurflugvelli er aðal umræðuefnið í varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna, sem var fram haldið í Þjóðmenningarhúsinu í morgun, eftir hlé síðan í apríl. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, þótt þetta sé nefnt Varnarviðræður.

Símafyrirtækin hefðu getað stöðvað tölvuþrjóta

Íslensk símafyrirtæki hefðu getað komið í veg fyrir að erlendir tölvuþrjótar rændu umtalsverðum fjárhæðum úr heimabanka Íslendings. Þetta segir Friðrik Skúlason tölvufræðingur sem rannsakaði málið upp á eigin spítur og telur sig hafa komið upp um tölvuþrjótin.

Gripnir með 12 kíló af amfetamíni

Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu.

Sigurjón hættur á Fréttablaðinu

Sigurjón M Egilsson, fréttaritstjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Hann segist kveðja Fréttablaðið með söknuði. Það var á fréttafundi snemma í morgun sem Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu að hann hyggðist söðla um og taka við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón, sem er gamall sjómaður, hefur staðið í stafni Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins.

Enginn varnarsamningur

Varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna hófust í Þjóðmenningarhúsinu í dag, eftir hlé síðan í apríl. Fundurinn hófst klukkan níu í morgun. Ekki er búist við að Bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, heldur verði frekar rætt um ráðstöfun mannvirkja og annarra eigna á varnarsvæðinu. Þar eru meðal annars rúmlega 800 íbúðir og eru yfir 500 þeirra nú þegar tómar. Þá eru þar margvíslegar þjónustubyggingar auk hernaðarmannvirkja og slökkvibifreiða flugvsallarins en ekki hefur rætt um varnarsamning eins og vonir stóðu til.

Tólf kíló af fíkniefnum fundust í Norrænu

Lögreglu-og tollgæslumenn fundu tólf kíló af amfetamíni falin í bíl, sem kom með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar í gærmorgun og er þetta lang mesta magn, sem vitað er til að reynt hafi verið að smygla með skipinu í einu. Tveir Litháar, sem voru á bílnum voru handteknir og verður krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir þeim í dag. Óskar Bjartmars, yfirlögregluþjónn vill ekki staðfesta að ábending hafi leitt til fundarins, en eftir að efnið fannst naut tollgæsla og lögregla heimamanna, aðstoðar manna frá Ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli og tollgæslunnar i Reykjavík, sem staddir voru eystra vegna skipakomunnar.

Sluppu eftir fjölda velta

Tvær stúlkur sluppu lítið meiddar þegar bíll þeirra valt undir Ingólfsfjalli austanverðu á sjöunda tímanum í morgun og valt nokkrar veltur. Þær komust sjálfar út úr bílflakinu en voru fluttar á Slysadeild Borgarspítalans til aðhlynningar. Báðar voru í bílbeltum. Sú sem ók mun hafa misst bílinn út fyrir slitlagið og reynt að rykkja honum inn á aftur, en við það snérist bíllinn og valt.-

Ellefu manns handteknir vegna fíkniefna

Ellefu manns á aldrinum 16 til 35 ára voru handteknir í Kópavogi og Hafnarfirði í nótt í tengslum við átta fíkniefnamál, sem upp komu í sameiginlegu átaki lögreglu í báðum bæjunum. Lagt var hald á anfetamín, hass, marijuana, kókaín, E-pillur og ýmis lyf, auk vopna. Flest málin voru svonefnd neyslumál, en í örðum tilvikum leikur grunur á sölu og dreyfingu. Ekki er lengra síðan en í fyrrinótt, að fjögur fíkniefnamál komu upp í Kópavogi.-

Ræða um ráðstöfun íbúða á varnarsvæðinu

Varnarviðræðum Íslendinga og Bandaríkjanna verður fram haldið í Þjóðmenningarhúsinu í dag, eftir hlé síðan í apríl. Ekki er búist við að bandaríkjamenn leggi fram varnaráætlun fyrir Ísland á fundinum, heldur verði frekar rætt um ráðstöfun mannvirkja á varnarsvæðinu. Þar eru meðal annars rúmlega 800 íbúðir og eru yfir 500 þeirra nú þegar tómar. Þá eru þar margvíslegar þjónustubyggingar auk hernaðarmannvirkja.-

Símafyrirtækin brugðust

Verulegu fé var nýverið stolið úr heimabanka íslendings með því að bandarískir tölvuþrjótar sendu SMS skilaboð til mannsins, sem hann fór eftir, en þannig komust þeir inn í tölvu mannsins og gátu millifært út úr einkabanka hans. OgVodafone og Síminn hefðu getað komið í veg fyrir þetta, segir Friðrik Skúlason, tölvufærðingur, en hann rekur fyrirtæki, sem sérhæfir sig í Vírusvörnum. Lögreglan hefur málið til rannsóknar .

Sigurjón M. Egilsson hættur sem fréttaritstjóri Fréttablaðsins

Sigurjón M Egilsson, fréttastjóri Fréttablaðsins, hætti störfum þar í morgun og tekur við ritstjórn Blaðsins. Sigurjón tilkynnti samstarfsfólki sínu þetta á fundi í morgun. Mikill sjónarmissir verður af Sigurjóni sem verið hefur fréttaritstjóri Fréttablaðsins allt frá endurreisn blaðsins. Þá er ljóst að samkeppni á fríblaðsmarkaðnum mun harðna mjög komu Sigurjóns á Blaðið. Samkvæmt heimildum NFS mun Sigurjóni verða gefna frjálsar hendur með það hvernig hann þróar Blaðið. Ekki liggur fyrir hvað verður um Ásgeir Sverrisson, núverandi ritstjóra Blaðsins.

Drengur missti meðvitund við inntöku helíums

Drengur missti meðvitund og hlaut áverka á höfði eftir að hafa leikið sér að því að anda að sér helíum. Sjóvá Forvarnarhús vill brýna fyrir foreldrum að útskýra fyrir börnum sínum hætturnar sem fylgt geta misnotkun á helíumblöðrum.

Heiðars Þórarins minnst í Heiðmörk

Minningarathöfn var haldin í Heiðmörk í kvöld um látna mótorhjólamenn. Mikill fjöldi fólks var samankominn á vökunni og langflestir á hjólum. Athöfnin hófst um níuleytið en tilefni athafnarinnar var lát Heiðars Þórarins Jóhannssonar í bifhjólaslysi í Öræfasveit annan júlí síðastliðinn.

Offituaðgerðir borga sig fyrir samfélagið

Ríkið sparar verulega á offituaðgerðum. Aðgerðin borgar sig upp á nokkrum árum, þrátt fyrir að henni fylgi fimm vikna meðferð hjá hópi sérfræðinga og í aðgerðinni sjálfri sé notast við rándýr einnota tæki.

Ferðamaður sleit vöðva í Jökulsárgljúfri

Erlend kona komst í hann krappann í Jökulsárgljúfri um hádegisbilið í dag. Hún var með gönguhópi rétt norðan Dettifoss þegar hún datt og sleit vöðva. Björgunarsveitir voru kallaðar út og komu konunni undir læknishendur. Að sögn lögreglunnar á Húsavík fóru um 30 björgunarsveitarmenn á staðinn.

Bílvelta á Uxahryggjum

Bílvelta varð nú laust eftir klukkan fjögur á Uxahryggjum ofan við Þingvelli. Talið er að bíllinn hafi farið tvær veltur og var sjúkrabíll sendur á staðinn. Farþegarnir tveir, erlendir ferðamenn, reyndust þó einungis lítilsháttar meiddir.

Davíð Oddsson segir samkomulag aðila vinnumarkaðarins auka á verðbólguþrýstinginn

Verðbólguhorfur hafa versnað að mati Seðlabanka Íslands, sem telur því nauðsynlegt að hækka stýrivexti um 0,75 prósentur. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir nýlegt samkomulag aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins auka á verðbólguþrýstinginn og hætta sé á að launahækkanir til hinna lægst launuðu skríði upp allan launastigann.

Reykjavíkurflugvöllur 60 ár undir íslenskri stjórn

Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946. Þá tók Ólafur Thors, forsætisráðherra, við flugvellinum við athöfn. Nú er að hefjast athöfn á flugvellinum til að minnast þessara tímamóta. Skömmu fyrir fimm munu flugvélar fljúga lágflug yfir flugvallarsvæðið og verður sýnt frá því á NFS í fimmfréttum.

Faxaflóahafnir dæmdar til að greiða starfsmanni rúmlega 5 milljónir í skaðabætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Faxaflóahafnir hf. til að greiða Sigurði Ólafssyni skaðabætur vegna líkamstjóns sem hann varð fyrir við vinnu sína. Sigurður var þann 20. júlí 2004, sem starfsmaður hjá Skipaþjónustu Reykjavíkurhafnar, að binda olíuskip við Eyjagarð. Landfesti, sver kaðall með nælonkjarna slóst í Sigurð með þeim afleiðingum að hann hlaut höfuðáverka, meiddist í andliti og ökklabrotnaði.

Ný tegund símaþjónustu á markaðinn

Ný tegund símaþjónustu býður upp á að hægt er að hafa sama símanúmerið hvar sem maður er staddur í heiminum. Viðskiptavinur fær íslenskt símanúmer sem í öllum atriðum er sambærilegt hefðbundnu símanúmeri aðeins óháð staðsetningu. Þannig greiða viðskiptavinir fast mánaðargjald fyrir þjónustuna en ekki mínútugjald fyrir símtöl í heimasíma.

Grikklandsforseti í veðurblíðu á Bessastöðum

Karolos Papoulos Grikklandsforseti taldi sig vera kominn til Eyjahafsins, slík var veðurblíðan á Bessastöðum í morgun þegar íslensku forsetahjónin tóku á móti forsetanum og föruneyti hans. Grikklandsforseti er hér á landi í opinberri heimsókn í boði Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Grískii forsetinn hafði á orði að spegilsléttur sjórinn og dimmblá fjöllin minntu hann helst á eyjarnar í Eyjahafinu og íslenski starfsbróðir hans virtist sama sinnis.

Okrað á Pólverjum sem bjuggu sjö saman í íbúð

Sjö Pólverjar sem bjuggu saman í 80 fermetra íbúð greiddu á mann 35 þúsund krónur í leigu á mánuði, eða 245 þúsund krónur samanlagt. Mennirnir leita nú réttar síns eftir að leigusali þeirra lét bera eigur þeirra út á meðan þeir voru í vinnu.

Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur

Leið S5 hjá Strætó leggst af í fjórar vikur vegna manneklu frá og með morgundeginum. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur gengið erfiðlega að fá afleysingarbílstjóra til starfa hjá Strætó bs yfir sumarleyfistímann, sem er bein afleiðing mikillar þennslu í þjóðfélaginu og manneklu á vinnumarkaði. Þrátt fyrir það hefur tekist að halda öllum leiðum Strætó gangandi til þessa, segir í tilkynningu frá Strætó b.s.

650 tonna krani fluttur til Reyðarfjarðar

Stórt flutningaskip kom til Reyðarfjarðar í morgun með uppskipunarkrana, sem vegur 585 tonn, eða talsvert meira en fullhlaðin júmbóþota. Þetta mun vera þyngsti einstaki hlutur sem fluttur hefur verið til landsins.

Sextíu ár liðin frá því Íslendingingar fengu yfirráð yfir Reykjavíkurflugvelli.

Í dag eru sextíu ár liðin frá því bresk hermálayfirvöld afhentu Íslendingum Reykjavíkurflugvöll. Bretar hófu byggingu Reykjavíkurflugvallar strax við hernám Íslands árið 1940. Þótt Bandaríkjamenn hafi leyst þá af við varnir Íslands áður en seinni heimsstyrjöldinni lauk, fóru Bretar með stjórn Reykjavíkurflugvallar þar til 6. júlí 1946.

Sjá næstu 50 fréttir