Fleiri fréttir

15 - 20 urðu fyrir klórgasmengun í sundlauginni á Eskifirði

15 til 20 manns urðu fyrir klórgasmengun í sundlauginni á Eskifirði í dag. Allt tiltækt lögreglu- og sjúkralið á Eskifirði og nágrenni hefur verið sent að sundlauginni vegna lekans. Mjög margt var í lauginni þegar lekans varð vart og voru þó nokkrir fluttir í sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Eskifirði sem og til Norðfjarðar.

Harma fyrirhugaðar breytingar á skattalögum

Frjálshyggjufélagið hefur sent frá sér ályktun þar sem það harmar þá fyrirætlun ríkisstjórnarinnar að breyta skattalögum þannig að hærra hlutfall tekna fólks renni í ríkisstjórn eftir næstu áramót en núgildandi lög gera ráð fyrir. Félagið segir þá þingmenn sem sækja umboð sitt til kjósenda sem eru hlynntir lækkun tekjuskattsprósentunnar verða að hafa í huga fyrir hvern þeir sitja á þingi þegar þeir greiða atkvæði um hækkunartillöguna.

Hópeitrun í sundlaug á Eskifirði

Hópeitrun varð í sundlauginni á Eskifirði vegna klórleka. Fólk sem varð fyrir eitrun nýtur aðhlynningar á heilsugæslustöðinni.

Erfiðara að selja íbúðir í höfuðborginni

Lengri tíma tekur að selja íbúðir á höfuðborgarsvæðinu en áður og fleiri nýjar íbúðir standa auðar. Greiningadeild Glitnis spáir fimm til tíu prósenta lækkun að nafnvirði á húsnæðisverði á næstu tólf til tuttugu og fjórum mánuðinum.

Leiðréttingu á réttarstöðu samkynhneigðra loks náð

Hvergi í heiminum njóta samkynhneigðir eins mikilla lagalegra réttinda og verndar og á Íslandi. Ný lög um réttarstöðu samkynhneigðra sem samþykkt voru í byrjun mánaðarins taka gildi í dag. Af því tilefni efna Samtökin '78 til hátíðarsamkomu í Listasafni Reykjavíkur í dag.

Uppsalir meðal jarða til leigu

Tólf umsækjendur voru um jarðir í Selárdal við Arnarfjörð sem landbúnaðarráðuneytið auglýsti til leigu í vor. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að um sé að ræða jarðirnar Uppsali, þar sem einbúinn Gísli Gíslason bjó, Brautarholt þar sem var fyrrum íbúðarhús Samúels Jónssonar listamanns og bæinn Kolbeinsskeið í Selárdal, ásamt fyrrverandi íbúðarhúsi á Melstað og Selárdal. Jörðunum verður úthlutað í vor og er leigutíminn til fimmtíu ára. Íbúðarhúsin eru þó flesti í slæmu ásigkomulagi og þarfnast mikilla endurbóta.

Actavis varð af kaupum á Pliva

Actavis fær ekki að kaupa króatíska lyfjafyrirtækið Pliva og verður þar með ekki þriðja stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi, eins og stefnt var að. Stjórn króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva hefur tilkynnt kauphöllum að hún leggi það til við eigendur, að ganga til samninga við bandaríska lyfjafyrirtækið Barr, um sölu á fyrirtækinu, en íslenska lyfjafyrirtækið Actavis sóttist líka eftir kaupunum.

Ríkisstjórnin ákveður aðgerðir til að draga úr verðbólgu

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka lánshlutfall Íbúaðaláasjóðs tímabundið úr 90% í 80% og hámarkslán úr 18 milljónum króna í 17 milljónir króna. Þetta er meðal aðgerða sem ríkisstjórnin hefur fallist á til að stuðla að því markmiði að hjöðnun verðbólgu gangi eftir sem fyrst. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar voru ákveðnar á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag.

Systkini hlaupa nakin til stuðnings PETA

Íslensk systkini, Hanna og Tryggvi Guðmundsbörn, eru meðal þeirra mörghundruð stuðningsmanna dýraverndunarsamtaknna PETA sem hyggjast hlaupa nakin um götur Pamplona á Spáni 5. júlí til að mótmæla árlegu nautahlaupi í borginni.

Dæmd í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi

Kona var í dag dæmd í Héraðsdómi Reykjaness í 10 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skjalafals. Konan hafði á sex ára tímabili tekið þrettán lán þar sem hún falsaði á bréfin nafn eiginmanns síns sem sjálfskuldarábyrgðarmanns. Konan var nýkomin úr sambúð þegar hún kynntist eiginmanni sínum og var með þunga skuldabirgði úr þeirri sambúð.

Bush eldri hyggst veiða lax á Íslandi

Íslenskir fluguhnýtarar sitja nú sveittir við að hnýta flugur handa George Bush eldri, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sem er væntanlegur til Íslands í júlí. Bush mun snæða með forseta Íslands og svo fer hann og kastar fyrir laxi í fylgd reyndra manna.

Ráðinn verkefnisstjóri Alcoa á Norðurlandi

Kristján Þ. Halldórsson rekstrarverkfræðingur hefur verið ráðinn verkefnisstjóri samfélagsmála fyrir Alcoa á Norðurlandi. Kristján mun starfa við undirbúningsvinnu vegna hugsanlegs álvers á Norðurlandi. Kristján mun sjá um að miðla upplýsingum um Alcoa og hugsanlegt álver til hagsmunaaðila á Norðausturlandi, svo sem sveitarfélaga, stofnana, félagasamtaka og íbúa.

Ítalir hafna breytingu á stjórnskipan landsins

Ítalar hafa, með afgerandi hætti, hafnað breytingum á stjórnskipan landsins. Efnt var til þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingarnar sem hefðu aukið völd forsætisráðherrans og sjálfsstjórn héraða. Rúmlega 61% greiddu atkvæði gegn tillögunum.

Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 7. júlí

Fyrrverandi starfsmaður Tryggingastofnunar ríkisins, sem er grunaður um tuga milljóna króna fjárdrátt af stofnuninni, var í gærkvöldi úrskurðaður í gæsluvarðhald til sjöunda júlí. Ríkislögrelgustjóri rannsakar meðal annars hvort maðurinn hafi átt sér vitorðsmenn, en fyrir liggur að hann lagði fjárhæðir inn á reikninga all margra skjólstæðinga stofnunarinnar. Þá er verið að rannsaka hversu lengi misferli mannsins hefur staðið.

Actavis sækist eftir kaupum á Pliva

Stjórn króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva hefur ákveðið að leggja það til við eigendur, að ganga til samninga við bandaríska lyfjafyrirtækið Barr, um sölu á fyrirtækinu, en íslenska lyfjafyrirtækið Actavis sóttist líka eftir kaupunum.

Hátt lyfjaverð kemur niður á þeim tekjuminni

Ungir jafnaðarmenn í ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar líta á hátt lyfjaverð hér á landi sem alvarlega ógnun við velferðina og benda í ályktun sinni á, að hátt lyfjaverð komi harðast niður á efna minni heimilum.

Stálu heitum potti

Sá sérstæði þjófnaður var framinn við sumarbústað í Grímsnesi í fyrrinótt að nýjum stórum rafmagnshitapotti, sem felldur var ofan í veröndina, var stolið og komust þjófanrir óséðir undan með ferlíkið. Þjófarnir þurftu því að tæma hann, rífa frá honum timburverkið og fella girðingu til að koma vörubíl að, til að fjarlægja pottinn, sem vegur nokkur hundruð kíló. Svona pottur kostar sex hundruð þúsund krónur fyrir utan flutningskostnað og kostnað við að koma honum fyrir og tengja hann.

Golfvöllur og vatnsverksmiðja stóriðjan í Þorlákshöfn

Hafist verður handa við nýjan strandgolfvöll við Þorlákshöfn á næstu mánuðum þar sem hönnun hans er lokið. Bæjarstjóri Ölfuss segir völlinn og fyrirhugaða vatnsverksmiðju stóriðju Þorlákshafnarbúa sem geti skapað hátt í hundrað störf.

Ferðamenn fundust heilir á húfi

Íslensku ferðamennirnir þrír, sem björgunarsveitir fóru að leita að síðdegis í gær, fundust heilir á húfi um sjö leitið í gærkvöldi. Þeir höfðu ætlað í Þórsmörk og í Landmannalaugar.

Kostnaður Vinstri grænna um 12 milljónir króna

Útlagður kostnaður Vinstri hreyfingarinnar- græns framboðs á landsvísu, vegna sveitarstjórnarkosninganna nýverið, nemur tólf til tólf og hálfri milljón króna, samkvæmt tilkynningu frá flokknum. Inni í þessari tölu eru styrkir til ýmissa blandaðra framboða, sem flokkurinn tók þátt í. Hinsvegar eru ótalin einhver framlög frá einstökum svæðisfélögum, sem birt verða á heimasíðu flokksins síðar.Vinstri grænir styrktu stöðu sína verulega, víða um land í kosningunum.

Launin hækkuð um 22 þúsund krónur

Starfsmennirnir sem lögðu niður vinnu í Flugstöðinni á sunnudagsmorguninn fá um 22 þúsund króna hækkun samkvæmt samkomulagi ASÍ og SA. Formaður Starfsgreinasambandsins segir þá telja þessa hækkun ekki nægja.

Sérstakur bílaþjófnaður

Lögreglan í Reykjavík er engu nær um hvar Mercedes Benz CLK 500 sportbíll, sem stolið var úr miðborginni aðfaranótt 17. júní, er niðurkominn.

Grunur um tugmilljóna svik

Tryggingastofnun ríkisins hefur kært fyrrverandi þjónustufulltrúa sinn fyrir tugmilljóna króna fjársvik og hugsanlega bótasvik á þessu ári og krafist opinberrar rannsóknar. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að sterkur grunur leiki á að svikin hafi staðið yfir í fimm til sex ár.

Væri stefnubreyting

Stjórn Landsvirkjunar felldi tillögu Helga Hjörvar og Álfheiðar Ingadóttur í gær um að fara þess á leit við Alcoa Fjarðaál að aflétta trúnaði varðandi verð í orkusölusamningi fyrirtækjanna vegna Kárahnjúkavirkjunar.

Nýbúar á Íslandi betri í námi

Innflytjendur á Íslandi og í Svíþjóð standa sig mun betur í námi en innflytjendur á hinum Norðurlöndunum, samkvæmt niðurstöðu PISA-kannana. Þetta var meðal þess sem fram kom á ráðstefnunni PISA í nýju ljósi sem haldin var nýverið í Osló.

Bið margra barna styttist

Nýr samstarfssamn­ingur Barna- og unglingageð­deildar Landspítala-há­skólasjúkrahúss og Miðstöð heilsu­­­­­verndar barna mun stytta biðtíma margra barna eftir þjónustu á BUGL.

Fólk treystir veðurspám

Samkvæmt könnun sem ParX - viðskiptaráðgjöf IBM gerði dagana 9.-17. maí bera landsmenn mikið traust til Veðurstofu Íslands. Þar kemur fram að 86 prósent aðspurðra treysta veðurspám Veðurstofunnar vel, en einungis 1,6 prósent treysta þeim illa.

Atvinnuleysi í lágmarki

Atvinnuleysi í maí mældist 1,3 prósent samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar og spá fyrir júní er 1,2 til 1,5 prósent. Þetta er um sextíu prósenta lækkun miðað við meðaltal atvinnuleysis á mánuði í fyrra.

Karlar leita frekar að tilbreytingu

Í sjálfu sér koma niðurstöðurnar mér ekki á óvart. Það er ljóst að fjölskylduábyrgðin er ennþá að mestu á herðum kvenna, sagði Fanný Gunnarsdóttir, formaður Jafnréttisráðs, í samtali við Fréttablaðið, um nýja könnun Gallup á tíðni og ástæðum vinnuskipta karla og kvenna.

Ósamið við ríkis­starfsmenn

Ósamið er við ríkisstarfsmenn eftir að samkomulag náðist á hinum almenna vinnumarkaði um að framlengja kjarasamninga. Starfsmannafélag ríkisstarfsmanna hefur óskað eftir launaviðræðum við fjármálaráðuneytið. Önnur aðildarfélög munu að líkindum gera það sama. Opinberir starfsmenn gerðu ekki ráð fyrir neinum viðræðum við hið opinbera fyrr en seint í haust en vilja nú fá þeim flýtt þar sem ASÍ hefur náð samkomulagi um að framlengja kjarasamninga.

Freyja Amble efst á Krumma

"Þrátt fyrir að skýjað sé í kring, skín sólin beint á keppnisvöllinn eins og geislabaugur," sagði Hulda Geirsdóttir þar sem hún sat í áhorfendabrekkunni á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði í gær. Þá voru þegar mætt norður um þrjú þúsund manns sem er nokkuð meira en búist var við á fyrsta degi.

Tuttugu prósenta hækkun

Í nýlegri verðlagskönnun verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands kemur fram að verð á lyfseðilsskyldum lyfjum hefur hækkað um allt að tuttugu prósent hjá markaðsráðandi lyfsölukeðjum frá því í apríl í fyrra.

Flytjum helst út lyf til Suður-Afríku

Fríverslunarsamningur við Tollabandalag Suður-Afríkuríkja var undirritaður í gær. Valgerður Sverrisdóttir segir samninginn mikilvægan fyrir Íslendinga.

Áherslan á slysavarnir

Forvarnahús Sjóvá var opnað á föstudag en markmið þess er að efla og samræma forvarnir í landinu.

Samkomulag um hert eftirlit

Akureyrarbær, sýslumannsembættið og fulltrúar veitinga- og skemmtistaða á Akureyri hafa ritað undir samkomulag um hert eftirlit með ungmennum á skemmtistöðum bæjarins.

Hafnar frestun skattalækkana

Félag launþega í Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík, Óðinn, hafnar öllum hugmyndum þess efnis að dregið verði úr eða frestað fyrirhuguðum skattalækkunum ríkisstjórnarinnar.

Hittir forsetann í dag

Varaforseti kínverska ráðgjafarþingsins, Zhang Meiying, ásamt sjö manna sendinefnd, kom í heimsókn til Íslands á sunnudag en hún verður hér fram til miðvikudags. Ekki er um opinbera heimsókn að ræða heldur er varaforsetinn að endurgjalda heimsókn íslensku sendinefndarinnar sem fór til Kína í fyrra að heimsækja ráðgjafarþingið.

Forsvar hlýtur verðlaunin

Stjórn samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra afhenti Forsvari ehf. hvatningarverðlaun samtakanna fyrir helgi. Verðlaunin eru nú afhend í áttunda sinn, en markmið þeirra er að hvetja til nýsköpunar og vekja athygli á því sem vel er gert í landshlutanum. Forsvar fékk verðlaunin fyrir dugnað og áræðni sem starfsmenn og eigendur fyrirtækisins hafa sýnt við uppbyggingu þess.

Fimm hundruð kílóa þýfi

Heitum potti var stolið frá Brúnavegi 13 í sumarhúsabyggðinni í Grímsnesi um helgina. Að sögn lögreglunnar á Selfossi þá er potturinn fjögur til fimm hundruð kíló og metinn á sex hundruð þúsund krónur.

Frítt í strætó fyrir austan

Ókeypis almenningssamgöngur eru tilraunaverkefni sem unnið er að á Fljótsdalshéraði. Að sögn Óðins Gunnars Óðinsonar þróunarstjóra verður keyrt á Egilsstaði, Fellabæ, Hallormsstaði, Eiða og Brúarás og reynt að tengja það saman við skólaakstur sem fyrir er.

Ferðafólk kom í leitirnar í gær

Þrír íslenskir ferðamenn komu fram í gærkvöldi eftir að björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar. Ekkert hafði spurst til fólksins síðan í fyrradag, en fólkið fannst í bíl sínum, sem er breytt jeppabifreið, á svokallaðri Heklubraut, rétt austan við Heklu. Fólkið festi bílinn en gat ekki látið vita af ferðum sínum. Þegar fólkið fannst var það þreytt en leið annars vel.

Bush eldri til Íslands í júlí

George H. W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og faðir núverandi forseta, hefur þegið boð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands um að heimsækja landið 4.-7. júlí næstkomandi.

Mesta aukning frá árinu 1999

Umferð á þjóðvegum jókst um sex prósent milli áranna 2004 og 2005. Heildarakstur á þjóðvegum árið 2005 var rúmlega tveir milljarðar ekinna kílómetra.

Ók á 166 kílómetra hraða

Mikið var um að vera hjá lögreglunni í Árnessýslu um helgina, en þó engin stóráföll. Af 64 ökumönnum sem kærðir voru fyrir hraðakstur í vikunni var einn sviptur ökuleyfi til bráðabirgða, en hann ók á 166 kílómetra hraða á Hellisheiði aðfaranótt sunnudags. Meðal annarra tíðinda voru fáein slys á fólki og væg líkams­árás á skemmtistaðnum Pakkhúsinu.

Sjá næstu 50 fréttir