Innlent

Bush eldri til Íslands í júlí

George Bush eldri Bush var forseti í fjögur ár, frá 1989 til 1993, á tíma falls kommúnismans, Persaflóastríðsins og innrásarinnar í Panama.
George Bush eldri Bush var forseti í fjögur ár, frá 1989 til 1993, á tíma falls kommúnismans, Persaflóastríðsins og innrásarinnar í Panama. MYND/AFP

George H. W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og faðir núverandi forseta, hefur þegið boð Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands um að heimsækja landið 4.-7. júlí næstkomandi.

Bush kemur til landsins 4. júlí, á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, og snæðir kvöldverð á Bessastöðum. Með í för verður Sig Rogich sem var sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í forsetatíð hans.

Bush mun svo halda til laxveiða í boði Orra Vigfússonar, formanns Verndarsjóðs villtra laxastofna, en þann málstað styður forsetinn fyrrverandi eindregið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×