Innlent

Ók á 166 kílómetra hraða

Mikið var um að vera hjá lögreglunni í Árnessýslu um helgina, en þó engin stóráföll. Af 64 ökumönnum sem kærðir voru fyrir hraðakstur í vikunni var einn sviptur ökuleyfi til bráðabirgða, en hann ók á 166 kílómetra hraða á Hellisheiði aðfaranótt sunnudags.

Meðal annarra tíðinda voru fáein slys á fólki og væg líkams­árás á skemmtistaðnum Pakkhúsinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×