Fleiri fréttir

Reyndi að smygla fölsuðum iPod

Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli gerði í vikunni upptækt nokkurt magn falsaðra iPod spilara. Sendingin var á leið frá Kína til verslunnar einnar í Reykjavík.

Fundi forystumanna ASÍ og forsætisráðherra seinkað

Fundi forystumanna Alþýðusambandsins með Geir H Haarde forsætisráðherra og nokkrum öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar, hefur verið frestað til klukkan sex. Ráðgert hafði verið að fundurinn yrði klukkan hálf fjögur. Að öllum líkindum hafa forystumenn verkalýðshreyfingarinnar þurft lengri tíma til að meta tilboð ríkisstjórnarinnar, en óformlegir fundir og samtöl hafa átt sér stað milli aðila fyrr í dag.

Átta sjórængingjaskip staðin að verki

Sjö sjóræningjaskip sáust í eftirlitsflugi Synar, flugvél Landhelgisgæslunnar, yfir úthafskarfamiðunm á Reykjaneshrygg í gær. Áttunda sjóræningjaskipið Ulla frá Georgíu lá bundið utan í frystiskipinu Polestar frá Panama en verið var að lesta á milli skipanna. Polestar er komið á svarta lista Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins vegna þjónustu sinnar við sjóræningjaskip. Grunur leikur á að ýmsu fleiru en afla sé umskipað í Polestar en frystiskipið var fyrst staðið að verki í eftirlitsferð Landhelgisgæslunnar 9. júní síðastliðinn.

Stjórn dvalarheimilisins Höfða braut ekki jafnréttislög

Kærunefnd jafnréttismála hefur kveðið upp þann úrskurð að stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi hafi ekki brotið jafnréttislög með ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi alþingismanns, í starf framkvæmdastjóra heimilisins á síðasta ári.

Loðnutorfa gekk á land í Ingólfsfirði

Loðnutorfa gekk á land í Ingólfsfirði á Ströndum fyrr í vikunni. Samkvæmt fréttavef Bæjarins besta.is, kemur fram að þetta sé fátíður atburður en svo virðist sem torfan hafi komið inn á morgunflóðinu, synt upp í á og þegar fjaraði aftur út, varð mikið af loðnunni eftir í ánni og fjörunni. Mjög sjaldgæft er að loðnana hagi sér með þessum hætti en dæmi eru um að síld gangi upp ár. Tveir fiskifræðingar hjá Veiðimálastofnum tóku sýni úr loðnunni en hún var væn og vel á sig komin.

Mæðraeftirlit endurskipulagt vegna flutninga í Mjódd

Endurskipuleggja þarf mæðraeftirlit á höfuðborgarsvæðinu vegna flutnings á Miðstöð mæðraverndar frá Barnónsstíg og upp í Mjódd, segir sviðsstjóri lækninga á kvennasviði Landspítalans. Hann tekur undir kröfur starfsmanna Heilsverndarstöðvarinnar á Barónsstíg um að ríkið reyni að eignast húsið aftur.

Forsætisráðherra þingar með ASÍ

Geir H Haarde forsætisráðherra hefur boðað forystu Alþýðusambands Íslands til fundar í Ráðherrabústaðnum klukkan hálf fjögur. Þar mun forsætisráðherra kynna forystumönnum ASÍ hugmyndir ríkisstjórnarinnar um aðkomu hennar að endurnýjun kjarasamninga. NFS sendir beint frá Ráðherrabústaðnum.

Ákærðu færu mikinn í fjölmiðlum

Settur saksóknari í Baugsmálinu sagði í Héraðsdómi í morgun, að ákærðu í málinu hefðu farið mikinn í fjölmiðlum með ósanngjarni gagnrýni á ákæruvald og dómsmálaráðherra. Verjandi Jóns Geralds Sullenberger sagði engin ný gögn komin fram í málinu sem réttlættu að hann væri ákærður.

Leysa þarf úr óþolandi ástandi í hluthafahópi

Leysa þarf úr því óþolandi ástandi sen ríkir í hluthafahópi Straums Burðaráss, segir Björgólfur Thor Bjorgólfsson, stjórnarfornaður fjárfestingabankans. Hann ásamt meirihluta stjórnar rak í gærkvöld forstjóra bankans og réði nyjan í staðinn.

Fjölmenni á sumarhátíð leikskóla Kópavogs

Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi verið leikskólabörnum í Kópavogi hliðhollir þegar þeir héldu sína árlegu sumarhátíð í bænum í morgun. Í ár söfnuðust leikskólakrakkarnir saman við Hálsatorg við Hamraborg og þaðan var gengið fylktu liði niður á Rútstún við Sundlaug Kópavogs.

ESA athugar ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð

Eftirlitsstofnun EFTA tilkynnti í morgun að hún hefði ákveðið að hefja formlega athugun á ríkisaðstoð við Íbúðalánasjóð. EFTA-dómstóllinn ógilti í apríl þá niðurstöðu eftirlitsstofnunarinnar að ríkisaðstoðin væri þjónuta í almannaþágu og því í samræmi við ríkisstyrkjareglur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

20 ára fangelsi fyrir morð

Hæstiréttur Jóhannesborgar hefur dæmt 44 ára konu í 20 ára fangelsi fyrir morðið á Íslendingnum Gísla Þorkelssyni. Gísli var myrtur í júlí á síðusta ári og lík hans falið í ruslatunnu. Konan játaði fyrir dómi aðild sína að morðinu en félagi hennar Willie Theron hefur neitað sök.

Tökum heppnina úr umferð

Nú skal reyna í eitt skipti fyrir öll að binda enda á hraðakstur og taka heppnina úr umferð. Þjóðarátak VÍS í umferðarmálum hófst í dag, um leið og netsíða fyrir þjóðarsál umferðarinnar var opnuð.

Fjarðaáslverkefnið fær verðlaun sem “teymi ársins”.

Á árlegri ráðstefnu Bechtel um öryggis-, umhverfis og heislugæslu sem haldin var í Seattle í Bandaríkjunum var Fjarðaálsverkefninu veitt viðurkenning sem “Teymi ársins” á þessu sviði. Starfsmenn verkefnisins voru valdir úr hópi yfir 100 verkefna á vegum Bechtel sem komu til greina víða um heim.

Krefjast þess að Tómas Zoega fari aftur í stöðu sína tafarlaust

Stjórn Geðlæknafélags Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun yfirstjórnar Landspítala Háskólasjúkrahúss að virða ekki dóm hæstaréttar í máli Tómasar frá 8. júní síðastliðnum, en hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að brottvikning Tómasar úr stöðu yfirlæknis hafi verið ólögmæt. Stjórnin krefst þess að yfirstjórn Landspítala Háskólasjúkrahúss fari að lögum og Tómas Zoega fari aftur í stöðu yfirlæknis á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss án skilyrða

Ármann Kr. Ólafsson nýr formaður Strætó

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarfullrúi í Kópavogi, var í gær kjörinn nýr formaður Strætó. Alls starfa um 360 manns við leiðarkerfi Strætó. 115 strætisvagnar aka um leiðarkerfið, samtals 9.300.000 kílómetra á ári um sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og milli Reykjavíkur og Akraness.

Segist hafa greitt skatta sem nái til þátta í skýrslutöku

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir að hann hafi þegar greitt 66 milljónir króna í skatta sem nái til þeirra þátta sem hann hafi verið boðaður til skýrslutöku vegna hjá ríkislögreglustjóra í lok mánaðarins. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Jóni.

Ýja að því að fyrirtæki taki mið af verðlagningu hvor annars

Kúabændur láta að því liggja á heimasíðu sinni að fóðursölufyrirtækin Lífland og Fóðurblandan taki mið af verðlagningu hvor annars. Þeir benda á að í fyrradag hafi Fóðurblandan hækkað kjarnfóðurverð um fjögur og hálft prósent, eða upp í 37 krónur kílóið, en strax í gær hafi Lífland gert slíkt hið sama og sé verðið nákvæmlega það sama hjá báðum.

Hafði afskipti af 14 ára pilti vegna fíkniefnamáls

Fjórtán ára piltur var sá yngsti í hópi sex manna sem lögreglan í Kópavogi hafði afskipti af í þremur fíkniefnamálum sem upp komu í bænum í gær. Fimm voru handteknir en vegna aldurs var aðeins haft afskipti af piltinum, sem viðurkenndi neyslu, og fá barnaverndaryfirvöld mál hans til meðferðar.

Útilokar ekki að leita til ríkissaksóknara

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra útilokar ekki að hún leiti til ríkissaksóknara vegna málalykta í kæru hennar á hendur fjórum umhverfisverndunarsinnum sem hún taldi hafa hótað sér ofbeldi. Mótmælendurnir báru spjald sem á stóð: „Drekkjum Valgerði, ekki Íslandi“ í göngu Íslandsvina á dögunum.

Sex fluttir á sjúkrahús eftir árekstur í Keflavík

Sex voru fluttir á sjúkrahúsið í Keflavík til rannsókna eftir harðan þriggja bíla árekstur á gatnamótum Vesturgötu og Hringbrautar í Keflavík í gærkvöldi. Enginn var þó alvarlega slasaður en allir kvörtuðu undan eymslum hér og þar.

Friðrik inn fyrir Þórð Má hjá Straumi-Burðarási

Átökum á löngum stjórnarfundi í Straumi-Burðarási fjárfestingarbanka lyktaði með því undir miðnætti að meirihluti stjórnar ákvað að reka Þórð Má Jóhannesson, forstjóra bankans, og ráða í hans stað Friðrik Jóhannsson, sem er formaður stjórnar Kauphallar Íslands og var áður forstjóri Burðaráss.

Þyrla Trítons sótti tvo slasaða sjómenn

Þyrla danska varðskipsins Tríton lenti með tvo menn við Landspítalann í Fossvogi á tíunda tímanum í kvöld. Báðir höfðu slasast á hendi. Annar mannanna var um borð í færeyska togaranum Ran, um 600 sjómílur suðvestur af Reykjanesi, en að sögn Landhelgisgæslunnar missti hann framan af tveimur fingrum.

Lítið vald kjörinna fulltrúa, segir bæjarstjórinn á Ísafirði

Bæjarstjórinn á Ísafirði segir greinilegt að kjörnir fulltrúar ráði ekki þegar kemur að málefnum ráðuneytanna. Flutningur launagreiðslna heilbrigðisstofnana á Vestfjörðum sé bara lítið dæmi. Sú breyting hefur orðið að launagreiðslur til starfsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar á Ísafirði og Patreksfirði fara nú beint af reikningi fyrir sunnan inná reikninga starfsmannanna. Þannig minnkar velta viðskiptabanka Heilbrigðisstofnananna um hálfan milljarð árlega auk þess sem störfum við launavinnslu fækkar.

Ákæra hugsanlega gefin út á morgun vegna Sancy

Lögreglustjórinn á Eskifirði mun líklega gefa út ákæru á morgun vegna færeyska togarans Sancy sem skipverjar á Óðni færðu til hafnar á Eskifirði í fyrradag. Skipstjóri og stýrimaður togarans voru í yfirheyrslum fram á kvöld vegna málsins.

Sýknaður af ákæru um að hafa stolið matvælum

Karlmaður var í dag sýknaður Í Héraðsdómi Norðurlands eystra af ákæru um þjófnað á matvælum. Maðurinn var ákærður í desember á síðasta ári fyrir að stolið fjórum pakkningum af heilum humri, tveimur lambahryggjum og þremur lambaframbógum úr frystigám við verslunina Bónus á Akureyri, en verðmæti þýfisins var rúmar fimmtán þúsund krónur.

Snæuglu sleppt á Hólmavík

Snæuglu sem dvalið hefur í Húsdýragarðinum í endurhæfingu í 10 mánuði var sleppt í dag. Snæuglan, ungur karlfugl, fannst flækt í gaddavír við Hólmavík í september á síðasta ári.

Hafna hugmyndum um að fresta skattalækkunum

Málfundafélagið Óðinn, félag launþegar í Sjálfstæðisflokkinum í Reykjavík, hafnar alfarið hugmyndum um að dregið verði úr eða frestað verði boðuðum skattalækkunum af hálfu ríkisstjórnarinnar.

SA sögð beita hótunum

Samtök atvinnulífsins segja fyrirhugaða vinnustöðvun starfsmanna Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli á sunnudaginn ólögmæta og minna á mögulega bótaskyldu verkalýðsfélaga og starfsmanna. Forsvarsmaður annars verkalýðsfélags starfsmanna segir samtökin beita hótunum.

Steinn Eiríksson ráðinn sveitarstjóri á Borgarfirði eystri

Steinn Eiríksson, eigandi og framkvæmdastjóri Álfasteins á Borgarfirði eystri, hefur verið ráðinn sveitarstjóri Borgarfjarðarhrepps til áramóta. Fréttavefurinn Austurlandid.is greinir frá því að Steinn hafi verið kjörinn í hreppsnefnd í síðustu sveitastjórnarkosningum en óbundin kosning var á Borgarfirði eystri. Magnús Þorsteinsson, fráfarandi sveitarstjóri, tilkynnti fyrir kosningar að hann myndi ekki gefa kost á sér til starfans áfram.

Yfirlýsing frá Jóni Ásgeiri

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, segir í yfirlýsingu að nýjasta ákæran í Baugsmálinu hafi beðið hnekki þegar dómari málsins óskaði eftir skýringum saksóknara á henni fyrir dómi í dag.

Skaðleg smáskilaboð

Gífurlegur fjöldi SMS smáskilaboða, jafnvel yfir hundrað þúsund, voru send á íslensk GSM símanúmer um tíu-leytið í morgun. Skilaboðin geymdu upplýsingar um erlenda stefnumótasíðu og ef farið er inn á heimasíðuna mun tölva viðkomandi smitast af skaðlegum tölvuvírus.

Nýr samningur gerir ráð fyrir að biðlistar styttist

Barna- og unglingageðdeild Landspítala-háskólasjúkrahúss og Miðstöð heilsuverndar barna hafa undirritað samstarfssamning vegna þjónustu við börn með erfiðleika á geð- og hegðunarsviði. Langir biðlistar hafa myndast á Barna- og unglingageðdeild og skortur er á viðeigandi þjónustu við börn með hegðunar-eða geðvanda. Samningurinn miðar að því að draga úr álagi á Barna- og unglingageðdeild og stytta biðtíma barna og fjölskyldna eftir sérhæfðum úrræðum.

Ekið á hjólandi vegfaranda

Ekið var á hjólandi vegfaranda á horni Miklubrautar og Stakkahlíðar rétt fyrir klukkan fimm í dag. Hjólreiðamaðurinn slasaðist ekki en fékk nokkrar skrámur og var ekki fluttur á slysadeild. Tveir sjúkrabílar komu engu að síður á staðinn og skoðuðu sjúkraliðsmenn manninn.

Ráðuneytið skiptir sér ekki af málum Tómasar Zoega

Að sögn ráðuneytisstjóra Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins skiptir ráðuneytið sér ekkert af ráðningarmálum Landspítala háskólasjúkrahúss og starfsmannaráðningar er ekki hægt að kæra til ráðuneytisins. Það er því ljóst að Heilbrigðisráðuneytið mun hvorki taka afstöðu né ákvörðun í málum Tómasar Zoega.

Nýjar ákærur hugsanlegar í Baugsmálinu

Ekki er útilokað að von sé á nýjum ákærum í Baugsmálinu, eftir að Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri fyrirtækisins, fékk boð um að mæta í yfirheyrslur hjá Ríkislögreglustjóra í næstu viku. Málflutningur í Baugsmálinu fór fram í Hérðasdómi Reykjavíkur í dag.

Skipstjórinn aftur færður til yfirheyrslu

Yfirheyrslu yfir stýrimanni togarans Sancy lauk rétt í þessu en þær hófust í morgun. Lögreglan á Eskifirði gerir ráð fyrir að hefja á ný yfirheyrslu yfir skipstjóra togarans nú síðdegis og að hún muni standa fram eftir kvöldi. Þá er verið að vinna úr gögnum siglingartölvu togarans en fyrstu upplýsingar gefa til kynna að þau 20 tonn af fiski sem voru um borð í togaranum, hafi verið veidd í íslenski lögsögu.

Miklar tafir á umferð

Sæbrautin er lokuð í báðar áttir frá Kirkjusandi að Laugarnesvegi, en til stóð að opna hana um klukkan fimm. Umferð er mjög hæg um hjáleiðina um Laugarnesveg og tekur leiðin í gegnum hnútinn að minnsta kosti kortér.

Orkuveitan verður ekki seld

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ítrekaði það á aðalfundi Orkuveitu Reykjavíkur í dag að fyrirtækið yrði ekki selt. Alfreð Þorsteinsson, sem lét af störfum sem stjórnarformaður Orkuveitunnar eftir 12 ára starf, segir hins vegar að góð staða fyrirtækisins gefi borginni færi á að selja hlut sinn í Landsvirkjun.

Jón Ásgeir boðaður til yfirheyrslu vegna meintra skattalagabrota

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, hefur verið boðaður til yfirheyrslu hjá Ríkislögreglustjóra í næstu viku, vegna meintra skattalagabrota. Þetta kom fram í málflutningi Gests Jónssonar, verjanda Jóns Ásgeirs, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Lögreglumaður kærir líkamsárás

Lögreglumaður sem fimm pörupiltar réðust á síðustu helgi hefur lagt fram kæru vegna málsins. Ofbeldismönnunum hefur verið sleppt.

Sjá næstu 50 fréttir