Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Göngubrúin er slysagildra Aðstæður fyrir gangandi vegfarendur við Hringbraut eru víða erfiðar og hættulegar. Göngubrú yfir götuna endar í lausu lofti. 27.10.2005 03:15
Endurskoðar bensínstyrkinn Heilbrigðisráðherra, Jón Kristjánsson, segist vera að endurskoða ákvörðun um afnám bensínstyrks til öryrkja. Samkvæmt tillögu ráðherra stóð til að fella hann niður frá áramótum. 27.10.2005 02:45
Menningarstofnunum fækkað Norrænum menningarstofnunum verður fækkað stórlega á næstunni. Þetta var staðfest á fundi Norðurlandaráðs í dag. 26.10.2005 21:30
Íslendingar með lægstu fjárframlög Norðurlandanna Íslendingar eru ekki einu sinni hálfdrættingar á við hinar Norðurlandaþjóðirnar þegar kemur að fjárframlögum til aðstoðar fórnarlömbum jarðskjálftans í Kasmír. 26.10.2005 20:00
Fyrirtæki flýja land Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins hefur verulegar áhyggjur af flótta íslenskra fyrirtækja til útlanda. Hann segir fjarri því að alltaf sé hægt að tala um jákvæða útrás því fjöldi starfa hafi tapast hér á landi vegna hennar á undanförnum árum. 26.10.2005 20:00
Íslendingar eru trúaðir Íslendingar fara með Faðir vorið að meðaltali þrisvar í viku. Barnatrúin er sterk og þeir eru duglegir að biðja bænirnar með börnunum. Kirkjusókn hefur aukist lítillega síðustu árin en þó sinnir landinn einkum trú sinni í gegnum barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. 26.10.2005 19:27
Fjárhagslega háð sambýlismanni sínum Í gær sagði Stöð 2 frá fólki sem hefur rétt yfir 100 þúsund krónur í mánaðarlaun. Í dag hitti fréttastofan starfskonu á leikskóla sem segist háð sambýlismanni sínum vegna lágra launa. Þegar hún var ein átti hún enga möguleika á að kaupa sér íbúð og varð að selja bílinn. 26.10.2005 19:13
Annan skorar á þjóðir heims til aðstoðar Hundruð þúsunda þeirra sem þegar eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar í Pakistan, kunna að farast á næstu vikum, ef frekari aðstoð berst ekki áður en harður vetur skellur á. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skorar á þjóðir heims að láta ekki sitt eftir liggja. 26.10.2005 19:07
Verðstríð háð milli Byko og Húsasmiðjunnar Byko og Húsasmiðjan há nú mikið verð- og auglýsingastríð. Nokkrar algengar vörutegundir sem fréttastofan kannaði verð á í dag voru í öllum tilfellum ódýrari í Byko. 26.10.2005 19:05
Samiðn kærir Samiðn, samtök iðnfélaga, hafa kært sex fyrirtæki sem nýta sér krafta starfsmanna á vegum starfsmannaleigunnar 2B. Ekkert fyrirtækjanna gat lagt fram atvinnuleyfi fyrir starfsmennina og því voru fyrirtækin kærð. 26.10.2005 18:44
Auknar líkur á lokun herstöðvar í Keflavík Líkurnar á að Keflavíkurstöðinni verði lokað stórjukust í dag þegar bandaríska utanríkisráðuneytið baðst undan því að koma að varnarviðræðum við Íslendinga. Þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna mun framvegis fara með forræði í málinu, sem þykir benda til þess að varnarmálaráðuneytið fái sínu framgengt. 26.10.2005 18:36
Skuldabréfa útgáfa erlendis í íslenskum krónum nálgast þolmörk Útgáfa skuldabréfa í íslenskum krónum erlendis er komin nálægt þolmörkum íslenska hagkerfisins að sögn Tryggvs Þórs Herbertsson, forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Útgáfan er nú komin í eitt hundrað milljarða króna eða sem nemur einum þriðja af fjárlögum íslenska ríkisins. 26.10.2005 17:33
Sala á framleiðslu jókst um 45% Sala á framleiðslu Össurar hf. jókst um fjörtíu og fimm prósent í Bandaríkjadölum samkvæmt uppgjöri þriðja ársfjórðungs. 26.10.2005 17:19
Eiga kost á störfum erlendis Þeim 40 starfsmönnum sem sagt hefur verið upp störfum hjá Flögu Medcare munu fá aðstoð við að leita sér að nýrri vinnu. Starfsmannastjóri fyrirtækisins útilokar ekki að sumir muni eiga þess kost að vinna hjá höfðuðstöðvum fyrirtækisins erlendis. 26.10.2005 17:18
Gengi hlutabréfa Flögu Group hf. hefur hríðfallið Gengi hlutabréfa Flögu Group hf. hafa hríðfallið, eða um nær helming á síðasta árið og náðu hlutabréfin lágmarki fyrr í mánuðinum. Afkoma fyrirtækisins hefur farið versnandi á síðustu árum og áætlanir um bætta afkomu hafa ekki gengið eftir. 26.10.2005 17:10
Áhersla á vinnustaðatengda íslenskukennslu Alþjóðahúsið er byrjað að bjóða upp á íslenskukennslu fyrir innflytjendur. Megináherslan verður lögð á svokallaða ,,vinnustaðatengda" íslenskukennslu þar sem námsefnið er sérhannað fyrir hvern vinnustað og tekur mið af daglegum veruleika starfsmanna. 26.10.2005 16:57
Sjúkraliðar látnir sitja á hakanum Sjúkraliðar hafa vísað launadeilu sinni við launanefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir ástæðuna þá að launanefndin hafi ekki gefið sér tíma til að funda með sjúkraliðum. 26.10.2005 15:17
Gott fólk íhugar að kæra Verðstríð virðist skollið á á byggingar- og heimilisvörumarkaði á milli Húsasmiðjunnar og BYKO. Fyrirtækin bjóða nú bæði verðvernd fyrir viðskiptavini en auglýsingastofa BYKO sakar Húsasmiðjuna um að hafa stolið hugmyndinni. 26.10.2005 15:11
Hryggð í bland við feginleika Minningarnar brjótast fram á Flateyri segir Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti Íslands sem er komin þangað vegna minningarathafnar um að tíu ár eru liðin síðan snjóflóð féll á Flateyri og varð tuttugu íbúum að bana. 26.10.2005 15:10
Mál Auðar gegn Hannesi upp í desember Máli Auðar Laxness, ekkju Halldórs Laxness, gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor var frestað til 19. desember næstkomandi við fyrirtöku í Héraðdsómi Reykjavíkur í morgun. Auður höfðaði málið vegna meintra brota á höfundarrétti í bók Hannesar um Nóbelskáldið, Halldór. 26.10.2005 14:45
SFLÍ vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Sjúkraliðafélag Íslands vísaði í gær kjaradeilum sínum við Launanefnd sveitarfélaga til ríkissáttasemjara. Fyrsti fundurinn hjá honum haldinn var síðdegis í gær þar sem fulltrúar launanefndar lögðu fram nýjar tillögur að kjarasamningi. 26.10.2005 14:30
Menningarstofnunum og -nefndum fækkað um níu Níu af tuttugu nefndum og stofnunum í menningarsamstarfinu verða lagðar niður, en starfsemi þeirra verður þó haldið áfram með ýmsu móti. Norrænu menningarmálaráðherrarnir ákváðu einróma á fundi sínum í dag að breyta skipulagi á menningarsamstarfi norrænu þjóðanna og gera það sveigjanlegra. 26.10.2005 13:54
Greiddu 682 milljónir fyrir ráðgjöf Morgan Stanley fjárfestingabankinn fékk greiddar 682 milljónir króna fyrir ráðgjöf sína vegna sölu Símans. Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. 26.10.2005 13:45
Bjart og fagurt veður á Flateyri Flateyringar minnast þess í dag að tíu ár eru liðin frá snjóflóðinu mikla sem kostaði tuttugu manns lífið. Bjart og fagurt veður er á Flateyri í dag og fátt sem minnir á ógnaratburðinn fyrir tíu árum. Hann er þó ofarlega í hugum manna og hans er minnst á margvíslegan hátt í dagskrá sem stendur í allan dag og lýkur með samkomu í kirkjunni sem hefst klukkan átta í kvöld. 26.10.2005 13:30
Starfsemi Medcare færð úr landi Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare-Flögu úr landi og styrkja starfsemi félagsins í Bandaríkjunum og á Evrópumarkaði. Hátt í 40 starfsmönnum hér á landi verður sagt upp störfum um næstu mánaðamót og hefur það verið tilkynnt á starfsmannafundum. 26.10.2005 13:00
Máli vegna meintra atvinnréttindabrota vísað frá Héraðsdómur Reykjaness hefur vísað frá dómi máli ákæruvaldsins gegn fyrirsvarsmanni SK Smáverka ehf. og Perlunnar ehf. um að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga með því að ráða í vinnu til sín sex Litháa. 26.10.2005 12:58
Minningar brjótast fram vegna snjóflóðs Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, segir miklar minningar brjótast fram þegar hún heimsæki Flateyri aftur, en hún er þar stödd til að minnast þess að tíu ár eru síðan snjóflóð féll á bæinn þar sem 20 manns létust. 26.10.2005 12:45
Segist hafa fengið margar fyrirspurnir Flugfélagið Iceland Express er komið á söluskrá og hefur fyrirtækjasviði Kaupþings banka verið falið að annast söluna. Annar eigenda félagsins segist hafa fengið margar fyrirspurnir um félagið. 26.10.2005 12:15
Aldrei í vafa að Flateyri yrði endurbyggð Tuttugu létust og stór hluti byggðarinnar þurrkaðist út þegar snjóflóðið féll. Þrátt fyrir það voru flestir heimamenn á því að Flateyri skyldi endurreist. Fyrir tíu árum vaknaði Magnea við að snjóflóð hafði fallið. Hún segir tilfinninguna hafa verið óraunverulega, en skelfilega. 26.10.2005 12:07
Aukin spurn eftir gæðahúsnæði hækkar vísitölu Aukin spurn eftir gæðahúseignum hefur hækkað húsnæðisvísitöluna talsvert umfram raunverulega hækkun og þar með skrúfað verðbólgu og neysluvísitölu óeðlilega mikið upp að mati Ásdísar Kristjánsdóttur hagfræðings. 26.10.2005 12:00
HR býður upp á meistaranám í tækni- og verkfræði Háskólinn í Reykjavík hyggst bjóða upp á meistaranám í tækni- og verkfræði frá og með næstu önn sem hefst í janúar, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá skólanum. 26.10.2005 11:45
Frestur Atlantsolíu til framkvæmda að renna út Frestur Atlantsolíu til að hefja byggingarframkvæmdir við bensínstöð á lóð, sem félagið fékk úthlutað á Skeiði á Ísafirði í fyrra, rennur út í byrjun nóvember en þau skilyrði voru sett við úthlutun lóðarinnar að framkvæmdir þyrftu að hefjast innan árs. 26.10.2005 11:30
Ekki verði auglýst í ljósvakamiðlum Stjórn Varðar, sem er fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, samþykkti á fundi sínum að skora á frambjóðendurna í prófkjöri flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar að auglýsa ekki í ljósvakamiðlum. 26.10.2005 10:30
Selur í höfninni í Þórshöfn Selur svamlaði í höfninni í Þórshöfn um helgina. Selurinn var mjög forvitinn og gerði margar tilraunir til að komast upp á bryggjuna en tókst ekki. Sjómenn töldu selinn tæplega fullvaxinn en vel á sig kominn og pattaralegan. 26.10.2005 10:15
Ný bygging á horni Lækjargötu og Vonarstrætis Fyrirhugað er að reisa fimm hæð banka- og skrifstofubyggingu á horni Lækjargötu og Vonarstrætis þar sem nú er meðal annars skrifstofubygging Íslandsbanka, Foreldrahús og bílastæði. Að sögn Morgunblaðsins er það Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. sem hyggst reisa stórhýsið sem verður tæplega ellefu þúsund fermetrar að stærð. 26.10.2005 10:00
Fyrirtaka í máli Auðar gegn Hannesi Nú klukkan tíu verður fyrirtaka í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Auðar Laxness, ekkju Halldórs Laxness, gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor vegna meintra brota á höfundarrétti í bók Hannesar um Nóbelskáldið, Halldór. 26.10.2005 10:00
Kostnaður vegna Símasölu hátt í 800 milljónir Tíu milljónir af söluandvirði Símans fóru til framkvæmdanefndar um einkavæðingu vegna nefndarlauna og ferðakostnaðar. Auk þess fékk Morgan Stanley-fjárfestingabankinn greiddar 682 milljónir króna fyrir ráðgjöf sína. 26.10.2005 09:30
40 starfsmönnum Medcare sagt upp Stefnt er að því að færa starfsemi Medcare utan og verður hátt í 40 starfsmönnum hér á landi sagt upp. Búið er að tilkynna um yfirvofandi uppsagnir á starfsmannafundum. 26.10.2005 09:15
Stuðningur og samúð minnisstæð Flateyringum Stuðningur og samúð íslensku þjóðarinnar eru Flateyringum minnistæð nú þegar tíu ár eru liðin frá því að snjóflóðið féll á Flateyri þar sem 20 manns létu lífið. 26.10.2005 09:00
Hvatt til aukinna framlaga til þróunaraðstoðar 57. þing Norðurlandaráðs var sett á Hótel Nordica í Reykjavík í gær. Á dagskrá í gær voru almennar stjórnmálaumræður. 26.10.2005 08:45
Sérfræðikostnaður nær tvöfaldast Kostnaður hins opinbera við kaup á sérfræðiþjónustu nær tvöfaldaðist milli áranna 1998 og 2003 að því er fram kemur í úttekt Ríkisendurskoðunar sem unnin var að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur, þingmanns Samfylkingar. 26.10.2005 08:30
Rjúpnaskyttur gripnar á Þingvöllum Lögreglumenn frá Selfossi stóðu tvær rjúpnaskyttur að ólöglegum veiðum í þjóðgarðinum á Þingvöllum í gær. Skotmennirnir höfðu skotið fjórar rjúpur þegar að var komið, og lagði lögregla hald á þær og skotvopln mannanna, sem eiga yfir höfði sér sektir, þar sem skotveiðar eru bannaðar í þjóðgarðinum. 26.10.2005 08:00
Fuglaflensa í Þýskalandi Fuglaflensusmit greindist í dauðum gæsum í Þýskalandi í gær. Flensan sem greindist í gæsunum er talin af H5N1 stofn veirunnar. 26.10.2005 07:45
Norðurlandaráðsþing sett í gær 57. þing Norðurlandaráðs var sett á Hótel Nordica í Reykjavík í gær. Á dagskrá í gær voru almennar stjórnmálaumræður. 26.10.2005 07:30
Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði. 26.10.2005 07:30