Sjúkraliðar látnir sitja á hakanum 26. október 2005 15:17 Kristín Á. Guðmundsdóttir, lengst til vinstri, ásamt fleiri sjúkraliðum. MYND/GVA
Sjúkraliðar hafa vísað launadeilu sinni við launanefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir ástæðuna þá að launanefndin hafi ekki gefið sér tíma til að funda með sjúkraliðum. Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, segir félagið hafa gefist upp á biðinni eftir að launanefnd sveitarfélaga sæi sér fært að ræða launamál sjúkraliða. Hún segir samninga hafa verið lausa síðan í nóvember og þó að fyrst um sinn hafi verið beðið eftir samningum sjúkraliða við ríkið hefðu viðræður við sveitarfélögin að geta hafist síðasta sumar, það hafi hins vegar ekki gerst. Kristín segir að fyrst hafi sumarfrí launanefndarmanna tafið fyrir samningum og síðan hafi launanefndin einbeitt sér að samningum við starfsmannafélög sveitarfélaga þar sem verkföll hafi legið í loftinu. Fulltrúar sjúkraliða og launanefnd sveitarfélaga funda hjá Ríkissáttasemjara klukkan fimm í dag en ekki er búist við að niðurstaða fáist á þeim fundi. Sjúkraliðar höfðu áður vísað deilu sinni við samningamenn sjálfseignarstofnana á heilbrigðissviði til Ríkissáttasemjara. Ekki er komin niðurstaða í það mál en næsti fundur verður á morgun.
Fréttir Innlent Kjaramál Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira