Fleiri
Neikvætt fyrir lögregluna 21.9.2005 00:01 Ásakanir án innistæðu "Mér finnst þetta mjög alvarleg tíðindi fyrir íslenskt réttarkerfi vegna þess að ákæra hefur í för með sér slíka röskun á högum fólks að það verður að gera kröfu til ákæruvaldsins um að skýrt komi fram í hverju brot er falið og gegn hverju og hverjum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 21.9.2005 00:01 Áfall fyrir ákæranda Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og formaður vinstri grænna segir það áfall eftir víðtæka og harkalega aðgerð af hálfu lögreglu og ákæranda að uppskeran skuli ekki vera meiri en raun ber vitni í Baugsmálinu. "Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið." 21.9.2005 00:01 Bæjarstjórn harmar andstöðu Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er sammála niðurstöðu nýrrar skýrslu um að skynsamlegt sé að sameina sveitarfélögin Garð, Sandgerði og Reykjanesbæ í eina heild. Bókun þessa efnis var samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. 21.9.2005 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Embætti sé í höndum óhæfra manna Össur Skarphéðinsson alþingismaður vill að æðstu menn Ríkislögreglustjóra verði settir af vegna slælegrar frammistöðu í Baugsmálinu og málverkafölsunarmálinu. 21.9.2005 00:01
Flugvöllur fari ekki úr borginni Verkalýðsfélag Húsavíkur varar í dag við þeirri umræðu að flytja innanlandsflugið. Reykjavík sé höfuðborg og hafi miklar skyldur gagnvart öllum Íslendingum, ekki bara höfuðborgarbúum. Þar séu flestar ríkisstofnanir staðsettar og hátæknisjúkrahús sem byggt hafi verið fyrir opinbert fé. 21.9.2005 00:01
Frávísun máls felld úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi frávísun héraðsdóms í máli Auðar Laxness gegn Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Auður sakar Hannes um ritstuld í bók hans <em>Halldór</em>. Málið fer nú aftur fyrir héraðsdóm sem mun taka efnislega afstöðu til þess. Þegar Héraðsdómur vísaði málinu frá var það á þeirri forsendu að það væri ekki nógu vel reifað. 21.9.2005 00:01
Kynna tillögu um tónlistarhús Í dag verður ljóst hvernig tónlistarhúsið og ráðstefnumiðstöðin sem byggð verður í Reykjavíkurhöfn lítur út. Austurhöfn TR, fyrirtækið sem sér um bygginguna, hefur boðað til fundar þar sem vinningstillagan úr samkeppni um hönnun hússins verður kynnt og sýnd ásamt öðrum tillögum sem bárust í samkeppnina. 21.9.2005 00:01
Reglugerð marki stefnubreytingu Ný reglugerð félagsmálaráðherra um áhættustýringu Íbúðalánasjóðs fer fyrir brjóstið á Samtökum banka og verðbréfafyrirtækja sem segja hann marka stefnubreytingu. 21.9.2005 00:01
Úrskurður Hérðasdóms í Baugsmáli Öllum ákærum í Baugsmálinu svokallaða var vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hér er birtur úrskurður Héraðsdóms í heild sinni. 21.9.2005 00:01
Ítrekaði framboð Íslands Davíð Oddsson utanríkisráðherra ítrekaði framboð Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í ávarpi sem hann hélt á allsherjarþingi samtakanna í gærkvöldi. Hann tók þó vægar til orða en Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gerði í síðustu viku og sagði aðeins að Ísland hefði áður lýst áhuga á að taka virkan þátt í starfi öryggisráðsins. 21.9.2005 00:01
Starfsmenn Kópavogsbæjar semja Starfsmannafélag Kópavogs hefur undirritað nýjan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga vegna starfsmanna Kópavogsbæjar. Þetta er í annað skiptið í ár sem starfsmannafélagið og launanefndin ná samkomulagi en fyrri samningur þeirra var felldur í atkvæðagreiðslu félagsmanna. 21.9.2005 00:01
Deila um val á fulltrúum á þing Núverandi og fyrrverandi valdhafar í Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, eru komnir í hár saman vegna vals á fulltrúum á þing Sambands ungra sjálfstæðismanna. Þrjátíu og einn fyrrverandi trúnaðarmaður félagsins hefur undirritað yfirlýsingu þar sem stjórn Heimdallar er sökuð um valdníðslu og ólýðræðislegar tilraunir til að tryggja frambjóðendum sér þóknanlegum kjör í embætti formanns og varaformanns Sambands ungra sjálfstæðismanna. 21.9.2005 00:01
Varað við hálku og snjóþekju Vegagerðin varar við hálkublettum á fjallvegum á Vestfjörðum og á Hólssandi og þá er snjóþekja á Öxafjarðarheiði. 21.9.2005 00:01
Segir gott að fá efnislegan dóm Hannes Hómsteinn Gissurarson háskólaprófessor segist ekkert hafa við úrskurð Hæstaréttar í máli Auðar Laxenss á hendur honum að athuga og segir gott að fá efnilegan dóm í málinu. Hæstirrétur felldi í gær úr gildi frávísun héraðsdóms á málinu, en Auður stefndi Hannesi fyrir meintan ritstuld úr verkum Halldórs Laxness í bók hans <em>Halldór</em>. 21.9.2005 00:01
Portus Group með vinningstillögu Portus Group, sem er í eigu Landsafls hf., Nýsis hf. og Íslenskra aðalverktaka hf., er með vænlegasta tilboðið í hönnun, byggingu og rekstur tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels við Austurhöfnina í Reykjavík samkvæmt niðurstöðu matsnefndar og sérfræðinga Austurhafnar-TR. Þetta var kynnt við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag sem og sú ákvörðun stjórnar Austurhafnar-TR að ganga til samninga um verkefnið við Portus Group. 21.9.2005 00:01
Vilja samkomulag um flutninga Stjórn Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytið til að gera með sér samkomulag um framkvæmd sjúkraflutninga á landsvísu og leggur til frekari sameiningu á sjúkraflutningaþjónustu við slökkvilið landsins. 21.9.2005 00:01
Mótmæla stefnu í auðlindamálum Náttúruvaktin hyggst efna til mótmælastöðu fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur í dag kl. 17.45, en þá koma þátttakendur á alþjóðlegri rafskautaráðstefnu til móttöku í Ráðhúsinu. Í tilkynningu frá Náttúruvaktinni kemur fram að enn sé verið að auglýsa Ísland sem ódýrt orkuver og málmbræðsluland. 21.9.2005 00:01
Segist eiga inni sjö vikna hvíld Unglæknir telur sig eiga inni yfir 300 klukkustundir í hvíldartíma hjá Landspítala háskólasjúkarhúsi. Málaferli eru nú í gangi vegna ágreinings um hvíldartíma á annað hundrað unglækna, sem vinna eða hafa unnið hjá spítalanum.</font /></b /> 21.9.2005 00:01
Fimm hafa veikst af hermannaveiki Fimm hafa veikst af hermannaveiki það sem af er þessu ári, að sögn Haralds Briem sóttvarnalæknis. Af þeim lést einn úr veikinni. Síðasta tilfellið kom upp í ágúst. Bakterían er lúmsk og getur leynst hvar sem er. </font /></b /> 21.9.2005 00:01
Baugsmál sé byggt á sandi Jóhannes Jónsson stjórnarmaður í Baugi segir að frávísun Héraðsdóms Reykjavíkur á ákærum gegn Baugi, sýni að málið hafi allt verið byggt á sandi af hálfu ákæruvaldsins, að þeirri niðurstöðu komist þrír valinkunnir dómarar Héraðsdóms. Nú þegar ákæruvaldið vísi málinu væntanlega til Hæstaréttar, segist Jóhannes treysta því að þeir dómarar sem tengist Davíð Oddssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, verði ekki látnir koma nálægt meðferð Hæstaréttar á málinu. 21.9.2005 00:01
Steinbítur friðaður við hrygningar Sjávarútvegsráðuneytið hefur gefið út reglugerð um friðun steinbíts á hrygningartíma á Látragrunni, þ.e. frá og með 24. september næstkomandi til loka marsmánaðar 2006. Í tilkynningu frá ráðuneytinu kemur fram að reglugerðin sé gefin út að tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar og í samráði við Landssamband íslenskra útvegsmanna. 21.9.2005 00:01
Fálka sleppt úr Húsdýragarði Fyrr í dag var grænlandsfálka, sem dvalið hafði í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því sumar, sleppt við Hengil. Í tilkynningu frá garðinum segir að fálkinn, sem er kvenfugl, hafi komið í garðinn eftir að hafa fundist grútarblautur á Snæfellsnesi. Grúturinn var þveginn af henni en til þess þurfti tvo þvotta. 21.9.2005 00:01
Styður framboð til öryggisráðs Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður leggur áherslu á að Ísland standi við framboð sitt til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna í tilkynningu sem sambandið sendi frá sér í dag. Er það mat stjórnar sambandsins að Ísland eigi fullt erindi í öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna og hafnar hún málflutningi þess efnis að Ísland hafi ekki burði til að sitja í ráðinu. 21.9.2005 00:01
Konur leggi niður störf 24. okt. Aðstandendur baráttuhátíðar kvenna, sem haldin verður í tilefni að því að 30 ár eru liðin frá kvennafríinu, hvetja konur til leggja niður störf á kvennafrídeginum 24. október. 21.9.2005 00:01
Heimdellingar deila um fulltrúa Deilt er um hvaða félagar Heimdalls, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fái að sækja þing Sambands ungra sjálfstæðismanna 30. september. Um tuttugu ungir sjálfstæðismenn sem fá að sækja þingið sem aukamenn, auk tíu annarra hafa mótmælt mannavali á þingið og segja 50 nýskráða félaga tekna fram yfir fyrrum stjórnarmenn í Heimdalli. 21.9.2005 00:01
Tónlistarhús gerbreyti svip borgar Nýtt tónlistarhús í Reykjavík verður áhrifamikið kennileiti og gerbreytir svip borgarinnar. Það er hinn þekkti listamaður Ólafur Elíasson sem á heiðurinn af þeirri tillögu, sem þótti bera af öðrum í samkeppni um útlit hússins. 21.9.2005 00:01
Jarðgöng er eina leiðin "Við förum fram á öruggar samgöngur á svæðinu og ég sé ekki að þær verði tryggðar öðruvísi en með göngum," segir Jónas Guðmundsson, sýslumaður á Bolungarvík og formaður Almannavarnarnefndar bæjarins. Í ályktun sem fundurinn samþykkti segir að um 600 til 700 ökutæki fara um Óshlíð daglega og oft hafi legið við stórslysi vegna grjóthruns og snjófljóða. 21.9.2005 00:01
Les fræðingum pistilinn "Ég ætla sko að láta þá heyra það," segir Sigurður Ragnar Kristjánsson en hann býr á sambýli á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra. Á morgun ætlar hann að halda fyrirlestur á ráðstefnu sem Svæðisskrifstofan stendur fyrir í Gullinhömrum og hefst hún í dag en þar verða fjölmargir fyrirlesarar sem segja frá niðurstöðum rannsókna og miðla af reynslu sinni í málefnum fatlaðra. 21.9.2005 00:01
Vill að æðstu menn segi af sér Jóhannes Jónsson í Bónus vill að dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri og yfirmaður efnahagsbrotadeildar segi af sér eftir að héraðsdómur vísaði Baugsmálinu frá. Össur Skarphéðinsson alþingismaður tekur í sama streng. Dómsmálaráðherra segir að réttarkerfið verði að fá tóm til að vinna sína vinnu. 21.9.2005 00:01
Stór hluti boða úr sendum falskur Stór hluti þeirra boða sem berast úr gömlum neyðarsendum er falskur. Rúmar tíu klukkustundir tók að finna neyðarsendi sem unglingar í Sandgerði settu af stað í gær. 21.9.2005 00:01
Vill verndaða vinnustaði burt Verndaða vinnustaði fyrir fatlaða ætti að leggja niður í núverandi mynd. Þetta segir írskur iðjuþjálfi sem hélt fyrirlestur um atvinnumál fatlaðra hér á landi. Höfuðáherslu á að leggja á að skapa fötluðum tækifæri til að komast út á almennan vinnumarkað. 21.9.2005 00:01
Hafi verið numin á brott Lögreglan í Reykjavík rannsakar hvort átta ára gömul stúlka hafi verið numin á brott skammt frá Laugardalslauginni. 21.9.2005 00:01
Börn vantar varanlegt fóstur Íslensk börn vantar varanlegt fóstur - en á sama tíma velja barnlaus pör frekar tæknifrjóvgun eða að ættleiða börn að utan. 21.9.2005 00:01
Lög vantar um stofnunina Á komandi þingi ætlar Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, að leggja fram fyrirspurn um rekstur Ratsjárstofnunar, en komið hefur fram að stofnunin reynir að stýra ófaglærðu starfsfólki sínu frá stéttarfélagsaðild. 21.9.2005 00:01
Tággrönn áður en hún fékk sér bíl Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir hélt sér í formi með því að ferðast fótgangandi og með strætó. Hún segist nú þræll bílsins en fær sér stundum göngutúr - út í sjoppu. </font /></b /> 21.9.2005 00:01
Eldri borgarar á fimleikamót Fjöldi íslenskra eldri borgara hyggur á þátttöku í fimleikasýningunni Gullnu árin 2005 sem Fimleikasamband Evrópu efnir til á Kanaríeyjum í nóvember. Sýningin er nú haldin í fyrsta sinn en stefnt er að því að hún fari fram fjórða hvert ár í framtíðinni. 21.9.2005 00:01
Vilja samning um sjúkraflutninga Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga og heilbrigðisráðuneytið til að semja um framkvæmd sjúkraflutninga á stöðum þar sem slökkvilið sveitarfélaganna sjá ekki um þá nú þegar. 21.9.2005 00:01
Fálkanum slepp úr Húsdýragarðinum Grænlandsfálka, sem dvalið hefur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því í sumar, var sleppt við Hengil fyrripartinn í gær. 21.9.2005 00:01
Kona fékk felldan niður kostnað Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í vor þar sem fellt var úr gildi fjárnám á hendur konu vegna sakarkostnaðar sem hún hafði ekki burði til að greiða. Hún hafði greitt sekt sem henni var gerð í opinberu máli, en ekki sakarkostnað sem hún átti einnig að greiða. 21.9.2005 00:01
Vilja flugið ekki flutt Verkalýðsfélag Húsavíkur varar við umræðu meðal stjórnmálaafla í Reykjavík um flutning innanlandsflugs frá höfuðborginni. Félagið segir völlinn gegna veigamiklu hlutverki er varði öryggishagsmuni landsbyggðarinnar. 21.9.2005 00:01
Lokað á Blönduósi og Siglufirði Öllum starfsmönnum þjónustustöðva Símans á Blönduósi og Siglufirði var sagt upp störfum í gær. Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi fyrirtækisins, segir uppsagnirnar lið í hefðbundinni hagræðingu sem unnið hafi verið að um nokkurt skeið. 21.9.2005 00:01
Dylgjur stjórnmálamanna óþolandi Embætti Ríkislögreglustjóra hafnar því alfarið að lagt hafi verið upp í rannsóknina á Baugi á öðrum forsendum en faglegum. "Lög og reglur gilda um hvernig rannsóknir byrja og eftir þeim hefur verið farið nákvæmlega," segir Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra. 21.9.2005 00:01
Þrír slasaðir eftir árekstur Laust eftir klukkan sex í gærdag var fólksbifreið ekið aftan á flutningabifreið við hraðahindrun sem nýbúið er að setja upp á Njarðarbraut í Reykjanesbæ. Þrír voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir slysið, ökumaður og farþegi fólksbílsins, auk ökumanns flutningabifreiðarinnar. 21.9.2005 00:01
Vanhæfi hjá Samkeppniseftirliti Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, hefur lýst yfir vanhæfi til að fjalla um samruna Burðaráss og Straums fjárfestingarbanka. Gylfi Magnússon, formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins, segir það byggja á því að hann sé hluthafi í öðru þessara félaga. Samkvæmt heimildum Markaðarins er Páll Gunnar hluthafi í Burðarási. 21.9.2005 00:01
Ásakanir án innistæðu "Mér finnst þetta mjög alvarleg tíðindi fyrir íslenskt réttarkerfi vegna þess að ákæra hefur í för með sér slíka röskun á högum fólks að það verður að gera kröfu til ákæruvaldsins um að skýrt komi fram í hverju brot er falið og gegn hverju og hverjum," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. 21.9.2005 00:01
Áfall fyrir ákæranda Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður og formaður vinstri grænna segir það áfall eftir víðtæka og harkalega aðgerð af hálfu lögreglu og ákæranda að uppskeran skuli ekki vera meiri en raun ber vitni í Baugsmálinu. "Það er ekki hægt annað en að líta á þetta sem stóráfall fyrir ákæruvaldið." 21.9.2005 00:01
Bæjarstjórn harmar andstöðu Bæjarstjórn Reykjanesbæjar er sammála niðurstöðu nýrrar skýrslu um að skynsamlegt sé að sameina sveitarfélögin Garð, Sandgerði og Reykjanesbæ í eina heild. Bókun þessa efnis var samþykkt einróma á fundi bæjarstjórnar á þriðjudag. 21.9.2005 00:01