Fleiri fréttir

Samruninn úr sögunni

Samruni Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH og Sölusambands íslenskra fiskframleliðenda mun endanlega vera úr sögunni eftir að SÍF ákvað um helgina að kaupa franskt matvælafyrirtæki fyrir 29 milljarða króna, sem er þrefalt andvirði móðurfélagsins SÍF. Sameiningin var um tíma mikið keppikefli Íslandsbanka og átti SÍF orðið fjórðungshlut í SH, en hefur nu selt hann.

Samherji stofnar nýtt fyrirtæki

Útgerðarfyrirtækið Samherji á Akureyri hefur stofnað fyrirtæki í Cuxhafen í þýskalandi, sem á að vinna úr íslenskum ferksfiski og dreifa honum ferskum á markað. Til að byrja með verður unnið úr karfa og honum dreift til veitingahúsa í þýskalandi og nálægum löndum.

Rannsókninni lokið

Rannsókn á láti Sri Rhamawati er svo til lokið og verður málið sent til ríkissaksóknara á næstunni. Beðið er formlegrar niðurstöðu krufningar, en samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu lést hún af völdum höfuðáverka. Þá er beðið niðurstöðu DNA-rannsóknar frá Noregi.

Samruninn úti

Samruni Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH og Sölusambands íslenskra fiskframleliðenda, SÍF er endanlega úr sögunni eftir að SÍF ákvað um helgina að kaupa stórt franskt matvælafyrirtæki og selja um leið rúmlega 22% hlut sinn í SH.

Óska eftir áliti Umboðsmanns barna

Fræðsluráð Reykjavíkur hefur óskað eftir áliti Umboðsmanns barna á rétti barna til náms í verkfalli og hver eigi að verja rétt þeirra þegar hagsmunir tveggja hópa rekast á, eins og í verkfalli grunnskólakennara. Áheyrnarfulltrúi foreldra lagði fram fyrirspurn um réttindi barna á fundi fræðsluráðs sjötta þessa mánaðar.

Eimskip í flutning óunnins fisks

Eimskip ætlar sér skerf í þeim miklu flutningum sem eru orðnir með frystan óunnin fisk úr öllum heimshornum til Kína. Þaðan er hann fluttur aftur fullunninn á markað á Vesturlöndum.

Búið að útskrifa tvo hinna slösuðu

Tveir af þeim þremur Íslendingum sem slösuðust í sprengjuárásinni í Kabúl á laugardag, voru útskrifaðir af sjúkrahúsi í morgun. Þeir hafa allir óskað eftir því að yfirgefa Afganistan og koma til Íslands næsta föstudag.

Fundur boðaður á morgun

Forsætisráðherra hvetur deilendur í kennaradeilunni til að setjast að samningaborðinu aftur og ítrekar að lög verði ekki sett á verkfallið. Launanefnd sveitarfélaganna segir gerðadóm í málinu ekki koma til greina, en að tilboð sem sáttasemjari lagði fram, standi enn. Ríkissáttasemjari var boðaður með stuttum fyrirvara á fund forsætisráðherra nú í hádeginu og þar var boðað til fundar á morgun að því er fram kom í hádegisfréttum útvarps.

Fundur á morgun

Nýr fundur hefur verið boðaður í kennaradeilunni á morgun samkvæmt hádegisfréttum Ríkisútvapsins. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari gekk á fund forsætisráðherra laust fyrir klukkan tólf og í útvarpsfréttum kom fram að þar hefði verið ákveðið að funda skyldi á nýjan leik á morgun.

Banki tapaði slysabótum í deCODE

Landsbankinn seldi Hinriki Jónssyni hlutabréf sín í deCODE á genginu 56 fyrir 5 milljónir króna en seldi þau tveimur árum síðar fyrir hann á 500 þúsund á genginu 5,95. Hinrik er 100% öryrki eftir höfuðhögg og hefur að mati geðlæknis verulega skerta hæfni til að stunda fjárhagsleg viðskipti.

Sölvi í Versló

Sölvi Sveinsson skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla hefur verið ráðinn skólastjóri Verslunarskóla Íslands. Hann tekur við af Þorvarði Elíassyni sem lætur af störfum í ágúst á næsta ári. Verkefni Sölva til að byrja með verða fólgin í að starfa sem afmælisnefnd skólans, en skólinn verður hundrað ára á næsta ári, en í ágúst tekur hans svo við embætti skólastjóra.

Hundur hrakti kindur fyrir björg

Hundur hrakti sex kindur fyrir björg í Vestmannaeyjum á laugardag, samkvæmt Eyjafréttum. Atvikið átti sér stað ofan við Kapplagötu vestan við Herjólfsdal. Talsvert af fé er þar í fjallinu og hafði hundinum verið sleppt þar lausum. Það þarf vart að taka það fram að kindurnar sex drápust í fallinu.

Heimili og Skóli á fund ráðherra

Framkvæmdastjóri og formaður stjórnar Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra fara á fund forsætisráðherra hálffimm í dag. Forsvarmenn Heimilis og skóla fóru þess á leit fyrir helgi að fá að ræða stöðu mála í verkfallsdeilunni við forsætisráðherra og var orðið við því.

3 ár fyrir ítrekuð kynferðisbrot

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag fertugan karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn fjórtán ára dóttur sinni og annarri stúlku, fimmtán ára. Brotin stóðu yfir í tvö ár og fólust meðal annars í samförum. Maðurinn neitaði sök, en framburður stúlknanna þótti trúverðugur.

Hjálmar gagnrýnir uppsögn samninga

Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins gagnrýnir í pistli á heimasíðu sinni þá innan vébanda verkalýðshreyfingarinnar sem hafa hótað uppsögn kjarasamninga ef kennarar nái góðum samningum.

Áttu ekki að fara af flugvelli

Upplýst hefur verið að íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsmorðsárás í miðborg Kabúl hafi verið í einkaerindum. Arnór Sigurjónsson yfirmaður Friðargæslunnar sagði í DV í vor eftir að norskur hermaður var myrtur að Íslendingarnir færu ekki útaf vallarsvæðinu nema brýna nauðsyn bæri til.

Þinghlé eftir mánuð

Alþingi Íslendinga kemur ekki saman til fundar alla þessa viku vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík segist undrandi á þessu vikufríi frá þingstörfum."

Fá úrræði eftir

Fá úrræði eru nú til lausnar kennaradeilunni. Tromp ríkissáttasemjara er að leggja fram miðlunartillögu fram hjá samninganefndunum, sem færi beint í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum. Miðlunartillaga er þó ekki lögð fram nema með samráði við samninganefndirnar.

Þrjú ár fyrir kynferðisbrot

Fertugur karl var dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa beitt fósturdóttur sína grófu kynferðislegu ofbeldi og leitað á vinkonu hennar. Dómarinn segir ákærða ekki eiga sér neinar málsbætur og ljóst að brot hans geti valdið stúlkunum margvíslegum sálrænum erfiðleikum.

Góð rödd gerir gæfumuninn

Nýleg rannsókn á röddum formanna íslensku stjórnmálaflokkanna sýnir að djúpar, yfirvegaðar raddir eru mest sannfærandi. Leiðtogarnir fimm eru afar misjafnir í þessu tilliti.

Vímuefnaneysla eykst í verkfalli

Kennaraverkfallið er að skapa hættulegt ástand í sumum hverfum borgarinnar að mati Láru Björnsdóttur, félagsmálastjóra Reykjavíkurborgar. Félagsmálaráð borgarinnar ákvað að fylgjast sérstaklega með ungmennum í borginni eftir að verkfallið hófst. Unglingafulltrúar sem hafa farið um hverfin sjá að vímuefnaneysla unglinga er að aukast að sögn Láru.

Þremenningarnir á leiðinni heim

Íslensku friðargæsluliðarnir sem særðust í sjálfsvígssprengjuárás í Kabúl í Afganistan á laugardag koma heim í sjúkraleyfi á föstudag. Tveir þeirra fara aftur til Kabúl eftir viku til tíu daga en óvíst er hvort Stefán Gunnarsson fari aftur út. Hann slasaðist mest af Íslendingunum í árásinni, fékk sprengjubrot í fót og neðri hluta líkamans. Afgönsk stúlka og bandarísk kona létust í árásinni.

Misbeita ríkisvaldi vegna R-lista

Sveitarfélögin fá ekki auknar tekjur á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn og Reykjavíkurlistinn er við völd í Reykjavík. Þetta segir Stefán Jón Hafstein, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.

Koma heim í lok vikunnar

Íslendingarnir þrír sem særðust í sjálfsmorðsárásinni í Kabúl á laugardag koma heim til Íslands í lok vikunnar. Þeir ætla að hugsa sinn gang og meta framhaldið, en halda líklega aftur til Afganistans eftir sjúkraleyfi.

Vilja álit Umboðsmanns barna

Reykjavíkurborg ætlar að fá Umboðsmann barna til að svara því hvort réttur kennara til að fara í verkfall, eða skylda sveitarfélaganna til að veita börnum fræðslu sé sterkari Foreldrar grunnskólabarna hafa bent á í verkfallinu að á Íslandi sé skólaskylda og réttur barna til menntunar skilgreindur í lögum.

Bólusetning virkar bara á 25%

Bólusetning gegn flensu virkar einungis á einn af hverjum fjórum sem láta bólusetja sig, samkvæmt nýrri viðamikilli rannsókn. Ítalskur læknir sem stóð að henni segir það ekki góða fjárfestingu fyrir fyrirtæki að bólusetja alla starfsmenn sína eða að stuðla að því að bólusetja stóran hluta þjóðar.

Fundur á morgun

Ríkissáttasemjari hefur boðað samningafund í kennaradeilunni á morgun, eftir fundahöld með forsætisráðherra í dag. Áður stóð ekki til að halda fund fyrr en eftir tíu daga. Lög á deiluna eru ekki í bígerð, og ólíklegt að gripið verði til þess að setja málið í gerðardóm. Sveitarfélögin segja að síðasta tilboð standi enn.

Fötluð börn fá gæslu

Rúmlega 60 fötluðum börnum í Reykjavík hefur verið boðið að nýta frístundarheimili Íþrótta- og tómstundaráðs í verkfalli kennara.

Aftur í Karphúsið án lausnar

"Menn koma fullkomlega óbundnir til fundarins," segir Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari sem boðað hefur samninganefndir kennara og sveitarfélaganna í Karphúsið eftir fund með forsætisráðherra.

Áhyggjur 10. bekkinga í verkfalli

Rannveig Elba Magnúsdóttir nemandi í tíunda bekk Háteigsskóla hefur miklar áhyggjur af áhrifum af verkfalli kennara á nám hennar.

Átta í verkfalli

Átta kennarar einkaskóla á höfuðborgarsvæðinu eru í verkfalli. Þar af eru sex kennarar af sextán í Ísaksskóla sem eru æviráðnir og á ábyrgð borgaryfirvalda, samkvæmt Eddu Huld Sigurðardóttur skólastjóra Ísaksskóla.

Hagar kaupa Skeljung

Hagar, sem reka Bónus og Hagkaup, hafa nú keypt Skeljung. Forstjóri Haga segir að neytendur njóti góðs af. Ekki stendur til að gera neinar breytingar á rekstrarfyrirkomulagi Skeljungs og verður fyrirtækið áfram rekið sem sjálfstætt hlutafélag.

Kaldaljós með 8 tilnefningar

Kvikmyndin Kaldaljós hlýtur átta tilnefningar til Eddunnar, íslensku kvikmyndaverðlaunanna. Karlar og konur eru nú í fyrsta sinn tilnefnd saman til leikaraverðlauna. Páll Steingrímsson fær heiðursverðlaun Eddunnar í ár, fyrstur íslenskra kvikmyndagerðarmanna.

Börn hringja meira sjálf

Börn eru í auknum mæli sjálf farin að tilkynna um ofbeldi og vanrækslu. Sjöfalt fleiri börn hringja í Neyðarlínuna vegna þessara mála nú en um síðustu áramót. Neyðarlínan, 112, hefur tekið á móti símtölum er varða barnavernd síðan rétt fyrir síðustu áramót, en í febrúar var þessi leið auglýst sérstaklega.

Þolendurnir þurfa aðstoð

Þolendur eineltis brotna saman og ná sér ekki nema með utanaðkomandi aðstoð hafi eineltið verið langt og viðvarandi. Rannsóknir sýna að í fyrstu hafa þolendur eineltis tilhneigingu til að leiða það hjá sér.

Eitt hús á hættusvæði

Stefanía Traustadóttir, bæjarstjóri í Ólafsfirði, segir húsið sem hýsir bæði heilsugæsluna og dvalarheimili bæjarins vera það eina sem er inni á hættusvæði samkvæmt nýju ofanflóðamati. Hún segir rétt að hafa í huga að líkurnar á flóði á húsin séu samt sem áður mjög litlar.

Afneitun mæðra algeng

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, segir almennt að þegar brotið er kynferðislega gegn börnum geti það oft valdið svo miklum sársauka hjá mæðrum barnanna að þær bregðist við með afneitun. Slíkt segir hann geta komið illa út gagnvart barninu sem sé skelfilegt en jafnframt segir hann að hægt sé að vinna með slíka hluti.

Tveir fyrir dóm vegna bankaráns

Tuttugu og eins árs maður hefur játað fyrir dómi að hafa framið vopnað bankarán í útibúi Búnaðarbanka Íslands á Vesturgötu í Reykjavík 17. nóvember í fyrra. Aðalmeðferð málsins var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Braut gegn fósturdóttur sinni

Maður var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa haft samfarir og önnur kynferðismök við fósturdóttur sína. Hann var jafnframt sakfelldur fyrir að hafa káfað á vinkonu hennar og fyrir vörslu barnakláms.

Barna íslenskar lesbíur í Danmörku

Sambýliskonurnar Íris Dögg Jónsdóttir og Margrét Guðjónsdóttir neyddust til þess að fá tæknifrjóvgun í Danmörku á Írisi til að eignast langþráð barn. Einhleypar konur og lesbíur fá ekki tæknifrjóvgun á Íslandi en danskur hjúkrunarfræðingur nýtir glufu í þarlendri löggjöf til að greiða götu kvenna í þessari stöðu.

Eldur í Ósk KE

"Við vorum ný hættir að draga og vorum á heimleið þegar við sáum þá veifa til okkar," sagði Sverrir Þór Jónsson, á Brynhildi HF-83, þegar hann var á leið í land með Ósk KE-5 í togi eftir að kviknaði í bátnum um ellefu sjómílur norðvestur af Sandgerði.

Ráðherra svarar verkfræðinemum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra þekktist í gær boð verkfræðinema við Háskóla Íslands um að heimsækja þá og kynna sér skólastarfið. Nemarnir skoruðu á ráðherra að mæta í opnu bréfi sem þeir rituðu síðasta föstudag.

Gögnin lágu fyrir

Viðeigandi gögn lágu fyrir þegar Kópavogsbær úthlutaði byggingarfélaginu Viðari ehf. byggingarrétt fyrir fjölbýlishús við Ásakór í Kópavogi í febrúar síðastliðnum, að mati Gunnars I. Birgissonar, formanns bæjarráðs.

Sjá næstu 50 fréttir