Fleiri fréttir

Mikill ávinningur af göngunum

Árlegur ávinningur Vesturlands vegna Hvalfjarðarganga nemur hálfum milljarði króna. Þá má rekja átján prósenta hækkun á fasteignaverði á Akranessvæðinu beint til Hvalfjarðarganganna.

Ummæli boða ekki gott

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra segir að ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að Framsóknarflokkurinn væri "ömurlegur flokkur" boði ekki gott. Aðspurður um framtíð R-listans segir Halldór að samstarfið hafi gengið vel.

Bóndinn lagði sig í lífshættu

Friðgeir Karlsson, bóndi að Knerri á sunnanverðu Snæfellsnesi, lagði sig í lífshættu þegar hann bjargaði hátt í hundrað kindum út úr logandi fjárhúsum sínum í gærkvöldi áður en hann varð frá að hverfa og 600 lömb og kindur, sem eftir urðu í fjárhúsunum, brunnu þar inni.

Hringveginum lokað

Brúin yfir Núpsvötn við Lómagnúp skemmdist í veðurofsanum í morgun og er ekki hægt að aka yfir hana. Lögreglan í Vestur-Skaftafellssýslu lokaði hringveginum um Skeiðarársand.

2 1/2 árs fangelsi hæfilegt

Ríkissaksóknari telur hæfilegt að allir sakborningar í líkfundarmálinu verði dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Verjendur krefjast sýknu af flestum ákæruliðum. Aðalmeðferð í Héraðsdómi lauk rétt fyrir hádegi.

Líðan góð eftir atvikum

Líðan þeirra sem lagðir voru inn á sjúkrahúsið á Akranesi eftir að hópferðabíll valt í vindhviðu skammt frá Hvalfjarðagöngum í morgun er góð eftir atvikum, að sögn lækna á sjúkrahúsinu. Tveir hinna slösuðu voru fluttir til Reykjavíkur vegna bak- og höfuðáverka en þeir hafa nú verið sendir aftur til Akraness.

Hringvegurinn enn lokaður

Enn er ekki ökufært á brúnni yfir Núpsvötn við Lómagnúpa sem skemmdist í veðurofsa í morgun. Lögreglan í Vestur-Skaftafellssýslu lokaði hringveginum um Skeiðarársand í morgun og er hann enn lokaður.

Héraðsdómur viðurkennir kröfuna

Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag stærstan hluta kröfu Jónasar Kristjánssonar í þrotabú DV sem forgangskröfu. Jónasi var sagt upp störfum sem ritstjóra blaðsins í desember árið 2001 og telur hann sig eiga inni ógreidd laun, bæði frá tímabili uppsagnarfrests og fyrri hluta árs 2001.

Samnorrænn markaður æskilegur

Samnorrænn símamarkaður yrði til þess að lækka verð á símtölum og minnka reglugerðarfargan í löndunum. Þetta kemur fram í skýrslu norrænu samkeppnisstofnananna sem kynnt var í Kaupmannahöfn í gær.

Rafmagn komið á á Höfn

Rafmagn er komið á á Höfn í Hornafirði og nágrenni þar sem skammta þurfti rafmagn í morgun eftir að Suðurlínan datt út. Línunni var komið í lag fljótlega eftir hádegi að sögn lögreglunnar á Höfn og er nú allt með felldu á nýjan leik.

Vill loka samningamenn inni

Menntamálráðherra vill ekki að ríkið blandi sér í kennaradeiluna, hvorki með lögum né ívilnunum fyrir sveitarfélög. Þorgerður Katrín vill hins vegar loka samningamenn inni uns lausn finnst á deilunni.

Samfylking komi út úr skápnum

Samtök herstöðvaandstæðinga hvetja Samfylkinguna til að skýra stefnu sína í varnarmálum. Þau saka Samfylkinguna um að "bera kápuna á báðum öxlum" í nýjum hugmyndum framtíðarhóps flokksins í varnarmálum.

Fundað í dag

Deiluaðilar í kennaradeilunni koma saman til fundar í húsi Ríkissáttasemjara klukkan hálf fjögur í dag. Þriggja klukkustunda árangurslaus fundur var haldinn í gær.

Mótmæla sameiningu skólanna

Foreldrar barna í Húsabakkaskóla í Svarfaðardal mótmæla harðlega hugmyndum um að sameina skólann Dalvíkurskóla. Talsmaður foreldra segist ekki trúa því að af sameiningunni verði þegar málið hafi verið skoðað ofan í kjölinn. Dæmi séu um að fólk flytji í sveitarfélagið gagngert til þess að senda börn sín í Húsabakkaskóla.

Ekki bara stefnt að tekjujöfnun

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra segir að tekjujöfnun sé síður en svo eina markmiðið í skattamálum. Samkvæmt útreikningum sem ASÍ vann fyrir Fréttablaðið hefur skattbyrði láglaunamanns þyngst frá því staðgreiðslukerfið var tekið upp 1988 en skattprósentan verður álíka og þá þegar skattalækkanir ríkisstjórnarinnar hafa tekið gildi.

HR og THÍ sameinaðir

Samþykkt hefur verið að sameina Háskólann í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands með stofnun einkahlutafélags sem taka mun yfir starfsemi beggja skólanna. Við sameininguna verður til næststærsti háskóli landsins.

Viðgerð ekki hafin vegna veðurs

Enn er ekki hægt að hefja viðgerðir á brúnni yfir Núpsvötn við Lómagnúp sökum veðurofsans að sögn Sveins Þórðarsonar, brúarverkstjóra á staðnum. Hringvegurinn er því enn lokaður við brúna sem skemmdist í veðurofsanum í morgun.

Refsingu frestað

Refsingu yfir manni vegna heimilisofbeldis var frestað í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, en hann var ákærður fyrir að hafa tekið eiginkonu sína hálstaki og hrint henni til og frá þannig að hún tognaði á hálsi.

Krefst tveggja ára fangelsisdóms

Saksóknari í líkfundarmálinu krefst, að sakborningarnir þrír verði hver um sig dæmdir til að sæta að lámarki tveggja ára fangelsi, við lok aðalmeðferðar málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Enn fremur taldi saksóknari tveggja og hálfs árs fangelsi vera hæfilega refsingu.

Allt annað en feluleik

Meta á stöðu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli út frá hernaðarlegum fremur en efnahagslegum forsendum samkvæmt tillögum framtíðarhóps Samfylkingarinnar. Jón Gunnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi Alþýðuflokksmaður af Suðurnesjum segir að sú tillaga að Íslendingar taki að sér rekstur flugvallarins í vaxandi mæli valdi sér ekki áhyggjum.

Uppboð eða útboð

Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra mælti fyrir frumvarpi á Alþingi í gær þar sem gert er ráð fyrir að tíðnir svokallaðrar 3. kynslóðar farsíma verði boðnar út.

Umboðsmaður neytenda

Þórunn Sveinbjarnardóttir, Samfylkingunni mælti í gær fyrir frumvarpi á alþingi um að stofnað verði sérstakt embætti umboðsmanns neytenda.

Nýtt hjartalyf handan við hornið

Prófanir Íslenskrar erfðagreiningar á nýju lyfi leiða í ljós að það hefur marktæk áhrif á áhrifaþætti hjartaáfalls. Tilraunum er ólokið en komist lyfið á markað mun verðmæti fyrirtækisins margfaldast.

Umfangsmiklar rannsóknir

Þótt rannsóknir ÍE á lyfinu DG031 hafi aðeins staðið yfir í tæpt ár þá má segja að öll saga fyrirtækisins hafi miðað að þessum áfanga.

Ný aðferð til að drepa krabbamein

Baldur Sveinbjörnsson prófessor við háskólann í Tromsö komst að því, ásamt samstarfsfólki að tvö þekkt verkjalyf drepa frumur í krabbameini sem leggst á lítil börn. Niðurstöður frumrannsóknar hafa vakið mikla athygli. </font /></b />

Áhrifaríkt lyf án aukaverkana

Tilraunalyfið DG031 sem Íslensk erfðagreining hefur prófað á 172 Íslendingum með góðum árangri kemur upphaflega frá þýska lyfjarisanum Bayer AG. Efnið er lítil lyfjasameind sem hindrar virkni tiltekinna prótína sem hvetja til myndunar bólguvaka sem aftur eru taldir geta leitt til hjartaáfalls.

Fjöldi mynda bjargaðist

Ýmis búnaður úr kajakleiðangri Blindrafélagsins virðist hafa bjargast, óskemmdur.

Fjöldi mynda bjargaðist

Ýmis búnaður úr kajakleiðangri Blindrafélagsins virðist hafa bjargast, óskemmdur.

Hraðakstur orsökin?

Verið er að rannsaka banaslysið við Varmahlíð í Skagafirði í fyrrakvöld og bendir flest til þess að hálka og of hraður akstur miðað við aðstæður hafi valdið því. 

Atvinnuleysi er áhygguefni

Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir aðspurður að þörf sé á að skoða þær tölur sem skýrt er frá í Fréttablaðinu í gær varðandi fækkun íbúa á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn ársfjóðung.

Halldór treystir deilendum

Forsætisráðherra segir að ekki standi til að setja lög á kennaraverkfallið. Hann segir mikilvægt að leysa málið en deilendur verði að gera það og það verði að treysta forystumönnum þeirra til þess.

Tuga milljóna tjón

Víst þykir að kviknað hafi í út frá heyi þegar 600-700 fjár brunnu inni á bænum Knerri á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Fjárhús, hlaða og vélageymsla, og margar vinnuvélar, brunnu þar til kaldra kola. Tjón er metið á tugi milljóna króna. Menn lögðu sig í mikinn háska við að reyna að bjarga sauðfénu.

Áfram leynd um Línu Net

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Orkuveitu Reykjavíkur fá ekki að sjá endurskoðanaskýrslu Línu Nets eins og þeir hafa beðið um. Lína Net var dótturfélag Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór Þórðarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórn Línu Nets hafi synjað beiðninni. Meirihluta stjórnarinnar mynda þeir Alfreð Þorsteinsson og Stefán Jón Hafstein, fulltrúar Reykjavíkurlistans.

Háskólar sameinast næsta sumar

Stofnaður verður nýr háskóli sem tekur yfir rekstur Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands. Samkomulag um þetta var undirritað í gær. Stefnt er að því að starfsemin verði endanlega sameinuð næsta sumar. Þá verður skólinn næst stærsti háskóli landsins með í kringum 2.600 nemendur og um 180 fasta starfsmenn.

Tillaga um hækkun gjalda aldraðra

Gjöld fyrir heimaþjónustu, fæði og akstur í félagsstarf í Reykjavík hækka um tuttugu milljónir króna á næsta ári miðað við tillögur sem liggja fyrir í félagsmálaráði Reykjavíkur vegna gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.

Logandi kindur í veðurofsa

Talið er að á sjöunda hundrað fjár hafi brunnið inni í eldsvoða á bænum Knerri á sunnanverðu Snæfellsnesi á mánudagskvöld. Mikið eignatjón varð þegar hlaða, fjárhús og skemma með fjölda tækja urðu eldi að bráð. Slökkvistarfi lauk í gær.

Ekki refsað fyrir að berja konuna

Héraðsdómur Reykjaness sleppti í gær manni við refsingu, sem sannað þótti að hafði gengið í skrokk á eiginkonu sinni. Maðurinn viðurkenndi að hafa lagt hendur á konuna eftir að grunur kom upp um framhjáhald hennar.

Kvöðum ekki aflétt

Ekki kemur til greina að aflétta kvöðum sem fylgja skipulagi vegna matvöruverslunar Bónuss og Hagkaupa í Spönginni að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns skipulagsnefndar borgarinnar.

Fiskmarkaður opnaður á Siglufirði

Fiskmarkaður hefur verið opnaður á Siglufirði. Ólafur Kárason, formaður bæjarráðs Siglufjarðar, segir að markaðurinn sé opnaður vegna aukinnar fiskgengdar á miðunum fyrir norðan land.

Yfirheyrður vegna dóplista

Lögreglan yfirheyrði í gær Björn Sigurðsson í Krummahólum í Breiðholti vegna nafnalista yfir dópsala sem hann birti á vef sínum dopsalar.tk. Nöfn tveggja lögreglumanna eru á vefnum og hefur annar þeirra kært Björn.

Vind lægir í dag

Óveðrið sem geisað hefur víða um land síðan á mánudag með miklu hvassviðri á Suður- og Vesturlandi mun ganga niður í dag, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.

Mikill uppblástur á Suðurlandi

Uppblástur á Suðurlandi í hvassviðrinu undanfarna tvo daga er sá mesti sem orðið hefur í mörg ár. Þetta segir Jón Ragnar Björnsson, fræðslufulltrúi Landgræðslu Íslands. Hann segir uppblásturinn hafi verið mestan í uppsveitum Rangárvallasýslu, sérstaklega í kringum Heklu. Hann segir mold, sand og vikur hafa myndað skafla á svæðinu.

Brúin yfir Núpsvötn skemmdist

Þjóðvegurinn lokaðist í gær þegar brúin yfir Núpsvötn við Lómagnúpa skemmdist í óveðrinu. Yfirborð brúarinnar opnaðist þegar málmgrindur sem lagðar voru í brúna fyrir skömmu flettust upp.

Ótrúlegri slysaalda í Langadal

Þrír bílar lentu utan vegar og einn árekstur varð í norðanverðum Langadal í gærdag. Enginn slaðasist alvarlega en tveir bílar eru nokkuð skemmdir.

Sjá næstu 50 fréttir