Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Aktywność Askji przyciąga uwagę naukowców Wulkanolodzy ściśle monitorują powiększanie się rozmrożonej szczeliny w jeziorze Askja. W sobotę obszar ten powiększył do 205 hektarów, a następnie w ciągu kolejnego dnia, rozmrożona powierzchnia powiększyła się o dalsze 50 hektarów. 14.2.2023 17:48
Ástráður settur ríkissáttasemjari í deilu SA og Eflingar Ástráður Haraldsson héraðsdómari hefur verið settur ríkissáttasemjari í vinnudeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Í gær tilkynnti Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari að hann myndi segja sig frá deilunni. 14.2.2023 17:16
Flestir vantreysta Eflingu samkvæmt nýrri könnun Helmingur landsmanna telur fulltrúa Eflingar hafa staðið sig illa í yfirstandandi kjaradeilu. Þar munar mestu um kjósendur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks auk þeirra sem hæst laun hafa í landinu. 14.2.2023 16:06
Engin merki um geimverur að sögn Hvíta hússins Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins tók það skýrt fram á fréttamannafundi í gær að ekkert bendi til þess að hlutirnir þrír sem skotnir voru niður yfir Bandaríkjunum og Kanada á dögunum tengist geimverum. 14.2.2023 14:48
Réttarhöldin í Samherjamálinu hefjast í haust Ákveðið var í morgun að réttarhöldin yfir mönnunum tíu sem ákærðir eru í Samherjamálinu í Namibíu munu hefjast þann 2. október næstkomandi. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi yfir fram í júní árið 2024. 14.2.2023 14:06
Haley fer fram gegn Trump Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, lýsti því yfir í morgun að hún ætli í forsetaframboð. Hún er sú fyrsta sem lýsir yfir framboði eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti, lýsti því yfir í nóvember í fyrra að hann ætlaði að gera aðra atlögu að Hvíta húsinu. 14.2.2023 14:02
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Geta ekki bæði varið Bakhmut og undirbúið gagnárásir Bandaríkjamenn hafa varað ráðamenn í Úkraínu við því að næstu mánuðir verði mikilvægir og að þeir eigi að einbeita sér að undirbúningi gagnárása í vor, frekar en að verja Bakhmut. Úkraínumenn skortir skotfæri og varahluti við varnir gegn umfangsmiklum árásum Rússa, sem hafa litlum árangri skilað hingað til. 14.2.2023 14:00
Fjórir í gæsluvarðhaldi grunaðir um framleiðslu og sölu amfetamíns Fjórir eru í gæsluvarðhaldi í tengslum við fund lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á miklu magni fíkniefna við húsleitir í síðustu viku. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að fimm hafi verið handteknir í þessum aðgerðum gegn skipulagðri brotastarfsemi en fjórir úrskurðaðir í gæsluvarðhald. 14.2.2023 13:34
Tvö fimmtán ára grunuð um að hafa myrt sextán ára stúlku Stelpa og strákur, bæði fimmtán ára gömul, hafa verið handtekin af lögreglu grunuð um að hafa stungið sextán ára gamla stúlku til bana í almenningsgarði í Culcheth. 14.2.2023 13:11
„Ótrúlega mikið af skemmdum út um allt“ Gríðarlegar skemmdir eru á vegum víða um land eftir vatnavextina í gær. Staðan er verst á vesturhluta landsins en menn þar höfðu sjaldan séð annað eins. Tjón Vegagerðarinnar hleypur líklegast á tugum milljóna en hvað vegfarendur varðar fá þeir tjón ekki bætt ef varað hefur verið við skemmdum. Viðbúið er að viðgerðir taki nokkurn tíma. 14.2.2023 13:00
Flutningur á lyfjum og mat gæti stöðvast vegna verkfalla Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu deilir þungum áhyggjum með forstjórum hjúkrunarheimila af verkfalli olíubílstjóra sem hefst á morgun. Flutningur á mat og lyfjum gæti skerst verulega sem hefði gríðarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkvæmasta hóp samfélagsins. 14.2.2023 12:31
SA útilokar ekki að lagasetning sé eina leiðin í deilunni Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins útilokar ekki að setja verði lög á verkfall Eflingar. Samfélagið muni allt lamast um eða eftir helgi. Brýnt sé að nýr sáttasemjari verði skipaður í dag. Undanþágunefnd Eflingar kemur saman til síns fyrsta formlega fundar í dag og mun væntanlega seinni partinn eða í kvöld gefa fyrstu undanþágurnar vegna yfirstandandi verkfallsaðgerða. 14.2.2023 12:26
Loka Ólafsfjarðarvegi til að ná rútunni upp Tímabundin lokun verður á Ólafsfjarðarvegi á Norðurlandi eystra í dag svo hægt sé að vinna í því að ná rútu upp á veginn. 14.2.2023 12:00
Hröð bráðnun merki um að það styttist í Öskjugos Hröð bráðnun á ísnum á Öskjuvatni er merki um að kvika sé að nálgast yfirborðið að mati eldfjallafræðings hjá Háskóla Íslands. Mikil kvikusöfnun bendi til þess að gosið gæti orðið stórt. 14.2.2023 11:54
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjaradeila Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og yfirstandandi sem og yfirvofandi verkföll verða til umæðu í hádegisfréttum. 14.2.2023 11:36
Ómeiddir eftir sprenginguna: Starfsfólki boðin áfallahjálp Tveir aðilar sem fluttir voru á bráðamóttöku eftir sprengingu í metankút bifreiðar við Olís í gær eru ekki slasaðir, að sögn framkvæmdastjóra Olís. Hann segist skilja vel að atvikið veki upp viðrögð og áhyggjur hjá eigendum metanbíla. 14.2.2023 11:32
Jón Hjartarson er látinn Jón Hjartarson, fyrrverandi skólastjóri á Kirkjubæjarklaustri, fræðslustjóri Suðurlands, forstöðumaður skólaskrifstofu Suðurlands og framkvæmdastjóri Fræðslunets Suðurlands er látinn. Hann lést síðastliðinn sunnudag, 78 ára að aldri. 14.2.2023 11:17
Undanþágunefnd átt óformleg samtöl við lögreglu, slökkvilið og Vegagerðina Undanþágunefnd Eflingar hefur átt óformleg samtöl við fulltrúa lögreglu, slökkviliðs og Vegagerðar vegna boðaðra verkfallsaðgerða í olíudreifingu. Formaður nefndarinnar er Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. 14.2.2023 11:12
Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum. 14.2.2023 11:08
Náði að rétta flugvélina af 800 fetum yfir Kyrrahafi Flugvél United sem var á leið frá Maui á Havaii til San Fransisco hrapaði skyndilega yfir Kyrrahafi áður en flugmaðurinn náði að rétta hana af um 800 fet fyrir ofan hafið. Þetta gerðist stuttu eftir flugtak í desembermánuði og mátti litlu muna að flugvélin færist. 14.2.2023 10:54
Fundu fólk á lífi eftir átta daga Björgunarsveitarmenn, hermenn og aðrir leitarmenn í Tyrklandi fundu í morgun fólk á lífi í rústum húsa sem hrundu fyrir átta dögum síðan. Minnst þrír fundust á lífi í rústum húsa en leitað er í þremur héruðum Tyrklands. Sérfræðingar segja litlar líkur á því að margir muni finnast á lífi. 14.2.2023 10:20
Átta ára drengur talinn hafa látist eftir að hafa fengið raflost Átta ára gamall ástralskur drengur er talinn hafa látist eftir að hafa fengið raflost á meðan hann var í fríi með fjölskyldunni sinni á Fídji. Drengurinn fannst meðvitundarlaus í blómabeði á hótelinu og var úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í kjölfarið. 14.2.2023 10:07
Áhrif verkfallsins einskorðist ekki við höfuðborgarsvæðið Verkfall olíubílstjóra hefst á hádegi á morgun. Framkvæmdastjóri Olís segir áhrif verkfallsins ekki bara einskorðast við höfuðborgarsvæðið. Þá taki það ekki marga daga fyrir eldsneytið að klárast. 14.2.2023 09:53
Varar við að Rússar hyggi á valdarán Forseti Moldóvu hefur sakað Rússa um áætlanir um valdarán í Moldóvu með því að fá „erlenda skemmdarverkamenn“ til að steypa stjórninni í landinu. 14.2.2023 09:19
Annar tankurinn sprakk og minnti á jarðskjálfta Sprengingin mikla sem varð á bensínstöð Olís við Álfheima eftir hádegið í gær kom frá bílnum sem stóð við metandælu á stöðinni. Þar sem sprengingin er ekki talin tengjast dælunni og bensínstöðinni hefur vinnueftirlitið ekki lengur aðkomu að rannsókn málsins. Þetta herma heimildir fréttastofu. 14.2.2023 09:16
Hafa haft uppi á skynjurum úr meintum njósnabelgjum Talsmenn bandaríska hersins segja að tekist hafi að hafa uppi á skynjurum úr meintum kínverskum njósnabelg, þeim fyrsta skotinn var niður yfir Atlantshafi fyrir tíu dögum. 14.2.2023 08:01
Vestanátt, skúrir og síðar él en bjart norðaustantil Eftir hlýja og blauta sunnanátt gærdagsins verður vindur heldur vestanstæðari í dag og yfirleitt á bilinu átta til þrettán metrar á sekúndu. 14.2.2023 07:29
Fylgi Vinstri grænna heldur áfram að dala í nýrri könnun Fylgi Vinstri grænna, flokks Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, heldur áfram að dala og mælist nú 5,9 prósent í nýrri skoðanakönnun Prósents fyrir Fréttablaðsins sem birt var í morgun. Sjálfstæðisflokkur mælist með rúmlega 23 prósenta fylgi og Samfylkingin með rúmlega 22 prósent. 14.2.2023 07:19
Vatnavextir og leysingar setja samgöngur sums staðar úr skorðum Vatnavextir og leysingar undanfarið hafa víða sett samgöngur úr skorðum hér á landi. Skeiða- og Hrunamannavegi hefur þannig verið lokað við Stóru-Láxá. Búast má við að vegurinn verði lokaður í að minnsta kosti sólarhring, þar til síðdegis á þriðjudag. 14.2.2023 07:02
Reyndist vera að framkvæma andlega athöfn með logandi kyndli Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að tilkynnt var um eld í húsnæði í Hafnarfirði. Í ljós kom að húsráðandi hafi þar verið að framkvæma einhvers konar andlega athöfn með logandi kyndli. 14.2.2023 06:48
Þrír skotnir til bana í háskóla í Michigan Að minnsta kosti þrír létust og fimm særðust hið minnsta þegar byssumaður hóf skothríð á svæði Ríkisháskólans í Michigan (e. Michigan State University (MSU)) í East Lansing í Bandaríkjunum í nótt. 14.2.2023 06:42
Skjálftar á Kolbeinseyjarhrygg í nótt Um 1:15 í nótt hófst skjálftahrina um 200 kílómetra norður af Gjögurtá. Mælst hafa fimm skjálftar stærri en 3,0 að stærð af þeim voru tveir stærstu voru 3,6 að stærð. 14.2.2023 06:35
Neyðarástand á Nýja-Sjálandi Neyðarástandi hefur nú verið lýst yfir á öllu Nýja Sjálandi vegna fellibylsins Gabriellu sem hefur víða valdið gríðarlegu tjóni. 14.2.2023 06:25
Fjölmenn mótmæli í Ísrael: „Þau heyra og þau eru hrædd“ Tugþúsundir Ísraelsmanna mótmæltu á götum Jerúsalem í gær vegna fyrirhugaðra breytinga á réttarkerfi landsins. Breytingarnar hafa verið harðlega gagnrýndar, sérstaklega þar sem þær eru kynntar í skugga réttarhalda yfir forsætisráðherra landsins sem grunaður er um spillingu. 14.2.2023 00:09
Tvisvar skorið á dekk bifreiðar í eigu konu á tíræðisaldri Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir vitnum af eignaspjöllum þegar skorið var á dekk á bifreið í eigu konu á tíræðisaldri. Þetta er í annað skiptið sem slíkt gerist á nokkurra mánaða tímabili. 13.2.2023 23:25
Ár flæða yfir bakka sína á vatnasviði Elliðaánna Miklir vatnavextir hafa verið í dag á öllu vestanverðu landinu og ár víða flætt yfir bakka sína. Á Vestfjörðum lokaðist aðalgatan á Tálknafirði, í Borgarfirði eru vegir víða umflotnir og í Reykjavík eru flóð á vatnasviði Elliðaánna. 13.2.2023 22:11
Ekki jafn mikið rennsli í Elliðaám í mörg ár Flóð í Elliðaám er nú í hámarki og mælist rennsli þeirra fimmtíu rúmmetrar á sekúndu. Um er að ræða mesta rennsli ána í mörg ár. 13.2.2023 21:15
Guðmundur verður við beiðni Aðalsteins Vinnumarkaðsráðherra hefur samþykkt beiðni ríkissáttasemjara um að hann stígi til hliðar í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA). Tilnefndur verður aðstoðarsáttasemjari sem mun vinna að lausn deilunnar. 13.2.2023 20:20
„Sú afsökunarbeiðni mun aldrei koma af vörum mínum“ Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir fordæmalausa stöðu vera komna upp á íslenskum vinnumarkaði. Hann ætlar ekki að biðja formann Eflingar afsökunar þrátt fyrir að hún hafi krafist þess í dag. 13.2.2023 20:11
Undirsláttur nýju brúarinnar farinn að skemmast Undirsláttur nýrrar brúar yfir Stóru-Laxá er þegar farinn að skemmast vegna mikilla vatnavaxta. Rjúfa þarf veginn við ána svo stórt tjón verði ekki á brúnni. 13.2.2023 19:42
Varar fólk við að hamstra eldsneyti Framkvæmdastjóri Skeljungs segir ljóst að fólk sé farið að hamstra eldsneyti vegna yfirvofandi verkfalls olíubílstjóra. Slökkviliðsstjóri segir hamstrið vera varasamt og mælir með því að fólk sleppi því. 13.2.2023 19:09
Hafa hægt á afgreiðslu umsókna frá Venesúela vegna rannsóknarskyldu Útlendingastofnun hefur ekki synjað neinum ríkisborgara frá Venesúela um vernd í efnislegri meðferð frá því úrskurður kærunefndar Útlendingamála um viðbótarvernd lá fyrir síðasta sumar enda bundin af úrskurðum hennar. Af fjórtán hundruð umsóknum sem bíða afgreiðslu eru níu hundruð frá fólki frá Venesúela. 13.2.2023 18:59
Keyrði á gangandi vegfarendur í New York Karlmaður var í dag handtekinn í New York eftir að hafa keyrt á gangandi vegfarendur á sendiferðabíl. Að minnsta kosti tveir liggja þungt haldnir á spítala eftir atvikið. 13.2.2023 18:39
Krapaflóð fallið á nokkrum stöðum á vestanverðu landinu Þá nokkur krapaflóð hafa fallið á vestanverðu landinu í dag. Í morgun féll flóð í Gemlufalli í Dýrafirði, annað flóð fyrir hádegi á Kleifaheiði og þó nokkur í Saurbæ í Dalasýslu. Þar hefur einnig ein skriða fallið. 13.2.2023 17:51
„Ljóst er að túlkun vinnulöggjafarinnar er í uppnámi“ Landsréttur úrskurðaði í dag að Efling þurfi ekki að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að með þessu sé túlkun vinnulöggjafarinnar í uppnámi. 13.2.2023 17:34