Innlent

Tvisvar skorið á dekk bifreiðar í eigu konu á tí­ræðis­aldri

Bjarki Sigurðsson skrifar
Tvisvar hefur verið skorið á dekk bílsins með nokkurra mánaða millibili.
Tvisvar hefur verið skorið á dekk bílsins með nokkurra mánaða millibili.

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir vitnum af eignaspjöllum þegar skorið var á dekk á bifreið  í eigu konu á tíræðisaldri. Þetta er í annað skiptið sem slíkt gerist á nokkurra mánaða tímabili. 

Á föstudaginn var skorið gat á þrjú dekk bifreiðar í eigu 93 ára gamallar konu í Vestmannaeyjum. Ættingjar konunnar vöktu strax athygli á málinu á Facebook og óskuðu eftir upplýsingum um málið. 

„Mér er þetta algjörlega óskiljanlegt og hún auðvitað harmi slegin að einhver hati hana svo mikið. Og ef þessi einstaklingur á eitthvað óuppgert við einhvern í okkar stórfjölskyldu þá bið ég hann að tala við lögregluna og láta hana mömmu í friði. Því eitt veit ég fyrir víst að hún hefur ekki gert neinum neitt,“ skrifaði dóttir konunnar. 

Lögreglan í Vestmannaeyjum deildi færslunni síðan á Facebook-síðu inni í dag. Þar var óskað eftir vitnum að atvikinu og hver sem gæti veitt upplýsingar um hver hafi verið að verki beðinn um að hafa samband við lögregluna. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×