Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Björgunarsveitarfólk á síðustu dropunum og bíður hvíldar Aftakaveður er á sunnanverðu landinu og gular og appelsíngular veðurviðvaranir í gildi víðast hvar. Björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúst og bíða í ofvæni eftir því að fá hvíld eftir langa helgi. 19.12.2022 11:52
„Þetta er ein af okkar stærri bilunum“ Öllum sundlaugum höfuðborgarsvæðisins verður lokað út daginn í dag vegna bilunar í Hellisheiðarvirkjun. Bilunin er ein sú umfangsmesta sem komið hefur upp, að sögn framkvæmdastýru Veitna. Íbúar þurfi þó ekki að hafa áhyggjur af upphitun heimila í kuldanum sem nú ríkir. 19.12.2022 11:52
Samþykkja að vernda þriðjung hafs og jarðar Samkomulag sem ríki heims náðu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika er sagt stærsta skrefið til þessa í verndun land- og hafsvæða. Það felur einnig í sér fjárhagslegan stuðning til þess að vernda líffræðilegan fjölbreytileika í þróunarríkjum. 19.12.2022 11:49
Hádegisfréttir Bylgjunnar Veðrið, færðin og samgöngutruflanir verða aðal umræðuefni hádegisfrétta Bylgjunnar í dag. 19.12.2022 11:36
Hótaði þremur félögum sínum með skotvopni á Heimsenda í Kópavogi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann sem hafði hótað þremur félögum sínum með skotvopni í hesthúsahverfinu á Heimsenda í Kópavogi í nótt. 19.12.2022 10:57
Fjölmargir Tene-farar sársvekktir og í óvissu Nokkur hundruð Íslendingar reiknuðu með að vera þessa stundina í háloftunum á leið í sól og sumaryl á Tenerife. Óvíst er hvenær hægt verður að fljúga. Á vef Keflavíkurflugvallar má sjá að mjög misjafnt er hvernig flugfélögin sjá daginn fyrir sér hvað varðar óvissu með flug. 19.12.2022 10:52
Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað vegna bilunar Bilun er komin upp í Hellisheiðarvirkjun svo engin framleiðsla er á heitu vatni sem stendur. Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað vegna þessa. 19.12.2022 10:29
Kærðu úrskurðinn og bíða nú niðurstöðu Landsréttar Embætti héraðssaksóknara hefur kært gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í hryðjuverkamálinu svokallaða til Landsréttar. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embættinu, í samtali við fréttastofu. 19.12.2022 10:23
Ekki viss um að heimilislausir hafi ekki vitað af opnun skýla Aldrei kom annað til greina en að halda neyðarskýlum borgarinnar fyrir heimilislausa opnum í óveðri sem gerði um helgina, að sögn formanns borgarráðs. Hann segir leitt ef upplýsingar um opnunartíma skýlanna hafi ekki komist til skila en efast um að heimlislausir hafi ekki vitað af honum. 19.12.2022 10:15
Veðurvaktin: Loka Reykjanesbrautinni á ný Reykjanesbraut hefur verið lokað og öllum flugferðum Icelandair til Evrópu í fyrramálið verið aflýst vegna veðurs. 19.12.2022 09:58
Fylgdarakstur gengið brösulega og búast við að lokanir standi lengi Allar aðalleiðir á suðvesturhorni landsins eru lokaðar vegna veðurs og ófærðar og sama á við víðar á landinu, á Vesturlandi, Vestfjörðum og sunnan Vatnajökuls. 19.12.2022 09:46
Fimm skotnir í „hrottalegri“ árás í Kanada Fimm voru skotnir til bana í fjölbýlishúsi í úthverfi Toronto í Kanada í nótt. Árásarmaðurinn særði minnst einn til viðbótar en hann var svo skotinn til bana af lögregluþjónum. Lögreglan hefur lýst árásinni sem hrottalegri. 19.12.2022 09:24
Skoði hvort borgin kaupi eigin snjóruðningstæki Formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar segist vilja láta skoða hvort skynsamlegt sé fyrir borgina að festa kaup á eigin snjóruðningstæki til að hægt verði að ryðja húsagötur fyrr. Til stendur að fara í húsagöturnar í dag áður en bætir í snjó eða hann verður að klaka. 19.12.2022 09:21
Ævintýraleg helgi að baki hjá Þorbirni: „Þetta var bara endalaust“ Steinar Þór Kristinsson, frá björgunarsveitinni Þorbirni á Grindavík, telur að fjölmargir ferðamenn hafi misst af flugferðum af landi brott um helgina. Fleiri hundruð manns var komið til bjargar. „Þetta var bara endalaust,“ segir Steinar Þór. 19.12.2022 09:09
Öllu innanlandsflugi og tugum flugferða til og frá Keflavík aflýst Búið er að aflýsa öllu innanlandsflugi í dag og tugi flugferða til og frá Keflavíkurflugvelli vegna veðurs í dag. 19.12.2022 09:08
Haraldur Noregskonungur lagður inn á sjúkrahús Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló. 19.12.2022 08:37
Mannlausir bílar tefja fyrir mokstri og sumir troða sér í gegnum lokun Mjög blint er á Suðurnesjum, skafrenningur og hávaðarok. Formaður Björgunarsveitarinnar Suðurnes hvetur ökumenn til að virða lokanir. Ekið er með bíla í kippum á milli Reykjanesbæjar og höfuðborgarsvæðisins. 19.12.2022 08:28
Ellefu slösuðust alvarlega í mikilli ókyrrð í lofti Að minnsta kosti þrjátíu og sex slösuðust og þar af ellefu alvarlega eftir að Airbus farþegaþota frá Hawaian Airlines á leið frá Phoenix í Arizona til Hawaii lenti í mikilli ókyrrð í lofti. 19.12.2022 08:26
Tuga sjóliða saknað eftir að taílensku herskipi hvolfdi Taílensku herskipi hvolfdi í ofsaveðri á Taílandsflóa í gær og lentu um hundrað sjóliðar í sjónum þegar skipið sökk. 19.12.2022 08:21
Könnuðu skemmdirnar á ferjunni við geimstöðina Áhöfn Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðu notuðu vélmennaarm til þess að kanna skemmdir sem urðu á rússneskri Soyuz-geimferju í gær. Yfirvöld á jörðu niðri íhuga hvort senda þurfi annað geimfar til þess að ferja hluta áhafnarinnar heim. 19.12.2022 08:05
„Löng helgi hjá björgunarsveitum á Suðurnesjum“ Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum var kallað út snemma í morgun til að sinna ýmsum verkefnum tengdu óveðrinu sem nú gengur yfir landið. 19.12.2022 07:38
Norðaustan stormur og viðvaranir Veðurstofan spáir norðaustan hvassviðri eða stormi víða um land í dag og jafnvel rok á Suðausturlandi. 19.12.2022 07:06
Ár alvarlegra líkamsárása og upplýsingaóreiðu hjá lögreglunni Mikil aukning hefur orðið í alvarlegum ofbeldisbrotum hér á landi frá síðustu árum. Lögreglan segir almenning tilbúnari til að grípa í og beita hættulegum vopnum. Hún hefur þá sjaldan staðið í jafn ströngu og á liðnu ári. Við skulum líta yfir farinn veg. 19.12.2022 07:01
Forseti General Motors telur tvinn bíla tímaskekkju Mark Reuss, forseti General Motors segir að mikill misskilningur sé á kreiki þegar kemur að rafbílum. Meðal annars ræddi Reuss um tvinnbíla sem hann telur raunar ekki eiga sér stað á markaði eins og staðan er núna og telur að framleiðendur eigi að einbeita sér að hreinum rafbílum. 19.12.2022 07:01
Átta flugferðum aflýst í nótt Átta flugferðum hingað til lands hefur verið aflýst í nótt vegna veðursins sem gengur yfir, þar á meðal öllu Ameríkuflugi, ef undan er skilin flugvél Icelandair frá Newark í New York. 19.12.2022 06:47
Hellisheiði og Reykjanesbraut báðar lokaðar Óveður gengur nú yfir landið og eru gular viðvaranir í gildi víða og appelsínugul viðvörun í gildi á Suðausturlandi. 19.12.2022 06:43
Drónaárásir á Kænugarð í morgunsárið Loftvarnaflautur hafa ómað í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði í morgun vegna drónaárása rússneska hersins. Vítalí Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöldi sprenginga hafi heyrst í höfuðborginni í morgun. 19.12.2022 06:31
Ógnaði nágranna með skóflu eftir deilur um rutt bílastæði Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna deilna nágranna um bílastæði sem búið var að ryðja við heimili þeirra í hverfinu 221 í Hafnarfirði í gær. 19.12.2022 06:08
Birgir fundaði með talíbönum í Afganistan Birgir Þórarinsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er fyrsti erlendi stjórnmálamaðurinn til að heimsækja talíbana síðan þeir tóku völd í águst. Hann segir mikilvægt að alþjóðasamfélagið ræði við talíbana, annars muni það aðeins bitna á almenningi. Birgir hvatti ríkisstjórn talíbana til að virða mannréttindi. 18.12.2022 23:30
„Vindurinn verður ótrúlega mikill“ Ekkert ferðaveður verður á Suðausturlandi á morgun. Vindhviður geta farið upp í fimmtíu metra á sekúndu og óvissustig Almannavarna tekur gildi í fyrramálið. „Mjúk lokun“ tekur gildi á Hellisheiði og í Þrengslum klukkan fjögur í nótt. 18.12.2022 22:10
Nítján létust þegar vörubíll fullur af eldsneyti sprakk Nítján létust og yfir þrjátíu særðust þegar vörubíll fullur af eldsneyti sprakk í jarðgöngum norður af Kabúl, höfuðborg Afganistan. Fjölmargir festust inni í göngunum og gæti tala látinna hækkað. 18.12.2022 21:18
Pólverjar um þriðjungur útskriftarnema frá Fisktækniskólanum Tæplega þriðjungur nemenda sem útskrifuðust úr Fisktækniskóla Íslands í vikunni sem leið eru Pólverjar. Rekstrarstjóri fiskvinnslu í Grindavík segir fiskvinnsluna ekki geta verið án erlends vinnuafls. Pólverjarnir eru hæstánægðir með námið sem að hluta var kennt á pólsku. 18.12.2022 20:45
Syngjandi starfsmenn á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli Það skortir ekkert á hæfileika starfsmanna hjúkrunar- og dvalarheimilisins Kirkjuhvols á Hvolsvelli þegar hljóðfæraleikur og söngur er annars vegar, því á aðventunni skemmtir starfsfólk heimilisfólki með söng og spili á sérstökum kaffihúsa jólatónleikum. 18.12.2022 20:07
Óvissustig Almannavarna vegna veðurs Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs, á morgun mánudaginn 19. desember. 18.12.2022 19:45
Auglýsingaherferð sýnir glæstan lífsstíl rússneskra hermanna Ný auglýsingaherferð Rússa sýnir ungan mann kaupa sér glænýjan bíl fyrir peningana sem hann fékk fyrir þátttöku í innrásinni í Úkraínu. Yfirvöld í Rússlandi halda áfram að sækja fleira fólk í herinn þrátt fyrir að hafa sagt að til væri feykinóg af hermönnum. 18.12.2022 18:53
Heimilislausir á Granda fengu snemmbúna jólagjöf á óveðurshelgi Heimilislaus maður segir að jólin hafi komið snemma um helgina í neyðarskýlinu á Granda. Eftir að notendur þess sendu út neyðarkall hafi samfélagið tekið sig til og gefið mönnunum rúmar hundrað þúsund krónur, eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað oft áður. 18.12.2022 18:47
Garðvegur lokaður: Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík mjög slæm Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík er mjög slæm. Garðvegur verður lokaður í einhvern tíma vegna snjómoksturs. Á svæðinu er enn mjög þungfært. 18.12.2022 18:23
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heimilislaus maður segir að jólin hafi komið snemma um helgina í neyðarskýlinu á Granda. Eftir að notendur þess sendu út neyðarkall hafi samfélagið tekið sig til og gefið mönnunum rúmar hundrað þúsund krónur, eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað oft áður. 18.12.2022 18:01
Allt tiltækt lið Reykjavíkurborgar að störfum Allt tiltækt lið Vetrarþjónustu Reykjavíkurborgar er að störfum við snjómokstur. Stofn- og tengibrautir eiga að vera færar en safngötur eru margar ófærar í efri byggðum. Ekki er gert fyrir úrkomu á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. 18.12.2022 17:50
Harpa rýmd vegna bilunar á úðunarkerfi Harpa var rýmd nú rétt í þessu vegna bilunar á úðunarkerfi. Gestir á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar þurftu að yfirgefa Eldborgarsalinn. 18.12.2022 17:01
Alvarlegt bílslys við Vík í Mýrdal Alvarlegt umferðarslys varð á þjóðvegi eitt fyrir stundu við Reynisfjall skammt frá Vík í Mýrdal þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Lögregla er við störf á vettvangi ásamt öðrum viðbragðsaðilum og var hinn slasaði fluttur með þyrlu Landhelgisgæslu á Landspítala. 18.12.2022 15:35
Skólameistari Hallormsstaðaskóla segir snjallsíma heilsuspillandi „Við erum að fara inn í nýjan heim, sem er kannski ekki góður og hollur fyrir okkur“, segir skólameistari Hússtjórnarskólans á Hallormsstað á Héraði, og vísar þar í notkun á samfélagsmiðlum, sem hún segir heilsuspillandi. Símar eru bannaðir í hádegismat í skólanum en leyfðir að öðru leyti. 18.12.2022 15:05
Spánn: Eina land Evrópu sem heldur í grímuskyldu Spánn er eina landið í Evrópu þar sem enn er skylda að nota grímur í öllum almenningssamgöngum, þar á meðal þegar flogið er á milli landa. Spænsk flugfélög og ferðaskrifstofur mótmæla þessu ákaft og segja þetta hafa skaðleg áhrif á viðskiptin. 18.12.2022 14:30
Kennurum varð að ósk sinni og skólastjórinn sagði upp Skólastjóri Hvassaleitisskóla hefur óskað eftir því að láta af störfum og Reykjavíkurborg hefur fallist á ósk hans. Fyrir mánuði undirrituðu fjölmargir kennarar og starfsmenn skólans yfirlýsingu þar sem þeir lýstu yfir vantrausti á hendur skólastjóranum. 18.12.2022 14:29
Appelsínugul viðvörun og kólnar fram að jólum Appelsínugul viðvörun er í gildi á suðausturlandi á mánudag og gular viðvaranir eru í gildi víðast hvar á landinu, fyrir utan Norðurland, á mánudag og þriðjudag. Útlit er fyrir mikið frost á Þorláksmessu og aðfangadag 18.12.2022 14:11