Innlent

Garð­vegur lokaður: Færð um Ás­brú og Innri-Njarð­­vík mjög slæm

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Svona var Grindavíkurvegur í nótt.
Svona var Grindavíkurvegur í nótt. Björgunarsveitin Þorbjörn.

Færð um Ásbrú og Innri-Njarðvík er mjög slæm. Garðvegur verður lokaður í einhvern tíma vegna snjómoksturs. Á svæðinu er enn mjög þungfært.

Gert er ráð fyrir því að færð muni spillast enn frekar með kvöldinu þegar hvessa tekur. Vegfarendur eru beðnir um að sýna biðlund og fara ekki af stað á illa búnum bílum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.  



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×