Innlent

Skólameistari Hallormsstaðaskóla segir snjallsíma heilsuspillandi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Bryndís Fiona Ford, skólameistari á Hallormsstað, sem hefur áhyggjur af mikilli notkun snjallsíma í þjóðfélaginu.
Bryndís Fiona Ford, skólameistari á Hallormsstað, sem hefur áhyggjur af mikilli notkun snjallsíma í þjóðfélaginu. Magnús Hlynur Hreiðarsson

„Við erum að fara inn í nýjan heim, sem er kannski ekki góður og hollur fyrir okkur“, segir skólameistari Hússtjórnarskólans á Hallormsstað á Héraði, og vísar þar í notkun á samfélagsmiðlum, sem hún segir heilsuspillandi. Símar eru bannaðir í hádegismat í skólanum en leyfðir að öðru leyti.

Hallormsstaðaskóli býður upp á þverfræðilegt 60 eininga nám í sjálfbærni og sköpun sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019 en þema skólaársins 2022-2023 er efnisþekking og handverk. 

15 nemendur er í skólanum í dag, en auk þess er fjöldi nemenda sem sækir fjölbreytt námskeið skólans. Snjallsímar eru leyfðir í skólanum en notkun þeirra er þó bönnuð í hádegismatnum.

Bryndís Fiona Ford, skólameistari á Hallormsstað hefur áhyggjur af notkun samfélagsmiðla, það snúist meira og minna allt um þessa miðla hvort sem það er í skólanum hennar, í öðrum skólum eða bara í þjóðfélaginu öllu.

„Við erum held ég fara inn í einhvern nýjan heim, sem er kannski ekki hollur og góður fyrir okkur. Og ég tel að það sé rétt, sem sérfræðingar eru að segja að það er stutt í að það verði sett takmörkun á því hvað við komumst mikið inn á samfélagsmiðla og annað. Þetta er heilsuspillandi. Við þurfum meiri samveru saman og við þurfum að vinna meira með höndunum því sú iðja veitir ákveðna vellíðan og betri heilsu,” segir Bryndís.

Upp á vegg í skólanum er þessi gamli sveitarsími, sem tákn um gamla tíma.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Bryndís segir ekkert mikilvægari en góð heilsa.

„En það sem skortir er núna félagslegi þátturinn í heilsu. Einmanaleiki er að verða eitt stærsta vandamál heilbrigðiskerfisins í dag. Við erum ótrúlega einmana þó við eigum fjölda vina eða fylgjenda á samfélagsmiðlum. Og þessu þurfum við að bregðast við því þetta er líka stór hluti af því að vera heilbrigður og hafa góða heilsu og líða vel,” bætir Bryndís við.

Heimasíða skólans



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×