Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Áslaug Arna bætist í hóp smitaðra ráðherra Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur greinst smituð af kórónuveirunni. Hún segist vonast til að á nýju ári verði hægt að horfa til eðlilegri tíma. 28.12.2021 11:23
836 greindust smitaðir innanlands í gær 836 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei áður hafa svo margir greinst með kórónuveiruna hér á landi á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. 28.12.2021 10:51
Stofnandi og starfsmenn Apple Daily ákærðir fyrir uppreisnaráróður Stofnandi dagblaðsins Apple Daily hefur verið ákærður fyrir uppreisnaráróður af saksóknurum í Hong Kong. Hann hefur þegar verið ákærður fyrir brot á umdeildum öryggislögum sem sögð eru skerða fjölmiðla- og tjáningarfrelsi í héraðinu. 28.12.2021 10:48
Yfir fimm þúsund í eftirliti hjá Covid-göngudeildinni Í dag eru 5.126 einstaklingar í eftirliti hjá Covid-19 göngudeild Landspítalands og fjölgar þeim um 791 á milli daga. 21 liggur inni á Landspítalanum vegna Covid-19. 28.12.2021 10:32
Boeing 737 Max flugvélar fá brátt að fljúga aftur í Indónesíu Þrjú ár eru liðin síðan Boeing 737 Max flugvél hrapaði fyrir utan strendur Java á Indónesíu með 189 innanborðs. Síðan þá hafa vélarnar ekki fengið að fljúga í Indónesíu en það mun brátt breytast. 28.12.2021 10:15
Snjóflóðahætta á Tröllaskaga eftir mikla ofankomu Óvissuástandi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Tröllaskaga. Töluverð snjókoma hefur verið í nótt. 28.12.2021 10:09
Minnst fjórir létust í röð skotárása í Denver Minnst fjórir létust í gær í Koloradó í Bandaríkjunum eftir röð skotárása. Að sögn lögreglu er grunaði árásarmaðurinn látinn en einn lögregluþjónn særðist í árásunum. 28.12.2021 09:05
Kvarta eftir að hafa þurft að færa geimstöðina vegna gervihnatta Musk Yfirvöld í Kína hafa kvartað til Sameinuðu þjóðanna eftir að gervihnettir á vegum SpaceX, geimfyrirtækis auðkýfingsins Elon Musk, voru nærri því að að klessa á kínversku geimstöðina á árinu. 28.12.2021 08:07
Allhvöss norðanátt og drjúg ofankoma á köflum Spáð er norðan- og norðaustanátt í dag og verður strekkingur eða allhvass algengur vindstyrkur. Á norðan- og austanverðu landinu er útlit fyrir snjókomu og gæti orðið nokkuð drjúg ofankoma á köflum. 28.12.2021 07:34
Mæla með styttri einangrun fyrir smitaða sem sýna lítil eða engin einkenni Bandaríska sóttvarnastofnunin hefur ákveðið að mæla með því að stytta einangrun fyrir þá sem greinast með kórónuveiruna en sýna lítil eða engin einkenni niður í fimm daga. Áður var reglan tíu dagar líkt og hér á landi. 28.12.2021 07:17
Skjálfti 3,4 að stærð í morgun Skjálfti 3,4 að stærð varð um fjóra kílómetra norður af Krýsuvík klukkan 6:25 í morgun. Annar skjálfti, rétt rúmlega tveir að stærð, var rúmum tveimur mínútum síðar á sömu slóðum. 28.12.2021 07:06
Frakkar herða sóttvarnareglur Frakkar hafa ákveðið að herða sóttvarnareglur í landinu til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu ómíkronafbrigðis kórónuveirunnar. 28.12.2021 06:47
113 stúdentaíbúðir verða útbúnar á Hótel Sögu Félagsstofnun stúdenta (FS) mun fá fjórðu til sjöundu hæð norðurálmu Hótels Sögu í sinn hlut og verða 113 stúdentaíbúðir útbúnar þar. Þá hefur FS óskað eftir að fá að stunda veitingarekstur á fyrstu hæð hótelsins þar sem hefur verið rekið veitingahús. 28.12.2021 06:43
Gamall bústaður við Elliðavatn brann til kaldra kola Gamall bústaður austan við Elliðavatn brann til kaldra kola í nótt. 28.12.2021 06:18
Stal yfirhöfn með lyklum á veitingahúsi og braust inn á heimilið Tilkynnt var um innbrot, eignaspjöll og stolinn bíl á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að fyrr um kvöldið hafi yfirhöfn hafi verið stolið á veitingahúsi þar sem í voru lyklar að húsi og bíl. 28.12.2021 06:07
Ár hinna ósögðu sagna Eitruð karlmennska, gerendameðvirkni, útilokunarmenning, þolendaskömmun. Þetta eru orð sem reglulega báru á góma á árinu sem nú er að líða, árinu sem MeToo bylgjan tók á sig breytta mynd. 28.12.2021 06:01
Hópsmit hafi verið tímaspursmál Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir á Landspítalanum, hefur áhyggjur af stöðu mála á spítalanum í ljósi fjölda þeirra sem nú greinast smitaðir af kórónuveirunni. Í dag greindust sjö inniliggjandi sjúklingar á hjartadeild smitaðir, Tómas segir það hafa verið tímaspursmál hvenær veiran kæmist inn á spítalann. 28.12.2021 00:06
Takmarkanir ekki hertar: Englendingar fá að djamma um áramót Boris Johnson, forsætisráðherra Englands hefur tilkynnt að sóttvarnatakmarkanir verði ekki hertar fyrir áramót. Fjöldasamkomur verða leyfðar og skemmtanaþyrstir munu geta dansað fram á rauða nýársnótt. 27.12.2021 22:29
Spice fer að narta í hælana á kannabisi hjá Foreldrahúsi Aukning hefur orðið á neyslu unglinga á eiturlyfinu Spice á síðustu tveimur árum. Grunnskólar hafa margir orðið varir við neyslu meðal nemenda sinna en erfitt er að ná utan um umfang vandamálsins því krakkarnir eiga auðvelt með að fela hana. 27.12.2021 22:20
Bjarni Benediktsson með Covid-19 Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra greindist með Covid-19 í dag. Hann hvetur alla til að sýna varkárni vegna útbreiðslu veirunnar í samfélaginu. 27.12.2021 21:32
Fyrsta rafmagnsflugvélin í sögu íslensks flugs komin til landsins Fyrsta rafmagnsflugvél Íslendinga kom til landsins með skipi í dag, innpökkuð í vagni. Þessari litlu tveggja sæta flugvél er ætlað að kynna Íslendingum rafvæðingu flugsins og er vonast til að hún verði komin í flugkennslu með vorinu. 27.12.2021 21:31
Mikið sé gert úr því að landsbyggðarfólk sé rolur og aular Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisfólksins, segir mikið gert úr því í fjölmiðlum og íslenskum kvikmyndum að landsbyggðarfólk sé upp til hópa rolur og aular. Þar vísar hann helst til Verðbúðarinnar, nýrrar þáttaráðar RÚV, sem hann hefur gagnrýnt harðlega í dag. 27.12.2021 21:20
Byrjaði að leika á eldri árum og sló rækilega í gegn Hún var algjör þjóðargersemi, segja vinir Maríu Guðmundsdóttur leikkonu sem lést nýverið eftir veikindi. Henni er lýst sem brjálæðislega fyndinni og skemmtilegri, en á sama tíma auðmjúkri og hógværri. 27.12.2021 21:00
Smitrakningarteymið breytir um taktík Smitrakningarteymið sér fram á að geta ekki lengur hringt í alla sem greinast með veiruna, eins og hingað til hefur alltaf verið gert. Rúmur fjórðungur þeirra sem fóru í sýnatöku við Covid-19 í gær greindust með veiruna, samtals 664. Hlutfallið hefur aldrei verið eins hátt. 27.12.2021 20:16
Rekordowa liczba testowanych i zakażonych W punkcie pobierania próbek na testy metodą PCR na ulicy Suðurlandsbraut, zarejestrowano dziś około 3000 osób. 27.12.2021 20:13
Sjö sjúklingar á hjartadeild greindust smitaðir Sjúklingur á hjartadeild Landspítala greindist smitaður af kórónuveirunni í gær. Í kjölfar skimunar allra inniliggjandi sjúklinga hafa sex greinst til viðbótar. 27.12.2021 19:56
Fer fram á að ríkisstjórnin fordæmi ákvörðun Persónuverndar Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar fer fram á það fyrir hönd fyrirtækisins að ríkisstjórnin lýsi vanþóknun sinni á þeirri ákvörðun Persónuverndar að Íslensk erfðagreining hafi brotið lög með mótefnamælingunum og heiti því að vernda fyrirtækið meðan það leitar réttar síns fyrir dómstólum. 27.12.2021 19:48
Rosnąca aktywność w okolicy Fagrsdalsfjall Zgodnie z informacjami z Islandzkiego Biura Meteorologicznego, rosnąca aktywność sejsmiczna koncentruje się w okolicy Fagrsdalsfjall. 27.12.2021 19:44
Aktywowano telefoniczny system alarmowy Agencja Ochrony Cywilnej i szef policji z Suðurnes aktywowali sms-owy system powiadamiania i ostrzegania przed zagrożeniem ze strony wulkanu na półwyspie Reykjanes. 27.12.2021 19:36
Halda áfram með Allir vinna þrátt fyrir aðvaranir Fjármálaráðuneytið telur að úrræðið Allir vinna geri ríkinu erfiðara fyrir að rétta við hallarekstur sinn og veiki skattkerfið í heild sinni. Þrátt fyrir þetta verður úrræðið framlengt út næsta ár. 27.12.2021 19:00
Grindvíkingar orðnir þreyttir á skjálftahrinunni Jarðskjálftavirkni er enn mikil á Reykjanesi þó hafa jarðskjálftarnir í dag mælst minni að stærð en síðustu daga. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir segir íbúa ýmsu vana en margir séu þó þreyttir á ástandinu. 27.12.2021 18:26
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Smitrakningarteymið sér ekki lengur fram á að geta hringt í alla sem greinast með kórónuveiruna, líkt og gert hefur verið hingað til. Ástæðan er gríðarlegur fjöldi smitaðra, en rúmur fjórðungur þeirra sem fór í sýnatöku í gær reyndist smitaður. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 27.12.2021 18:11
Ísraelar láta reyna á fjórða skammt bóluefnis Hópur heilbrigðisstarfsmanna í Ísrael fékk í dag fjórða skammtinn af bóluefni gegn Covid-19 en um er að ræða tilraunaverkefni sem er ætlað að skera úr um hversu mikla vernd seinni örvunarskammtur veitir gegn ómíkron afbrigðinu. 27.12.2021 18:10
Sjö útköll vegna heimilisofbeldis yfir hátíðirnar Frá hádegi á Þorláksmessu til hádegis í dag fór lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í sjö útköll vegna heimilisofbeldis. 27.12.2021 17:32
Tæplega hundrað manns hafa tekið eigið líf á Covid-tímum Á sama tíma og faraldurinn hefur dregið samtals 37 manns til dauða hafa tæplega hundrað manns tekið eigið líf og fleiri hundruð látist vegna fjölþættra afleiðinga fíknar. 27.12.2021 16:05
Leggja til að Allir vinna verði framlengt að hluta til Meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lagt til að Allir vinna átakið verði framlengt út ágústmánuð næsta árs, með ákveðnum breytingum þó. 27.12.2021 15:50
Beitir neitunarvaldi gegn umdeildum fjölmiðlalögum Andrzej Duda, forseti Póllands, hefur beitt neitunarvaldi sínu gegn umdeildum fjölmiðlalögum sem pólska þingið samþykkti á dögunum og takmörkuðu erlent eignarhald. 27.12.2021 14:33
Talíbanar banna langferðir kvenna Talíbanar hafa bannað afgönskum konum, sem ætla að ferðast langar vegalengdir, að ferðast einar. Rútu- og lestarstjórar mega því ekki hleypa konum inn nema þær séu í fylgd karlkyns ættingja sinna. 27.12.2021 14:31
Ekkert helgihald um áramótin: „Segja má að þetta séu tímamót“ Vegna kórónuveirufaraldursins verður ekkert helgihald í kirkjum landsins um áramótin né annars staðar. Kirkjan segir þetta ekki áður hafa gerst í íslenskri kirkjusögu. 27.12.2021 14:31
Baðst afsökunar á gallabuxunum: „Ég er kominn í ný föt“ Tómas A. Tómasson, betur þekktur sem Tommi á Búllunni en nú þingmaður Flokks fólksins, baðst í dag á þingi afsökunar á því að hafa stigið í ræðustól í gallabuxum á dögunum. 27.12.2021 14:26
Að minnsta kosti tveir inniliggjandi sjúklingar með ómíkron Tveir sjúklingar af þeim fjórtán sem eru nú inniliggjandi á Landspítala eru með ómíkron afbrigði veirunnar en ekki er útilokað að þeir séu fleiri. Mikið álag er nú á göngudeildinni og smitrakningarteymi almannavarna. 27.12.2021 13:51
Handtekinn við Windsor-kastala með lásboga Lögreglan í Bretlandi rannsakar nú myndband sem tengt hefur verið við mann sem handtekinn var vopnaður lásboga í grennd við Windsor-kastala á Jóladag. 27.12.2021 13:49
Aflétta óvissustigi almannavarna vegna Log4j Ríkislögreglustjóri í samráði við netöryggissveit CERT-IS og Fjarskiptastofu aflétt óvissustigi almannavarna vegna Log4j veikleikans. 27.12.2021 13:20
Yngsti þingmaðurinn: „Engar áhyggjur mamma og pabbi“ Yngsti þingmaður Íslandssögunnar tekur sæti á Alþingi í dag, aðeins nítján ára að aldri. Hún segir langþráðan draum vera að rætast, þó foreldrum hennar hafi ekki litist á blikuna í fyrstu. Hún brennur fyrir loftslagsmálum og vill uppræta spillingu í samfélaginu. 27.12.2021 13:18
Nýta reynsluna eftir hópsmitið á Sólvöllum Hópsmit kom upp á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðir í Vestmannaeyjum yfir hátíðirnar en átta starfsmenn og fjórir íbúar hafa nú greinst. Svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum segir viðbúið að fleiri muni greinast á næstu dögum en verið er að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu. 27.12.2021 13:15