Fleiri fréttir

Bótasvik allt að 3,4 milljarðar

Ríkisendurskoðun áætlar að bótasvik í almannatryggingakerfinu geti numið allt að 3,4 milljörðum króna á ári.

Reyndi að bjarga félaga sínum úr fangaklefa

Lögregla tók ungan ökumann úr umferð á Selfossi upp úr miðnætti, þar sem hann reyndist ofurölvi og auk þess réttindalaus. Var hann vistaðaur í fangageymslu til að sofa úr sér.

Íbúar slökktu eld í gasgrilli

Íbúar í húsi í Hvarfahverfinu kölluðu á slökkviliðið í gærkvöldi þar sem þar hafði kviknað í grilli. Þeim hafði tekist að slökkva eldinn áður en liðið kom, en þar sem gaskúturinn var farinn að hitna, tæmdu slökkviliðsmenn hann til öryggis.

Leggja til hækkun á stökum sundmiða

Aðgangseyrir í sundlaugar borgarinnar á að fjármagna 70 prósent rekstrarins, en til þess þarf að auka tekjur um 94 milljónir á ári. Hækka þarf stök gjöld og hætta að gefa eldri borgurum ókeypis í sund, en standa á vörð um stórnotendur og börn.

Fundu marijúana í fórum 16 ára unglings í Eyjum

Tíu grömm af maríjúana fundust í fórum 16 unglings þegar hann kom til Vestmannaeyja með Herjólfi í gærkvöldi. Hann sagðist ekki eiga efnið sjálfur, heldur hafi verð að flytja það fyrir annan.

The Economist útskýrir hornin á hjálmum víkinga

Hagfræðitímaritið The Economist birti nýlega mynd af víkingi með horn á hjálmi sínum á forsíðu sinni. Í framhaldinu töldu ritstjórar tímaritis ástæðu til að útskýra þessa myndbirtingu fyrir lesendum sínum, það er hornin á hjálmi víkingsins.

Miklar vangaveltur um varaformennsku

Steingrímur J. Sigfússon gefur ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku í VG. Fátt getur komið í veg fyrir að varaformaðurinn Katrín Jakobsdóttir taki við formennskunni um næstu helgi. Líklegast að næsti varaformaður verði karlmaður.

Hvað varð um bæjarstjórann?

Guðríður Arnardóttir, fulltrúi Samfylkingar í bæjarráði Kópavogs, lagði þar fram fyrirspurn um afdrif Guðrúnar Pálsdóttur, fyrrverandi bæjarstjóra og stöðu starfslokasamnings hennar.

Konum fjölgar meira en körlum á Íslandi

Konum fjölgaði meira en körlum í fyrra, um 1,4 prósent. Í byrjun árs voru landsmenn alls 321.857 og hafði fjölgað um 2.282 frá sama tíma árið 2012.

Íslendingar verðlaunaðir

Íslenskir vísinda- og tæknimenn eru meðal höfunda átta binda fræðsluverks um endurnýjanlega orku sem hlaut á dögunum hin viðurkenndu PROSE-verðlaun.

Knútur snýr aftur uppstoppaður

Hvítabjörninn Knútur drapst árið 2011 úr alvarlegri heilabólgu, engu að síður lifir frægðarsól hans enn. Nú geta aðdáendur hans tekið kæta sína á ný en Knútur situr nú uppstoppaður á safni í Berlín.

Vegfarendur komu hjónum til bjargar

Hjón voru hætt komin þegar bíll þeirra valt 40 metra niður gil við Bröttubrekku fyrr í dag. Bifreiðin hafnaði þar í á. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi voru það vegfarendur sem komu farþegum bílsins til bjargar.

"Ekki slást við svín í svínastíunni“

"Ég læt ekki áróðursbull og vitleysu stoppa mig. Það er eins gott að hætta þessu bara ef menn hrekjast undan hælbítum með lélegan málstað. Það kemur bara ekki til greina."

Enginn iPhone í platleik

Notendur Facebook kannast vafalaust flestir við þá fjölmörgu leiki, happdrætti og getraunir sem fyrirtæki af ýmsum toga standa þar fyrir. Svo virðist sem að 16 ára gamall piltur hafa fengið sig fullsaddann af þessu. Hann stofnaði prófílinn Apple tæki þar sem fólki var lofað spánýjum iPhone 5 snjallsíma ef það dreifði og "líkaði" við síðuna.

Hátt í 40 féllu í Bagdad

Hátt í fjörutíu fórust og hundrað og þrjátíu aðrir særðust í röð sprengjuárása í austurhluta Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Árásirnar einskorðuðust við hverfi þar sem Sjítar eru í meirihluta.

Landskeppni Íslands og Kína stendur sem hæst

Seinni hálfleikur í landskeppni Íslands og Kína í skák hófst núna klukkan eitt í Arion Banka í Borgartúni. Lið Kínverja er vel skipað og höfðu þeir góða forystu þegar einvígin hófust.

"Við teljum að málið sé komið í öngstræti"

Framsóknarmenn eru tilbúnir að styðja að einstakar breytingar verði gerðar á stjórnarskránni fyrir kosningar en síðan verði vinnu við stjórnarskrárbreytingar haldið áfram á næsta kjörtímabili. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður Framsóknarflokksins.

Formlegri leit að Grétari hætt

Formlegri leit að Grétari Guðfinnssyni hefur verið hætt. Þetta staðfesti lögreglan á Siglufirði í samtali við fréttastofu í dag.

Katrín tekur slaginn

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, hefur ákveðið að gefa kost á sér í formannsembætti flokksins á landsfundi um næstu helgi.

Leyninet fyrirtækja sem stendur að baki hrossakjötshneykslinu

Hrossakjötshneykslið sem skakið hefur Evrópu að undanförnu tók óvænta stefnu í gær. Þá var upplýst að milligönguaðilar við sölu hrossakjöts hafa notað svipað leyninet fyrirtækja og vopnasalinn Viktor Bout studdist við áður en hann var ákærður og dæmdur fyrir ólöglega vopnasölu.

Blóðug krikketkylfa á heimili Pistoriusar

Lögreglan í Suður Afríku fann blóðuga krikketkylfu á heimili hlauparans Oscars Pistoriusar. Pistorius hefur verið í haldi lögreglu frá því á fimmtudag, grunaður um að hafa skotið 29 ára gamla unnustu sína, Reevu Steenkamp, til bana.

Oddsskarð - Opið í austfirsku ölpunum

Skíðasvæðið í Oddsskarði verður opið í dag, frá klukkan tíu til fjögur. Þar eru nú norðaustan þrír metrar á sekúndu og sex stiga frost. Troðinn og þurr snjór.

Líkamsárásir og innbrot

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Grafarholti á ellefta tímanum í gærkvöldi eftir að hann hafði farið inn um dyr á svölum á annari hæð.

Fjórir Outlaws-menn handteknir og kærðir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöld bifreið þar sem grunur lék á að bílstjóri væri undir áhrifum fíkniefna. Fjórir menn voru í bílnum og voru þeir allir í bolum merktir bifhjólasamtökunum Outlaws.

Meint ólögmæti verðtryggingar næði aðeins til neytendalána

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins telur að lagaákvæði um verðtryggingu í íslenskum lögum gangi í berhögg við tilskipun Evrópusambandssins um neytendalán. Tilskipunin nær ekki til íbúðalána en hægt væri að byggja á henni í máli vegna veðtryggðra bílalána að mati lögmanns.

Stjórnarflokkarnir tilbúnir í breytingar

Til greina kemur að taka út einstök ákvæði í stjórnarskrárfrumvarpinu til að koma til móts við umsagnir Feneyjarnefndarinnar. Þingmenn stjórnarflokkanna hafa fundað um málið án niðurstöðu. Báðir stjórnarflokkarnir vilja klára málið á yfirstandandi þingi en fáir þingdagar eru eftir.

Tippari vann 28 milljónir

Íslendingur vann rúmar 28 milljónir á getraunarseðil sinn í Enska boltanum. Þetta er einn hæst vinningur sem Íslendingur hefur unnið frá upphafi getrauna á Íslandi.

Marco Reus gerði þrennu í sigri Dortmund

Sjö leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og þar ber helst að nefna góður sigur Dortmund á Eintracht Frankfurt 3-0 en Marco Reus gerði öll mörkin fyrir heimamenn í leiknum.

Kallað eftir ábyrgð forystumannanna

Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir að sú ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar að hætta sem formaður VG komi sér á óvart, en þó ekki að öllu leyti.

Ákvörðun Steingríms stórtíðindi

"Þetta eru auðvitað stórtíðindi," segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Vinstri Grænna. Eins og greint hefur verið frá hefur Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og formaður Vinstri Grænna, ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs á landsfundi flokksins um næstu helgi.

Steingrímur hættir sem formaður VG

"Ég mun ekki gefa kost á mér til endurkjörs sem formaður á landsfundi í 22 til 24 febrúar." Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, í Norræna Húsinu nú fyrir stundu.

Hryllingur í Pakistan

Hátt í fimmtíu fórust þegar sprengja sprakk á grænmetismarkaði í suðvesturhluta Pakistan fyrr í dag. Sextíu aðrir særðust, margir lífshættulega.

Sjá næstu 50 fréttir