Fleiri
Drög lögð að uppbyggingu 16.2.2013 06:00 Olli uppnámi og skelfingu Hundruð manna særðust þegar tíu tonna loftsteinn splundraðist yfir Úralfjöllum. Þrettán þúsund sinnum þyngra smástirni fór einnig nálægt jörðu. 16.2.2013 06:00 Hvetja aðildarfélög til að hætta að borga Samtök félaga í velferðarþjónustu hvetja aðildarfélög sín til að skoða að hætta að borga áfallnar lífeyrisskuldbindingar. Telja ríkið skulda sér 1,5 milljarða króna og að ógreiddar áfallnar skuldbindingar séu um fimm til sex milljarðar hið minnsta. 16.2.2013 06:00 Mál íslenska smyglhringsins tútnar út Guðmundur Ingi Þóroddsson og gengi hans eru ekki lengur bara undir grun um smygl á 34 kílóum af amfetamíni, heldur 51 kílói. Tveir til viðbótar voru handteknir í gær og eru nú fjórtán manns í haldi vegna málsins, þar af tíu Íslendingar. 16.2.2013 06:00 Flestir hættu við uppsögn Yfir 80 prósent þeirra um 300 hjúkrunarfræðinga sem sagt höfðu upp störfum á LSH höfðu í gær dregið uppsögn sína til baka. Stéttarfélagið Efling fer eftir helgina fram á viðræður um kjör sinna félagsmanna. 16.2.2013 06:00 Færri slasast við störf eftir hrun Tilkynnt vinnuslys sem leiddu til fjarveru frá vinnu voru rúmlega 1.300 árið 2011. Slysum fækkað um þriðjung frá hruni. Helsta skýringin samdráttur í byggingariðnaði. Eftirlitsmönnum fækkað vegna sparnaðar. Auknar forvarnir nauðsynlegar. 16.2.2013 06:00 Mun fremur Íslendingar sem loka Miklar áhyggjur voru af því að Lamprecht myndi loka Heiðardalnum. Þær áhyggjur hafa ekki ræst og einu girðingarnar sem settar hafa verið upp lúta að skógrækt. Sveitarstjóri segir erlent eignarhald ekki vandamál en vonbrigði séu að áform um uppbyggingu haf 16.2.2013 06:00 Serena í sögubækurnar Serena Williams mun í næstu viku endurheimta efsta sæti heimslistans í tennis og verða þar með elsta kona sögunnar til að ná þeim árangri. 15.2.2013 23:06 Eldur í strætóskýli Slökkvilið var kallað að strætóskýli við Fjallkonuveg í Grafarvogi í dag þar sem lítils háttar eldur logaði. 15.2.2013 18:41 Ef einhver vill horfa á klám þá getur hann nálgast klám "Ef einhver vill af ásettu ráði horfa á klám á netinu, þá mun viðkomandi nálgast klám á netinu. Engar tæknilegar lausnir á netinu geta stöðvað viðkomandi, burtséð frá því að slökkva hreinlega á netinu. En ef markmiðið er að koma í veg fyrir að einhver hópur fólks sjái klám óvart, til dæmis krakkar, þá eru til tæknilegar leiðir til að hjálpa til við slíkt," segir lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. 15.2.2013 16:58 Fjöldi slasaðra tvöfaldast Talið er að um 950 manns hafi slasast þegar loftsteinn eða þyrping loftsteina sprakk yfir borginni Chelyabinsk nærri Úralfjöllum í Rússlandi. 15.2.2013 16:44 Loksins mynd af Hugo Chavez Ríkisstjórnin í Venesúela hefur birt fyrstu myndirnar af Hugo Chavez síðan hann gekkst undir uppskurð á Kúbu fyrir rúmlega tveimur mánuðum. 15.2.2013 16:16 Klæddu sig úr öllum fötunum og hlupu í kringum stjórnarráðið Tveir kviknaktir menn sáust á harðahlaupum á lóð stjórnarráðsins í Lækjargötu í nótt. Á Facebook-síðu lögreglunnar segir að óljóst sé hvað mönnunum gekk til "en þó má fullvíst telja að þeir voru ekki á leið á ríkisstjórnarfund,“ segir á síðunni. 15.2.2013 16:15 Um 80% hafa dregið uppsögn tilbaka Erna Einarsdóttir, starfsmannastjóri Landspítalans, segir um 80% þeirra hjúkrunarfræðinga sem sögðu upp störfum í desember hafa dregið uppsögn sína tilbaka. 15.2.2013 16:07 Áfram í gæsluvarðhaldi Karl á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. febrúar í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli. 15.2.2013 15:42 Íslenskir fangar í Danmörku grunaðir um aðild að smygli Tveir Íslendingar sem afplána nú fimm og átta ára fangelsi í Danmörku fyrir fimm kílóa e-töflusmygl eru líka grunaðir um aðild að stóra amfetamínsmyglinu sem danska lögreglan hefur rannsakað um nokkurra mánaða bil. Mennirnir eru 25 og 37 ára gamlir. 15.2.2013 15:13 Fastur á 200 í klukkutíma Var kominn 160 km frá heimili sínu þegar bensínið kláraðist. Reyndi ekki að skipta bílnum úr "Drive" í "Neutral". 15.2.2013 15:00 Neitar að hafa myrt kærustuna Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag. 15.2.2013 14:44 Sjá næstu 50 fréttir
Tippari vann 28 milljónir Íslendingur vann rúmar 28 milljónir á getraunarseðil sinn í Enska boltanum. Þetta er einn hæst vinningur sem Íslendingur hefur unnið frá upphafi getrauna á Íslandi. 16.2.2013 19:31
Marco Reus gerði þrennu í sigri Dortmund Sjö leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og þar ber helst að nefna góður sigur Dortmund á Eintracht Frankfurt 3-0 en Marco Reus gerði öll mörkin fyrir heimamenn í leiknum. 16.2.2013 19:21
Kallað eftir ábyrgð forystumannanna Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur segir að sú ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar að hætta sem formaður VG komi sér á óvart, en þó ekki að öllu leyti. 16.2.2013 17:48
Ákvörðun Steingríms stórtíðindi "Þetta eru auðvitað stórtíðindi," segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Vinstri Grænna. Eins og greint hefur verið frá hefur Steingrímur J. Sigfússon, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og formaður Vinstri Grænna, ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs á landsfundi flokksins um næstu helgi. 16.2.2013 16:46
Steingrímur hættir sem formaður VG "Ég mun ekki gefa kost á mér til endurkjörs sem formaður á landsfundi í 22 til 24 febrúar." Þetta sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, í Norræna Húsinu nú fyrir stundu. 16.2.2013 16:03
Hryllingur í Pakistan Hátt í fimmtíu fórust þegar sprengja sprakk á grænmetismarkaði í suðvesturhluta Pakistan fyrr í dag. Sextíu aðrir særðust, margir lífshættulega. 16.2.2013 15:30
Nýr páfi skipaður fyrr en áætlað var Líkur eru á að páfakjörsfundi verði flýtt, þetta tilkynnti talsmaður Páfagarðs, séra Federico Lombardi, í dag. Eins og greint var frá fyrr í vikunni mun Benedikt páfi sextándi láta af embætti í lok mánaðar. 16.2.2013 15:14
Vetraríþróttir vinsælar fyrir norðan Vetraríþróttahátíðin Éljagangur er haldin í þriðja sinn á Akureyri um helgia. 16.2.2013 14:45
Fjölmennt lið leitar Grétars Hátt í sextíu manns taka nú þátt í leitinni að Grétari Guðfinnssyni á Siglufirði. Ekkert hefur spurst til hans frá 6. febrúar síðastliðnum. 16.2.2013 14:38
"Við erum auðvitað í rusli yfir þessu öllu" Íslenskir vinir íþróttahetjunnar Oscars Pistorius eru harmi slegnir eftir voðaverkið á miðvikudagsnótt. Honum er lýst sem ljúfum og góðum dreng sem hafi reynst fjölskyldunni vel. Pistorius hágrét þegar saksóknari las honum ákæru fyrir morð. 16.2.2013 14:28
Steingrímur boðar til blaðamannafundar Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, hefur boðað til blaðamannafundar í Norræna Húsinu klukkan fjögur í dag. 16.2.2013 14:15
Innbrot, slagsmál og fíkniefnaakstur Brotist var inn í verslun í Breiðholti á sjötta tímanum í nótt. Innbrotsþjófarnir brutu þar rúðu og rændu sígarettum. Ekki er vitað hversu mikið af sígarettum ræningjarnir höfðu á brott með sér. 16.2.2013 13:53
Sónar hátíðin fór vel af stað - miðum bætt við fyrir kvöldið Sónar hátíðin í Reykjavík hófst í gær með miklum látum í Hörpu. Svo virðist sem að eftirspurn eftir miðum í kvöld sé gríðarleg. 16.2.2013 13:36
Þörf á hertari eftirliti með bótasvikum Bótasvik í almannatryggingakerfinu eru afar sjaldan kærð til lögreglu og greiðsluþegi hefur aldrei hlotið dóm fyrir slíkt brot. Talið er að svikin hafi numið allt að þremur komma fjórum milljörðum króna árið tvö þúsund og ellefu. Forstjóri Tryggingastofnunar segir það vera nokkuð ljóst að Íslendingar eigi langt í land í þessum efnum, þá sérstaklega í samanburði við Norðurlöndin. 16.2.2013 13:25
Jón Gnarr vefhetja ársins á NEXPO Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, var í gær valinn Vefhetja ársins á NEXPO verðlaununum. Að mati valnefndar hefur Jón sýnt einstakt fordæmi varðandi hegðun og notkun á samfélagsmiðlum og raun umbylt þankagangi heillar þjóðar með Facebook síðu sinni. 16.2.2013 13:15
„Jarðhiti er ekki bara rafmagn“ Mikil tækifæri felast í frekari nýtingu á jarðhita á Íslandi. Aðstoðarforstjóri HS orku, segir rangt að líta aðeins á jarðhita sem rafmagn því svo ótal önnur verðmæti felist í honum eins og starfsemin í Svartsengi sýni. 16.2.2013 12:12
Vöxtur Volkswagen 14,9% í janúar Salan hjá Seat óx mest en hún minnkaði hjá Skoda milli ára. Góð sala í Kína og Bandaríkjunum dregur vagninn. 16.2.2013 11:30
Nike íhugar að hætta samstarfi við Pistorius Nike íhugar nú að hætta samstarfi við suður-afríska spretthlauparann Oscar Pistorius en hann sætir nú ákæru fyrir að hafa skotið kærustu sína, fyrirsætuna, Reevu Steenkamp á heimili þeirra í Pretoríu í Suður-Afríku. 16.2.2013 10:39
Æfðu viðbrögð við gróðureldum í Skorradal Ríkislögreglustjóri og aðrir viðbragðsaðilar í Borgarfirði héldu umfangsmikla skrifborðsæfingu síðastliðinn miðvikudag. Á æfingunni var líkt eftir miklum gróðureldum í Skorradal. 16.2.2013 10:18
Mögulegt að einstakir kaflar stjórnarskrárfrumvarpsins verði teknir út Þingflokkar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar funduðu í gær um stjórnarskrármálið. Engin ákvörðun var hins vegar tekin um að taka út kafla um stjórnkerfið í stjórnarskrárfrumvarpinu, en þeir kaflar hafa verið hvað mest gagnrýndir, m.a af sérfræðingum Feneyjarnefndarinnar. 16.2.2013 09:56
Af hverju eru Rússar með upptökuvélar á mælaborðinu? Í ótrúlegum myndskeiðum frá loftsteinahrapinu í Úralfjöllum í gærmorgun sést að óvenjumargir ökumenn í Rússlandi eru með upptökuvélar á mælaborðinu í bílnum. Þetta á sér útskýringu. 16.2.2013 09:45
Krafturinn á við 20 kjarnorkusprengjur Umfangsmiklar rannsóknir á loftsteinahrapinu yfir borginni Chelyabinsk við Úralfjöll í Rússlandi eru hafnar. Hátt í tuttugu þúsund manns vinna nú að rannsóknarstörfum á svæðinu. 16.2.2013 09:38
Lýst eftir góðum verkum Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins á vefnum Vísir.is (visir.is/samfelagsverdlaun) en verðlaunin verða veitt í áttunda sinn í apríl. Sem fyrr er hægt að tilnefna til verðlaunanna í fimm flokkum. 16.2.2013 06:00
Reglur vantar um jarðnot á Íslandi Svisslendingurinn Rudolph Walter Lamprecht á nú allan Heiðardal við Mýrdal og jarðir í Álftafirði. Hann hefur staðið fyrir umfangsmikilli skógrækt í Heiðardal og vill endurheimta votlendi. Hann segir náttúruvernd hafa rekið hann til að eyða stórfé í íslenskt land. 16.2.2013 06:00
Stjórn kolfallin í fylgiskönnun Allt stefnir í stjórnarskipti í Noregi eftir þingkosningar í haust, miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar. 16.2.2013 06:00
Setjast yfir kostnað vegna síldardauðans Ríkisstjórnin samþykkti í gær að starfshópur ráðuneyta vegna síldardauðans í Kolgrafafirði ynni tillögur til ríkisstjórnar um útgjöld vegna þeirra verkefna sem ráðast þarf í. 16.2.2013 06:00
Stór íbúðahús reist við Mánatún Viðskipti Fulltrúar MP banka, Klasa ehf. og Sveinbjörns Sigurðssonar verktaka tóku í gær skóflustungu að stærstu nýframkvæmd við íbúðahúsnæði frá bankahruni. 16.2.2013 06:00
Olli uppnámi og skelfingu Hundruð manna særðust þegar tíu tonna loftsteinn splundraðist yfir Úralfjöllum. Þrettán þúsund sinnum þyngra smástirni fór einnig nálægt jörðu. 16.2.2013 06:00
Hvetja aðildarfélög til að hætta að borga Samtök félaga í velferðarþjónustu hvetja aðildarfélög sín til að skoða að hætta að borga áfallnar lífeyrisskuldbindingar. Telja ríkið skulda sér 1,5 milljarða króna og að ógreiddar áfallnar skuldbindingar séu um fimm til sex milljarðar hið minnsta. 16.2.2013 06:00
Mál íslenska smyglhringsins tútnar út Guðmundur Ingi Þóroddsson og gengi hans eru ekki lengur bara undir grun um smygl á 34 kílóum af amfetamíni, heldur 51 kílói. Tveir til viðbótar voru handteknir í gær og eru nú fjórtán manns í haldi vegna málsins, þar af tíu Íslendingar. 16.2.2013 06:00
Flestir hættu við uppsögn Yfir 80 prósent þeirra um 300 hjúkrunarfræðinga sem sagt höfðu upp störfum á LSH höfðu í gær dregið uppsögn sína til baka. Stéttarfélagið Efling fer eftir helgina fram á viðræður um kjör sinna félagsmanna. 16.2.2013 06:00
Færri slasast við störf eftir hrun Tilkynnt vinnuslys sem leiddu til fjarveru frá vinnu voru rúmlega 1.300 árið 2011. Slysum fækkað um þriðjung frá hruni. Helsta skýringin samdráttur í byggingariðnaði. Eftirlitsmönnum fækkað vegna sparnaðar. Auknar forvarnir nauðsynlegar. 16.2.2013 06:00
Mun fremur Íslendingar sem loka Miklar áhyggjur voru af því að Lamprecht myndi loka Heiðardalnum. Þær áhyggjur hafa ekki ræst og einu girðingarnar sem settar hafa verið upp lúta að skógrækt. Sveitarstjóri segir erlent eignarhald ekki vandamál en vonbrigði séu að áform um uppbyggingu haf 16.2.2013 06:00
Serena í sögubækurnar Serena Williams mun í næstu viku endurheimta efsta sæti heimslistans í tennis og verða þar með elsta kona sögunnar til að ná þeim árangri. 15.2.2013 23:06
Eldur í strætóskýli Slökkvilið var kallað að strætóskýli við Fjallkonuveg í Grafarvogi í dag þar sem lítils háttar eldur logaði. 15.2.2013 18:41
Ef einhver vill horfa á klám þá getur hann nálgast klám "Ef einhver vill af ásettu ráði horfa á klám á netinu, þá mun viðkomandi nálgast klám á netinu. Engar tæknilegar lausnir á netinu geta stöðvað viðkomandi, burtséð frá því að slökkva hreinlega á netinu. En ef markmiðið er að koma í veg fyrir að einhver hópur fólks sjái klám óvart, til dæmis krakkar, þá eru til tæknilegar leiðir til að hjálpa til við slíkt," segir lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. 15.2.2013 16:58
Fjöldi slasaðra tvöfaldast Talið er að um 950 manns hafi slasast þegar loftsteinn eða þyrping loftsteina sprakk yfir borginni Chelyabinsk nærri Úralfjöllum í Rússlandi. 15.2.2013 16:44
Loksins mynd af Hugo Chavez Ríkisstjórnin í Venesúela hefur birt fyrstu myndirnar af Hugo Chavez síðan hann gekkst undir uppskurð á Kúbu fyrir rúmlega tveimur mánuðum. 15.2.2013 16:16
Klæddu sig úr öllum fötunum og hlupu í kringum stjórnarráðið Tveir kviknaktir menn sáust á harðahlaupum á lóð stjórnarráðsins í Lækjargötu í nótt. Á Facebook-síðu lögreglunnar segir að óljóst sé hvað mönnunum gekk til "en þó má fullvíst telja að þeir voru ekki á leið á ríkisstjórnarfund,“ segir á síðunni. 15.2.2013 16:15
Um 80% hafa dregið uppsögn tilbaka Erna Einarsdóttir, starfsmannastjóri Landspítalans, segir um 80% þeirra hjúkrunarfræðinga sem sögðu upp störfum í desember hafa dregið uppsögn sína tilbaka. 15.2.2013 16:07
Áfram í gæsluvarðhaldi Karl á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. febrúar í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli. 15.2.2013 15:42
Íslenskir fangar í Danmörku grunaðir um aðild að smygli Tveir Íslendingar sem afplána nú fimm og átta ára fangelsi í Danmörku fyrir fimm kílóa e-töflusmygl eru líka grunaðir um aðild að stóra amfetamínsmyglinu sem danska lögreglan hefur rannsakað um nokkurra mánaða bil. Mennirnir eru 25 og 37 ára gamlir. 15.2.2013 15:13
Fastur á 200 í klukkutíma Var kominn 160 km frá heimili sínu þegar bensínið kláraðist. Reyndi ekki að skipta bílnum úr "Drive" í "Neutral". 15.2.2013 15:00
Neitar að hafa myrt kærustuna Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag. 15.2.2013 14:44